Morgunblaðið - 22.02.2013, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 2 2. F E B R Ú A R 2 0 1 3
Stofnað 1913 44. tölublað 101. árgangur
TILBOÐ
á 1 lítra
Kókómjólk
HEIMURINN ER
SVO RÁÐVILLTUR
NÚ Á TÍMUM
VÍÐTÆK LAND-
KYNNING OG
LJÚFAR KRÁSIR
OFT MÁ SJÁ
FEGURÐ Í
ERFIÐU LÍFI
AUKABLAÐ UM FOOD & FUN ÞÓRUNN ERNA CLAUSEN 10FYRIRHEITNA LANDIÐ 46
Morgunblaðið/RAX
Þjórsá Áform hafa verið um að reisa þrjár
virkjanir í neðri hluta árinnar.
Hluti af Árnesi í Þjórsá mun fara
undir vatn sem og áreyrar ef Holta-
virkjun, ein af þremur fyrirhug-
uðum virkjunum í neðri hluta ár-
innar, verður byggð. Stór hluti
eyjunnar verður þó ekki fyrir áhrif-
um.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsvirkjun hafa viðræður við
landeigendur við Þjórsá um vatns-
og landréttindi staðið yfir allt frá
því að undirbúningur virkjananna
hófst. Á bilinu 20-30 samningar
hafa verið gerðir við landeigendur.
Samningarnir eru í flestum til-
fellum um leigu á vatnsréttindum.
Einnig eru einhverjir samningar
um afnotarétt af landi en færri
dæmi eru um að Landsvirkjun hafi
keypt land.
Fær afnotarétt af
Árnesi verði virkjað
Botninum náð?
» Sjófryst flök frá Íslandi hafa
undanfarið selst í Rússlandi.
» Vilhjálmur telur það merki
um að verð nálgist lágmark.
» Skjöldur óttast að botninum
sé ekki náð
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Það er athyglisvert að á síðustu vik-
um hefur fengist hærra verð fyrir
fryst ufsaflök en fyrir fryst þorsk-
flök. Ég veit ekki til þess að það hafi
gerst áður,“ segir Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, forstjóri HB Granda,
spurður um verðþróun á fiskmörk-
uðum.
Hann segir að verðlækkanir á
þorski taki í, en ástandið sé þó ekki
alslæmt. Þannig hafi verð á mjöli og
lýsi hækkað í vetur og einnig á
frystri loðnu og fleiri uppsjávarteg-
undum. Karfi hafi haldið sínu sem og
ufsinn.
Erfitt í saltfiski
„Mjög mikil þyngsli í sölu, miklar
verðlækkanir og birgðasöfnun er
framundan ef hún er ekki þegar byrj-
uð,“ er lýsing Skjaldar Pálmasonar,
formanns Íslenskra saltfiskframleið-
enda, á stöðunni hjá framleiðendum
og á mörkuðum við Miðjarðarhafið.
Hann áætlar að síðustu 12-18 mán-
uði hafi millifiskurinn, sem hafi staðið
sig best, lækkað um 10-15% og
stærsti fiskurinn um allt að 30%.
MÞyngsli í sölunni »14
Meira fyrir ufsa en þorsk
Forstjóri HB Granda segir verðlækkun á þorski taka í en ástandið sé ekki alslæmt
Stærsti saltfiskurinn hefur lækkað um allt að 30% á síðustu 12-18 mánuðum
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gaman Marý Austmar Þórsdóttir,
fimm ára, var í Hlíðarfjalli í gær.
Vetrarfrí er í flestum grunnskólum
Reykjavíkur í dag og margir voru
líka í fríi í gær. Margar fjölskyldur
notfæra sér löngu helgina til að gera
sér dagamun. Fjölmenni hefur verið
á Akureyri undanfarna daga og er
gert ráð fyrir að þrjú til fjögur þús-
und manns verði á skíðum í Hlíðar-
fjalli í dag og á morgun.
Töluverð blíða hefur ríkt á Íslandi
undanfarna daga og er spáð svipuðu
veðri fram í næstu viku. Undanfarin
ár hafa margir grunnskólakrakkar
og fjölskyldur þeirra sótt Akureyri
heim í vetrarfríum og eru fleiri þar á
ferð nú en oftast áður. „Veðrið spilar
stóra rullu,“ segir Guðmundur Karl
Jónsson, forstöðumaður skíðasvæð-
isins í Hlíðarfjalli, og bætir við að
páskastemning ríki nú í fjallinu.
„Það er sól og blíða og allir alsælir,
mikið um sólarvörn og brunna
nebba.“
Guðmundur Karl segir að brugð-
ist sé við aukinni aðsókn með því að
fjölga starfsfólki. Fleiri skíðakenn-
arar séu í skíðaskólanum og fleiri
skíði til taks í skíðaleigunni. Fleiri
brekkur séu troðnar en ella og svæð-
ið sé opið lengur. » 6
Veðrið leikur við nemendur
Ungmenni fjölmenna til Akureyrar í vetrarfríinu
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins var settur í
Laugardalshöll í gær. Í setningarræðu sinni
sagði Bjarni Benediktsson, formaður flokks-
ins, að síðustu fjögur ár hefðu verið ár hinna
glötuðu tækifæra. „Við höfum glatað tækifær-
um til að fjárfesta og framkvæma. Það þarf
að örva atvinnulífið, lækka skatta og vinda of-
an af flækjustiginu. Við munum byrja á
tryggingagjaldinu og halda svo áfram að
greiða fyrir fjárfestingum í atvinnulífinu og
taka til í ríkisfjármálunum – hætta skulda-
söfnun.“ »4
Það þarf að örva atvinnulífið og lækka skatta
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Landsfundur Sjálfstæðisflokks hófst í gær og stendur fram á sunnudag
Boðað hefur
verið til fundar
um miðja næstu
viku milli lóð-
areigenda hótel-
reitsins við
Hörpu og er-
lendra fjárfesta
sem hafa áform-
að að byggja þar
hótel undir
merkjum Marriott-hótelkeðjunnar.
Félagið Sítus á lóðina en Pétur J.
Eiríksson, stjórnarformaður þess,
segir að ekkert verði að frétta af
málinu fyrr en eftir þann fund.
thorsteinn@mbl.is
Fundur í næstu viku
um hótel við Hörpu
Harpa