Morgunblaðið - 31.12.2012, Page 43

Morgunblaðið - 31.12.2012, Page 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012 Raðauglýsingar 569 1100 Húsgögn Antík-skenkur til sölu Vel með farinn danskur antík-skenkur til sölu, ca. 100 ára gamall. Uppl. í síma 820 0651. Atvinnuhúsnæði Til leigu 20-60 fm iðnaðarpláss Staðsett 20 mínútur frá Hafnarfirði. Upplýsingar í síma 894 0431. Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Verslun Ágætu viðskiptavinir, góðir landsmenn. Óskum ykkur gleði, hvíldar og and- legrar næringar yfir hátíðirnar svo takast megi á við komandi tíma. Megi allar góðar vættir fylgja ykkur og styrkja á ári komanda. ERNA, Skipholti. Óska eftir Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is - sími: 551 6488. KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bílar Nýr Jeep Grand Cherokee Diesel. Hátt og lágt drif. Tölvustýrð miðstöð. Lykillaust aðgengi. Lita snertiskjár. Xenon. Raknúin sæti með mjóbaks- stuðning ofl.ofl. Verð: með leðri 10.390 þús. án leðurs 9.690 þús . www.sparibill.is Fiskislóð 16 - sími 577 3344. Opið 12-18 virka daga. Hópbílar 50 manna Man-rúta til sölu í mjög góðu ástandi. Nýklædd sæti og WC. Verð 4.000.000 kr., tilboðsverð 2.500.000. Nánari uppl. í síma 695 0495. Bílaþjónusta Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Góður í vetraraksturinn. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Laugaland, landnr. 141626, Strandabyggð, þingl. eig. Ása Ketilsdóttir, gerðarbeiðandi Arion banki hf, föstudaginn 4. janúar 2013 kl. 11:00. Sýslumaðurinn á Hólmavík, 28. desember 2012, Lára Huld Guðjónsdóttir. Félagsstarf Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund nýársdag kl. 14 og miðvikudag 2. janúar kl. 20. ÁSKRIFTASÍMI 569 1100 Elsku afi, bóndinn í Ormskoti. Okkur finnst virkilega erfitt að ímynda okkur tilveruna í sveitinni án þín. Að hafa þig ekki lengur sitjandi í stólnum þínum að sjá til þess að allt sé með röð og reglu á bænum er nokkuð sem við munum aldrei venjast. Margar af þínum venjum sem fengu okkur til þess Eiður Magnússon ✝ Eiður Magn-ússon fæddist í Árnagerði, Fljóts- hlíð 1. maí 1929. Hann lést á Sjúkra- húsi Suðurlands á Selfossi á að- fangadag jóla, 24. desember 2012. Útför Eiðs fór fram frá Breiðaból- staðarkirkju í Fljótshlíð 29. des- ember 2012. að reka upp stór augu, eins og þegar þú baðst ömmu stundum um að brenna nokkrar af flatkökunum sem hún var að baka því að þér þóttu þær svo góðar svona við- brenndar eða þá þegar sjónin þín fór að daprast og þú byrjaðir allt í einu að prjóna ullarsokka þér til dægra- styttingar. Í okkar huga verður þín alltaf minnst sem þessa sterka, ákveðna og þrautseiga manns sem þú varst. Þó að vindar blésu á móti í þínu lífi hélstu alltaf ótrauður áfram og sigraðist á hverri hindr- uninni á fætur annarri. Það er svo margt sem við höfum lært af þér, kæri afi. Í okkar augum varstu sönn hetja sem lést ekkert stoppa þig. Þú munt alltaf eiga stað í hjört- um okkar. Elsku afi, hvíldu í friði. Sóley Jóhannsdóttir og Jökull Jóhannsson. Mig langar í örfáum orðum að minnast frænda míns, hans Eiðs. Það fyrsta sem kemur upp í huga minn eru stórskornar hendur enda tók frændi alltaf hraustlega í lúkuna á manni og kreisti aðeins. Aðeins fann maður handabandið þéttast eftir því sem árin liðu og eins eftir því sem manni óx ás- megin sem og afl til að taka á móti. En alltaf hafði maður á tilfinning- unni að ekki væri nýtt nema brot af þeim handstyrk sem til staðar var þar sem annar aðilinn var á fullum styrk, eldrauður í framan meðan frændi fylgdist glað- hlakkalegur með manni í þessum átökum. Samskipti milli þessara bæja voru mikil sem og samskipti þeirra bræðra, föður míns og Eiðs enda ekki nema smáspölur þarna á milli. Um margt var rætt og skrafað í þá daga og sjaldnast var frændi skoðunarlaus á hlutunum, þar sem hann hafði ákveðna sýn á hlutina og var samkvæmur sjálf- um sér í þeim þó þær gengju kannski þvert á meirihlutann eða skoðanir annarra. Eftir því sem árin liðu og maður flutti í bæinn, þá minnkuðu samskiptin eðlilega og eins ferðunum í Ormskot til þeirra hjóna og Halldórs. En allt- af var gott að koma í kotið og vel tekið á móti manni með þéttu handabandi sem fyrr. Sendi Hjördísi, frændsystkin- um mínum Halldóri og Siggu og fjölskyldu mínar innilegustu sam- úðarkveðjur um leið og ég minnist Eiðs með hlýju og góðum minn- ingum úr bernsku. Blessuð sé minning þín, frændi. Sigurður (Siggi) frá Árnagerði. Tengdafaðir minn, Baldur Berndsen Maríusson, var borinn til hinstu hvíldar 28. desember sl. Ég kynntist Baldri þegar ég var 17 ára gömul. Hann tók mér heldur fálega í fyrstu en þegar fram liðu stundir og hann sá að samband okkar Magnúsar sonar hans var varanlegt þá sneri hann alveg við blaðinu. Á þeim 34 árum sem við Baldur höfum verið samferða í gegnum lífið hefur hann margsinnis og með margvíslegum hætti sýnt mér væntumþykju og stuðning. Vænst þótti mér um hversu innilega hann bauð mig vel- Baldur Berndsen Maríusson ✝ Baldur Bernd-sen Maríusson fæddist í Reykjavík 18. apríl 1936. Hann lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 15. desember 2012. Útför Baldurs fór fram frá Nes- kirkju 28. desem- ber 2012. komna í fjölskyld- una þegar við Magnús giftum okkur og um bréf- kornin sem hann sendi okkur Magn- úsi þegar við vorum við nám í Kanada. Eitt af meginein- kennum Baldurs var félagslyndi og almennur áhugi á fólki. Hann átti fjölmarga vini og kunningja, hafði unun af því að umgangast fólk og var forvitinn um hagi þess. Hann var vinur vina sinna og var hreint ekki sama um hvernig fólki reiddi af. Það var hægt að treysta því að Baldur hélt með sínu fólki og það var gott að vera með honum í liði. Þegar ég kynntist Baldri vann hann hjá Flugleiðum og hafði gert um langt skeið. Vinnu sinnar vegna var hann oft lang- dvölum að heiman og hafði þess vegna ekki tækifæri til þess að taka eins mikinn þátt í uppeldi og umönnun barna sinna og hann hefði kannski viljað. Bald- ur fékk hins vegar annað tæki- færi sem afi. Hann var í essinu sínu þegar við Magnús eignuð- umst son og það var stoltur afi sem hélt á fyrsta barnabarninu og nafna sínum, Baldri Karli undir skírn. Ekki var gleðin minni þegar annað barnabarnið, Elín Inga bættist við. Þriðja barnabarnið, Edda Sólveig, dóttir Guðrúnar Eddu bættist svo í hópinn fyrir 10 árum. Þar sem Guðrún og Edda bjuggu í sama húsi og afi og amma var samgangurinn mikill. Baldur varð þannig þeirrar gæfu að- njótandi að fá tækifæri til að taka mikinn þátt í lífi Eddu Sól- veigar þeim báðum til mikillar gæfu og gleði. Baldur var líka einn af iðju- sömustu mönnunum sem ég hef kynnst. Hann var alltaf að þeg- ar hann var heima við. Hann dyttaði að húsinu utan sem inn- an allan ársins hring og lagði ómælda vinnu í sumarhús fjöl- skyldunnar. Ég sá hann varla öðruvísi heima við en með eitt- hvað verkfæri á lofti, hvort sem það var málningarpensill, borvél eða hamar. Hann var alltaf að búa í haginn fyrir fjölskylduna sína. Með þessum orðum kveð ég tengdaföður minn með söknuði og þakka samfylgdina og þann einlæga stuðning sem hann sýndi mér alla tíð í hverju því sem ég tók mér fyrir hendur. Andlát Baldurs bar að með skjótum hætti en það er huggun harmi gegn að þessum iðjusama manni var hlíft við langvarandi veikindum og skertri starfs- og lífsorku. Við sem eftir erum leit- um huggunar hvert hjá öðu. Elsku Inga, Magnús, Guðrún, Sirrý, Baldur, Elín og Edda ég votta ykkur öllum mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Baldurs Berndsen Maríussonar. Sigríður Haraldsdóttir. Orð heimsins geta ekki lýst þakklæti mínu fyrir að hafa átt þig að elsku afi minn. Það er sagt er að þeir sem standi manni næst móti mann, og þú átt svo sannarlega margt í mér. Strax á unga aldri langaði mig að vera kaupmaður, líkt og afi eða „Siggi sprettur“ eins og þú varst jafnan kallaður á kaupmannsár- unum þínum. Ég minnist þeirra fjölmörgu samræðna sem við átt- um meðan ég vann í hinum ýmsu fataverslunum, og hvað þú varst alltaf áhugasamur um hvernig mér gekk og hvattir mig áfram með góðum ráðum. Það var ekki síst þínum stuðn- ingi að þakka að ég hóf nám í við- skiptafræði, og þá átti ég alltaf góðan bakhjarl í þér hvort sem það var í B.Sc- eða mastersnám- Sigurður Halldórsson ✝ Sigurður Hall-dórsson, fyrr- verandi kaup- maður, fæddist 26. júní 1917. Hann andaðist á Drop- laugarstöðum 15. desember 2012. Útför Sigurðar fór fram í kyrrþey frá Grensáskirkju 28. desember 2012. inu. Ég á erfitt með að halda aftur af tár- unum þegar ég minnist þess dags þegar þú sagðir mér hversu stoltur þú varst af árangri mín- um í náminu. Það er ekki öllum auðvelt að hrósa fólki og sýna hlýhug í verki, en frá þér fékk ég ávallt ást og stuðning í einu og öllu. Það er mér svo mikil huggun harmi gegn hvað þú lifðir ótrúlega góðu og farsælu lífi. Að ná 95 ára aldri er merkur áfangi, og hvað þá með þeim einstaka hætti sem þú gerðir. Fram á síðasta dag varstu með hugann við fjölskylduna og ekkert komst að annað en að sjá til þess að allir þér nærri hefðu það gott. Ég er svo ánægður í hjartanu að þú skyldir ná að kynnast henni Mattheu Líf minni, sem mun fá að heyra svo margt um þig elsku afi minn. Um leið og ég kveð þig með miklum söknuði hugga ég mig með því að minning þín mun lifa með mér alla tíð elsku afi minn. Sakna þín og elska. Guð blessi þig og vaki yfir þér að eilífu. Þinn elskandi Ólafur P. Stephensen. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Neðst á for- síðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skila- frest. Einnig má smella á Morg- unblaðslógóið efst í hægra horn- inu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skila- frests. Lengd | Hámarkslengd minn- ingargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 lín- ur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einn- ig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minning- argreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa not- uð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent má senda myndina á netfangið minning@mbl.is og gera um- sjónarfólki minningargreina viðvart. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.