Morgunblaðið - 03.01.2013, Side 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013
Árið 2012 var sérlega sólríkt bæði
suðvestanlands og á Norðurlandi.
Sólskinsstundir mældust um 1585 í
Reykjavík á árinu og hafa aðeins
einu sinni mælst fleiri, árið 1924. Á
Akureyri mældust sólskinsstund-
irnar 1415 og hafa aldrei mælst fleiri
á einu ári. Þetta er reyndar nærri
140 stundum meira en mest hefur
mælst á einu ári áður á Akureyri. Þó
eignaðist árið ekkert mánaðarmet
sólskinsstunda.
Í bráðabirgðayfirliti Trausta
Jónssonar veðurfræðings kemur
fram að tíð hafi lengst af verið hag-
stæð í fyrra. Árið byrjaði þó með
miklum umhleypingum og illviðrum
sem milduðust þegar á leið. Um
mánaðamótin mars/apríl skipti mjög
um veðurlag og við tóku norðlægar
áttir sem voru lengst af ríkjandi það
sem eftir lifði árins. Vor og sumar
voru óvenju sólrík bæði nyrðra og
syðra. Þurrkar háðu jarðargróðri
víða um norðan- og norðvestanvert
landið langt fram eftir sumri.
Óvenjulegt hríðarveður gerði á
Norðurlandi snemma í september
og olli miklum fjársköðum og raf-
magnsleysi auk samgöngutruflana.
Óvenjuillviðrasamt var framan af
nóvember, þá voru mikil snjóþyngsli
um landið norðaustanvert og víða
urðu fokskaðar.
Árið var mjög hlýtt, sérstaklega
um landið vestanvert og var það sjö-
unda hlýjasta frá upphafi mælinga í
Stykkishólmi, í 11. sæti í Bolung-
arvík, því 13. í Stykkishólmi og 14. í
Vestmannaeyjum.
Hiti enn yfir meðallagi
Í Reykjavík er árið það 17. í óslit-
inni röð ára þar sem árshitinn er yfir
meðallagi og það 14. á Akureyri.
Úrkoma í Reykjavík var um 12%
yfir meðallagi, mjög votviðrasamt
var fyrstu þrjá mánuði ársins og
sömuleiðis í september en með þurr-
viðrasamasta móti í maí, júní og júlí.
Úrkoma á Akureyri var um 15% yfir
meðallagi en sérlega úrkomusamt
var þar í september og nóvember.
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Leikur Börnin nutu sólskinsdaga.
Sólskinsmet fyrir
sunnan og norðan
Tíð var lengst
af hagstæð á
nýliðnu ári
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/