Morgunblaðið - 31.12.2012, Síða 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012
Munið að slökkva
á kertunum
Hafið ekki mishá kerti of nálægt hverju
öðru. Hiti frá lægra kerti getur brætt
hærra kertið.
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
VIÐTAL
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Þ
að má kannski segja að
markmið mitt hafi að
hluta til verið að skrifa
um vísindi fyrir almenn-
ing á þann hátt sem er
vel þekkt á öðrum málsvæðum,“
segir Árni Kristjánsson, dósent í
sálfræði við Háskóla Íslands, en
Háskólaútgáfan gaf nýlega út bók
hans, Innra augað.
Árni hefur áður skrifað hátt í
fimmtíu vísindagreinar í erlend vís-
indatímarit á sviði taugasálfræði og
sjónskynjunarvísinda frá því hann
hóf doktorsnám við Harvard-
háskóla 1997, en þetta er í fyrsta
skipti sem hann reynir að ná til
hins almenna lesanda. „Mikið af því
efni sem er skrifað um vísindi er
þungt þar sem vísindamenn skrifa
hver fyrir annan. Ég lít á það sem
hlutverk okkar sem gegnum stöðu
við Háskóla Íslands að þróa orð-
ræðu um vísindi á íslensku. Von-
andi getur bókin gegnt hlutverki í
að stuðla að því að hægt verði að
ræða um sálfræði og þekking-
arfræði á íslensku í meira mæli en
nú er.
Viðfangsefni bókarinnar er sjón-
skynjun. Ef maður spyr: Með
hverju sjáum við? er svarið oft að
við sjáum með augunum og að vissu
leyti er það rétt en það telst ekki
fullnægjandi svar. Þegar við opnum
augun örvast ljósnæmar frumur í
augnbotni sem síðan senda skilaboð
til heilans en heilinn vinnur úr
skilaboðunum. Heilinn er því
stærsta skynfærið. Talið er að um
50% heilans komi að úrvinnslu á
þessum sjónrænu skilaboðum.
Boðskapurinn í bókinni er sá að
þegar við opnum augun hefjist um-
fangsmikið túlkunarferli þar sem
heilinn reynir að komast að nið-
urstöðu um hvað er á ferð í um-
hverfinu. Við þekkjum öll dæmi um
myndir sem túlka má á mismunandi
vegu og þau dæmi sýna fram á að
það sem við sjáum eru ekki þeir
ljósgeislar sem berast auganu held-
ur upplýsingar sem í þeim má
finna.“
Hugurinn sem óskrifað blað
En á þetta við um skynjun al-
mennt?
„Já. Rétt eins og heilinn þarf að
túlka sjónsviðið þarf hann sem
dæmi með sama hætti að henda
reiður á hljóðheiminum. En mest er
vitað um sjónskynjun. Aristóteles
sagði að maðurinn mæti sjón-
skynjun öðru fremur og eru það orð
að sönnu. Fyrir aðrar tegundir
skipta önnur skynfæri meira máli.
Gæludýraeigendur fara nærri um
mikilvægi þefskyns fyrir t.d. hunda
og ketti.“
Þú segir að hugurinn ráði sjón-
skynjun. Er þetta viðurkennd skoð-
un í dag?
Augun
sem lýsandi
kyndlar
Sjáum við með augunum eða með
heilanum? Fræðileg bók fyrir
almenning um sjónina komin út
fremur. Fyrsta ber að nefna kvik-
myndina Lo imposible eftir Juan
Antonio Bayona sem sýnd er í ís-
lenskum kvikmyndahúsum um
þessar mundir með enskum titli,
The Impossible og er að auki með
enskumælandi leikurum í aðal-
hlutverkum. Sú hefur skilað jafn-
virði 6,9 milljarða króna í kassann
á Spáni. Spænska teiknimyndin
Las aventuras de Tadeo Jones
hefur einnig gert það gott, skilað
jafnvirði 3,1 milljarðs króna í
kassann og er sú langvinsælasta,
spænska kvikmyndin til þessa.
Þriðja myndin er svo Tengo ganas
de ti sem hefur skilað jafnvirði um
tveggja milljarða króna í kassann.
Lo imposible og Las aventuras de
Tadeo Jones voru framleiddar að
hluta af kvikmyndadeild fyrirtæk-
isins Telecinco sem hefur auglýst
þær grimmt á þeim sjö sjónvarps-
stöðvum sem það rekur á Spáni.
Markaðsherferð Telecinco virðist
hafa skilað góðum árangri.
Spænskt efnahagslíf hefur verið í
mikilli lægð hin síðustu ár og mik-
ið atvinnuleysi þjakað landsmenn.
Það virðist hins vegar ekki hafa
komið niðri á aðsókn að spænsk-
um kvikmyndum því miðasölu-
tekjur af þeim hafa aldrei verið
hærri en á árinu 2012, ef marka
má frétt á vef kvikmyndaritsins
Variety. Þar segir að miðasölu-
tekjur af spænskum kvikmyndum
stefni í að verða 108 milljónir
evra, um 18,4 milljarðar króna.
Rætist sú spá hefur 11 ára gamalt
met verið slegið því árið 2001
náðu miðasölutekjur áður óþekkt-
um hæðum.
Þetta er ekki síður merkilegt í
ljósi þess að spænsk yfirvöld
hækkuðu söluskatt af bíómiðum
úr 8% í 21% fyrir um fjórum mán-
uðum. Bíómiðinn hækkaði því
töluvert í verði og hefði mátt ætla
að það bitnaði á aðsókn. Þrjár
spænskar kvikmyndir hafa hins
vegar freistað Spánverja öðrum
Tekjur aldrei hærri af
spænskum kvikmyndum
Ómögulegt Úr kvikmyndinni Lo imposible, eða Hinu ómögulega.