Morgunblaðið - 31.12.2012, Síða 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012
✝ (Hadda) Ingi-björg Krist-
jánsdóttir fæddist
á Siglufirði 21.
febrúar 1935. Hún
andaðist á Land-
spítalanum við
Hringbraut 1. des-
ember 2012.
Foreldrar Ingi-
bjargar voru Krist-
ján Eiríksson, tré-
smiður frá
Sölvanesi í Skagafirði, f. 22.
október 1894, d. 22. október
1966 og Sigrún Sigurðardóttir,
frá Sauðárkróki, húsmóðir, f. 8.
maí 1913, d. 9. júní 1976.
Systkini Ingibjargar eru: Jó-
hanna, látin, Ragnar, látinn,
Hilmar, látinn, Margrét látin,
Rut, látin, Sigurður, Kolbeinn,
látinn, Aðalheiður, Hulda, Sól-
ey, Halldór, Eiríkur og Guð-
mundur.
1986 og Þórey Úlfarsdóttir, f.
19. nóvember 1989. Ingibjörg
og Óskar Karl skildu.
Ingibjörg ólst upp á Siglu-
firði í stórum systkinahópi og
byrjaði snemma að vinna í síld-
inni eins og allir gerðu á þeim
árum, enda varð til megnið af
útflutningstekjum landsins á
Siglufirði í þá daga. Fljótlega
hóf Ingibjörg nám við hjúkrun
og starfaði sem ljósmóðir og
hjúkrunarfræðingur, lengst
sem ljósmóðir á Sólvangi í
Hafnarfirði og sem hjúkr-
unarfræðingur á Elliheimilinu
Grund í Reykjavík. Hún var
alla tíð vel metin og forkur til
vinnu. Um árabil starfaði hún
einnig í Kaupmannahöfn við
hjúkrun. Eftir skilnað bjó Ingi-
björg að Skálagerði 9 í Reykja-
vík og hélt heimili með eldri
syni sínum Kristjáni Frey. Und-
anfarin ár hafa margir góðir
sigrar unnist þar sem Ingibjörg
barðist við illvígan sjúkdóm.
Við fengum að njóta nærveru
Ingibjargar vegna þrautseigju
hennar og ótrúlegs lífsvilja.
Útför Ingibjargar hefur far-
ið fram í kyrrþey.
Á árinu 1960
giftist Ingibjörg
Óskari Karli Stef-
ánssyni, f. 27. nóv-
ember 1932 í Hafn-
arfirði. Foreldrar:
Stefán Stefánsson
og Þórunn Ívars-
dóttir. Ingibjörg
og Karl byrjuðu
sinn búskap á
Holtsgötunni hjá
foreldrum Karls,
þar til þau höfðu byggt sér
raðhús við Álfaskeið í Hafn-
arfirði. Börn þeirra eru: 1)
Kristján Freyr Karlson, f. 12.
október 1960. Barn Steinunn
Sv. Kristjánsdóttir, f. 17. ágúst
1987, barnsmóðir Ólöf Erlings-
dóttir, f. 20. maí 1956. 2) Úlfar
Karlsson, f. 7. júlí 1962, eig-
inkona Erna Sæbjörnsdóttir, f.
15. mars 1962, börn þeirra eru
Alda Úlfarsdóttir, f. 27. apríl
Elsku amma mín.
Við höfum átt margar ynd-
islegar stundir saman á þessu
ári og fyrir þær er ég ofsalega
þakklát. Ég fékk tækifæri til að
kynnast þér enn betur og eyða
tíma með þér sem var afskap-
lega dýrmætur. Ég lít upp til
þín og dáist að því hvernig þú
tókst á við lífið, það var aldrei
neitt annað í þínum orðaforða en
að halda áfram. Þú varst svo
Ingibjörg
Kristjánsdóttir
sterk þrátt fyrir öll þín veikindi
og þegar þú varst spurð hvernig
þú hefðir það, var svarið alltaf:
„Bara fínt.“ Þú ert mér fyrir-
mynd í því hvernig þú varst allt-
af með eitthvað fyrir stafni og
ég hlakkaði svo mikið til að fá
að taka þátt í næsta viðfangsefni
með þér. Ég ætla að halda
áfram með planið okkar og
sauma mér íslenskan þjóðbún-
ing, ég veit að þú myndir vilja
það.
Nú ertu farin á betri stað og
ég mun sakna þín, elsku amma.
Ég veit að þú ert umvafin ljósi,
kærleika og friði, og ég veit að
þú verður alltaf með mér í hjart-
anu.
Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógvær göfgi svipnum í.
Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.
En styrrinn aldrei stóð um þig,
- hver stormur varð að lægja sig,
er sólskin þinnar sálar skein
á satt og rétt í hverri grein.
Loks beygði þreytan þína dáð,
hið þýða fjör og augnaráð;
sú þraut var hörð – en hljóður nú
í hinsta draumi brosir þú.
(Jóhannes úr Kötlum)
Þín
Steinunn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristján Guðmundsson,
Skúlagötu 20,
Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni aðfarar-
nótt 30. desember. Útför hans fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn
3. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en
þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítalasjóð
Hringsins.
Ragnheiður Hjálmtýsdóttir,
Hjálmar Þór Kristjánsson, Lydía Rafnsdóttir,
Guðmundur Kristjánsson,
Sigurrós Kristjánsdóttir, Ingvar J. Baldursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
�irðin��eynsla � Þ�ónusta
�l�an �ólarhrin�inn
www.kvedja.is
571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann
N�út�ararsto�a�yggð á traustum �runni´
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÞÓRIR STURLA KRISTJÁNSSON
byggingameistari,
Erluási 74,
Hafnarfirði,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut föstudaginn 21. desember.
Hann verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
fimmtudaginn 3. janúar kl. 13.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hans
er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins.
Guðmunda Inga Veturliðadóttir,
Hulda Guðborg Þórisdóttir, Davíð Þór Sigurbjartsson,
Jón Friðgeir Þórisson, Steinunn Sigurmannsdóttir,
Gunnar Þórisson, Nina Kristiansen,
Ingi Sturla Þórisson, Sigrún Líndal Pétursdóttir
Daði Freyr, Þórir Már og Lára Sif Davíðsbörn,
Lóa María og Viktoría Jónsdætur,
Lilja Rán, Sóley Dögg og Jónas Hrafn Gunnarsbörn,
Karólína Björk Líndal og Dagur Ingi Líndal Ingabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR SNÆBJÖRNSSON
frá Syðri-Brú,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju
föstudaginn 4. janúar kl. 13.30.
Snæbjörn Guðmundsson, Jóhanna Vilhjálmsdóttir,
Rut Guðmundsdóttir,
Dagný Sjöfn Guðmundsdóttir, Magnús F. Valgeirsson,
Elín Björg Guðmundsdóttir, Friðrik K. Jónsson,
Guðný Pálsdóttir,
Svala Kristín Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir
mín, amma okkar og tengdamóðir,
KATRÍN GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést í faðmi fjölskyldunnar annan í jólum á
Landspítalanum við Hringbraut.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 4. janúar kl. 13.00.
Hans Óskar Isebarn,
Dagmar Björnsdóttir, Matthías Einarsson,
Kjartan Hansson,
Klara Hansdóttir, Albert Örn Sigurðsson,
Ragnheiður Guðrún Loftsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
MAGNÚS KJARTANSSON,
fyrrverandi bóndi Hjallanesi,
Landsveit,
andaðist á Dvalarheimilinu Lundi 28.
desember.
Pálína H. Magnúsdóttir, Hallgrímur H. Óskarsson,
Kjartan G. Magnússon, Elínborg Sváfnisdóttir,
Bryndís H. Magnúsdóttir, Rúnar Hauksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
dóttir og systir,
INGUNN JÓNSDÓTTIR,
Þinghólsbraut 20, Kópavogi, frá
Sólvangi í Fnjóskadal,
lést á líknardeildinni í Kópavogi hinn 28.
desember.
Magnús Skúlason,
Hlynur Magnússon,
Skúli Magnússon, Guðrún Katrín Oddsdóttir,
Ásdís Stefánsdóttir og systkini.
Móðir mín,
ÞÓRDÍS G. OTTESEN
frá Miðfelli,
andaðist 27. desember á
Droplaugarstöðum. Útför hennar verður frá
Fossvogskapellu föstudaginn 4. janúar kl.
11.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Valdimar Jónsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir, afi og bróðir,
STEFÁN JÓNSSON
vélvirki,
Stapaseli 17,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum
aðfaranótt laugardagsins 22. desember.
Jarðarförin fer fram frá Seljakirkju fimmtu-
daginn 3. janúar kl. 15.00.
Guðný Helgadóttir Blöndal,
Jón Þór Stefánsson, Vilborg Linda Indriðadóttir,
Helgi Már Stefánsson, Þorgerður Sigurbjörnsdóttir,
Stefán Örn Stefánsson,
Alexander Stefánsson,
Dagný Jónsdóttir, Pétur V. Hafsteinsson,
Guðný Hafbjörg Jónsdóttir
og barnabörn.
Það var fyrir tilstilli Harðar
Sigurgestssonar, þáverandi for-
stjóra, að ég var ráðin í hluta-
starf í bókhaldi Eimskipafélags-
ins þar sem ég vann um árabil.
Yfirmaður minn þar var Guðni
Guðnason, einstakur mannkosta-
maður og ljúflingur. Það var lík-
lega að öllum öðrum ólöstuðum
hann, sem varð til þess að þar
leið mér svo vel að ég varð aldr-
ei vör þeirra „ónota“ sem geta
gert vart við sig, þegar vinnu-
Guðni Egill
Guðnason
✝ Guðni EgillGuðnason
fæddist 28.8. 1923 í
Vatnadal, sem er
fremsti bær í Stað-
ardal. Hann lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Skjóli 17.12.
2012.
Útför Guðna Eg-
ils fór fram frá Ás-
kirkju 27.12. 2012,
og hefst athöfnin
kl. 15.
staðurinn kallast
ekki „verndaður“,
þ.e. ekki „hættuleg-
ur“ fyrir óvana, þá
sem eru ekki úti á
vinnumarkaði sam-
fellt vegna sjúk-
dóma eða annarra
frávika.
Fólkið í þessu
húsi í miðbænum
var undantekning-
arlaust þægilegt.
En Guðni var sérstakur, kurt-
eis og vingjarnlegur.
Nú, tuttugu árum síðar, þeg-
ar kringumstæður ættu að hafa
breyst til hins betra í málefnum
„verndaðra“, má leita aftur til
þessa tíma um viðmót stjórn-
enda Eimskips. Og læra af.
Þegar ég heyri góðs manns
getið hugsa ég til Guðna Guðna-
sonar. Hann var vænn maður og
réttlátur.
Konu hans og fjölskyldu sendi
ég samúðarkveðjur.
Sigrún Finnbogadóttir.
Elsku Auður mín.
Það var hræðilegt áfall að missa
þig eftir öll okkar ár saman sem
Auður Jóna
Árnadóttir
✝ Auður JónaÁrnadóttir
fæddist í Keflavík
13. júlí 1947. Hún
lést á Landspít-
alanum 9. desem-
ber 2012.
Útför Auðar fór
fram frá Keflavík-
urkirkju 17. desem-
ber 2012.
frænku og vinkonu.
Það var virkilega
sorglegt að mæta í
kirkjuna við útför
þína.
Það var gaman í
gamla daga þegar
við vorum að prakk-
arast saman í sum-
arbústaðnum hjá
ömmu og afa. Eins
þegar við fórum
tvær saman með
stelpurnar okkar í sumar-
bústaðinn, ekkert rafmagn, eng-
inn sími, ekkert rennandi vatn,
en við skemmtum okkur konung-
lega.
Eins var gaman þegar við hitt-
umst öll úti í Tyrklandi og nutum
lífsins. En því miður er okkur
ekki gefinn nema ákveðinn tími
hér á jörð og því verðum við að
hlíta. Eina sem ég vona er að nú
sértu komin á betri stað og líði
betur. Sendi Sæma og dætrum
innilegar samúðarkveðjur.
Björg frænka.