Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013 Ásamt Messíasi Händels(1741) er JólaóratóraBachs frá 1734 meðfremstu og vinsælustu kirkjukórverkum allra tíma. Hún var því tilvalin á þrítugasta afmæl- isári Mótettukórsins, er stjórnandi hans frá upphafi, Hörður Áskelsson, stofnaði 1982. Meistaraverk fimmta guðspjallamannsins í Leipzig er jafnframt vægðarlaus gæða- mælikvarði, auk þess sem heil sjö ár voru liðin frá síðasta flutningi kórs- ins 2005 og því kominn tími til upp- rifjunar. Segja má að óratórían hafi lengi lifað með kórnum, eða allt frá 1995- 96 og síðan 2002, 2004 og 2005 skv. upplýsingum tónleikaskrár. Á því tímabili hefur kórinn í vaxandi mæli hlýtt kalli tímans um svokallaðan upprunalegan flutningsmáta; und- angengin tvö skiptin í samstarfi við Barokksveitina í Haag. Hið markverðasta við þetta tæki- færi voru þó vistaskiptin frá Hall- grímskirkju í Eldborgarsal Hörpu. Hvað hljómburð varðar eru þar óneitanlega himinn og haf á milli eins og menn vita, og því ekki laust við að nýjar og gjörólíkar aðstæður hafi vakið forvitni hlustenda í þétt- ingsfullum salnum s.l. laugardag. Og ekki nema von. Upphafleg bar- okktréblásturshljóðfæri (einkum flauturnar) eru kraftminni en nú gerast, og aðeins 15 manna girni- strengjasveit gat sömuleiðis varla fyllt 1800 sæta sal í líkingu við stál- strengdan nútíma strokhóp. Ef marka má fregn um að reynt hafi verið að sérstilla Eldborgarheyrðina fyrir þessa í raun kammerkenndu áhöfn (trúlega einkum til að auka enduróm), hefur jafnvægisvandinn verið engu síðra áhyggjuefni að- standenda. En hvernig tókst þá til? Að minni vitund ekki alveg nógu vel. Þótt nokkuð bætti úr skák að láta spil- endur fylgiradda [„obbligati“] stundum standa upp svo að hinir framar sitjandi skyggðu ekki á hljóminn (heyrt utan af miðju gólfi fyrra kvöldið), þá virtist salurinn einfaldlega allt of stór fyrir þetta litla sveit. Spurning er því hvort Norðurljósin hefðu e.t.v. hentað bet- ur. Þar að auki var 60 manna kór hlutfallslega of fjölmennur; einkum fyrir veikróma strengina. Reyndar var hann margfalt umfram söngv- arakrafta Bachs á sínum tíma, jafn- vel miðað við aldrei uppfylltan óska- lista kantorsins gagnvart „göfugri og viturri“ stjórn Leipzigborgar. Einnig virtust karlaraddir í fyrstu ívið of fáar, en það misvægi lagaðist hins vegar talsvert seinna kvöldið þá hlustað var ofan af neðstu svölum. Að heyrðaratriðum loknum, er sýndu glögglega hversu mikið er enn ólært um sérkenni Eldborgar, þá var flutningurinn oftast til mik- illar ánægju, enda þótt eiginleikar upprunatúlkunar skæru sig nú skýr- ar úr en áður mátti heyra í Hall- grímskirkju. Þrátt fyrir smávegis máttleysi í bassa og tenór var kórinn skínandi tær og lipur, og hljóm- sveitin almennt hreinasta eyrna- yndi. Ekki sízt glansmikill tromp- etablásturinn og (því miður örsjaldan í boði) málmhöfgur vald- hornsleikurinn er beintengdi 280 ár aftur í tíma. Fylgileikur sólófiðlu barst þó furðuilla á neðsta tónsviði, og það átti einnig við annars fallegan ein- söng sóprans og tenórs, þar sem hæst bar sópranekkóaríuna Flößt mein Heiland (með þrjá kórsóprana í bergmálshlutverki af efstu svölum) og kólóratúrkverkabrjót tenórs, Ich will nur dir zu ehren. Einsöngsbass- inn var almennt jafnari, og kontra- tenór Daniels Cabena var engu minna en framúrskarandi í altrull- unni. Af er sem áður var þegar bar- okkið mótaðist af rómantík 19. aldar. En það fer óðum að venjast. Sumir af eldri kynslóð kynnu e.t.v. að sakna aðeins meiri krafts og sveiflu en hér gat að heilsa. Í staðinn fengu menn að heyra mun „intímari“ með- ferð; oftast þó í sannfærandi hraða- vali og músíkalskri nálgun er örvaði marghliða upplifun á ástkæru og ódauðlegu meistaraverki. Ljósmynd/Brynjar Gunnarsson Mótettukórinn „Þar að auki var 60 manna kór hlutfallslega of fjölmennur; einkum fyrir veikróma strengina,“ segir m.a. í gagnrýni. Jólaóratóría í kammermynd Eldborg í Hörpu Óratóríutónleikarbbbmn J. S. Bach: Jólaóratóría. Herdís Anna Jónasdóttir S, Daniel Cabena KT, Bene- dikt Kristjánsson T og Stephan Mac- Leod B. Alþjóðlega barokksveitin í Haag ásamt Mótettukór Hallgrímskirkju. Stjórnandi: Hörður Áskelsson. Laug- ardaginn 29. desember (kantötur nr. I- IV) og sunnudaginn 30.12. (nr. I-II & V- VI) kl. 17. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/Dalvegi 4 - 201 Kópavogur Hamraborg 14 - 200 Kópavogur Opnunartími: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00 laugardaga frá 6:00 til 17:00 sunnudaga frá 7:00 til 17:00 Repjubrauð Hollustubrauð sem inniheldur m.a. íslenska repjuolíu, repjuhrat sem og íslenskt bygg - enginn sykur Ríkt af Omega 3 Góð brauð – betri heilsa Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið) Lau 5/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 13/1 kl. 13:00 35.sýn Sun 27/1 kl. 13:00 39.sýn Lau 5/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 13/1 kl. 16:00 36.sýn Sun 27/1 kl. 16:00 40.sýn Sun 6/1 kl. 13:00 33.sýn Sun 20/1 kl. 13:00 37.sýn Sun 6/1 kl. 16:00 34.sýn Sun 20/1 kl. 16:00 38.sýn Sýningar í janúar komnar í sölu! Macbeth (Stóra sviðið) Fim 3/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 11/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 10.sýn Fös 4/1 kl. 19:30 5.sýn Mið 16/1 kl. 19:30 Aukas. Fös 25/1 kl. 19:30 11.sýn Mið 9/1 kl. 19:30 Aukas. Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fim 10/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn Aðeins sýnt út janúar! Jónsmessunótt (Kassinn) Lau 12/1 kl. 19:30 25.sýn Lau 19/1 kl. 19:30 27.sýn Sun 13/1 kl. 19:30 26.sýn Sun 20/1 kl. 19:30 Meinfyndið nýtt íslenskt verk, svört kómedía beint úr íslenskum samtíma. Karíus og Baktus (Kúlan) Lau 5/1 kl. 13:30 5.sýn Sun 6/1 kl. 15:00 8.sýn Lau 12/1 kl. 16:30 Aukas. Lau 5/1 kl. 15:00 6.sýn Sun 6/1 kl. 16:30 Aukas. Sun 13/1 kl. 13:30 11.sýn Lau 5/1 kl. 16:30 Frums. Lau 12/1 kl. 13:30 9.sýn Sun 13/1 kl. 15:00 12.sýn Sun 6/1 kl. 13:30 7.sýn Lau 12/1 kl. 15:00 10.sýn Sun 13/1 kl. 16:30 Aukas. Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka! Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið ) Fim 31/1 kl. 20:30 19.sýn Fös 8/2 kl. 20:30 21.sýn Sun 3/2 kl. 20:30 20.sýn Sun 10/2 kl. 20:30 Nýtt sýningatímabil hefst eftir áramót - miðasala í fullum gangi! Já elskan (Kassinn) Lau 5/1 kl. 20:00 3.sýn Mið 9/1 kl. 20:00 5.sýn Sun 6/1 kl. 20:00 4.sýn Fim 10/1 kl. 20:00 6.sýn Nýtt íslenskt dansverk um margbreytileg mynstur fjölskyldna. Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Mýs og Menn (Stóra svið) Fös 4/1 kl. 20:00 2.k Fim 17/1 kl. 20:00 8.k Fim 31/1 kl. 20:00 13.k. Sun 6/1 kl. 20:00 3.k Fös 18/1 kl. 20:00 aukas Fös 1/2 kl. 20:00 14.k Mið 9/1 kl. 20:00 4.k Lau 19/1 kl. 20:00 9.k Fös 8/2 kl. 20:00 Fim 10/1 kl. 20:00 aukas Sun 20/1 kl. 20:00 10.k Lau 9/2 kl. 20:00 Fös 11/1 kl. 20:00 5.k Fim 24/1 kl. 20:00 11.k Lau 16/2 kl. 20:00 Lau 12/1 kl. 20:00 aukas Fös 25/1 kl. 20:00 aukas Sun 17/2 kl. 20:00 Sun 13/1 kl. 20:00 6.k Lau 26/1 kl. 20:00 aukas Mið 27/2 kl. 20:00 Mið 16/1 kl. 20:00 7.k Sun 27/1 kl. 20:00 12.k Jólasýningin 2012. Saga um gildi manneskjunnar, drauma hennar og þrár Á sama tíma að ári (Stóra sviðið) Lau 5/1 kl. 20:00 lokas Hjartnæmur og bráðfyndinn gamanleikur. Síðustu sýningar Gulleyjan (Stóra sviðið) Sun 6/1 kl. 14:00 Sun 13/1 kl. 14:00 Sun 20/1 kl. 14:00 Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma. Aukasýningar í janúar! Gullregn (Nýja sviðið í desember og janúar. Stóra sviðið í febrúar) Fim 3/1 kl. 20:00 Fim 17/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 20:00 Fös 4/1 kl. 20:00 Fös 18/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 20:00 Lau 12/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 20:00 Lau 2/2 kl. 20:00 Sun 13/1 kl. 20:00 Mið 23/1 kl. 20:00 Mið 16/1 kl. 20:00 Fim 24/1 kl. 20:00 Mannlegt verk um íslenskt fólk og útlenskt tré Saga Þjóðar (Litla sviðið) Fös 4/1 kl. 20:00 Fös 18/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 20:00 Fös 11/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 20:00 Lau 12/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 20:00 Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum. Jesús litli (Litla svið) Lau 5/1 kl. 20:00 Sun 6/1 kl. 20:00 Mannbætandi upplifun! Grímusýning ársins 2010 Stundarbrot (Nýja sviðið) Fim 10/1 kl. 20:00 frums Þri 15/1 kl. 20:00 3.k Þri 22/1 kl. 20:00 Fös 11/1 kl. 20:00 2.k Sun 20/1 kl. 20:00 4.k Framsækið sjónarspil á mörkum vísinda, leikhúss og dans Skoppa og Skrítla í leikhúsinu (Litla sviðið) Lau 12/1 kl. 13:00 1.k Sun 13/1 kl. 13:00 3.k Lau 19/1 kl. 13:00 5.k Sun 13/1 kl. 11:00 2.k Lau 19/1 kl. 11:00 4.k Leikhús með söng og dansi fyrir börn frá níu mánaða aldri Gullregn –HHHH–SGV, Mbl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.