Morgunblaðið - 31.12.2012, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 31.12.2012, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Árið 2012 er senn á enda.Eins og gengur hafaskipst á skin og skúrir jafnt hér heima sem erlendis, en á heildina litið hefur árið verið til- tölulega stóráfallalaust úti í hin- um stóra heimi. Ófriður og nátt- úruhamfarir hafa að vísu tekið sinn toll en í því sker árið sig ekki mjög frá öðrum. Við náttúruna þýðir lítið að sakast, hún hefur sína hentisemi án tillits til mannsins. Yfirgengilegt tillits- leysi sumra manna gagnvart öðr- um er annað mál og veldur oft vonbrigðum. Vorið í Arabalöndunum hefur til að mynda ekki orðið til að draga úr þjáningum almennings nema síður sé. Vonandi rætist þar úr þó að skrefin sem stigin hafa verið séu ekki öll í rétta átt og óvissan mikil. Átök um völd og valdaskipti hafa orðið víðar en yfirleitt með friðsamari hætti. Fjölmennasta ríki heims, Kína, skipti um for- ystu á árinu, í stærsta ríki heims, Rússlandi, gekk gamall forseti í endurnýjun lífdaga og í valda- mesta ríki heims, Bandaríkj- unum, tryggði forsetinn sér fjög- ur ár til viðbótar. Forseta Frakklands gekk ekki eins vel og lét í minni pokann fyr- ir Hollande, sem hefur síðan lækkað mjög í vinsældum. Ástæð- ur þess eru að hluta til minni ár- angur í samskiptum við Merkel, kanslara Þýskalands, en lofað hafði verið. Merkel hefur á hinn bóginn styrkt stöðu sína sem áhrifamesti leiðtogi Evrópusambandsins og hlaut til að mynda rússneska kosningu, 98%, í endurkjöri sem formaður Kristilega demókrata- flokksins. Á árinu hefur enn skýr- ar en áður komið í ljós að Þýska- land er alltaf í forystusæti Evrópusambandsins þó að for- mennskuhlutverkið gangi að nafninu til á milli aðildarríkjanna til að róa þau sem engin áhrif hafa. Á alþjóðavettvangi gerðist það einnig að Ólympíuleikarnir stálu senunni eins og þeir gera með reglulegu millibili og urðu móts- höldurum í Lundúnum til sóma. Ísland hafði einnig sóma af þátt- töku sinni á leikunum þó að ár- angurinn mælist ekki í fjölda verðlauna. Fjöldi þátttakenda var meiri en aðrar fámennar þjóðir geta státað af sem segir mikla sögu um getu landans á íþróttasviðinu. Handboltalands- liðið fékk mikla athygli og lands- menn eru vafalítið á einu máli um að liðið átti skilið að komast enn lengra en það gerði, ekki síst þeg- ar haft er í huga að Íslendingar eru eina keppnisþjóðin sem lagði sigurvegarana Frakka að velli á leikunum. Árið hér á landi byrjaði með umhleypingum og illviðri. Stór- hríð með fjárskaða og rafmagns- leysi skall á í september, en þrátt fyrir þetta var veðrið á árinu al- mennt gott. Hlýindi voru lengst af yfir landinu og var árið með þeim hlýjustu frá upphafi skipu- legra mælinga, eða í tæpar tvær aldir. Fólksfjöldinn fór yfir 320 þús- und á árinu og Íslendingar eru svo lánsamir að hér fæðast fleiri en deyja enda þjóðin yngri en margar sem við berum okkur saman við. Íslendingum fjölgar þess vegna þrátt fyrir að enn flytji umtalsvert fleiri frá landinu en til þess, en þar er um að kenna slæmu atvinnuástandi og hve mjög hefur dregist að hleypa krafti á ný í atvinnu- og efnahags- líf landsmanna. Stjórnvöld hafa því miður hald- ið áfram ferð sinni í ranga átt í flestum málum, efnahagslegum sem öðrum, og þess vegna bíður nýrra stjórnvalda mikið verk. Þess er nú skammt að bíða að þau stjórnvöld sem nú sitja víki fyrir nýjum. Ef marka má kannanir standa vonir landsmanna að minnsta kosti til þess að núver- andi stjórnvöld hverfi frá völdum og telja má að með mikilvægustu verkefnum næsta árs sé að skipta ekki aðeins um stjórn heldur einnig stjórnarstefnu. Atvinnu- lífið þarf að loknum kosningum að fá þau skilaboð að því verði leyft að blómstra og almenningur þarf um leið að fá fullvissu um að horfið verði frá sundrungar- og skattpíningarstefnu núverandi ríkisstjórnar svo að hægt verði að horfa bjartari augum fram á veg- inn. En þó að atvinnulífið hafi al- mennt ekki fengið tækifæri til að rétta úr kútnum getur Morgun- blaðið ekki annað en unað vel við sinn hlut á þessu ári. Morgun- blaðinu, sem er í senn þátttak- andi í atvinnulífi landsmanna og daglegu lífi þeirra á allan mögu- legan máta, hefur eftir erfiðleika síðustu ára tekist að bæta stöðu sína verulega. Þessi bati er ekki aðeins efna- hagslegur, þó að hann sé einnig að því leyti verulegur, heldur ekki síður að ný verkefni sem blaðið hefur ráðist í hafa gengið vel og að lesendum hefur fjölgað. Morgunblaðið seldi þúsundir nýrra áskrifta með tilboðum tengdum spjaldtölvum og steig þannig mikilvægt skref inn í þann nýja veruleika sem þau tæki bjóða upp á. Gerðar voru grund- vallarbreytingar á Sunnudags- blaði Morgunblaðsins sem hafa mælst afar vel fyrir meðal áskrif- enda enda blaðið fjölbreytt, skemmtilegt og fróðlegt í senn. Vefur Morgunblaðsins, mbl.is, heldur forystu sinni og heldur áfram að vaxa og dafna, hvort sem mælt er í fjölda lesenda eða framboði á efni. Loks er ástæða til að nefna ánægjulegt samstarf Morgun- blaðsins við The New York Tim- es, sem í dag birtist lesendum í glæsilegu áramótariti, Tímamót- um, eða Turning Points. Þessi jákvæða þróun er sér- staklega ánægjuleg nú þegar 100 ára afmæli Morgunblaðsins er framundan, 2. nóvember næst- komandi. Ef rétt er á málum haldið eru mikil og góð tækifæri framundan bæði fyrir þjóðina og blaðið sem hefur fylgt henni og þjónað í tæp 100 ár. Morgunblaðið þakkar les- endum sínum samfylgdina á árinu og óskar þeim gæfu og góðs gengis á nýju ári. Bjartari tímar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon 4.1. | Þröstur Jóhannsson Huang Nubo og Hafnarfjörður Átti fjárfesting á Grímstöðum á Fjöllum hugsanlega að vera viðskiptaflétta til að auðvelda aðgang að lánsfé í Kína? 6.1. | Tryggvi Gíslason Skömm Ríkisútvarpsins Nú veit ég, að Páll Magnús- son útvarpsstjóri biðst ekki afsökunar á þessum orðum. Hann biðst aldrei afsökunar á neinum afglöpum sínum né starfsmanna sinna. 7.1. | Bergþór Ólason Borg á bandi ofstækismanna Ekkert haggar „mannrétt- indaráðinu“ eða borgaryfir- völdum. Þar dettur engum í hug að taka nokkurt minnsta mark á því þegar 90% lands- manna reynast ósammála þeim um það hvað sé mannréttindabrot og hvað ekki. 10.1. | Ásmundur Einar Daðason ESB í upphafi árs Af hverju þurfti formaður Vinstri grænna að leita til Hreyfingarinnar ef ekkert á að breytast við brotthvarf Jóns Bjarnasonar úr ríkisstjórn? 11.1. | Gunnar Bragi Sveinsson RÚV | Ríkisútvarp vinstrimanna? Getur verið að fyrrverandi kosningastjóra Samfylking- arinnar, Helga Seljan, finnist betra að taka gagnrýnilaus spjallviðtöl við ráðherra Sam- fylkingarinnar? 17.1. | Ögmundur Jónasson Við gerðum rangt Um málatilbúnaðinn allan má deila og skal það fúslega við- urkennt að aldrei hef ég verið sáttur við þetta mál innra með mér og hefði heldur ekki orðið þótt þeir einstaklingar aðrir sem tillagan beindist að hefðu einnig verið ákærðir. 17.1. | Stefán Már Stefánsson Um ákæru í landsdómsmálinu Komi fleiri en einn við sögu sem hugsanlegir brotamenn við tiltekin brot ber ákær- anda að kanna hvort sami eða svipaður grundvöllur sé fyrir hendi að því er einn eða fleiri var 19.1. | Valtýr Sigurðsson Ákæruvald í meðförum Alþingis Eftir að ákæra hefur verið gef- in út ber ákæranda sömuleið- is að gæta að málsmeðferðar- reglum. Komi í ljós vankantar þar á ber ákæranda að aft- urkalla ákæruna og fella málið niður. 20.1. | Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Landsdómur Telji ráðherrar að landsdóms- málið snúist um að róa almenn- ing ættu þeir þó e.t.v. frekar að hafa í huga aðra fræga setningu Robespierres sem komst að raun um að „byltingin át börnin sín“. 20.1. | Jónína Benediktsdóttir Kæri Róbert Marshall Ingibjörg Sólrún freistaðist til þess að veðja á glansmynd- ina sem þið fjölmiðlamenn og margir þingmenn máluðuð upp. 21.1. | Hjörleifur Guttormsson Að fara úr öskunni í eldinn Það er ekki ónýtt fyrir ESB sem samningsaðila um inn- göngu Íslands í Evrópusam- bandið að vita af rétttrúuðum viðmælendum hér í norðri. 24.1. | Erna Hauksdóttir Ferðaþjónustan í upphafi árs Miklar skattahækkanir á elds- neyti komu niður á ferðalögum Íslendinga innanlands síðast- liðið sumar. Búast má við að sú verði raunin næsta sumar líka. 24.1. | Guðni Ágústsson Áskorun á Ólaf Ragnar Grímsson forseta Ég bið þig að fara inn á „askoruntilforseta.is.“ og styðja þúsundir manna í grasrót samfélagsins um að skora á forsetann að gefa kost á sér í eitt kjörtímabil enn. 25.1. | Ragnheiður Elín Árnadóttir Ótrúleg ósvífni forsætisráðherra Núna hótar hún forseta Al- þingis með því að hún hafi enn ekki lagt til breytingar. En það gæti nú breyst, mátti skilja af orðum forsætisráðherra. 28.1. | Björn Ólafur Hallgrímsson Opið bréf til alþingismannsins Bjarna Benediktssonar Fyrirspurn um hvort, hvernig og hvenær í kjölfar fundar í Seðlabanka Íslands 7. febrúar 2008 þú hafir fengið vitneskju um yfirvofandi hrun bankanna. 30.1. | Kristján Arason Athugasemd vegna greinar frá Birni Ólafi Hallgrímssyni Mér er það skylt að ítreka að ég vissi ekkert um tilvist þess fundar sem Björn vitnar til í febrúar 2008 fyrr en fjöl- miðlar fjölluðu um hann mörgum mánuðum síðar. 30.1. | Bjarni Benediktsson Svar við opnu bréfi og öðrum dylgjum Skrifað er um gamlar fréttir, þær endursagðar og krydd- aðar. Allt til að varpa rýrð á undirritaðan á viðkvæmum pólitískum tímum. En þetta eru vindhögg. 31.1. | Líf Magneudóttir Um skiptar skoðanir Í atkvæðagreiðslunni greiddu þingmenn vonandi allir atkvæði í samræmi við sannfæringu sína … 2.2. | Gústaf Adolf Skúlason Af virkjunum og hagsmunum komandi kynslóða En hvenær má þá taka ákvarðanir um orkunýtingu? Verða ekki alltaf einhverjar komandi kynslóðir? 3.2. | Hallur Hallsson Ríkisútvarpið er orðið málpípa valdhafanna Fámenn klíka stýrir pólitískum fréttaflutningi Ríkisútvarps- ins. Er RÚV hrein og bein ógn- un við lýðræðið í landinu? 6.2. | Kristján Þór Júlíusson Niður með verðtryggðu lánin Það verður að bregðast við því staðreyndirnar blasa við. Þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa gripið til duga ekki til lausnar á þeim meginvanda sem við blasir. 7.2. | Höskuldur Þórhallsson Vaðlaheiðargöng og hin ósann- gjarna umræða Um gríðarlega samgöngubót yrði að ræða og vandséð hvort hægt yrði að fara í ódýrari framkvæmd fyrir ríkissjóð og þegna landsins. 8.2. | Guðlaugur Þór Þórðarson Gleymdir þú ekki einhverju, Gylfi? Í stað þess að gæta hags- muna launafólks gerir Gylfi hvað hann getur til að koma þjóðinni inn í ESB. Hann er einn af fáum einstaklingum í Evrópu sem dásama evruna og er búinn að setja áróðursmaskínu ASÍ í að reyna að fegra hana eins mikið og kostur er. 8.2. | Ómar Stefánsson Hver er óstarfhæfur? Ég ætla samt ekki að fara nið- ur á það plan að benda á van- kanta Hjálmars Hjálmarssonar en segi að- eins: Það er ljóst að það fer Hjálmari ekki vel að setja sig á stall því hann ber hvorki geislabaug né vængi. 9.2. | Jóhann Ísberg Samstarfshæfni Hjálmars Nú vill Hjálmar „þjóðstjórn“ í Kópavogi þar sem allir taka af- stöðu eftir því hvernig þeir eru stemmdir í það og það skiptið. 9.2. | Össur Skarphéðinsson Evran og krónan – og Krugman Reynslan er hins vegar ólygnust. Íslenska krónan hefur ekki reynst okkur vel. 10.2. | Páll Vilhjálmsson Sértrúarsöfnuðurinn ESB-sinnar Innan við þriðjungur þjóð- arinnar kaus Samfylkinguna, sem í síðustu þingkosningum bauð einn flokka aðild að Evr- ópusambandinu sem lausn við helstu vandamálum lands og þjóðar. 11.2. | Jón Lárusson Horfum til framtíðar Ég býð mig fram til að tryggja þetta val. Tryggja það að hagsmunir almennings verði hafðir í fyrirrúmi. 14.2. | Friðrik J. Arngrímsson Makríll, ESB og fullveldið Í krafti þess að við erum sjálfstætt fullvalda ríki og förum sjálf með forræði samninga um deilistofna get- ur ESB ekki skammtað okkur makríl úr hnefa sínum. 15.2. | Birkir Jón Jónsson Jöfnum lífskjörin Á landsbyggðinni verða verð- mætin að drjúgum hluta til og sanngjörn krafa fólksins þar er sú að búa við sömu kjör og þeir sem búa á suð- vesturhorni landsins. 15.2. | Sigrún Ágústa Bragadóttir Bera þeir einir ábyrgð sem minnstum skaða ollu? Stjórn og framkvæmdastjóri LSK gerðu ráðstafanir til að fyrirbyggja enn meira tap með hagsmuni sjóðfélaga að leiðarljósi. Fyrir það eru stjórn og framkvæmdastjóri ákærð. 16.2. | Jóhann Ísberg Aðförin að bæjarstjóra Kópavogs Þar virðist hafa gerst enn og aftur að farið hafi verið í leið- angur í bæjarbókhaldinu og grafin upp viðskipti sem hentaði að gera tortryggileg. 16.2. | Ragnar Arnalds Tálbeitan sem fáa lokkar lengur Áróðurinn fyrir upptöku evru er af pólitískum rótum runn- inn jafnt hér á landi sem á meginlandinu og byggist ekki á hagfræðilegum rökum. 17.2. | Guðríður Arnardóttir Dylgjum Jóhanns Ísberg svarað Grein Jóhanns er væntanlega hlekkur í rógsherferð Gunn- ars I. Birgissonar og hans postula gegn undirritaðri. 18.2. | Vigdís Hauksdóttir Síbrotaferill ríkisstjórnarinnar og stjórnarskráin Hvenær ætlar þetta fólk að læra að þrígreining rík- isvaldsins er virk hér á landi og að dómum dómstóla skuli lúta? 18.2. | Sindri Freysson Lesljós í rústunum? Í rústabjörgun á hamfara- svæðum er jafnan byrjað að reyna að bjarga þeim sem auðveldast er að ná til. Lík- legast þarf að fara öfuga leið í lesbjörgun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.