Morgunblaðið - 31.12.2012, Page 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012
Út er komið fjórða um-hverfisritið í samnefndriritröð Hins íslenskabókmenntafélags. Bókin
heitir Kolefnishringrásin og er eftir
Sigurð Reyni Gíslason, vísinda-
mann hjá jarðvísindastofnun Há-
skólans.
Bókin skiptist í 12 kafla og fjalla
fyrstu sex kaflarnir um hringrás
kolefnisins. Síðari hlutinn fjallar
aftur á móti um loftslagsvandann og
áhrif mannsins á kolefnishringrás-
ina. Tólfti kaflinn fjallar um leiðir til
að binda kolefni en á því sviði hefur
Sigurður Reynir vakið athygli fyrir
leiðir til bindingar kolefnis í bergi.
Kaflar tíu og ellefu tengja viðfangs-
efnið við Ísland og er það vel.
Auðséð er að
höfundur hefur
mikla yfirsýn yfir
viðfangsefnið og
að hann býr yfir
mikilli þekkingu.
Ritstjóri rit-
raðarinnar,
Trausti Jónsson,
ritar í eftirmála
að bókinni sé ætl-
að að vera aðgengileg almenningi.
Er hún hér ritrýnd á þeim for-
sendum fyrst og fremst.
Fyrst ber að nefna að bókinni er
skipt eftir efnisþáttum með aðal- og
undirköflum og er jafnan stutt í nýj-
an kaflahluta og rammagreinar.
Sá galli er á hönnun bókarinnar
að rammagreinar eru ekki nógu af-
markaðar frá texta, þótt letrið sé að
vísu smærra. Daufur grár litur er
hafður í bakgrunni til aðgreiningar
og mætti hann vera dekkri, enda
getur sá sem les hratt dregið þá
ályktun að rammar séu hluti af
meginmáli. Rammarnir innihalda
ítarefni og getur þetta því hægt á
lestrinum. Margir kaflar eru stuttir
og er lesturinn því oft brotinn upp.
Þá spillir það flæði bókarinnar að
stundum er vísað til erlendra fræði-
manna eingöngu með eftirnafni en
það er gegn íslenskri hefð í alþýð-
legum ritum. Hefði höfundur jafn-
framt mátt kynna vísindamennina
betur fyrir lesendum sem aldrei
hafa sett sig inn í umhverfis- og
loftslagsmál.
Annað sem nefna verður er að
höfundur vitnar öðru hvoru í hug-
tök á ensku sem hann síðan þýðir.
Hefði hér verið betra að láta ís-
lenska hugtakið duga, jafnvel þótt
það sé nýtt og ekki öllum tamt, en
vísa til enska orðsins í neðanmáls-
grein. Tilgangur bókarinnar er að
koma efninu á auðskilið mál fyrir ís-
lenska lesendur og sýnist þetta því
vera stílbrot.
Þrátt fyrir ofangreint og ýmislegt
annað smálegt er bókin vel heppn-
uð. Bókin er mjög fróðleg og nægir
að nefna áhugaverðar lýsingar á
flutningi koldíoxíðs frá andrúms-
lofti í sjó. Skýringarmyndir og ljós-
myndir prýða bókina en ein örk er í
lit.
Hér er á ferð læsilegt rit með
skýrum og góðum texta. Höfundi
tekst best upp þegar brennandi
áhugi hans á efninu kemst til skila.
Hefði hann gjarnan mátt taka les-
endur í fleiri ferðalög um jarðskorp-
una, enda eru þær lýsingar afbragð.
Nefna verður að vel er til fundið
að málverk eftir Matisse sé á fram-
hlið kápunnar, enda er Sigurður
Reynir fágaður heimsmaður með
franska menntun. Á bakhliðinni er
umsögnum ofaukið. Þar hefðu tvær
en ekki fjórar dugað.
Hringrás kolefnisins krufin til mergjar
Kolefni „Höfundi tekst best upp
þegar brennandi áhugi hans á efn-
inu kemst til skila,“ segir m.a. um
bók Sigurðar Reynis, Kolefnis-
hringrásin.
Umhverfismál
Kolefnishringrásin bbbmn
Eftir Sigurð Reyni Gíslason.
Hið íslenska bókmenntafélag 2012.
250 bls.
BALDUR ARNARSON
BÆKUR
Í 2D OG 3D MEÐ
ÍSLENSKU TALI
DONT EVER CROSS ALEX CROSS
FRÁ ÞEIM SÖMU OG
FÆRÐU OKKUR
OGMÖGNUÐSPENNUMYND
JÓLAMYNDIN2012
Í 2D OG 3D MEÐ
ÍSLENSKU TALI
STÓRKOSTLEG
ÆVINTRÝRAMYND
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
JÓLATEIKNIMYNDIN Í ÁR!
NAOMI WATTS
TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA
BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI
100/100
„Fer beint í efsta sæti yfir þær myndir
sem fólk verður að sjá á árinu.“
100/100
„Ógnvænlega vel gerð.“
JÓLAMYND 2012
-B.O. MAGAZINE
- NEW YORK DAILY NEWS
-H.S.S., MBL
-H.V.A., FBL
-V.J.V., SVARTHÖFÐI.IS
LIFE OF PI ER
TÖFRUM LÍKUST
-EMPIRE
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
VIP
HOBBIT: AN UNEXPECTED JOURNEY3D
KL. 1 - 4:30 - 8 - 11:30
HOBBIT: UNEXPECTED KL. 4 -6 - 10
HOBBIT:ANUNEXPECTEDJOURNEYVIP
KL. 1 - 4:30 - 8 - 11:30
THE IMPOSSIBLE KL. 5:50 - 8 - 10:30
SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 1:30 - 3:40 - 5:50
SAMMY 2 ÍSLTAL3D KL. 1:30
RED DAWN KL. 8 - 10:10
RISE OF GUARDIANS ÍSLTALI KL. 1:30 - 3:40
RISE OF GUARDIANS ÍSLTALI3D KL. 3:40
RISE OF THE GUARDIANS ENSTALI KL. 8:20
WRECK-IT RALPH ÍSL.TALI KL. 1:30
ARGO KL. 10:30
AKUREYRI
THE IMPOSSIBLE KL. 8 - 10:20
RED DAWN KL. 8 - 10:20
RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTAL3D KL. 2 - 4
RISE OF THE GUARDIANS ENSTAL KL. 6
SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 2 - 4 - 6
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
LIFE OF PI 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 - 10:30
SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 1 - 3:10
RISEOFGUARDIANS ÍSLTAL3DKL.1:30-3:40-5:50
RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTALKL. 1 - 3:10
PLAYING FOR KEEPS KL. 8
SKYFALL KL. 10:10
KEFLAVÍK
HOBBIT: UNEXPECTED JOURNEY KL. 4 - 8
THE IMPOSSIBLE KL. 8 - 10:20
RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTAL3D KL. 1:30
SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 2 - 4- 6
HOBBIT: AN UNEXPECTED JOURNEY 3D
KL. 1 - 4:30 - 8 - 10:20 - 11:20
HOBBIT: UNEXPECTED KL. 3:40 - 7
LIFE OF PI 3D KL. 3- 5:20 - 8 - 10:40
THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 - 10:30
SAMMY 2 ÍSLTAL3D KL. 1
SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 3:20
RISE OF GUARDIANS ÍSLTAL3DKL. 1
WRECK-ITRALPH ÍSLTAL3D KL. 1
ÞRIÐJUDAGS
TILBOÐ Í DAG
-SÉÐ & HEYRT/VIKAN
SÝNINGARTÍMAR GILDA FYRIR NÝÁRSDAGGleðilegt Nýtt Ár
Útsalan
hefst miðvikudaginn 2. janúar
v/Laugalæk • sími 553 3755