Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013 Það var mikið ólán fyrir litlusamfylkinguna þeirra Guð- mundar og Róberts að Guðfríður Lilja skyldi ákveða að sitja ekki út kjörtímabilið.    Að sama skapikom þetta sér illa fyrir annan helsta stuðnings- flokk ríkis- stjórnarinnar, Hreyfinguna.    Það er alltaf vont fyrir þá semhafa gert það að sínu póli- tíska metnaðarmáli að styðja minnihlutastjórn þegar henni áskotnast liðsauki innan eigin raða.    Verðmiðinn á sjálfsölunumtveimur í Betri dögun og pönkurunum þremur í Hreyfing- unni verður umtalsvert lægri þegar þægilegur inniköttur tek- ur sæti villikattar, svo vísað sé í smekklega lýsingu forsætisráð- herra á samstarfsfólki sínu.    En ólán stuðningsflokksbrot-anna tveggja er auðvitað um leið lán ríkisstjórnarflokk- anna tveggja, ekki síst VG. Sá flokkur er að verða búinn að losa sig við alla þá þingmenn sem fylgdu meginstefnu hans fyrir síðustu kosningar.    Vitaskuld gat ekki gengið fyr-ir forystu flokksins að halda þannig á málum að þeir sem fylgdu stefnumálum flokksins héldust við innan raða þing- flokksins.    Allir sjá í hvílíkar ógöngurflokkurinn hefði getað rat- að ef ekki hefði tekist að hreinsa út þessa varasömu þing- menn sem höfðu trú á stefnu flokksins. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir Lán í óláni STAKSTEINAR Veður víða um heim 2.1., kl. 18.00 Reykjavík 3 rigning Bolungarvík 0 snjókoma Akureyri 2 skýjað Kirkjubæjarkl. 3 alskýjað Vestmannaeyjar 5 rigning Nuuk -7 léttskýjað Þórshöfn 8 súld Ósló -3 heiðskírt Kaupmannahöfn 3 léttskýjað Stokkhólmur 2 skýjað Helsinki 2 skýjað Lúxemborg 3 skýjað Brussel 7 léttskýjað Dublin 12 skýjað Glasgow 11 alskýjað London 7 skúrir París 7 skýjað Amsterdam 7 léttskýjað Hamborg 6 skýjað Berlín 5 léttskýjað Vín 4 skýjað Moskva -2 heiðskírt Algarve 16 heiðskírt Madríd 11 léttskýjað Barcelona 13 léttskýjað Mallorca 13 léttskýjað Róm 12 léttskýjað Aþena 12 léttskýjað Winnipeg -12 snjóél Montreal -15 skýjað New York -3 heiðskírt Chicago -6 léttskýjað Orlando 20 alskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 3. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:17 15:49 ÍSAFJÖRÐUR 11:58 15:18 SIGLUFJÖRÐUR 11:42 14:59 DJÚPIVOGUR 10:55 15:10 Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Ég heyrði einhvers konar nudd- hljóð, ég áttaði mig strax á því að hún var að festast, ég togaði og togaði en náði ekki að losa hana. Ég sá hvergi stopptakka og brást líklega við eins og sönn móðir; hrópaði og kallaði og gerði allt sem ég gat til að bjarga barninu,“ segir Aðalheiður Jensen, en Aníta Gló, tveggja og hálfs árs dóttir hennar, festi stígvélið sitt í rúllustiga í verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði skömmu fyrir jól. Betur fór en á horfðist. „Ég hélt að hún væri brotin eða farin úr liði því ég togaði svo fast í barnið. En öll bein eru heil, hún fékk skurð á kálfann og er marin, hún haltrar en það virðist ekki vera neitt alvarlegt. En ég held að henni hafi verið mest brugðið, hún grét stanslaust í klukkutíma og við höfum þurft að jafna okkur,“ segir Aðalheiður. Stígvélið rifnaði Hún segir að þær mæðgur hafi verið á niðurleið og staddar í miðjum stiganum þegar annað stígvél Anítu Glóar festist skyndilega að ofan- verðu. „Ég sá síðan stígvélið festast alltaf neðar og neðar. Ég sá hvergi stopptakka, ég togaði og togaði og þegar stiginn var alveg að verða kom- inn niður náði ég að kippa henni úr stígvélinu. Það hélt síðan áfram og rifnaði í sundur,“ segir Aðalheiður. Ég get ekki hugsað um hvað hefði getað gerst ef ég hefði ekki náð henni úr skónum.“ Aðalheiður segir að fjöldi fólks hafi flykkst að, en enginn hafi fundið takka til að stöðva stigann. Örygg- isvörður, sem var á vakt í Firði, hafi ekki fundið takkann fyrr en eftir nokkra leit og því var stiginn ekki stöðvaður á meðan þær mæðgur voru í honum. Hún segist hafa rætt við rekstraraðila Fjarðar eftir þetta. „Mér skilst að þetta geti gerst og þess vegna þurfi fólk að lesa vel leið- beiningar við stigana. En að sjálf- sögðu þarf stopptakkinn að vera sýni- legur.“ Tvisvar á 18 árum „Þetta hefur gerst tvisvar hjá okk- ur á þeim 18 árum sem Fjörður hefur verið starfandi. Í bæði skiptin voru þetta börn sem voru að fara niður í stiganum og í bæði skiptin voru þau í stígvélum,“ segir Albert Már Stein- grímsson, framkvæmdastjóri Fjarð- ar. „Það verður að fara eftir leiðbein- ingunum við stigann, í stigaþrepinu er gul rönd og í leiðbeiningunum stendur að það megi alls ekki standa þar.“ Hann segir Vinnueftirlitið hafa skoðað stigann fyrir nokkrum vikum, í nóvember síðastliðnum, og að engar athugasemdir hafi verið gerðar við hann. Albert Már segir miður að svona slys geti átt sér stað. „Auðvitað er þetta mikið áfall, bæði fyrir barnið og mömmuna og þetta er auðvitað nokkuð sem við viljum alls ekki að gerist. En ég held að stöðvunartakk- inn sé nokkuð vel sýnilegur. Annars er gott að verið sé að vekja athygli á slysum af þessu tagi. Við hér í Firði þurfum oft að stöðva ung börn sem eru einsömul í rúllustiganum, en það kemur skýrt fram í leiðbeiningum að börn yngri en fimm ára mega ekki vera þar ein á ferð.“ Betur fór en á horfðist Mæðgurnar Aðalheiður Jensen og Aníta Gló. Festi stígvél í rúllustiga  Náði að losa barnið úr stígvélinu eftir talsverð átök  Fundu ekki stopptakka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.