Morgunblaðið - 03.01.2013, Side 20

Morgunblaðið - 03.01.2013, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013 Mikil hálka er á höfuðborgarsvæð- inu og biður lögreglan akandi og gangandi vegfarendur að fara var- lega. Sérstaklega er mikil hálka á bílastæðum og inni í íbúðar- hverfum. Spáð er hlýju veðri alla vikuna. Snjórinn sem féll á höfuðborg- arsvæðinu milli jóla og nýárs, mun því smátt og smátt þiðna með til- heyrandi hálku. Guðbrandur Sigurðsson, aðal- varðstjóri hjá umferðardeild lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að stofnbrautir séu flestar að verða auðar, en mikil hálka sé í íbúðarhverfum, á göngustígum og á bílastæðum. Fólk þurfi því að fara varlega, bæði þeir sem eru gang- andi og akandi. Hann hvetur þá sem hafa aðstöðu til að sanda fyrir utan hjá sér til að gera það. Morgunblaðið/Golli Lögreglan varar fólk við mikilli hálku Sextánda ráðstefnan um rann- sóknir í líf- og heilbrigð- isvísindum í Háskóla Ís- lands verður haldin á Há- skólatorgi dagana 3. og 4. janúar. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár en allar deildir, námsbrautir og stofnanir heilbrigðisvísindasviðs HÍ standa að ráðstefnunni og hún er að vanda umfangsmikil. Nálega þrjú hundr- uð ágrip bárust um rannsóknar- verkefni og verða þau kynnt með stuttum fyrirlestrum og vegg- spjaldasýningum. Eins og áður er skipulögð opin málstofa á ráðstefnunni, fundur ætlaður almenningi. Fundurinn verður haldinn í dag, 3. janúar kl. 15.50, á Háskólatorgi og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Þar munu tveir prófessorar við heilbrigðisvísindasviðið flytja er- indi um heilbrigðismál og rann- sóknir, sem ætla má að höfði til margra, þeir Guðmundur Þorgeirs- son hjartalæknir og Halldór Jóns- son bæklunarskurðlæknir. Í lok ráðstefnunnar verða vís- indamönnum sem skarað hafa fram úr veittar viðurkenningar. Rannsóknir kynntar í heilbrigðisvísindum STUTT Fæðingum á Landspítalanum fjölg- aði örlítið árið 2012 frá árinu 2011 en samkvæmt bráðabirgðartölum voru fæðingar 3.225 talsins á spítalanum á síðasta ári. Fjöldi fæddra barna á spítalanum árið 2012 var 3.322. Fyrsta barn ársins 2013, stúlka, kom í heiminn á Landspítalanum kl. 5.34 að morgni nýársdags. Þetta er í fyrsta skipti síðan árið 2009 sem fæðingum á Landspít- alanum fjölgar milli ára, en þá voru fæðingar 3.500 talsins. Árin 2010 og 2011 dró úr fjölda fæðinga og voru þær 3.420 árið 2010 og 3.240 árið 2011. Því eiga íbúar á höfuðborgar- svæðinu enn nokkuð í land með að ná frjósemi ársins 2009 en það ár voru fæðingar á Landspítalanum 245 fleiri en þær voru á síðasta ári. Upplýsingar um heildarfjölda fæð- inga á landinu öllu á síðasta ári liggja ekki fyrir. Fæðingum á LSH fjölgar örlítið  Fæðingar enn töluvert færri en 2009 Þau Berglind Hákonardóttir og Ein- ar Viðar Einarsson eignuðust fyrsta barn ársins 2013. Berglind ól stúlku á Landspítalanum kl. 5.34 að morgni nýársdags. Foreldrarnir búa á Hvolsvelli og keyrðu í bæinn rétt eft- ir miðnætti á gamlárskvöld. „Við kláruðum að sprengja flug- eldana, ganga frá og koma hinum börnunum í rúmið. Við vorum síðan komin inn á deild um klukkan tvö,“ segir Einar Viðar og bætir við að fæðingin hafi gengið vel. „Við áttum ekki von á því að eignast fyrsta barn ársins, vorum viss um að það hefði komið fyrr um nóttina, því komu fréttirnar skemmtilega á óvart,“ segir Einar. Von var á mæðgunum heim á Hvolsvöll í gærkvöldi og að sögn Einars biðu systkinin tvö, Há- kon Karl og Védís Ösp í ofvæni eftir að fá systur sína og móður heim. Morgunblaðið/Ómar Stoltir foreldrar Einar Viðar og Berglind með nýfæddu stúlkuna sína sem var fyrsta barn ársins og fæddist klukkan 5.34 á nýársdagsmorgun. Sprengdu flugelda og eignuðust barn Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Einungis níu sveitarfélög af 74 leggja ekki á hámarksútsvar árið 2013. Hin 65 leggja öll á 14,48% út- svar þetta árið, þar á meðal stærsta sveitarfélagið, Reykjavíkurborg. Þau sveitarfélög sem ekki leggja á hámarksútsvar eru Seltjarnarnes, Garðabær, Kjósarhreppur, Grinda- víkurbær, Skorradalshreppur, Hval- fjarðarsveit, Tjörneshreppur, Fljótsdalshreppur og Ásahreppur. Þessi sveitarfélög hafa einnig flest fremur háar tekjur, deilt út á íbúa þeirra, í samanburði við flest önnur. Þannig voru meðaltekjur Skorra- dalshrepps að meðaltali á hvern íbúa árið 2011 rúm ein milljón króna. 66 bjuggu þá í hreppnum. Í Hvalfjarð- arsveit námu tekjurnar að meðaltali rúmum 870 þúsundum á mann. Þar bjuggu 624 íbúar árið 2011. Meðal- tekjur Ásahrepps voru tæp 753 þús- und á 204 íbúa árið 2011. Hæstu meðaltekjurnar voru í Fljótsdals- hreppi. Þar bjuggu 79 íbúar og með- altekjur hreppsins á hvern þeirra námu rúmlega 1,6 milljóum króna árið 2011. Við ákvörðun um tekju- jöfnunarframlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga er farið eftir meðal- tekjum á íbúa. Ekkert þessara sveit- arfélaga fékk slík framlög. 350 milljónir vegna erfiðleika 19 sveitarfélög fengu úthlutað aukajöfnunarframlagi úr Jöfnunar- sjóði í fyrra, en þau eru greidd sveit- arfélögum sem glíma við íbúafækk- un, íþyngjandi skuldir eða sérstaka fjárhagserfiðleika – eitt eða fleira af framangreindu. Alls var úthlutað 350 milljónum í fyrra til þess, þar af fékk sveitarfélagið Álftanes, sem nú er hluti Garðabæjar, 175 milljónir. Sandgerðisbær fékk rúmar 47 millj- ónir, Norðurþing tæpar 47 milljónir, Fljótsdalshérað tæpar 28 milljónir, Grundarfjarðarbær tæpar 16 millj- ónir og Stykkishólmur rúmar 14 milljónir. Önnur fengu minna. Athygli vekur að einungis sex þeirra fengu framlög vegna lágra meðaltekna árið 2011. Hin voru yfir meðaltekjum á íbúa sambærilegra sveitarfélaga og fengu því ekki tekjujöfnunarframlag árið 2012. Árið 2009 fengu sveitarfélög heim- ild til leggja á 13,28% útsvar, en áður var hámarkið 13,03%. 56 sveitarfélög af 78 nýttu sér það. Árið 2011 var heimildin svo hækkuð í 14,48% og það ár nýttu 66 af 76 sveitarfélögum sér heimild til þess. Árið 2012 bætt- ust svo Reykjavíkurborg og Gríms- nes- og Grafningshreppur í þennan hóp. Grindavík var eina sveitarfélag- ið sem fór úr þessum hóp í ár. 65 af 74 sveitarfélögum leggja á hámarksútsvar Greiðslur aukajöfnunarframlags úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga árið 2012 Íbúafjöldi Aukajöfnunar- Tekjujöfnunar- 1/1 2012 framlag framlag Sveitarfélagið Álftanes 2.419 175.000.000 kr. 27.051.503 kr. Sandgerðisbær 1.672 47.374.982 kr. - kr. Borgarbyggð 3.470 6.426.075 kr. 37.970.810 kr. Grundarfjarðarbær 899 15.687.075 kr. 1.835.952 kr. Stykkishólmsbær 1.108 12.422.286 kr. - kr. Bolungarvíkurkaupstaður 889 688.693 kr. 9.948.259 kr. Ísafjarðarbær 3.755 8.766.115 kr. - kr. Vesturbyggð 910 688.278 kr. - kr. Sveitarfélagið Skagafjörður 4.024 2.733.228 kr. - kr. Blönduósbær 871 621.001 kr. 10.123.851 kr. Norðurþing 2.884 46.674.760 kr. - kr. Langanesbyggð 512 319.763 kr. - kr. Seyðisfjarðarkaupstaður 677 976.993 kr. - kr. Fjarðarbyggð 4.600 945.859 kr. - kr. Breiðdalshreppur 190 1.243.386 kr. - kr. Djúpavogshreppur 461 193.045 kr. 3.406.979 kr. Fljótsdalshérað 3.408 27.675.339 kr. - kr. Mýrdalshreppur 459 469.398 kr. - kr. Rangárþing ytra 1.504 1.092.916 kr. - kr. Útsvarsprósenta 2013 Seltjarnarneskaupstaður 13,66% Garðabær 13,66% Kjósahreppur 13,73% Grindavíkurbær 14,28% Skorradalshreppur 12,44% Hvalfjarðarsveit 13,64% Tjörneshreppur 14,04% Fljótsdalshreppur 13,20% Ásahreppur 12,44%  19 sveitarfélög fengu aukajöfn- unarframlag Útsvar sveitarfélaga » Einungis níu sveitarfélög fullnýta ekki heimild í lögum um hámarksútsvar árið 2013. » Seltjarnarnes og Grindavík þau einu sem lækkuðu útsvarsprósentu milli ára. » Lægsta útsvarið er í Ása- hreppi og Skorradalshreppi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.