Morgunblaðið - 03.01.2013, Page 1

Morgunblaðið - 03.01.2013, Page 1
F I M M T U D A G U R 3. J A N Ú A R 2 0 1 3  Stofnað 1913  1. tölublað  101. árgangur  KANN BEST VIÐ SIG NORÐUR Á STRÖNDUM HEILSUEFLING, LÍKAMSRÆKT OG MATARÆÐI LEIKRITIÐ MÝS OG MENN FÆR FULLT HÚS HEILSA 32 SÍÐUR AFBURÐA TÖK 46SVISSNESKUR KENNARI 10 –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Stjórnarskráin verður aldrei skrif- uð nákvæmlega samkvæmt ýtrasta vilja einhverra tiltekinna fárra ein- staklinga,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, aðspurður hvort gagnrýni fræðimanna og for- seta á tillögur stjórnlagaráðs gefi tilefni til að endurskoða frumvarp- ið. Framundan sé lokaumferð þings- ins þar sem ágreiningsatriði verði einangruð og brugðist við þeim. Ekki sé um annað að ræða en að halda stjórnarskrármálinu áfram og fara þannig að „þjóðarviljanum“. Tilefnið er hörð gagnrýni forseta Íslands og þau ummæli hans að leita þurfi víðtæks samráðs um breytingar á stjórnarskrá. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæð- isflokks, tekur undir orð forsetans. Gefi tilefni til að staldra við „Ég tel að forseti Íslands hafi hitt naglann á höfuðið í fjölmörgum atriðum þar sem hann gagnrýnir bæði málsmeðferðina og hið efn- islega inntak frumvarpsins sem liggur fyrir þinginu. Þetta hlýtur að gefa stjórnarflokkunum tilefni til að staldra við og spyrja sig hvort ekki sé kominn tími til að gera sér grein fyrir því, hvað heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar varðar, að rík- isstjórnin sé runnin út á tíma. Það er óábyrgt að þrýsta áfram tillögum sem jafn mikill ágreining- ur er um og birst hefur í umræðum um stjórnlagafrumvarpið. Nær væri að vinna að afmörkuðum atrið- um sem samstaða getur tekist um.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir brýnt að ná samstöðu í mál- inu. „Öllum má vera ljóst að það er óraunhæft að ljúka málinu fyrir kosningar. Það sem út af stendur sé tekið upp eftir kosningar. Við framsóknarmenn leggjum áherslu á að fá auðlindaákvæði inn í stjórn- arskrá. Ég legg til að það fái for- gang.“ MÁgætis leiðsögn » 18-19 Lúti „þjóðarviljanum“  Formaður VG segir lokafrágang þingsins framundan á tillögum stjórnlagaráðs  Formaður Sjálfstæðisflokks segir óábyrgt að halda jafn umdeildu máli áfram Veiki þingið » Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur telur að hugmyndir stjórnlagaráðs um persónukjör veiki þingið. » Salvör Nordal, formaður stjórnlagaráðs, telur rétt að velja einstök atriði úr tillög- unum fyrir kosningar en geyma önnur. » Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gaf ekki kost á viðtali vegna ummæla forseta. Almannavarnir í Skagafirði ákváðu í gær að loka afmörkuðu svæði á Hofs- ósi þar sem m.a. standa byggingar sem hýsa Vesturfarasetrið og Fána- smiðjuna. Mikil snjóhengja er í brekku aftan við húsin en Valgeir Þorvalds- son, framkvæmdastjóri Vesturfarasetursins, segir ljóst að hengjurnar geti valdið miklum skaða fari þær af stað. Of áhættusamt þótti að reyna að bjarga verðmætum úr húsunum í gær en staðan verður endurmetin í dag. Ljósmynd/Sólveig Erla Valgeirsdóttir Hættuástand vegna snjóhengja á Hofsósi  Fæðingum á Landspítalanum fjölgaði á síðasta ári í fyrsta skipti síðan 2009. Á síð- asta ári voru fæðingar á spít- alanum 3.255 talsins, sam- kvæmt bráða- birgðatölum. Fæðingum á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri fjölgaði töluvert, voru 474 árið 2012 en árið áður voru þær 393. Ekki hafa fengist upplýsingar um heild- arfjölda fæðinga á landinu. »20 Fæðingum aftur farið að fjölga á LSH  Eftir umfjöllun Morgunblaðsins í vikunni um systkinin frá Kjóa- stöðum hafa komið fram tveir systk- inahópar til viðbótar sem hvor um sig nálgast samtals 1.000 ára aldur. Í öðrum hópnum eru 15 systkini á lífi úr Jökulsárhlíð, samtals 981 árs, og ná þau 1.000 ára aldri í mars 2014. Í hinum hópnum eru 14 systkini á lífi úr Vestmannaeyjum. Sá hópur er samtals 992 ára og nær 1.000 ára aldri í maí á þessu ári. Í báðum hóp- um voru 16 systkini. »4 Ná 1.000 ára aldri samtals í maí í vor  „Það var ansi lítið sofið, bara vakað yfir þessu. Ég náði að halla mér í tvo tíma annan sólarhring- inn og þá var hinn maðurinn hérna og svo öfugt,“ segir Sig- urður Þ. Gunnarsson sem með fé- laga sínum hélt dísilvélunum á Þingeyri gangandi fyrir og um áramót. Til þess að skammta rafmagn þurftu þeir að hlaupa reglulega út í spennistöðvar til að setja svæði inn og taka önnur út. » 12 Hlupu reglulega út í spennistöðvarnar Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Stefnt er að því að hefja byggingu á fimm hektara gróðurhúsi undir tómatarækt um mánaðamótin febr- úar-mars. Byggt verður við hliðina á Hellisheiðarvirkjun og mun fyrsti áfangi krefjast um átta MW raf- orku. Að sögn Sigurðar Hrafns Kiernans, stjórnarformanns Geo- greenhouse ehf., er stefnt að rækt- un fjögurra gerða af kirsuberjató- mötum sem munu fara á markað í Bretlandi. „Við kaupum rafmagn og heitt og kalt vatn frá Hellisheiðarvirkjun. Svo verða tómatarnir fluttir með skipi frá Reykjavíkurhöfn til Imm- ingham. Áætlað er að flytja út þrjá 40 feta gáma á viku,“ segir Sig- urður. Verkefnið kostar um 2,2 milljarða íslenskra króna. Sigurður segir að 1,5 milljarða króna lánsvil- yrði liggi fyrir en viðræður standi yfir með fjárfestum um öflun hluta- fjár. Fyrsti áfangi af þremur Fimm íslenskir fjárfestar hafa komið að undirbúningi verkefnisins frá því það hófst árið 2008. Áætlað er að byggingu gróðurhússins ljúki síðsumars og á Sigurður von á því að ræktun geti hafist í kjölfarið. Gert er ráð fyrir að 40 manns muni starfa við gróðurhúsið fyrst um sinn. ,,Á þeirri lóð sem við erum með getum við byggt 20 hektara gróðurhús. Þessar framkvæmdir eru fyrsti áfangi af þremur. Síðan er stefnan að stækka upp í 10 hekt- ara og byggja að lokum 20 hektara gróðurhús,“ segir Sigurður. »6 Ætla að byrja ræktun í haust  Stefnt að því að hefja fljótlega byggingu á 5 ha gróðurhúsi fyrir tómatarækt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.