Morgunblaðið - 31.12.2012, Side 26
26 STJÓRNMÁL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012
M
ikill árangur hefur verið af uppbyggingar-
starfinu eftir hrun. Enn er þó verk að vinna,
enn þarf að byggja upp og treysta innviðina,
velferðina og byggðina í landinu. Við verðum
að losa okkur úr álögum gjaldeyrishaftanna,
ljúka uppgjöri fallinna fjármálastofnana og ná samstöðu um
framtíðargjaldmiðil þjóðarinnar. Við megum ekki þrengja
kosti okkar með óbilgjarnri einangrunarhyggju. Auknar
fjárfestingar byggjast ekki síst á alþjóðlegu samstarfi.
Reglulega berast fréttir frá erlendum fjölmiðlum sem
taka eftir árangrinum og stofnanir á borð við OECD og
Norðurlandaráð færa þennan margvíslega árangur til bókar
með samanburði á helstu hagvísum þjóðanna. Fréttirnar
endurspegla þverrandi fjárlagahalla, stöðugan hagvöxt,
minnkandi atvinnuleysi, aukinn kaupmátt, minnkandi skuld-
ir, minni ójöfnuð og aukið lánshæfi.
Fólki verður líka æ ljósara að róttæk frjálshyggja leiðir
til ójafnaðar líkt og gerðist á löngum stjórnarferli Sjálf-
stæðisflokksins. Afgerandi umskipti urðu eftir að ríkisstjórn
Samfylkingarinnar og VG tók við stjórnartaumunum og nú
er Ísland í hópi þeirra landa í Evrópu þar sem ójöfnuðurinn
er hvað minnstur.
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn fór frá völdum hafði ójöfn-
uður og stéttaskipting í samfélaginu aukist til muna enda
gekk þeirra pólitíska stefna út á það leynt og ljóst. Þetta
hefur gjörbreyst. Séu fjármagnstekjur taldar með hefur
ójöfnuður ráðstöfunartekna í landinu minnkað um tæpan
helming frá árinu 2007.
Sjálfstæðismenn tala með lítilsvirðingu um aðgerðir til að
draga úr ójöfnuði, heimta skattalækkanir fyrir þá sem hafa
rúmt handa á milli og tala fyrir einkavæðingu líkt og áður.
Þeir voru helstu talsmenn frjálshyggju fram að hruni og eru
það enn.
Lærum af reynslunni
Snemma í nóvember samþykkti Alþingi þingsályktunar-
tillögu um rannsókn á einkavæðingu bankanna. Mikilvægt
er að sú rannsókn fari fram enda er talið að þar liggi rætur
bankahrunsins að verulegu leyti. Sjálfstæðisflokkurinn
barðist gegn rannsókninni enda virðist hann ekkert hafa
lært og einskis iðrast, þó blasir það við að hrunið og afleið-
ingar þess eru skilgetin arfleifð stjórnarstefnu Sjálfstæðis-
flokksins – ekki síst þess tímabils þegar núverandi ritstjóri
Morgunblaðsins stýrði málum í Stjórnarráði Íslands og
Seðlabankanum.
Á síðasta heila ári Sjálfstæðisflokksins við völd varð 216
milljarða króna halli á ríkissjóði en á næsta ári verður hall-
inn tæpir fjórir milljarðar. Samanlagður halli ríkissjóðs
vegna stjórnleysis Sjálfstæðisflokksins er yfir 540 milljarðar
króna og kostnaður ríkisins við gjaldþrot Seðlabankans und-
ir forystu sjálfstæðismanna um 270 milljarðar króna. Sam-
anlagt hljóðar þessi reikningur Sjálfstæðisflokksins upp á
rúmlega 1,6 milljónir króna á hvern Íslending. Á vakt sjálf-
stæðismanna hrundu auk þess 90% af fjármálamarkaðinum,
verðbólga fór upp í tæp 19% og gengi krónunnar féll um
50%. Eftir að ríkisstjórn mín tók við hafa umskiptin verið
afgerandi. Núna er hagvöxtur á Íslandi meiri en víðast ann-
ars staðar í Evrópu og verðbólgan ekki fjórðungur af því
sem áður var.
Óstjórn sjálfstæðismanna í fjármálum bitnar ekki aðeins
á ríkissjóði heldur einnig almenningi beint. Kaupmáttur
heimila hrundi. Sé tímabilið 2008-2010 borið saman við
2009-2011 sést að ráðstöfunartekjur hafa hækkað meira en
neysluútgjöld og ríkið tekur nú minna til sín af þjóðarkök-
unni en í tíð Sjálfstæðisflokksins og ver stærri hluta hennar
til velferðarmála. Um 60% allra heimila eru með lægri eða
sömu skattbyrði og þau voru með fyrir hrun. Í tíð Sjálf-
stæðisflokkins jókst hins vegar skattbyrði almennings til
muna. Á árinu 2011 voru skattar á Norðurlöndum lægstir á
Íslandi sem hlutfall af landsframleiðslu.
Goðsögnin og hagstjórnin
Skuldir heimila og fyrirtækja jukust einnig vegna óstjórn-
ar sjálfstæðismanna en nú hafa þær lækkað sem nemur um
tvöfaldri landsframleiðslu á einungis þremur árum. Rétt
rúmlega 200 milljarðar króna hafa verið afskrifaðir af lánum
heimilanna og niðurgreiðsla ríkisins á vaxtakostnaði heim-
ilanna hefur verið meira en tvöfölduð. Á síðasta ári stóðu
vaxtabætur undir um 35% vaxtakostnaðar vegna húsnæð-
islána og hjá tekjulægstu 10% heimila nálægt 45%.
Hagvaxtarhorfur hér á landi eru bjartari en meðal ann-
arra iðnvæddra ríkja. Hagvöxtur hefur verið mestur hér á
landi undanfarin tvö ár meðal þróaðra OECD-ríkja. Það er
góður árangur sem ástæða er til að gleðjast yfir.
Goðsögnin um ráðdeild sjálfstæðismanna í hagstjórn ætti
því að vera endanlega dauð. Staðreyndirnar sýna svart á
hvítu að það skiptir miklu máli fyrir Íslendinga hvort sjálf-
stæðismenn eða jafnaðarmenn eru við stjórnvölinn.
Auðlindir í eigu þjóðar
Undanfarin ár hefur sjávarútvegurinn notið gengisfalls
krónunnar eins og aðrar útflutningsgreinar og árleg fram-
legð greinarinnar verið 70 til 75 milljarðar króna undanfarin
tvö ár. Af þessari miklu framlegð í greininni á veiðigjaldið
að skila landsmönnum allt að 13 milljörðum króna á næsta
ári. Almenningur nýtur því loksins arðs af auðlind sinni en
mikilvægt er að ná fram enn frekari breytingum á stjórn
fiskveiða sem tryggja betur nýliðun og jafnræði í greininni.
Með sérstakri fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar er
þeim vilja lýst að þennan arð skuli nota að umtalsverðu leyti
til að treysta innviði samfélagsins og örva nýsköpun í at-
vinnulífinu með tvöföldun á framlagi í vísinda og tæknisjóði
ásamt því að veita umtalsvert fjármagn í skapandi greinar
og græna atvinnusköpun. Þannig er hafin ný sókn fjöl-
breyttara og sterkara atvinnulífs, sem tryggir betur at-
vinnumöguleika í framtíðinni, ekki síst unga fólksins.
Vísbendingar sýna að hugverkaiðnaðurinn skilar nú
þjóðarbúinu 20% af gjaldeyristekjum þess og vöxtur í þess-
um greinum hafi verið umfram hagkerfið í heild.
Í byrjun næsta árs verður lögfest á Alþingi rammaáætlun
um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Samþykkt hennar felur
í sér breytt vinnubrögð þar sem pólitískt handafl stjórn-
valda heyrir sögunni til, en viðskiptaleg og umhverfisvæn
sjónarmið ráða ferðinni.
Hvað varð um kjarkinn?
Það hefur ætíð verið sannfæring mín að rík aðkoma fólks-
ins í landinu sé forsenda þess að unnt verði að ná fram
heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. Tillögu þar að lút-
andi lagði ég fyrir Alþingi þegar árið 1994. Í tíð núverandi
ríkisstjórnar mótaði Alþingi loks aðferðir sem miðuðu að
þessu. Þær voru metnaðarfullar og þinginu til sóma.
Nú liggur fyrir heildstæð tillaga um breytta stjórnarskrá.
Og þá er líkt og eitthvert kjarkleysi grípi um sig í her-
búðum stjórnarandstöðunnar og ekki laust við að örli á van-
trausti í garð kjósenda eða þeirra sem kjósendur og þing
völdu til verka. Sama virðist eiga við um aðildarumsóknina
að ESB. Þar leggur stjórnarandstaðan allt kapp á að koma í
veg fyrir að þjóðin hafi síðasta orðið um fullbúinn samning í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Við verðum að hafa kjark til þess að horfast í augu við
okkur sjálf og marka okkur leið inn í framtíðina. Það fer
best á því að þjóðin hafi sjálf síðasta orðið um þessi mik-
ilvægu mál, hvort heldur það snýr að stjórnskipan landsins
eða sambúðinni við mikilvægustu viðskiptalönd okkar og
Evrópu alla.
Ég óska landsmönnum öllum gæfu og góðs gengis á kom-
andi ári.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar
Morgunblaðið/Kristinn
Framtíð án frjálshyggju
Afgerandi umskipti urðu eftir að ríkisstjórn
Samfylkingarinnar og VG tók við stjórnar-
taumunum og nú er Ísland í hópi þeirra
landa í Evrópu þar sem ójöfnuðurinn er
hvað minnstur.“