Morgunblaðið - 31.12.2012, Side 46
46 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012
Þegar ég var barn gleymdistþessi dagur svolítið. Viðvorum fjögur systkinin og í
nógu að snúast fyrir áramótin.
Jólin eru auðvitað líka nýafstaðin
á þessum degi og í gamla daga
fékk ég oft sameiginlega jóla- og
afmælisgjöf á jólunum,“ segir
Ingveldur Jóna Gunnarsdóttir
sem fagnar sextugsafmæli í dag.
„Seinna meir gerði ég fólki grein
fyrir því að þetta fyrirkomulag
væri ekki vel séð. Það hefur borið
árangur því í dag fæ ég iðulega
margar gjafir á afmælisdaginn
minn,“ segir hún.
Afmælisdeginum og áramótum
ætlar Ingveldur að eyða með vini
sínum Gunnari Þór Júlíussyni,
sonunum Ólafi og Inga Thor-
arensen. Tengdadætur eru Bríet
Kristý Gunnarsdóttir og Sólveig Lóa Magnúsdóttir. Samtals eru
barnabörnin orðin 4, en það yngsta bættist í hópinn á árinu. „Eftir
að ég komst á fullorðinsár hefur þessi dagur alltaf verið mjög góður
og annasamur því ég fæ gjarnan marga gesti til mín á afmælisdeg-
inum,“ segir Ingveldur. „Ég held ekki skipulagt boð en hér hefur
skapast hefð fyrir því að vinir og fjölskylda kíki í heimsókn fyrri
hluta dags og fái sér kaffi og með því. Margir sjá þetta nú sem fast-
an lið á gamlársdegi,“ segir hún. Ingveldur hélt heljarinnar veislu á
fimmtugsafmæli sínu og segir hana duga fyrir næstu ár. „Hún var
haldin í Breiðfirðingasalnum og var 150 manns boðið, það var virki-
lega gaman,“ segir Ingveldur Jóna.
Ingveldur Jóna Gunnarsdóttir 60 ára
Afmæli „Hefð er fyrir því að
fólk kíki í kaffi fyrri hluta dags.
Það er fastur liður á gaml-
ársdegi hjá mörgum,“ segir
Ingveldur Jóna.
Áramót og afmæli
á sama degi
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Hjónin Rannveig Ragna Bergkvists-
dóttir og Erlendur Jóhannesson frá
Fáskrúðsfirði eiga 50 ára brúðkaups-
afmæli á morgun, 1. janúar.
Gullbrúðkaup
Brúðhjón Anna María Þórðardóttir og
Guðmundur Ingþór Guðjónsson voru
gefin saman í Akraneskirkju 23. júní
síðastliðinn.
Brúðkaup
Heiðurshjónin Jóhanna Ármann Guð-
jónsdóttir og Þorlákur Friðrik Frið-
riksson frá Skorrastað í Norðfirði eiga
demantsbrúðkaup í dag, 31. desem-
ber.
Demantsbrúðkaup
Ó
lafur fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp.
Hann lauk stúdents-
prófi frá MR 1957,
embættisprófi í lög-
fræði frá HÍ 1963, öðlaðist hdl.-
réttindi 1964 og stundaði trygg-
inganám í London 1964-65.
Ólafur var deildarstjóri hjá Al-
mennum tryggingum hf. 1963-70,
aðstoðarforstjóri þar 1970-76, for-
stjóri 1976-89, forstjóri Almennra
líftrygginga hf. 1981-91 og fram-
kvæmdastjóri Sjóvár-Almennra
trygginga hf. 1989-2002.
Ólafur var formaður Vöku 1961-
62, formaður Heimdallar 1966-68,
sat í stjórn SUS 1967-69, í stjórn
fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksíns í
Reykjavík 1966-70 og 1973-77, í
flokksráði Sjálfstæðisflokksins, í
miðstjórn flokksins 1971-73, var
borgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn í Reykjavík 1970-82, sat í
borgarráði 1970-74 og var forseti
borgarstjórnar 1974-78, sat í ýms-
um nefndum borgarinnar, í stjórn
Landsvirkjunar 1977-83, í banka-
ráði Seðlabanka Íslands 1982-98 og
formaður bankaráðs 1986-90, sat í
stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands
1976-78 og stjórnarformaður 1986-
90, í stjórn Sinfóníuhljómsveitar
æskunnar 1986-93, í úthlutunar-
nefnd listamannalauna 1974-78, í
stjórn Ísafoldarprentsmiðju 1969-
82, hefur oft setið í stjórn Sam-
bands íslenskra tryggingafélaga frá
1977 og verið formaður stjórnar, sat
í stjórn Alþjóðlegra bifreiðatrygg-
inga 1970-72 og 1989-2001, var
stjórnarformaður 1997-2001, sat í
forsætisnefnd Sambands evrópskra
vátryggingafélaga 1992-94, í stjórn
Verslunarráðs Íslands 1984-90 og
landsnefndar Alþjóðaverslunar-
ráðsins 1983-98 og var þar formaður
1994-98, sat í stjórn og varastjórn
Þróunarfélags Íslands 1986-93, var
formaður stjórnar Íslenska heilsu-
félagsins hf. 1991-95, formaður
stjórnar Heilsustofnunar NLFÍ í
Hveragerði 1991-96, formaður
stjórnar Lyfjaverslunar Íslands
1995-98, í stjórn Snorra Þorfinns-
sonar ehf. 1996-99, í stjórn Samtaka
um byggingu tónlistarhúss 1993-99,
var formaður samstarfsnefndar rík-
is og borgar um byggingu Hörpu
frá 1999 og formaður Austurhafnar,
rekstrarfélags um Hörpu, til 2005,
er búið var að samþykkja teikn-
ingar hússins. Hann sat í stjórn
ÍSAL 1995-2000, í stjórn Sameinaða
líftryggingafélagsins og í stjórn
Eddu – miðlunar og útgáfu 2002-
2003.
Ólafur var aðalræðismaður Jap-
ans 1982-2002.
Ólafur B. Thors, fyrrv. framkvæmdastj. Sjóvár-Almennra – 75 ára
Í Perlunni Ólafur og Jóhanna Jórunn, ásamt syni sínum, tengdadóttur og sonarsonum.
Hlustar á klassík og djass
Hjónin Sigrún Brynja Hannesdóttir
og Jónas Vignir Karlesson fögnuðu
40 ára brúðkaupsafmæli, í gær, 30.
desember.
Rúbínbrúðkaup
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
LAUGAVEGI 5 SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI SÍMI 577 1660
Gleðileg jól
Við óskum landsmönnum
gleðilegra jóla og farsældar
á komandi árum.
Þökkum viðskiptin
á liðnum árum.