Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013
SVIÐSLJÓS
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Tæp 600 tonn af flugeldum voru til
sölu fyrir áramótin. Tilfinning
manna er sú að salan sé ekki jafn góð
og hún var í fyrra. Hún hefur þó vax-
ið nokkuð frá árinu 2009 þegar hún
féll mikið. Salan er langt frá met-
söluárinu árið 2007.
Samkvæmt frétt frá Landsbjörg
gekk sala á flugeldum vel á höfuð-
borgarsvæðinu, á Egilsstöðum og á
Akureyri og víðar. Hins vegar var
salan dræm í minni sveitum enda
setti veður víða strik í reikninginn.
„Ég er búinn að heyra það að
menn ætli ekki að láta veðrið koma í
veg fyrir að þeir skjóti upp flugeld-
um um áramót, heldur kveðja árið á
þrettándanum með pompi og prakt,“
segir Jón Ingi Sigvaldason sem hélt
utan um flugeldasölu Landsbjargar.
Vonast hann til þess að enn eigi
nokkur hluti fólks eftir að kaupa
flugelda þar sem það hafi ekki kom-
ist á sölustað vegna veðurofsans um
áramótin.
Svipað magn flutt inn í fyrra
Ólafur Emilsson, stöðvarstjóri hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu,
heldur utan um innflutningstölur á
flugeldum. Hann segir að um 586
tonn hafi verið flutt inn fyrir áramót-
in. Alls hafi hins vegar um 600 tonn
verið í sölu þar sem leyfilegt sé að
nota óselda flugelda frá síðustu
tvennum áramótum, samhliða sölu á
nýinnfluttum flugeldum.
Ólafur segir að svipað magn hafi
verið flutt inn í fyrra eða 575 tonn.
Árið 2010 voru flutt inn 510 tonn. Ár-
ið 2009 voru flutt inn 425 tonn af
flugeldum.
Rúm 850 tonn árið 2007
„Við erum ekki enn farin að sjá
tölur sem voru hér fyrir hrun. Fyrir
áramótin 2007-2008 voru t.a.m. flutt
inn meira en 850 tonn af flugeldum.
Sá innflutningur dróst saman um
meira en helming árið eftir,“ segir
Ólafur.
Nær allir þeir flugeldar sem voru í
sölu fyrir áramótin koma frá Kína.
„Flugeldar voru dýrari í innkaupum
í ár. Kína er að verða dýrara land en
það var. Launakostnaður fer upp þar
samhliða því sem hráefnið er að
hækka,“ segir Lúðvík Georgsson,
framkvæmdastjóri KR-flugelda.
Þessi aukni innflutningskostnaður
fór yfir í verðlag en áætlað er að
flugeldar hafi hækkað um 10% í
verði frá því um áramótin í fyrra.
Minni sala en árin á undan
Þór Björnsson sér um flugelda-
sölu fyrir handknattleiksdeild Fram.
„Það er einkennandi hve sala á rak-
ettum var minni í ár en árin á undan.
Kökurnar seljast hins vegar að
minnsta kosti jafn vel,“ segir Þór.
Fleiri viðmælendur Morgunblaðsins
tóku undir með Þór og svo virðist
sem sala á kökum hafi verið meiri en
árin á undan.
Þór telur að flugeldasala hafi al-
mennt verið minni en í fyrra. „Það er
erfitt að fullyrða um það á þessari
stundu þar sem menn taka söluna
ekki saman fyrr en eftir þrett-
ándann, en tilfinning flestra í kring-
um þetta er sú að salan sé minni en
hefur verið,“ segir Þór.
Svipað flutt inn en salan minni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fögur ljósasýning Landsmenn fögnuðu áramótunum að venju með því að skjóta upp hundruðum tonna af flugeldum. 586 tonn af flugeldum voru flutt til landsins fyrir áramótin.
Um 568 tonn af flugeldum flutt inn í ár Flugeldar dýrari í innkaupum Veðurofsi á landsbyggð-
inni hafði áhrif á flugeldasölu Selja má flugelda frá síðustu tvennum áramótum með nýjum flugeldum
Slysavarnafélagið Landsbjörg
flutti inn 70-80% allra flugelda í
sölu fyrir áramótin.
Samkvæmt upplýsingum Ólafs
Emilssonar, stöðvarstjóra lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu
fluttu sjö aðilar inn flugelda fyrir
áramótin en það voru ásamt
Landsbjörgu, KR-flugeldar,
Bomba.is. Magnús Árnason í Gull-
borg, Stjörnuljós, Alvöru flugeldar
og Háamýri HF. Átta aðilar stóðu
að innflutningi árið 2011.
24 aðilar
seldu flug-
elda á 63
sölustöðum
áhöfuðborg-
arsvæðinu.
„Það geta svo
til allir fengið
leyfi til þess
að selja flug-
elda, hafi þeir
húsnæði til
þess,“ segir Ólafur G. Emilsson.
Allir geta selt flugelda
LANDSBJÖRG MEÐ 70-80% AF FLUGELDASÖLU
Ólafur G.
Emilsson
Opið: mán-fös 12:30 - 18:00 Dalvegi 16a - Rauðu múrsteinshúsunum, 201 Kópavogi - S. 517 7727 - nora.is
ÚTSALA
-50% jólaskraut
-20% - 30% almennar vörur