Morgunblaðið - 31.12.2012, Síða 48
48 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ef þú lætur verða af því að segja hug
þinn muntu undrast hversu marga jábræður
þú átt. Nú er rétti tíminn til að setjast niður
með ástvinum og ræða málin.
20. apríl - 20. maí
Naut Þeir eru margir sem eiga allt sitt undir
því að þú getir lokið þeim verkefnum sem þú
hefur tekið að þér. Allir þurfa á því að halda af
og til.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu þolinmóður, að öðrum kosti
getur þú skapað meiri ringulreið en þú ræður
við. Ekki leyfa óttanum að ná yfirhöndinni í
dag, hann verður minni á morgun.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er mikil spenna milli þín og kunn-
ingja þíns og þú þarft að komast að því hvað
veldur henni. Arfleifðin hjálpar þér við vinn-
una, þú þarft samt að leggja þitt af mörkum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér finnst sumar ákvarðanirnar sem þú
tekur núna heldur furðulegar, en þér finnst
þú leiddur áfram. Samskipti við ástvini, fjöl-
skyldu og börn ganga vel.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert nú loksins að uppskera árangur
erfiðis þíns og ert svo sannarlega vel að því
kominn. Þér líður sem auðmanni þegar þú
losar tilfinningalegan bagga af þér í kvöld.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú mætir áskorun og tekur hana alvar-
lega. Dýrkaðu og lærðu að meta ástvini þína
af svo miklum ákafa, að þeir finna návist þína
líka þegar þú ert víðs fjarri.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þegar kastast í kekki milli
manna verða þeir að hafa þroska til að gera
út um málið á hávaðalausan hátt. En það þarf
ekki að vera fyrirframákveðið eða vits-
munalegt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Jákvæðir straumar þjóta um
sköpunargáfu þína og hugmyndaflug í dag.
Leggðu þitt af mörkum og vertu óhræddur
við að mæta hinum á miðri leið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þetta gæti orðið eitthvað skrýtinn
dagur í vinnunni því fólk er langt frá því að
vera samvinnuþýtt. Ekki taka neitt sem fram
fer persónulega.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Margur verður af aurum api og
þótt peningar séu hreyfiafl margra hluta fer
því fjarri að þeir séu allt. Ykkur langar til að
aðstoða einhvern sem þið þekkið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Láttu ekki ruglinginn í kringum þig
hafa áhrif á starf þitt. Kannski á það þátt í að
gera vinnuaðstöðuna hagnýtari.
Ágamlárskvöld 1881 hélduskólapiltar á Möðruvöllum í
Hörgárdal brennu allmikla. Nokkr-
ir bjuggust sem álfar, stigu þeir
dans og sungu kvæði eftir Hannes
Blöndal (1863-1932), en hann braut-
skráðist úr Möðruvallaskóla vorið
1882. Hann var lipurt skáld og
skemmtilegt, fluttist vestur um haf
og var þar blaðamaður um skeið en
kom aftur heim og réðst til Lands-
banka Íslands.
Göngum háum hólum úr,
höldum dans í kveld,
látum aðra lýði
leika sér við eld.
Stígum stígum vorn dans;
stynur freðin grund;
silfurrúnir ritar máni ránar á sund.
Horfum á og horfum á;
höldar kveikja eld
uppi á háum hólum
á heilagt gamlárskveld.
Stígum, stígum vorn dans o.s.frv.
Sjá þeir ei og sjá þeir ei
svartan álfafans
sem á hálu hjarni
harðan stígur dans.
Stígum, stígum vorn dans o.s.frv.
Verum kátir, kveðjum ár,
kveðum snjallt og hátt;
allir álfar dansa
ávallt þessa nátt.
Stígum, stígum vorn dans o.s.frv..
Allir flytja álfar sig
áramótin við,
hlaupa þá í hópum
um hól og klettarið.
Stígum, stígum vorn dans o.s.frv.
Kveðjum dag og kveðjum ár,
kveðum álfasöng;
undir rámum rómi
rymur fjallaþröng.
Stígum, stígum vorn dans. o.s.frv.
Höldum vora hóla í,
hættum nú í kveld,
látum aðra lýði
leika sér við eld.
Stígum, stígum vorn dans;
stynur freðin grund;
silfurrúnir ritar máni ránar á sund.
Helgi Hálfdánarson þýddi nokkr-
ar hækur eftir Síkí (1867-1902), jap-
anskt skáld. Á hans dögum var lítið
um flugeldasýningar hér á landi en
eftir hæku hans að dæma hefur því
verið öfugt farið í Japan:
Flugeldum lokið,
áhorfendurnir á braut –
og þvílíkt myrkur!
Annað japanskt skáld, Jajú
(1701-1783), orti:
Þennan nýársdag
skal sá vera velkominn
sem treður snjóinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Álfasöngur á Möðruvöllum
Af einhverjum ástæðum lítur fólkgjarnan á áramót sem einskonar
núllstillingu. Nýtt upphaf. Víkverji
hefur aldrei almennilega náð utan um
þá hugsun, enda er 1. janúar bara dag-
urinn á eftir 31. desember. Kannski
spilaði Víkverji ekki nóg Matador sem
krakki? Farðu yfir byrjunarreit, fáðu
2.000 krónur, misstu 10 kíló og reyndu
að lesa fleiri góðar bækur.
Kannski er það af því að okkur
finnst gott að fresta. Fólk sem
ákveður í ágúst að hætta að reykja
bíður oft til áramóta og andar því að
sér eitri fjórum mánuðum lengur en
það þarf. Fólk sem þarf að hreyfa sig
meira bíður oft líka þar til í janúar,
þegar allar líkamsræktarstöðvar eru
yfirfullar af fólki sem nennir ekki að
vera þar. Af því að áramót eru í aug-
um margra meira upphaf en næsti
dagur. Þess vegna er auðvelt að
fresta.
x x x
Svo er til fólk sem bregst sam-stundis við. Eins og björgunar-
sveitirnar okkar. Þegar útkall berst í
síma björgunarsveitarfólks segir það
ekki: „Ég ætla að fara í janúar!“ Nei,
það hleypur strax af stað. Og um ára-
mótin gefst okkur tækifæri til að
styrkja það starf og taka óbeinan þátt
í því.
Björgunarsveitir eru vel að öllum
styrkjum komnar, og ekki skemmir
fyrir að við fáum hágæða flugelda í
staðinn, til að lýsa upp einhvern
dimmasta og vetrarlegasta himin sem
fyrirfinnst.
Nú sem oftar vill svo til að björg-
unarsveitir eru önnum kafnar við að
liðsinna samborgurum sínum, mitt í
þeirri nauðsynlegu vertíð sem flug-
eldasalan er. Við getum sýnt þakklæti
okkar og ættum að gera það.
x x x
Áramót eru því bæði tíminn til aðbyrja á öllu sem við frestum og til
að styrkja fólkið sem bregst sam-
stundis við. Það mætti líta á það sem
ljóðrænt jafnvægi, svo falleg er sú
hugsun.
x x x
Bregðum blysum á loft, bleika lýs-um grund. Glottir tungl og hrín
við hrönn og hratt flýr stund. Gleðilegt
nýtt ár. víkverji@mbl.is
Víkverji
En vér, lýður þinn og gæsluhjörð,
munum þakka þér um aldur og ævi,
syngja þér lof frá kyni til kyns.
(Sálmarnir 79:13)
th
or
ri@
12
og
3.
is
/3
1.
31
3
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
VIFTUR
Í MIKLU ÚRVALI
Það borgar sig að nota það besta!
www.falkinn.is
• Bor›viftur
• Gluggaviftur
• I›na›arviftur
• Loftviftur
• Rörablásarar
• Ba›viftur
• Veggviftur
Í klípu
HÚN SAGÐIST VERA FARIN FYRIR FULLT
AF MAT, OG STRUNSAÐI GRÁTANDI ÚT.
EÐA VAR ÞAÐ „FYRIR FULLT OG ALLT“?
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞURFTIR ÞÚ ENDILEGA AÐ SEGJA BLAÐA-
MANNINUM AÐ ÉG VÆRI 57 ÁRA?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... vinalegi
tannlæknirinn ykkar.
VIÐ HVAÐ VINNUR ÞÚ,
HROLLUR?
ÉG ER Í FERÐA-
BRANSANUM.
HVERT ERTU MEÐ
FERÐIR?
AÐALLEGA Á
HVERFISKRÁNA.
Í KVÖLD FÖGNUM VIÐ NÝJA
ÁRINU MEÐ STRÖNGUM
CROSSFIT-ÆFINGUM!
BÍP BÍP
BÚP BÍP
BÍP BÚP
BÚP
ÉG MUN
HEFNA
MÍN!
HALLÓ?
... HALLÓ?
KLÚMP
KLÚMP