Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013 Nýtt hefti Þjóðmál— tímarit um stjórnmál og menningu — hefur nú komið út í átta ár í ritstjórn Jakobs F. Ásgeirssonar. Þjóðmál koma út fjórum sinnum á ári — vetur, sumar, vor og haust. Tímaritið fæst í lausasölu í helstu bókabúðum og nokkrum stórmörkuðum á 1.500 kr. eint., en ársáskrift kostar aðeins 5.000 kr. Hægt er að gerast áskrifandi í Bóksölu Andríkis, andriki.is, á vefsíðunni thjodmal.is eða í síma 698-9140. Ugla VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Persónukjör í stað kjörs milli stjórn- málaflokka og fulltrúa þeirra gæti aukið áhrif hagsmunaafla á þinginu, enda væri auðveldara að hafa áhrif á sundurlausan hóp þingmanna en sam- stæða þingflokka. Þetta er mat dr. Stefaníu Óskars- dóttur, lektors í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, en hún er einn þeirra fræðimanna sem lagst hafa yfir tillögur stjórnlagaráðs. Með því vísar Stefanía til 39. grein- ar stjórnlagafrumvarpsins, nánar til- tekið 5. málsgrein en þar segir orð- rétt: „Kjósandi velur með persónukjöri frambjóðendur af listum í sínu kjördæmi eða af landslistum, eða hvort tveggja.“ Þetta er talsverð breyting frá nú- verandi stjórnarskrá þar sem segir í 31. grein að í „hverju kjördæmi skulu vera minnst sex kjördæmissæti sem úthluta skal á grundvelli kosninga- úrslita í kjördæminu“. Úthlutun þingsæta fer svo fram samkvæmt sérstakri aðferð og fer eft- ir atkvæðastyrk flokka. Persónur fremur en stefnur Stefanía telur að með þessu verði sú eðlisbreyting að kjósendur horfi meira til einstaklinga í framboði en stefnu stjórnmálaflokkanna verði per- sónukjör þvert á flokka tekið upp. Um leið geti þetta leitt til þess að þing- menn fari fyrst og fremst að hugsa um eigin hag, líkt og algengt sé um þingmenn í Bandaríkjunum, sem rói öllum árum að því að tryggja sér end- urkjör. „Einstaklingsmiðuð stjórnmál hafa þótt ýta undir spillingu, en aftur á móti benda rannsóknir til að hefð- bundið þingræði dragi úr henni,“ seg- ir Stefanía. „Þegar ekki er lengur kosið um stefnu flokka er ekki ljóst hvaða stefna á að ráða við stjórn landsins. Um leið verða skilaboð frá kjósendum óljósari. Hlutverk stjórnmálaflokka er einmitt að búa til valkosti fyrir kjósendur,“ segir Stefanía sem telur þetta kunna að draga úr áhuga á stjórnmálum til lengri tíma og þannig vinna gegn markmiðum frumvarpsins um aukna lýðræðislega þátttöku al- mennings. Veikir flokkana Þá telur Stefanía það munu veikja hlutverk flokkanna að forysta fram- kvæmdavaldsins hverju sinni, þ.e. ráðherrarnir, komi mögulega ekki úr röðum stjórnmálamanna, heldur verði þeir sérfræðingar skipaðir af Al- þingi. Á Stefanía þar m.a. við 89. grein stjórnlagafrumvarpsins þar sem segir að ráðherrar hafi ekki atkvæðisrétt á Alþingi. Ráðherrar mæli fyrir frum- vörpum og tillögum frá ríkisstjórn, svari fyrirspurnum og taki þátt í um- ræðum á Alþingi eftir því sem þeir eru til kvaddir, en sitji að öðru leyti ekki á þingi. Annað atriði sem veiki stjórnmála- flokkana sé að almenningur þurfi síð- ur á þeim að halda til að koma málum á dagskrá þingsins. Vísar Stefanía þar m.a. til þeirrar tillögu að 10% kjós- enda geti knúið á um þjóðaratkvæða- greiðslu um nýsamþykkt lög og 2% kjósenda fengið frumvörp á dagskrá. Þetta frumkvæði almennings veiki þingið, líkt og sá möguleiki að vinsæl- ir þingmenn verði ráðherrar og hverfi þar með af þingi. Völd forsetans séu aukin Það er jafnframt mat Stefaníu að völd forseta aukist með því að hann staðfestir skipun dómara og tilnefnir forsætisráðherra. Á hún þar við 90. grein stjórnlaga- frumvarpsins um stjórnarmyndun en þar segir að forsetinn geri tillögu til þingsins um forsætisráðherra, eftir að hafa ráðfært sig við þingflokka og þingmenn. Meirihluta þingmanna þurfi til samþykkis. Fáist það ekki geti forsetinn gert nýja tillögu að forsætisráðherra. „Verði sú tillaga ekki samþykkt fer fram kosning í þinginu milli þeirra sem fram eru boðnir af þingmönnum, þingflokkum eða forseta Íslands,“ segir í frumvarpinu. Er sá fyrirvari hafður á að ef þetta leiðir ekki til þess að þingið hafi kosið forsætisráðherra, innan tíu vikna frá kosningum, skuli Alþingi rofið og boð- að til nýrra kosninga. Telur Stefanía að breytingarnar geti haft ýmsar ófyrirséðar afleiðing- ar. „Þannig eykst flækjustigið við myndun ríkisstjórna, erfiðara verður að fylgja eftir stefnumálum og stjórn- málin verða einstaklingsmiðaðri. Allt kann þetta að draga úr stjórnmála- legum stöðugleika og grafa undan lýðræðislegri ábyrgð.“ Persónukjör auðveldi hagsmuna- öflum að hafa áhrif á störf Alþingis Morgunblaðið/Styrmir Kári Fræðimaður Dr. Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur er lektor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.  Lektor í stjórnmálafræði telur tillögur stjórnlagaráðs veikja þingræðið  Stöðugleikinn minnki „Ég er ekki sam- mála því að það sé gengið mjög langt í þessari stjórnarskrá. Þetta er stjórn- arskrá sem breytir vissulega örlítið okkar stjórnskipun og skýrir ýmis mörk,“ segir Margrét Tryggvadóttir, formaður þingflokks Hreyfingarinnar, spurð út í þau ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, að til- lögur stjórnlagaráðs feli í sér „til- raun um stjórnkerfi sem ætti sér engan líka á Vesturlöndum“. Margrét telur frumvarpið í góðu samræmi við stjórnskipan þeirra ríkja sem Íslendingar beri sig sam- an við. Það sé því ekki róttækt. Í raun fremur íhaldssamt „Öll valdhlutverk, nema ef til vill forsetans, eru mun betur afmörkuð og skýrari í tillögum stjórnlagaráðs en í gömlu stjórnarskránni. Þær eru jafnframt í góðum takti við þá stjórnskipun sem við höfum haft og til dæmis stjórnskipun Norður- landa og annarra vestræna ríkja. Þannig að ég er ekki sammála for- setanum um þessa túlkun. Ýmsir fræðimenn hafa líka bent á að til- lögur stjórnlagaráðs séu fremur íhaldssamar í raun og veru. En það fer eftir því hvaðan maður horfir, hvað er íhaldssamt og hvað ekki.“ Ósammála túlkun Ólafs Ragnars Margrét Tryggvadóttir Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti Íslands, hvatti í nýárs- ávarpi sínu ríkis- stjórnina til að skapa sátt um tillögur stjórn- lagaráðs. „Á fundi ríkis- ráðs í gær hvatti ég til samstöðu allra flokka með víðsýni og sáttavilja að leiðar- ljósi, að vegferð stjórnarskrár- málsins yrði mörkuð á þann hátt að tryggð væri vönduð meðferð og í forgang settar breytingar sem ríkur þjóðarvilji veitir braut- argengi. Aðeins þannig næðist farsæl niðurstaða,“ sagði Ólafur Ragnar sem telur tillögur stjórnlagaráðs m.a. auka völd forsætisráðherra og áhrif forset- ans við stjórnarmyndun. Valgerður Bjarnadóttir, for- maður stjórnskipunar- og eftir- litsnefndar, vildi ekki tjá sig um ávarp forsetans. Þjóðarviljinn ráði för FORSETINN HVETUR TIL SAMSTÖÐU Ólafur Ragnar Grímsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.