Morgunblaðið - 31.12.2012, Page 26

Morgunblaðið - 31.12.2012, Page 26
26 STJÓRNMÁL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012 M ikill árangur hefur verið af uppbyggingar- starfinu eftir hrun. Enn er þó verk að vinna, enn þarf að byggja upp og treysta innviðina, velferðina og byggðina í landinu. Við verðum að losa okkur úr álögum gjaldeyrishaftanna, ljúka uppgjöri fallinna fjármálastofnana og ná samstöðu um framtíðargjaldmiðil þjóðarinnar. Við megum ekki þrengja kosti okkar með óbilgjarnri einangrunarhyggju. Auknar fjárfestingar byggjast ekki síst á alþjóðlegu samstarfi. Reglulega berast fréttir frá erlendum fjölmiðlum sem taka eftir árangrinum og stofnanir á borð við OECD og Norðurlandaráð færa þennan margvíslega árangur til bókar með samanburði á helstu hagvísum þjóðanna. Fréttirnar endurspegla þverrandi fjárlagahalla, stöðugan hagvöxt, minnkandi atvinnuleysi, aukinn kaupmátt, minnkandi skuld- ir, minni ójöfnuð og aukið lánshæfi. Fólki verður líka æ ljósara að róttæk frjálshyggja leiðir til ójafnaðar líkt og gerðist á löngum stjórnarferli Sjálf- stæðisflokksins. Afgerandi umskipti urðu eftir að ríkisstjórn Samfylkingarinnar og VG tók við stjórnartaumunum og nú er Ísland í hópi þeirra landa í Evrópu þar sem ójöfnuðurinn er hvað minnstur. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn fór frá völdum hafði ójöfn- uður og stéttaskipting í samfélaginu aukist til muna enda gekk þeirra pólitíska stefna út á það leynt og ljóst. Þetta hefur gjörbreyst. Séu fjármagnstekjur taldar með hefur ójöfnuður ráðstöfunartekna í landinu minnkað um tæpan helming frá árinu 2007. Sjálfstæðismenn tala með lítilsvirðingu um aðgerðir til að draga úr ójöfnuði, heimta skattalækkanir fyrir þá sem hafa rúmt handa á milli og tala fyrir einkavæðingu líkt og áður. Þeir voru helstu talsmenn frjálshyggju fram að hruni og eru það enn. Lærum af reynslunni Snemma í nóvember samþykkti Alþingi þingsályktunar- tillögu um rannsókn á einkavæðingu bankanna. Mikilvægt er að sú rannsókn fari fram enda er talið að þar liggi rætur bankahrunsins að verulegu leyti. Sjálfstæðisflokkurinn barðist gegn rannsókninni enda virðist hann ekkert hafa lært og einskis iðrast, þó blasir það við að hrunið og afleið- ingar þess eru skilgetin arfleifð stjórnarstefnu Sjálfstæðis- flokksins – ekki síst þess tímabils þegar núverandi ritstjóri Morgunblaðsins stýrði málum í Stjórnarráði Íslands og Seðlabankanum. Á síðasta heila ári Sjálfstæðisflokksins við völd varð 216 milljarða króna halli á ríkissjóði en á næsta ári verður hall- inn tæpir fjórir milljarðar. Samanlagður halli ríkissjóðs vegna stjórnleysis Sjálfstæðisflokksins er yfir 540 milljarðar króna og kostnaður ríkisins við gjaldþrot Seðlabankans und- ir forystu sjálfstæðismanna um 270 milljarðar króna. Sam- anlagt hljóðar þessi reikningur Sjálfstæðisflokksins upp á rúmlega 1,6 milljónir króna á hvern Íslending. Á vakt sjálf- stæðismanna hrundu auk þess 90% af fjármálamarkaðinum, verðbólga fór upp í tæp 19% og gengi krónunnar féll um 50%. Eftir að ríkisstjórn mín tók við hafa umskiptin verið afgerandi. Núna er hagvöxtur á Íslandi meiri en víðast ann- ars staðar í Evrópu og verðbólgan ekki fjórðungur af því sem áður var. Óstjórn sjálfstæðismanna í fjármálum bitnar ekki aðeins á ríkissjóði heldur einnig almenningi beint. Kaupmáttur heimila hrundi. Sé tímabilið 2008-2010 borið saman við 2009-2011 sést að ráðstöfunartekjur hafa hækkað meira en neysluútgjöld og ríkið tekur nú minna til sín af þjóðarkök- unni en í tíð Sjálfstæðisflokksins og ver stærri hluta hennar til velferðarmála. Um 60% allra heimila eru með lægri eða sömu skattbyrði og þau voru með fyrir hrun. Í tíð Sjálf- stæðisflokkins jókst hins vegar skattbyrði almennings til muna. Á árinu 2011 voru skattar á Norðurlöndum lægstir á Íslandi sem hlutfall af landsframleiðslu. Goðsögnin og hagstjórnin Skuldir heimila og fyrirtækja jukust einnig vegna óstjórn- ar sjálfstæðismanna en nú hafa þær lækkað sem nemur um tvöfaldri landsframleiðslu á einungis þremur árum. Rétt rúmlega 200 milljarðar króna hafa verið afskrifaðir af lánum heimilanna og niðurgreiðsla ríkisins á vaxtakostnaði heim- ilanna hefur verið meira en tvöfölduð. Á síðasta ári stóðu vaxtabætur undir um 35% vaxtakostnaðar vegna húsnæð- islána og hjá tekjulægstu 10% heimila nálægt 45%. Hagvaxtarhorfur hér á landi eru bjartari en meðal ann- arra iðnvæddra ríkja. Hagvöxtur hefur verið mestur hér á landi undanfarin tvö ár meðal þróaðra OECD-ríkja. Það er góður árangur sem ástæða er til að gleðjast yfir. Goðsögnin um ráðdeild sjálfstæðismanna í hagstjórn ætti því að vera endanlega dauð. Staðreyndirnar sýna svart á hvítu að það skiptir miklu máli fyrir Íslendinga hvort sjálf- stæðismenn eða jafnaðarmenn eru við stjórnvölinn. Auðlindir í eigu þjóðar Undanfarin ár hefur sjávarútvegurinn notið gengisfalls krónunnar eins og aðrar útflutningsgreinar og árleg fram- legð greinarinnar verið 70 til 75 milljarðar króna undanfarin tvö ár. Af þessari miklu framlegð í greininni á veiðigjaldið að skila landsmönnum allt að 13 milljörðum króna á næsta ári. Almenningur nýtur því loksins arðs af auðlind sinni en mikilvægt er að ná fram enn frekari breytingum á stjórn fiskveiða sem tryggja betur nýliðun og jafnræði í greininni. Með sérstakri fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar er þeim vilja lýst að þennan arð skuli nota að umtalsverðu leyti til að treysta innviði samfélagsins og örva nýsköpun í at- vinnulífinu með tvöföldun á framlagi í vísinda og tæknisjóði ásamt því að veita umtalsvert fjármagn í skapandi greinar og græna atvinnusköpun. Þannig er hafin ný sókn fjöl- breyttara og sterkara atvinnulífs, sem tryggir betur at- vinnumöguleika í framtíðinni, ekki síst unga fólksins. Vísbendingar sýna að hugverkaiðnaðurinn skilar nú þjóðarbúinu 20% af gjaldeyristekjum þess og vöxtur í þess- um greinum hafi verið umfram hagkerfið í heild. Í byrjun næsta árs verður lögfest á Alþingi rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Samþykkt hennar felur í sér breytt vinnubrögð þar sem pólitískt handafl stjórn- valda heyrir sögunni til, en viðskiptaleg og umhverfisvæn sjónarmið ráða ferðinni. Hvað varð um kjarkinn? Það hefur ætíð verið sannfæring mín að rík aðkoma fólks- ins í landinu sé forsenda þess að unnt verði að ná fram heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. Tillögu þar að lút- andi lagði ég fyrir Alþingi þegar árið 1994. Í tíð núverandi ríkisstjórnar mótaði Alþingi loks aðferðir sem miðuðu að þessu. Þær voru metnaðarfullar og þinginu til sóma. Nú liggur fyrir heildstæð tillaga um breytta stjórnarskrá. Og þá er líkt og eitthvert kjarkleysi grípi um sig í her- búðum stjórnarandstöðunnar og ekki laust við að örli á van- trausti í garð kjósenda eða þeirra sem kjósendur og þing völdu til verka. Sama virðist eiga við um aðildarumsóknina að ESB. Þar leggur stjórnarandstaðan allt kapp á að koma í veg fyrir að þjóðin hafi síðasta orðið um fullbúinn samning í þjóðaratkvæðagreiðslu. Við verðum að hafa kjark til þess að horfast í augu við okkur sjálf og marka okkur leið inn í framtíðina. Það fer best á því að þjóðin hafi sjálf síðasta orðið um þessi mik- ilvægu mál, hvort heldur það snýr að stjórnskipan landsins eða sambúðinni við mikilvægustu viðskiptalönd okkar og Evrópu alla. Ég óska landsmönnum öllum gæfu og góðs gengis á kom- andi ári. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar Morgunblaðið/Kristinn Framtíð án frjálshyggju Afgerandi umskipti urðu eftir að ríkisstjórn Samfylkingarinnar og VG tók við stjórnar- taumunum og nú er Ísland í hópi þeirra landa í Evrópu þar sem ójöfnuðurinn er hvað minnstur.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.