Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 24
FRÉTTASKÝRING Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Þing Bandaríkjanna samþykkti á síðustu stundu aðgerðir í ríkisfjár- málum til að komast hjá svonefndu „fjárlagaþverhnípi“ sem talið var að gæti leitt til efnahagssamdráttar í landinu. Báðar deildir þingsins sam- þykktu málamiðlunarsamkomulag sem felur í sér að þeir sem eru með hæstar tekjur þurfa að greiða hærri skatta en áður. Fyrirhuguðum niður- skurði á ríkisútgjöldum var hins veg- ar frestað um tvo mánuði. Mörg deilumál eru því enn óleyst, að sögn bandaríska dagblaðsins Wall Street Journal sem segir að með málamiðl- unarsamkomulaginu hafi þingið sneitt hjá fjárlagaþverhnípinu en færst nær öðru hengiflugi. Fjárlagaþverhnípið á rætur að rekja til ársins 2001 þegar stjórn George W. Bush, þáverandi forseta, knúði fram skattalækkanir sem áttu að falla úr gildi í byrjun ársins 2011. Leiðtogar repúblikana og demókrata náðu samkomulagi árið 2010 um að framlengja skattalækkunina um tvö ár. Bætt var við ákvæðum um að minnka ríkisútgjöldin um 109 millj- arða dollara á ári og þau áttu einnig að taka gildi nú um áramótin. Ef nýja samkomulagið hefði ekki náðst hefðu skattar almennings hækkað. Áætlað var að skattarnir myndu hækka um 536 milljarða doll- ara á ári. Hagfræðingar höfðu varað við því að skattahækkanirnar og fyrirhugaður niðurskurður í ríkis- fjármálum myndi leiða til mikils efnahagssamdráttar. Tekjur heimil- anna hefðu minnkað, dregið hefði úr einkaneyslu og þar með hagvexti. Mikið var í húfi því samdráttur í stærsta hagkerfi heimsins myndi hafa áhrif um allan heim. Þar sem demókratar eru með meirihluta í öldungadeild þingsins og repúblikanar í fulltrúadeildinni var ekki hægt að leysa vandann nema með málamiðlunarsamkomulagi flokkanna tveggja. Repúblikanar voru mjög tregir til að fallast á að skattar hátekjufólks yrðu hækkaðir og kröfðust þess að útgjöld ríkisins yrðu minnkuð til að draga úr fjárlagahallanum. Barack Obama forseti vildi að skattar á þá sem væru með meira en 250.000 doll- ara (32 milljónir króna) í árstekjur yrðu hækkaðir. Niðurstaðan var hins vegar sú að miða við 400.000 dollara (51,6 millj- ónir króna) á hvern einstakling og 450.000 dollara (58 milljónir króna) á hjón. Þeir sem eru yfir þessum mörkum greiða 39,6% af tekjum sín- um í skatt en ekki 35% eins og verið hefur. Skattar á fjármagnstekjur há- tekjufólks og erfðafjárskattar voru einnig hækkaðir. Áætlað er að skattahækkanirnar auki tekjur ríkis- ins um 600 milljarða dollara (77.000 milljarða króna) á tíu árum. Mestu skattahækkanir í 20 ár Þetta eru mestu skattahækkanir í Bandaríkjunum í tvo áratugi og The Wall Street Journal telur að sam- komulagið hafi varanleg áhrif á skattakerfið í landinu, átök demó- krata og repúblikana um fjárlög næstu ára og valdajafnvægið í Was- hington. Samkomulagið kerfisbindi flest af þeim skattþrepum sem sett voru tímabundið í forsetatíð Bush. Þetta er í fyrsta skipti frá 1991 sem repúblikanar á Bandaríkjaþingi samþykkja hækkanir á tekjuskött- um. Margir repúblikanar hafa látið í ljósi óánægju með samkomulagið og gagnrýnt að ekki var tekið á mörgum erfiðum úrlausnarefnum, einkum auknum útgjöldum til heilbrigðis- mála. Leiðtogar flokkanna höfðu vonast til þess að geta minnkað fjár- lagahallann um fjórar billjónir doll- ara á tíu árum. Búist er við hörðum deilum á þinginu á næstu vikum um sparnaðaraðgerðir sem nauðsynleg- ar eru til að draga úr skuldasöfnun- inni. Stjórn Baracks Obama vill að þingið hækki skuldaþak bandaríska ríkisins til að hægt verði að taka fleiri lán og afstýra greiðsluþroti. Repú- blikanar vilja ekki hækka skuldaþak- ið nema stjórnin fallist á stórfelldan niðurskurð á ríkisútgjöldum. Málamiðlunarfrumvarpið var fyrst samþykkt í öldungadeild þings- ins í fyrradag með 89 atkvæðum gegn átta. Aðeins fimm af 47 þing- mönnum repúblikana í deildinni greiddu atkvæði gegn samkomulag- inu. Meirihluti repúblikana í fulltrúa- deildinni lagðist hins vegar gegn frumvarpinu í atkvæðagreiðslu í fyrrinótt. 151 af 236 fulltrúadeildar- mönnum repúblikana greiddi at- kvæði gegn frumvarpinu sem var samþykkt með 257 atkvæðum gegn 167. Forysta repúblikana í þingdeild- inni var klofin í málinu. Leiðtogi repúblikana í deildinni, Eric Cantor, greiddi atkvæði gegn frumvarpinu en forseti þingsins, repúblikaninn John Boehner, studdi það. Paul Ryan, varaforsetaefni repúblikana í síðustu kosningum, studdi sam- komulagið þótt hann hafi verið harð- ur andstæðingur skattahækkana. Færist nær nýju hengiflugi 16 Heimild: Fjárlagaskrifstofa bandaríska forsetaembættisins. 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 5,6 5,6 5,8 6,2 6,8 7,4 7,9 8,5 9,0 10,0 11,9 13,5 14,8 Samið um aðgerðir í ríkisfjármálum Heildarskuldir alríkisins 1. janúar frá árinu 2000 til 2013, í billjónum dollara Áformum um að minnka útgjöldin um 109 milljarða $ frestað um tvo mánuði 16,4 billjónir $ 31. desember 2012 Skuldir Bandaríkjanna Haldast óbreyttir Hækka Fjárlagahalli Tekjur heimilisins Meiri en 450.000 $ Minni en 450.000 $ Hæsta hlutfall 39,6% %%% Skattar 1 2  Bandaríkjaþing komst hjá „fjárlagaþverhnípi“ en vék sér undan því að taka á erfiðum úrlausnar- efnum í ríkisfjármálum  Stefnir í átök um hvort hækka eigi skuldaþakið til að afstýra greiðsluþroti AFP Vill niðurskurð John Boehner, forseti fulltrúadeildar þingsins, studdi sam- komulagið en sagði að næst þyrfti að minnka útgjöld ríkisins verulega. AFP Ánægður Barack Obama forseti og Joe Biden varaforseti á blaðamanna- fundi í Hvíta húsinu um málamiðlunarsamkomulagið sem náðist á þinginu. Samkomulaginu fagnað » Hlutabréfavísitölur í Banda- ríkjunum hækkuðu í gær eftir að samkomulagið náðist á Bandaríkjaþingi. Dow Jones- vísitalan hækkaði um 1,8% og Nasdaq-vísitalan um 2,8% eftir að kauphöllin í New York var opnuð. Helstu hlutabréfa- vísitölur í Evrópu hækkuðu einnig. » Barack Obama fagnaði samkomulaginu. „Ég mun undirrita lög sem hækka skatta hinna auðugustu 2% af Bandaríkjamönnum og hindra hækkun á sköttum millistéttarfólks, en hún hefði getað valdið nýjum efnahags- samdrætti og augljóslega haft alvarleg áhrif á fjölskyldur hvarvetna í Bandaríkjunum,“ sagði forsetinn. 24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013 Reykingamenn segja oft að reyk- ingar hjálpi þeim að draga úr streitu. Bresk rannsókn hefur hins vegar leitt í ljós að reyk- ingamönnum sem tekst að hætta að reykja finna síður fyrir kvíða en þeir sem reykja. Rannsóknin náði til tæplega 500 Breta sem tókst að hætta að reykja eftir að hafa sótt námskeið á vegum heilbrigðisyfirvalda. Niðurstaða rannsóknarinnar er að 68 úr þess- um hópi fundu fyrir umtalsvert minni kvíða eftir að þeir hættu að reykja. Breytingin var meiri hjá þeim sem áttu við skapbresti eða kvíðasjúkdóma að stríða en ann- arra. Kvíði hjá þeim sem gerðu mis- heppnaðar tilraunir til að hætta að reykja jókst lítillega. BRETLAND Minni kvíði þegar hætt er að reykja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.