Morgunblaðið - 03.01.2013, Side 36

Morgunblaðið - 03.01.2013, Side 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013 ✝ Björn T. Gunn-laugsson fædd- ist á Bakka í Víði- dal 25. september 1926. Hann lést á Droplaugarstöðum 16. desember 2012. Foreldrar hans voru Gunnlaugur A. Jóhannesson, f. 16. nóv. 1894, d. 1. jan. 1970, og Anna Teitsdóttir, f. 1. des. 1895, d. 10. júlí 1978. Systkini Björns eru: Ingibjörg, f. 7. júní 1922, látin, Jóhanna, f. 22. feb. 1924, Teitur, f. 20. maí 1925, látinn, Jóhannes, f. 9. ágúst 1929, Elísabet, f. 13. júlí 1932, Aðalheiður, f. 30. okt. 1934, Egill, f. 29. sept. 1936, lát- inn, Ragnar, f. 17. mars 1941. Hinn 17. mars 1953 giftist Björn Helgu Ágústsdóttur, f. 17. mars 1934. Foreldrar henn- ar voru Ásdís Eiríksdóttir og Halldórsdóttur 3) Sigurveig, f. 8. feb. 1960, maki Árni S. Egg- ertsson, f. 19. mars 1956, synir þeirra eru: a) Björn, í sambúð með Hrefnu Rósu Sætran, barn: Bertram Skuggi, b) Eggert Jó- hann, í sambúð með Söndru Björgu Sigurjónsdóttur, barn: Lára Björk. 4) Gunnlaugur Auðunn, f. 22. des. 1961, í sam- búð með Jóhönnu Sveinsdóttur, f. 3. sept. 1967, börn hans eru a) Sólveig Helga, b) Björn Ari. Björn ólst upp í foreldra- húsum til 17 ára aldurs, flutti þá til Reykjavíkur og bjó þar til æviloka. Björn var í Hand- íðaskólanum veturinn 1945-46, lauk námi í húsgagnasmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1950. Hann starfaði við iðnina hjá öðrum til 1954, en byrjaði þá eigin rekstur við að smíða og selja húsgögn til ársins 1982. Þá stofnsetti hann inn- römmunina Rammann og starf- aði þar ásamt konu sinni allt til ársins 2005. Björn dvaldi á Droplaugarstöðum sl. níu mán- uði. Björn verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag, 3. janúar 2013, kl. 13. Ágúst Erlendsson. Börn Björns og Helgu eru: 1) Sig- urbjörg, f. 28. júlí 1953, d. 4. jan. 1992, maki Har- aldur Magnússon, f. 17. feb. 1953, börn þeirra eru: a) Unnur Ósk, maki Bragi Hreinn Þor- steinsson, börn: Sigurbjörg Sara og Eyrún Birna, b) Helga Björk, í sambúð með Björnar Ness, barn: Bendik, c) Magnús Már, í sambúð með Aþenu Mjöll Pét- ursdóttur, börn: Elías Breki og Sigurbjörg Embla. 2) Anna Ás- dís, f. 17. mars 1957, maki Kol- beinn Gunnarsson, f. 19. okt. 1956, börn þeirra eru: a) Heiðar Ingi b) Svanfríður Helga, börn: Emelíana Tea, Birgitta Mary og Auður Birta, c) Gunnar Björn, í sambúð með Sigurbjörgu Ernu Mér er það ljúft og skylt að skrifa nokkur minningarorð um elskulegan föður minn sem lést í vikunni fyrir jól. Ef ég horfi til baka koma fyrst og fremst upp í hugann þau forréttindi, að hafa haft pabba alltaf innan seilingar í æsku, þar sem hann rak hús- gagnaverslun og verkstæði í sama húsi og við bjuggum í. Þangað var gott að leita og fá að fylgjast með pabba við störf sín, hjálpa honum að sópa sagið af gólfinu eða fá að smíða eitthvað úr spýtuafgöng- um, sem var alltaf velkomið af hans hálfu. Pabbi var mikill lista- maður þegar kom að ýmiskonar handverki, þar má nefna hús- gagnahönnun, smíðisgripi, teikn- ingar, málverk og útskurð sem prýddu heimili okkar. Ég man að pabbi gerði marga hluti sem mér fannst mjög merkilegir þegar ég var barn, hann var t.d. um tíma í Húnvetningakórnum og ég naut þess að hlusta á þegar hann var að æfa sig heima. Hann fór líka í Dale Carnegie og vann þar í verð- laun nokkra penna fyrir góða frammistöðu og fannst manni mikilfenglegt að handfjatla þessa penna og var ég mjög stolt að eiga svona flottan pabba. Við fjölskyld- an ferðuðumst mikið um landið og var það fastur liður að pabbi stoppaði bílinn einhvers staðar út í vegkanti í þeim tilgangi að taka ljósmynd, þessi ljósmyndataka gat tekið drjúgan tíma því pabbi lagði á það mikla áherslu, að ná sem bestu sjónahorni af myndefn- inu, en á meðan sátum við hin inni í bíl og biðum oft við litla hrifn- ingu á tímalengdinni. En það var fljótt að gleymast þegar ferðinni var haldið áfram, með von um að langt væri í næsta myndastopp. Það sem einkenndi pabba eink- um var yfirvegun, húmor og þakklæti fyrir allt sem fyrir hann var gert. Mér er það minnisstætt þegar ég kom til hans á Droplaug- arstaði nú á haustdögum og spurði hann hvernig hann hefði það, hann svaraði því til að hann hefði verið andvaka undanfarið, því hann hefði verið að velta því fyrir sér hvort hann ætti bágt. Þegar ég innti hann eftir því hvort hann hefði komist að einhverri niðurstöðu svaraði hann: „Já, að því gagnstæða, það eru allir svo góðir við mig, að ég hef enga ástæðu til að kvarta.“ Að leiðarlokum þakka ég elsku pabba mínum samfylgdina og fyr- ir allt það góða sem hann hefur kennt mér á lífsleiðinni. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Þín dóttir, Sigurveig. Nú er komið að því að kveðja þig elskulegi pabbi minn, þú sem aldrei varst veikur, og varst alltaf svo sterkur, en að lokum kom sjúkdómur sem dró þig niður. Líka var það að þú varst hættur að vinna, það átti ekki við þig og dró þig mikið niður, þú varst bú- inn að vinna í þínu fyrirtæki svo lengi og ekki man ég eftir þeim degi sem þú mættir ekki í vinnu, vá hvílíkur dugnaður og elja í þér, það var ekkert verkefni það stórt að þú gætir ekki klárað það. Ég hef hugsað mikið hvað mað- ur er heppinn að eiga svona góðan pabba og svona góða fyrirmynd, þú gast allt. Ef eitthvað bilaði lag- aðir þú það, hvort sem það var leikfang sem brotnaði eða heim- ilistæki. Þú gast málað, smíðað og svo varstu listamaður sem hefði náð langt ef þú hefðir kosið að fara þá braut, hvort sem það var að mála með litum eða teikna með blýanti. Þú valdir að gerast húsgagna- smiður og þar varstu listamaður. Þú lærðir að skera út og listaverk- in sem spruttu frá þér, hvort sem það voru fíngerðir hlutir eins og prjónastokkurinn hennar mömmu eða eitthvað í íbúðinni sem þú vildir gera fallegt. Svo var það hugvitið sem var á bak við alla hluti hjá þér, þú varst búinn að hugsa alla hluti út í smæstu smá- atriði. Ég man þegar við feðgar fórum í göngutúr saman á sunnudags- morgni, en það var eini dagurinn sem þú áttir eitthvert frí. Við löbbuðum meðfram ströndinni við Skúlagötuna og horfðum niður í fjöru og vorum að skoða dýralífið við sjóinn. Svo fór ég að fara með þér þegar þú varst að keyra út húsgögnin, það var góður skóli hvað þú gast komið miklu í litla station-bílinn með því að raða húsgögnunum á ákveðinn og út- hugsaðan máta og hvernig þú beittir líkamanum við að bera húsgögnin, vá hvað maður lærði mikið á að vera með þér. Þú varst alltaf svo réttsýnn, all- ir voru jafnir og það mátti ekki mismuna, þú varst líka svo hæv- erskur, ekki mátti trana sér fram og ekki átti að vera með yfirgang, röðin kom að þér. Ég man þegar við fórum til Spánar öll fjölskyld- an og við vorum að bíða eftir her- berginu okkar á hótelinu. Við krakkarnir vorum orðin óþreyju- full, og vildum troða okkur framar í röðina, en þú varst rólegur og ró- aðir okkur niður, við urðum að bíða. Svo kom að okkur með þeim síðustu og við fengum svítuna; herbergi á tveimur hæðum með einkasundlaug! Þá sagðir þú að það borgaði sig að bíða. Elsku pabbi minn, þú ert sko aldeilis góð fyrirmynd í einu og öllu, þú ert örugglega besti pabbi í heimi, þó að manni hafi ekki fund- ist það þegar maður mátti ekki þetta eða hitt eða þurfti að bíða, en þegar maður lítur yfir farinn veg og þroskast sér maður hvað þú hefur verið góður pabbi og vil ég líkjast þér. Takk fyrir að vera mér svo góður pabbi og kenna mér alla góðu siðina og verk- lagnina. Gunnlaugur A. Björnsson. Elsku afi minn, nú þegar ég hugsa til baka koma í huga mér ótal góðar minningar sem við upplifðum saman. Gamlar minn- ingar úr Rammanum, ótal minn- ingar úr Rauðarárstíg og nýjar úr Droplaugarstöðum, ásamt öllum hinum. Sú sem kemur alltaf fyrst í huga mér er sú er ég sat hjá þér og þér tókst að plata mig ótal sinnum með því að taka af þér þumalinn, og láta þessa feikna kúlu á úlnliðnum myndast og hverfa til skiptis. Grallarinn var alltaf til staðar í þér og var húm- orinn það líka. Það sýndi sig þó að veikindin væru orðin mikil og lík- aminn stirður, þá hélstu áfram að plata mig með þumlinum. Ég er glaður og þakklátur fyrir að eiga þessar minningar með þér. Þær veita mér yl og minna mig á hve skemmtilegur og ljúfur maður þú varst. Ég vona að ósk þín hafi ræst og að þú hafir átt ánægjuleg jól heima á Bakka. Takk fyrir allt sem þú hefur veitt mér og kennt mér, elsku afi minn. Gunnar Björn. Þegar ég man fyrst eftir, þá var Bjössi bróðir byrjaður á sínu iðnnámi í Reykjavík, svo við vor- um ekki samtíða heima á Bakka nema þegar hann kom heim í jóla- og sumarfríum. Það var mikið til- hlökkunarefni hjá okkur sem heima vorum, þegar eldri systk- inin komu heim um jólin sem þau gerðu þar til þau stofnuðu sín eig- in heimili. Eftirminnilegasta jólagjöfin sem ég hef fengið var bíll sem Bjössi hafði smíðað og gaf mér þegar ég var 6 ára. Hann var listi- lega smíðaður úr tré og stíflakk- aður svo hann glansaði allur. Ég hef sennilega aldrei verið stoltari af nokkrum bíl sem ég hef eign- ast. Þessi bíll var eina leikfangið sem maður átti og gat leikið sér að innandyra. Oft var beðið með að gera við hluti þar sem sérstaka vandvirkni þurfti við þar til Bjössi kæmi. Það lék allt í höndunum á honum, hann gerði við klukkur, diska sem höfðu brotnað og hvað annað sem gera þurfti við og var fljótur að sjá það sem betur mátti fara. Eitt sinn þegar Bjössi var heima fór hann að tala um hvort ekki væri vatn uppi í ásnum fyrir ofan bæinn. Á þessum tíma var vatn tekið neðan við ásinn en halli var lítill heim og vatn ekki nægj- anlega gott. Eitt kvöld tók hann sér skóflu í hönd og fór að grafa holur á litlum grasbletti í ásnum beint fyrir ofan bæinn. Enginn fór með honum þar sem ekki þótti lík- legt að þarna fyndist vatnsból. En morguninn eftir var ein holan full af vatni, þarna var komið mjög gott vatn sem var virkjað og notað enn í dag. Það hefur verið mikið afrek þegar þau Helga réðust í að kaupa sér húsnæði á Hverfisgötu 125 fljótlega eftir að hann lauk námi í húsgagnasmíði. Hann inn- réttaði sér verkstæðis- og versl- unarpláss í skúr við hliðina á hús- inu, ásamt tækjum. Hann byrjaði síðan að smíða og selja húsgögn sem hann hannaði sjálfur, t.d. eld- húskolla sem urðu mjög vinsælir og sterkir og fór lítið fyrir þeim. Þau voru afar samhent hjónin í smekkvísi, nægjusemi, og ráð- deild og bar heimili þeirra þess ótvíræð merki. Þegar vantaði föt á börnin þá saumaði Helga þau og Bjössi smíðaði húsgögnin og var þetta allt betur gert en fékkst í búðum. Heimili þeirra prýddi einnig málverk eftir Bjössa og út- saumur eftir Helgu. Það var mik- ið áfall fyrir þau þegar elsta dóttir þeirra var kölluð burt eftir erfið veikindi, frá eiginmanni, þrem ungum börnum og fallegu heimili, mér er nær að halda að þau hafi aldrei náð sér að fullu eftir þenn- an mikla missi. Margs er að minnast, margt ber að þakka og margar glaðar stundir lifa í minningunni. Gaman var að hlusta á Bjössa segja frá sínum uppvaxtarárum heima á Bakka. Við Bakkasystkini þökk- um alla greiðasemina sem þótti alltaf sjálfsögð hvernig sem á stóð hjá honum, t.d. þegar hann sótti Jóa bróður á sjúkrahús suður á Ítalíu þar sem hann hafði gengist undir hjartaskurð, það var mikill léttir fyrir okkur þegar hann tók það að sér. Nú er Bjössi bróðir kominn yfir móðuna miklu ég veit að þar hefur verið tekið vel á móti honum og hann hefur komið með sitt bros á vör. Við sendum Helgu og allri fjöl- skyldunni okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Ragnar og fjölskylda. Bjössi frændi frá Bakka í Víði- dal hefur lokið lífsgöngu sinni. Saddur lífdaga fékk hann hægt og friðsælt andlát. Hann fékk í vöggugjöf einstakt lundarfar og sérstaka kímnigáfu sem ein- kenndi allt hans líf. Í nærveru hans leið manni alltaf vel. Bjössi var elsti bróðir mömmu minnar og milli þeirra ríkti sann- ur kærleikur og væntumþykja sem við systkinin nutum góðs af. Við leiðarlok streyma fram bjartar minningar um kæran frænda, minningar allt frá bernsku til fullorðinsára. Systkin- in frá Bakka voru afar samrýmd og til marks um það þá bjuggu þau fjögur sem settust að í Reykjavík lengst af í sama hverf- inu. Bjössi var afar listfengur og mikill völundur á tré. Ævistarf hans var húsgagnasmíði og lengi rak hann húsgagnasmíðaverk- stæði og síðar húsgagnasölu í kjallaranum á Norðurpólnum efst á Hverfisgötu. Fjölskyldan bjó á efri hæðinni og oft naut ég þar greiðasemi og gistingar. Hin mikla bílaumferð fyrir utan húsið er mér í barnsminni og löngum stundum var setið við gluggann og bílarnir sem framhjá óku hrað- taldir. Fyrir ungan dreng af landsbyggðinni var það mikil háskaför að ganga fram fyrir hús- ið yfir í smíðastofu Bjössa. Ekki dró það úr áhættunni að handan götunnar var varðstöð lögregl- unnar og ekki vildi maður ganga í flasið á laganna vörðum. Bjössi var listateiknari. Af þeim málverkum að dæma sem eftir hann liggja þá er ég þess full- viss að hann hefði orðið þekktur listmálari ef hann hefði lagt þá listgrein fyrir sig. Aldrei minnist ég þess að Bjössi hafi verið að flýta sér. Fóru honum þó verkin vel úr hendi ekki síður en öðrum. Þar réð mestu hin létta lund og gott verksvit. Þó að hann væri heimakær hafði hann yndi af því að ferðast. En vana- fastur var hann. Þannig heimsótti fjölskyldan æskustöðvarnar á Bakka í tiltekinni viku sumars ár hvert og í áratugi bókuðu þau Helga og Bjössi sömu vikurnar á hóteli á Ensku ströndinni á Kan- arí. Ungur giftist Bjössi Helgu Ágústsdóttur og voru þau ást- fangin hvort af öðru í yfir 60 ár. Þó svo að þau hafi verið um margt afar ólík þá gátu þau aldrei hvort af öðru séð. Unnu saman, ferðuð- ust saman og lifðu saman. Þau áttu miklu barnaláni að fagna en þegar Guð tók hana Sissu, elstu dóttur þeirra til sín, frá þeim og ungum börnum hennar var eins og strengur í brjósti þeirra hjóna brysti sem ekki tókst að græða til fulls á ný. Sissa var einstakur gleðigjafi, einstök frænka, sem var sárt saknað af öllum sem henni kynntust. Síðustu mánuðina dvaldi Bjössi frændi á Droplaugarstöðum. Heiðríkjan og glettnin fylgdu Bjössa fram í andlátið og fékk starfsfólkið sem hann dásamaði svo mjög að njóta þess. Þegar göngugrindin var orðin hans helsta farartæki fannst starfs- fólkinu hann stundum fara helst til ógætilega. Einhverju sinni þegar hann vildi áfram var hann beðinn um að bakka. „Auðvitað get ég það,“ svaraði hann „ég er nú einu sinni frá Bakka“. Fyrir hönd systkina minna sendi ég Helgu, börnum hennar, barnabörnum og barnabarna- börnum okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Guð blessi minningu okkar kæra frænda. Halldór Árnason. Þá hefur hann Bjössi vinur okkar til margra áratuga kvatt þetta jarðlíf án mikilla átaka. Hann var ekki maður hávaða og fór um hægt og hljótt. Hann var ákaflega léttur á sér og munaði ekki um að skokka upp fjallshlíð ef því var að skipta. Húmorinn var aldrei langt undan, þrátt fyrir erfið veikindi síðari ár þar sem parkinson hafði sótt hann heim. Fyrir 21 ári misstu Bjössi og Helga frumburð sinn hana Sissu, sem lést úr krabbameini aðeins 37 ára gömul frá manni og þremur ungum börnum. Sú erfiða reynsla markaði djúp spor í sálu þeirra hjóna, en þau höfðu ekki val um annað en að halda áfram eins og svo margir aðrir í þeirra sporum hafa gert. Við viljum þakka Bjössa sam- fylgdina og erum viss um að hann sé kominn heim í heiðardalinn, kominn heim með slitna skó, kom- inn heim að heilsa mömmu, kom- inn heim í leit að ró. En þessar laglínur voru í uppáhaldi hjá hon- um. Elsku Helga, Anna Dísa, Veiga og Gulli, við samhryggjumst ykk- ur og fjölskyldum ykkar og ósk- um ykkur guðs blessunar. Gyða og Baldvin. Björn T. Gunnlaugsson ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, HAUKUR ÓLAFSSON skipstjóri, Norðfirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað miðvikudaginn 26. desember. Útförin fer fram frá Norðfjarðarkirkju föstu- daginn 4. janúar kl. 14.00. Valborg Jónsdóttir, Ólafur Hauksson, Svala Guðjónsdóttir, Sigurbergur Hauksson, Álfdís Ingvarsdóttir, Þór Hauksson, María Kjartansdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN V. GUÐJÓNSSON, fyrrum framkvæmdastjóri, Fornuströnd 9, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn 4. janúar kl. 15.00. F. h. aðstandenda, Elísabet Jónsdóttir, Guðjón Jónsson, Sigrún Ásta Bjarnadóttir, Hafdís Jónsdóttir, Björgúlfur Andrésson. ✝ Bróðir minn og frændi okkar, TRYGGVI SIGURÐSSON, Fagurhólsmýri, verður jarðsunginn frá Hofskirkju í Öræfum laugardaginn 5. janúar kl. 14.00. Nanna Sigurðardóttir, Sigríður, Helga og Halldóra Oddsdætur og fjölskyldur. ✝ Okkar ástkæra móðir og tengdamóðir, SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR frá Lagarási 12, Egilsstöðum, lést á Heilbrigðisstofnun Austurlands laugar- daginn 22. desember. Útför hennar fer fram frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 5. janúar kl. 11.00. Fyrir hönd vandamanna, Gyða Vigfúsdóttir, Sigurjón Bjarnason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.