Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013 ✝ Guðrún Þor-valdsdóttir var fædd á Hálsi í Mið- firði 2. janúar 1921. Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Grund 20. des- ember 2012. Foreldrar Guð- rúnar voru Þor- valdur Kristinsson, f. 15. febrúar 1892, d. 15. maí 1942 og Elín Björnsdóttir, f. 28. desem- ber 1894, d. 14. september 1949. Guðrún var næstelst fimm 1942. Hann var að koma úr kaupstaðarferð á árabát og með honum í för voru nágranna- bóndi og ráðsmaður og um borð voru einnig þrír ungir drengir sem lifðu slysið. Tveimur árum eftir slysið flutti Elín, móðir Guðrúnar, til Akraness með syni sína tvo. Árið 1939 byrjaði Guð- rún að vinna á símstöðinni á Hvammstanga. Síðan fór hún á símstöðina á Djúpuvík árið 1943 og vann þar til ársins 1946. Þá fluttist hún til Reykjavíkur ásamt manni sínum og hóf þá störf sem símamær í Reykjavík. Ásamt því að starfa sem síma- mær hafði Guðrún mikið yndi af söng og starfaði með hinum ýmsu kórum í gegnum tíðina. Guðrún var jarðsungin frá Bústaðakirkju í gær, 2. janúar 2013. systkina. Þau eru Kristín f. 17. janúar 1919, d. 12. júlí 2012, Guðný Ingi- björg, f. 15. febrúar 1922, Björn, f. 21. maí 1927, d. 13. nóvember 2006, Böðvar, f. 2. janúar 1940. Guðrún gift- ist 3. ágúst 1946 Birni Benedikts- syni póstmanni, f. 30. júlí 1920, d. 5. desember 1983. Guðrún missti föður sinn sem drukknaði í Miðfirði árið Elskuleg Guðrún frænka er nú horfin á braut. Einstök og hjartahlý kona sem alltaf var glöð og góð við alla. Margs er að minnast á þessum tímamótum. Maður lítur til baka og hugsar um allar góðu stund- irnar sem við áttum saman. Við fjölskyldan komum oft á Grandaveginn til þín á mínum yngri árum þegar við komum til Reykjavíkur og þá varst þú alltaf búin að baka fyrir okkur pönnu- kökur eða vöfflur og ýmislegt annað. Við Árni bróðir minn kíkt- um á páfagaukinn þinn sem var stór, grár og var á priki í her- berginu þínu og síðan fórum við í bókaherbergið og kíktum í bók. Einu sinni sem oftar kom ég til Reykjavíkur með Akraborginni og þú sóttir mig og við fórum saman í sumarbústaðinn þinn við Þingvallavatn bara við tvær. Við fórum og renndum fyrir fisk og höfðum gaman af því að vera saman í rólegheitunum. Það er til mynd af aflanum úr einni ferð- inni, en það eru bara fáir sem sjá aflann því fiskurinn var svo lítill, en við vorum mjög glaðar með þetta. Þú söngst í mörgum kórum og ferðaðist mikið með góðu fólki. Þú varst komin vel yfir sjötugt og varst að koma frá því að syngja með einum kórnum þínum fyrir eldri borgara og þú sagðir við mig og mömmu: „Það er svo gaman að syngja fyrir gamla fólkið því það er alltaf svo þakklátt blessað gamla fólkið.“ Þú varst örugglega eldri en eitthvað af fólkinu sem þú varst að syngja fyrir, en þér fannst þú ekki vera svo gömul, þú varst svo ung í anda, hress og kát. Þú varst svo lagin í höndunum og við fjölskyldan eigum marga fallega muni sem þú hefur gert sem og börnin okkar segja oft: „Er það ekki í Guðrúnar skáp?“ eða „Hvenær setjum við upp jóla- stellið sem Guðrún málaði“ og svo mætti lengi telja. Þegar Sara dóttir okkar fædd- ist í júlí árið 2000 varst þú svo spennt, því þú varst að verða „langamma“ í fyrsta sinn. Þú stóðst þig mjög vel í því hlutverki og varst báðum börnum okkar svo góð og eiga þau margar góðar minningar um þig, elsku Guðrún. Næstsíðasta skiptið sem ég kom til þín og þú varst orðin svo veik að það voru ekki mikil við- brögð frá þér þá tók ég í höndina á þér og sagði nokkur vel valin orð til þín þá kom bros á þitt fal- lega andlit. Það var dásamlegt. Elsku Guðrún, nú hefur þú fengið hvíldina. Við viljum þakka þér allt sem þú varst okkur og gafst okkur. Við vitum að hann Bjössi þinn tekur vel á móti þér. Minningin mun ávallt lifa með okkur. Guð blessi minningu þína. Þín, Elín Þóra og Halldór. Í dag kveðjum við hana Guð- rúnu frænku. Guðrún frænka var einstaklega góð, hlý og falleg kona og erum við fjölskyldan afar þakklát fyrir þau forréttindi að hafa fengið að vera hluti af henn- ar lífi. Alltaf var auðvelt að leita til hennar eftir aðstoð eða bara hverju sem var. Þegar Árni átti heima í foreldrahúsum á Akra- nesi þurfti hann oft að koma til Reykjavíkur til að keppa í skák. Þá var leitað til Guðrúnar frænku með gistingu og var það auðfeng- ið og gerði hún sér far um að hon- um liði sem best hjá sér. Árið 2002, þegar við bjuggum í Jersey ásamt Þórunni Ástu dótt- ur okkar sem fæddist í júlí árið 2001, þá hlotnaðist okkur sá heið- ur að Guðrún og Tóta mágkona hennar komu saman í heimsókn til okkar og dvöldu hjá okkur um stund. Var það mikil frægðarför hjá þeim stöllum, enda var ekki auðvelt að komast á staðinn. Voru þær tvær á ferð og ekki beint reiprennandi í öðrum tungumál- um en íslensku, en höfðu þetta þó af og komust klakklaust til okkar. Í Jersey var margt brallað, við sýndum Guðrúnu alla helstu stað- ina og keyrðum um eyjuna. Hér og þar um eyjuna var hægt að kaupa kartöflur beint af bóndan- um og það gerði hún Guðrún sem veigraði sér aldrei við að prófa eitthvað nýtt. Hún var svo yfir sig hrifin af þessum einstöku kart- öflum að hún varð að taka með sér poka svo hún gæti gefið vin- konum sínum að smakka þegar heim væri komið. Þessi heimsókn er okkur ofarlega í huga þessa dagana og erum við svo þakklát fyrir það að þær skyldu leggja þetta ferðalag á sig til að heim- sækja okkur. Þegar Guðrún bjó á Granda- veginum var hún dugleg að bjóða okkur í heimsókn og eru þessar heimsóknir okkur mjög kærar í dag. Guðrún var mikil handa- vinnukona og horfum við með gleði í hjarta á alla þá fallegu hluti sem hún bjó til handa okkur og stelpunum okkar. Í desember árið 2004 eignuð- umst við okkar aðra dóttur og kom aldrei neitt annað til greina en að skíra hana í höfuðið á Guð- rúnu frænku. Örlögin höguðu því svo þannig að Guðrún frænka kvaddi þennan heim á afmælis- deginum hennar Guðrúnar Pálu okkar. Það er með söknuði en jafn- framt þakklæti sem við kveðjum hana Guðrúnu frænku í dag. Við söknum jákvæðni hennar, góð- mennsku, hlýju og glaðværðar en erum jafnframt þakklát fyrir að hafa fengið að njóta samvista við hana. Árni og Sigríður Fanney. Það eru komin 40 ár síðan ég hitti Rúnu mína fyrst á Ránar- götunni. Íbúðin var ekki stór en það er alltaf nóg pláss þar sem nóg hjartarúm er til staðar. Vel var tekið á móti stúlkunni að vestan sem þarna var komin til að hitta sinn tilvonandi eiginmann og mág. Rúna mín var alltaf bros- andi og hláturinn hennar dillandi þótt ekki hafi lífið alltaf verið dans á rósum frekar en hjá mörg- um öðrum. Hún átti engin börn sjálf en sagðist vera svo heppin að hafa fengið að velja sér börn til að þykja vænt um. Og það skorti ekkert á væntumþykjuna hjá Rúnu og Bjössa. Þær eru margar og góðar minningarnar frá heim- sóknunum til þeirra, sérstaklega í bústaðinn þeirra á Þingvöllum, þar var gaman að dvelja og leika sér. Alltaf var okkur tekið opnum örmum með brosi og hlýju faðm- lagi. Eftir að Bjössi féll frá og Rúna varð ein, fór hún að ferðast, bæði um landið sitt og um Evr- ópu. Hún naut þess að ferðast og fræðast og hafði gaman af að segja frá þessum ferðalögum. Einu sinni fór hún með hópi ferðafélaga upp á Vatnajökul og það var ekki í hennar anda að fara upp með snjóbíl með gamla fólkinu, hún fór upp á snjósleða sem hún ók sjálf og hún ljómaði sem aldrei fyrr þegar hún sýndi okkur myndina af sér úr þeirri ferð. Rúna var mjög fróð og hafði gaman af því að segja frá því sem hún upplifði og fræddist um á þessum ferðalögum. Í nokkur ár borðuðum við skötu tvær saman á Grandaveginum og það voru yndislegar stundir. Þrátt fyrir rúmlega 30 ára aldursmun vorum við einhvern veginn alltaf jafn- öldrur. Eftir að Rúna missti Bjössa sinn var hún hjá okkur Nonna á aðfangadagskvöld í mörg ár og börnin okkar elskuðu að fá að hafa hana og söknuðu þess þegar aðstæður breyttust Síðustu árin sem hún hafði heilsu kom hún til okkar Brands á Þorláksmessu og gladdi okkur með nærveru sinni og kærleika. Síðustu ár höfum við Brandur farið til hennar á Þor- láksmessu og alltaf var hún glöð og þakklát fyrir allt sem fyrir hana var gert. Það eru ekki allir sem brosa framan í heiminn og segja aldrei styggðaryrði um nokkurn mann en þannig var Rúna. Hún kvartaði aldrei yfir neinu, allir voru svo góðir við hana og önnuðust hana vel, enda sagði hún einu sinni að hún ætlaði ekki að verða eins og sumir sem gerðu ekki annað en kvarta þegar einhver kæmi í heimsókn og hver nennti að heimsækja svoleiðis fólk. Síðustu ár hefur Rúna verið að hverfa frá okkur en þrátt fyrir það var brosið á sínum stað þegar við komum og þótt hún væri kannski ekki viss um hver við vorum þá ljómaði hún samt og um síðustu jól fylgdi hún okkur fram á stigapallinn eins og alltaf og veifaði þar til dyrnar lokuðust. Þegar við fórum síðustu ferðina á Grundina núna fyrir jólin var Rúna mín búin að kveðja í síðasta sinn en ég gleðst yfir því að hún er komin til Bjössa síns og allra þeirra sem voru farnir á undan henni. Ég er þakklát fyrir þessi 40 ár með henni og hún mun alltaf eiga sinn sérstaka sess í mínu hjarta og barnanna minna. Sam- úðarkveðjur til allra ættingja og vina. Sigrún Björk, Guðbrandur, Halldóra, Jóhann og Snædís. Guðrún Þorvaldsdóttir HINSTA KVEÐJA Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Takk fyrir samveruna, sofðu rótt. Sara, Þórunn Ásta, Sævar, Guðrún Pála og Arna Fanney. ✝ Sigurvin Jóns-son fæddist í Bolungarvík 13. ágúst 1937. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík á jóla- dag, 25. desember 2012. Foreldrar hans voru Lína Dalrós Gísladóttir fisk- verkakona, f. 22.9. 1904 í Bolungarvík, d. 14.12. 1997, og Jón Ásgeir Jónsson sjómaður, f. 9.0. 1911 á Ísafirði, d. 1.10. 1996. Lína Dalrós eignaðist tíu börn sem komust á legg, sex með fyrri eiginmanni sínum og fjög- ur með Jóni Ásgeiri og var Sig- urvin næstyngstur þeirra systk- ina. Systkini Sigurvins eru í aldursröð: Guðmunda, Gísli, Guðbjörg, Óskar, Áslaug, Jó- hann Líndal, Alda, Herbert, og Sveinn Viðar. Sigurvin kvæntist Aðalheiði Halldóru Guðbjörnsdóttur 25.12. 1958. Þau slitu sam- vistum. Aðalheiður Halldóra og Sigurvin eignuðust sjö börn en þar af komust fimm á legg. Börn þeirra eru: 1) Oddný Lína, f. 1.5. 1958. Börn hennar eru: a) Oddur 1964. 6) drengur, f. 24.10. 1965, d. 29.10. 1965. 7) Jón Ásgeir Sig- urvinsson, f. 21.12. 1970. Eig- inkona hans er Elínborg Sturlu- dóttir, f. 21.12. 1968. Börn þeirra eru: a) Hallgerður Kol- brún, f. 17.11. 1997, b) Sturla, f. 7.1. 2003, c) Kolbeinn Högni, f. 30.3. 2007. Sigurvin og Aðalheiður hófu búskap á Ísafirði en fluttu fljótt til Bolungarvíkur. Þaðan lá leið- in í Reykholt, þar sem Sigurvin starfaði sem matsveinn í mötu- neyti Héraðsskólans veturinn 1964-1965. Frá Reykholti flutti fjölskyldan síðan til Reykjavík- ur. Hafði Sigurvin ýmis störf með höndum og var á stundum sjálfstæður atvinnurekandi. Þannig rak hann um tíma mötu- neyti fyrir starfsfólk Álafoss- verksmiðjunnar og fiskverslun í Álfheimum í Reykjavík. Hann var matsveinn á ýmsum frakt- skipum Eimskipafélagsins sem og á togurunum Vestmannaey og Drangey. Sigurvin var mötu- neytisstjóri í mötuneyti SS og starfaði síðar í mötuneyti Hrafnistu í Reykjavík. Síðustu starfsárin starfaði Sigurvin sem eftirlitsmaður Hafrannsókna- stofnunar á japönskum túnfisk- veiðiskipum í íslenskri lögsögu. Útför hans verður gerð í dag, 3. janúar 2012, frá Áskirkju og hefst athöfnin kl. 15. Andri, f. 12.12. 1983, b) Charlotta Rós, f. 16.11. 1990. 2) Guðbjörn Magn- ús, f. 8.6. 1959. Eig- inkona hans er Þór- unn Einarsdóttir, f. 9.4. 1959. Börn þeirra eru: a) Hjálmar Gunnar, f. 14.12. 1979, b) Að- alheiður Halldóra, f. 12.1. 1981. c) Guðbjörn Heiðar, f. 31.1. 1984, d) Anna Þórunn, f. 22.4. 1988. 3) Viktor Jón Sigurvinsson, f. 13.6. 1961. Sambýliskona hans er Ól- ína Berglind Sverrisdóttir, f. 18.8. 1963. Börn þeirra eru: a) Ágúst Sverrir, f. 19.12. 1980, d. 27.6. 1988, b) Kolbrún Eva, f. 14.12 1983, c) Sigurvin Sindri, f. 4.10. 1987, d) Sverrir Berg- mann, f. 31.7. 1992, e) Brynjar Þór Viktorsson, f. 9.9. 1995. 4) Sigurvin Heiðar Sigurvinsson, f. 25.11. 1962. Eiginkona hans er Auður Auðunsdóttir, f. 5.12. 1964. Börn þeirra eru: a) Árný Eva, f. 18.1. 1985, b) tvíburasyn- ir, f. 12.1. 1991, d. 12.1. 1991, c) Ragna Ýr, f. 1.6. 1992, d) Auð- unn Orri, f. 24.1. 1996. 5) Kol- brún Eva, f. 30.3. 1964, d. 13.3. Það er komið bréf frá afa! hrópaði dóttir mín glaðlega þegar pósturinn hafði kastað þykkum bréfabunka inn um lúguna. Utan á eitt umslagið var nafn hennar handritað með skrifstöfum. Son- ardóttir sendandans opnaði bréf- ið með mikilli eftirvæntingu. Litlu stúlkunni fannst sem tengslin við föðurfólkið væru ekki næg og hún vildi ráða bót á því. Hún var bara sjö ára og langaði til að komast í meira samband við afann í Reykjavík. Og hvað er þá til ráða? Maður stingur niður penna og skrifar honum bréf. Og þarna var svarið komið. Það var þakklátur maður sem svaraði sonardóttur sem hann hafði svo lítið haft af að segja fram að því og á milli þeirra Hallgerðar Kol- brúnar sem skírð var að síðara nafni eftir litlu dóttur hans sem dó svo ung, myndaðist nú vina- band sem varð til þess að farið var að rækta fjölskylduböndin á ný. Ungur að árum þurfti tengda- faðir minn að fara að vinna fyrir sér, enda ólst hann upp í barn- margri fjölskyldu þar sem fátækt og skortur var oftast nærri. Móð- ir hans var annáluð dugnaðar- kona sem varð tæplega þrítug ekkja með sex börn og það hefur ekki skort hugrekkið hjá seinni eiginmanni hennar Jóni Ásgeir Jónssyni að hefja rúmlega tvítug- ur sambúð með þessari barn- mörgu ekkju. Má það teljast mik- ið afrek hjá þeim að hafa komið upp þessum stóra barnahópi í því fátæktarbasli sem var í Bolung- arvík á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar. Sigurvin fór á síld strax eftir fermingu og þar með var lífsbaráttan hafin fyrir al- vöru. Þegar ég heyri sjómanna- lögin frá sjötta áratugnum finnst mér alltaf að verið sé að syngja um líf tengdaföður míns! Það var mikil rómantík í kring- um sjómannslífið á þessum árum og sjómenn voru hetjur hafsins. Það vafðist heldur ekki fyrir Sig- urvini að næla í eina af fegurstu blómarósunum sem gengu um strætin á Ísafirði um miðjan sjötta áratuginn. Dóra var gull- falleg og af myndum að dæma hafa þau verið glæsilegt par. Á jóladag 1958 gengu þau í hjóna- band og við sama tækifæri var frumburður þeirra skírður. Síðan fæddust börnin eitt af öðru. Sig- urvin og Dóra misstu tvö nýfædd börn á tæplega tveimur árum. Án efa hefur svo mikill missir mark- að djúp spor í sálarlíf þeirra. Sig- urvin bjó yfir persónutöfrum og átti auðvelt með að kynnast fólki. Honum þótti gaman að skemmta sér og hafa fólk í kringum sig. En smám saman hætti gleðskapur- inn að verða dagamunur og varð að kvöð sem varð honum fjötur um fót. Ævi tengdaföður míns getur verið uppspretta visku. Hann gerði mörg mistök en hann sýndi líka dugnað og nægjusemi sem er eftirbreytniverð. Kannski er mesti lærdómurinn sá að hann gafst aldrei upp þótt á móti blési. Ef til vill sagði þar til sín vest- firski uppruninn, þar sem hug- rekki og þrautseigja var lykillinn að því að lifa af. Þegar jóladagur rann upp og kristnir menn fögn- uðu fæðingu frelsarans, kvaddi Sigurvin þennan heim. Það finnst mér táknrænt og minnir mig á að bæði í lífi og dauða er hægt að finna fegurð og samræmi. Elínborg Sturludóttir Sigurvin Jónsson ✝ Guðbjörg Jó-hannesdóttir leigubifreiðarstjóri frá Ísafirði, fæddist í Arnardal, Eyr- arhreppi í Norður- Ísafjarðarsýslu 19. desember 1917. Hún lést á Hrafn- istu í Reykjavík 14. desember 2012. Foreldrar henn- ar voru Sigrún Agata Guðmundsdóttir, sauma- kona, f. á Bassastöðum í Stein- grímsfirði 1. nóvember 1890, d. 10. nóvember 1967 og Jóhannes Guðmundsson vitavörður, f. á Ísafirði 9. október 1888, d. 11. maí 1968. Systkini Guðbjargar eru: Guðmundur Líndal, látinn, Sigmundur, látinn, Sigríður Steinunn, látin, Guðmunda látin, Ólafía, býr á Akureyri, Magnús, látinn og Ólafur, látinn. Guðbjörg giftist Eiríki Gunn- ari Guðjónssyni leigubifreiða- stjóra frá Ísafirði, f. 7. júní 1909, d. 10. desember 1968. Börn þeirra eru: Hafsteinn, rafvirki, f. 11. maí 1946, (kjörsonur), giftur Kristínu Björnsdóttur og eiga þau þrjú börn, Báru Lind, Gunn- ar Inga og Björn Fannar, og níu barnabörn. Sig- urður, lögfræð- ingur, f. 24. maí 1951, hann á sex börn, Aðalheiði Steinunni, Marí- önnu Björgu, Andra Má, Tómas Veigar, Eirík og Einar Loga. Ingibjörg, hjúkrunarfræð- ingur og ljósmóðir, f. 27. mars 1955, gift Sigurði Hafsteinssyni, hún á fimm börn, Eirík Gunnar, Re- bekku, Hafstein Þór, Guðmund Örn og Hrafnkel Orra, hún á fimm barnabörn. Guðbjörg var sautján ára þeg- ar hún kynntist Eiríki sem varð eiginmaður hennar, þau bjuggu allan sinn búskap á Ísafirði. Hún tók meiraprófið og var ein af fyrstu konunum á Íslandi til að keyra leigubíl. Þau hjónin keyrðu bæði leigubíl til margra ára á Ísafirði. Hún flutti til Reykjavíkur 1983 og vann þar verkakvennastörf. Síðustu tíu árin dvaldi hún á Hrafnistu í Reykjavík. Útför Guðbjargar fer fram frá Áskirkju í dag, 3. janúar 2013, og hefst athöfnin kl. 11. Elsku amma ísó og langamma ísó. Nú er komið að kveðjustund og við þökkum fyrir þær stundir sem við áttum saman og biðjum guð að geyma þig. Nú kveikjum við á kerti þú berð krossinn eins og er. En minningin hún lifir þú verður alltaf hér. Þú varst ljós sem lýstir meðan létt var þín lund. Skærasta stjarnan á himninum um stund. (Sigurgeir Vilmundarson) Hvíl í friði, minning þín er perla. Eiríkur Gunnar, Rebekka, Hafsteinn Þór, Guðmundur Örn, Hrafnkell Orri og barnabarnabörn. Guðbjörg Jóhannesdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.