Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 43
ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013 Pálmi Hannesson, rektorMenntaskólans í Reykjavík,fæddist 3.1. 1898 á Skíðastöð- um í Lýtingsstaðahreppi í Skaga- firði. Hann var sonur Hannesar Pét- urssonar, bónda á Skíðastöðum, og k.h., Ingibjargar Jónsdóttur hús- freyju. Pálmi var bróðir Péturs spari- sjóðsstjóra, föður Hannesar skálds. Hannes á Skíðastöðum var bróðir Jóns á Nautabúi, afa Pálma Jóns- sonar, stofnanda Hagkaups, og Elínar Pálmadóttur, rithöf- undar og fyrrv. blaðamanns við Morgunblaðið. Pálmi lauk gagnfræðaprófi á Ak- ureyri 1915, stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1918, cand.phil.-prófi frá Kaupmanna- hafnarháskóla 1919 og stundaði nám í dýrafræði, grasafræði, jarðfræði, eðlisfræði og efnafræði, og lauk magistersprófi í dýrafræði árið 1926. Pálmi var ráðunautur Bún- aðarfélags Íslands og Fiskifélags Ís- lands um veiðimál 1926-29 og jafn- framt kennari við GagnfræðaskólaAkureyrar. Jónas frá Hriflu var stórhuga menntamálaráðherra 1927-31. Hann veitti Gagnfræðaskólanum á Ak- ureyri menntaskólaréttindi, stofnaði héraðsskóla á landsbyggðinni, lét endurbæta húsnæði MR og skipaði Pálma þar rektor 1929 og sinnti hann því starfi til dauðadags 1956. Pálmi var alþm. Skagfirðinga fyr- ir Framsóknarflokkinn 1937-42, bæjarfulltrúi í Reykjavík, var formaður Veiðimálanefndar um árabil og sat í Útvarpsráði, Mennta- málaráði og í Rannsóknarráði rík- isins. Eiginkona Pálma var Ragnhildur Skúladóttir Thoroddsen húsfreyja, dóttir Skúla Thoroddsen alþm. og k. h. Theodoru Thoroddsen skáldkonu en meðal systkina hennar voru al- þingismennirnir Katrín læknir, Sig- urður og Skúli Thoroddsen. Börn Pálma og Ragnhildar: Jón Skúli, f. 1927; Ingibjörg Ýr, f. 1931; Pétur Jökull, f. 1933; Skúli Jón, f. 1938, og Pálmi Ragnar, f. 1940, en dóttir Pálma og Mattheu Kristínar Pálsdóttur: Rannveig, f. 1924. Merkir Íslendingar Pálmi Hannesson 100 ára Bergþóra Þorsteinsdóttir 90 ára Þórir Magnússon Þuríður Þorsteinsdóttir 85 ára Hrefna Guðmundsdóttir Kristinn Arason 80 ára Halldór Kristjánsson Sigursveinn Helgi Jóhannesson Þórsteinn Glúmsson 75 ára Alice Lid Þórðarson Hulda Hjaltadóttir Loftur Jónsson Ragna Guðný Pedersen 70 ára Börkur Þórir Arnljótsson Guðmundur Pálsson Ingveldur Eiðsdóttir 60 ára Arnheiður Jónsdóttir Guðrún Linda Þorvaldsdóttir Hallur Þorgils Sigurðsson Kolbrún Stefánsdóttir Kristín Edda Jónsdóttir Rósa Sigurlaug Eiríksdóttir Sigurður P. Ingólfsson Skírnir Björnsson Sveinn Klausen 50 ára Árni Karl Harðarson Einar Sveinn Arason Guðjón Theódórsson Gunnar Leó Helgason Natalya Gryshanina Sveinn Dal Sigmarsson 40 ára Baldvin Kristján Jónsson Böðvar Páll Jónsson Guðlaugur Agnar Pálmason Gunnar Karl Níelsson Hlín Jóhannesdóttir Jesus Manuel Navarro Gonzalez Ragnheiður Elíasdóttir Sigrún Lína Barhams Sveinn Vilberg Jónsson Svetlana Luchyk Sævar Már Sævarsson 30 ára Anna Genowefa Wywrocka Anna Sigga Lúðvíksdóttir Haukur Hauksson Haukur Óskar Hafþórsson Ingi Hauksson Margrét Úrsúla Ólafsd. Hauth Sandra Björk Björnsdóttir Sigríður Þyrí Pétursdóttir Wioletta Taraskowska Þóra Elísabet Kristjánsdóttir Örn Jóhannsson Til hamingju með daginn 30 ára Þórdís ólst upp á Galtavík í Innri- Akraneshreppi og stundar nú nám í ensku við HÍ og starfar hjá N-1. Maki: Magnús Andr- ésson, f. 1982, nemi á Akranesi. Foreldrar: Gissur Bach- mann Bjarnason, f. 1957, starfsmaður hjá Járn- blendifélaginu á Grund- artanga, á Akranesi, og Hafdís Sigursteinsdóttir, f. 1963, húsfreyja. Þórdís B. Gissurardóttir 30 ára Erla ólst upp í Reykholti í Borgarfirði en er nú búsett á Álftanesi. Hún lauk stúdentsprófi frá FÁ og er í fæðing- arorlofi. Maki: Haukur Sigurðs- son, f. 1983, húsasmiður. Börn: Emilía Ósk, f. 2007, og Brynjar Breki, f. 2011. Foreldrar: Kristján Gunn- ar Kristjánsson, f. 1963, og Erna Björk Jónasdóttir, f. 1963, reka ferðaþjón- ustuna Mountain Taxi. Erla Lilja Kristjánsdóttir 30 ára Sigríður er nú bú- sett á Akranesi, lauk próf- um á hestabraut á Hólum og er viðkurkenndur bók- ari frá HR. Maki: Brynjar Atli Krist- insson, f. 1976, starfs- maður við Járnblendi- félagið á Grundartanga. Börn: Birkir Atli, f. 2005; Arnar Freyr, f. 2008, og Tinna Björg, f. 2010. Foreldrar: Svava Sigurð- ardóttir, f. 1955, og Þor- steinn Ragnarsson, f. 1951. Sigríður Þorsteinsdóttir skólaskipinu Sæbjörgu. Höskuldur hóf aftur störf hjá Slökkviliði Reykjavíkur 1992, er síð- ar varð Slökkvilið höfuðborg- arsvæðisins og hefur starfað þar síðan, nú sem deildarstjóri með slökkvistörf til sjós, hættuleg efni og stórar brunahættur sem aðal- viðfangsefni. Höskuldur hefur verið leiðbein- andi á fjölda námskeiða Bruna- málastofnunar, nú Mannvirkjastofn- unar, og ferðast með námskeið um slökkvi- og björgunarstörf um allt land. Hann hefur einnig kennt á fjölmörgum námskeiðum Slökkvi- liðs höfuðborg- arsvæðisins um nánast allt sem lýtur að starfi slökkviliðsmanns en þó oftast með aðaláherslur á reykköfun og störf slökkviliðs- manna við eitur- efnaleka. Þá hef- ur hann einnig verið með fræðslu á eigin vegum hjá hinum ýmsu fyrirtækjum og stofn- unum varðandi öryggismál gagn- vart bruna og viðbrögðum við slíku. Höskuldur sat í stjórn Bruna- varðafélags Reykjavíkur um tíma, var gjaldkeri Landssambands slökkviliðsmanna 1978-’81 og síðar formaður þess 1981-’86. Ávallt með hugann við öryggis- mál, björgun og slökkviliðs- störf Höskuldur vísar í ævistarfið þeg- ar hann er inntur eftir áhuga- málum: „Það er erfitt að vinna tiltekin frumkvöðlastörf á sviði björgunar- og öryggismála, án þess að fá mik- inn áhuga á viðfangsefninu og vera stöðugt að hugsa um það,“ segir Höskuldur. „Öryggismál slökkvi- liðsmanna og sjómanna hafa verið mitt sérsvið, einkum við reykköfun og önnur slökkvistörf. Það má vera að ýmsum hafi þótt nóg um þennan áhuga minn en það verður þá bara að hafa það. Í þessum störfum verða menn ávallt að vera viðbúnir alvarlegum og erfiðum aðstæðum. En ég hef nú reyndar einnig haft áhuga á ferðalögum og geri ráð fyr- ir að maður geti farið sinna því áhugamáli betur með aldrinum.“ Fjölskylda Höskuldur kvæntist 21.6.1975 Sigríði Ragnheiði Ólafsdóttur, f. 22.6. 1950, leikskólakennara. Hún er dóttir Ólafs Jónssonar frá Skála og Guðlaugar Helgu Sveinsdóttur sem bæði eru nú látin. Börn Höskuldar eru Sigfús Óm- ar, f. 23.12. 1970, símsmíðameistari en eiginkona hans er Ásdís Bjarna- dóttir flugfreyja og eru synir þeirra Baldvin Haukur, Styrmir Goði og Nökkvi Freyr; Hlynur, f. 7.9. 1977, slökkviliðsmaður og bráðatæknir, en eiginkona hans er Sigríður Karlsdóttir hjúkrunarfræðingur, og eru börn þeirra Elfa Dís, Karl Logi og Katrín Lára; Helga, f. 4.10. 1987, nýútskrifaður lögreglumaður. Alsystur Höskuldar eru Sigrún Björk, f. 30.6. 1944, húsmóðir í Reykjavík; Þórlaug Erla, f. 29.1. 1947, húsmóðir í Reykjavík. Hálfsystkini Höskuldar: Gunnar Helgi Einarsson, f. 15.8.1936, d. 25.7. 1999 ; Guðrún Einarsdóttir, f. 1.12. 1940, húsfreyja frá Teigi í Hvammssveit. Foreldrar Höskuldar: Einar Þór- ir Steindórsson, f. 10.9. 1916, d. 19.4. 1991, bifvélavirki og bifreið- arstjóri langferðabifreiða í Reykja- vík, og Elínborg Gísladóttir, f. 15.8. 1914, d. 15.10. 2006, húsmóðir. Úr frændgarði Höskuldar H. Einarssonar Höskuldur H. Einarsson Guðný Jónasdóttir húsfr. á Þremi Guðlaugur Jóhannesson b. á Þremi í Garðsárdal Sigrún Guðlaugsdóttir húsfr. í Arnarnesi Gísli Gilsson b. í Arnarnesi í Dýrafirði Elínborg Gísladóttir húsfr. í Rvík Guðrún Gísladóttir húsfr. í Arnarnesi Gils Þórarinsson b. í Arnarnesi Kristrún Eyjólfsdóttir frá Stuðlum í Reyðarfirði Björn Björnsson búfr. og hreppstj. í Gröf í Mosfellssveit Steindór Björnsson frá Gröf, efnisstj. hjá Pósti og síma og leikfimikennari í Rvík Guðrún Guðnadóttir húsfr. í Gröf Einar Steindórsson bivélavirki og langferðabílstj. í Rvík Ástríður Finnsdóttir húsfr. á Keldum Guðni Guðnason b. á Keldum, bróðursonur Sigríðar, langömmu Halldórs Kiljan Laxness Vilborg Guðnadóttir Sigríður Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingur í Rvík Vigdís Finnbogadóttir fyrrv. forseti Íslands Eybjörg Steindórsd. húsfr. í Rvík Björn Vignir Sigurpálsson fyrrv. fréttaritstj. Morgunblaðsins Helga Björnsdóttir húsfr. á Hulduhólum og á Engi í Mosfellssveit Sigurður Hreiðar Hreiðarsson fyrrv. ritstj. Guðný Gilsdóttir húsfr. Guðmundur Gilsson tónlistarmaður Sigtryggur Guðlaugsson pr. og skólastj. á Núpi í Dýrafirði Þröstur Sigtryggsson skipherra Hlynur Sigtryggsson veðurstofustjóri Afmælisbarnið Höskuldur. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Þjónusta Vörubílastöðin Þróttur býður fjöl- breytta þjónustu s.s. jarðefnaflutninga, hífingar, fjarlægja tré og garðúrgang o.fl. og ræður yfir stórum flota atvinnutækja til margvíslegra verka. Sjáðu meira á heimasíðunni okkar www.throttur.is ÞRÓTTUR TIL ALLRA VERKA Þekking • Reynsla • Traust þjónusta Þið þekkið okkur á merkinu SÆVARHÖFÐA 12 · SÍMI 577 5400 · THROTTUR.IS • Vörubílar • Kranabílar • Flatvagnar • Körfubílar • Grabbar • Grjótklær • Hellusandur • Holtagrjót • og óteljandi aukabúnaður Bílar - tækjakostur og efni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.