Morgunblaðið - 22.02.2013, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 22.02.2013, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013 Við óvænt andlát vinar míns Ragnars Magnússonar setti mig hljóðan. Kynni okkar Ragnars hófust fyrir alvöru þegar Magnús Jó- hannsson, kaupmaður í Skeifunni, bauð okkur Ragnari að gerast stofnendur og meðeigendur í Bæj- arbólstrun en það var húsgagna- verksmiðja upp á ellefu hundruð fermetra að gólffleti. Tókum við Ragnar slaginn og upphófust í lífi okkar mörg viðburðarík ár. Í svona stórri verksmiðju þurfti mikið skipulag, dugnað og útsjón- arsemi þar sem framleidd voru mörg sófasett á hverjum degi. Fórst Ragnari sem verkstjóra þetta vel úr hendi og gekk þessi verksmiðja undir hans stjórn í mörg ár. Tengdumst við þrír sterkum böndum í gegnum þenn- an rekstur og var Ragnar hrókur alls fagnaðar hvort sem við vorum á sýningum erlendis, í veiðitúrum eða í veislum á vegum fyrirtæk- isins. Straumhvörf urðu í lífi Ragnars þegar hann lenti í alvar- legu bílslysi fyrir tíu árum. Slas- aðist Ragnar mikið, brotnaði illa Ragnar Þór Magnússon ✝ Ragnar ÞórMagnússon fæddist í Reykjavík hinn 5. apríl 1937. Hann andaðist á blóðlækningadeild Landspítalans við Hringbraut hinn 8. febrúar 2013. Ragnar var jarð- sunginn frá Há- teigskirkju 15. febr- úar 2013. bæði á höndum og fótum og er krafta- verk að hann skuli hafa lifað þetta slys af. Á einu augnabliki breyttist allt. Hann gat ekki stundað at- vinnu sína, ekki notið hestamennskunnar, ekki farið í veiðitúra, ekkert. Byrjar nú erfiður kafli í lífi Ragnars og reyndar allrar fjölskyldunnar. Látlausar spítalaferðir, aðgerðir með hléum í mörg ár og svo stanslaus end- urhæfing alveg fram á síðasta dag. Í allri þessari umræðu má ekki gleymast þáttur Signýjar, konu Ragnars, sem stóð eins og klettur við hlið hans og studdi hann bæði andlega og líkamlega í þessum erfiðleikum. En Ragnar, þessi ljúflingur, seiglaðist áfram í gegn- um þetta mikla andstreymi með sinni alkunnu ró og yfirvegun. Já það voru ekki lætin þar. Ragnar náði sér aldrei af þessu hörmulega slysi þó að hann hafi getað gengið svolítið óstuddur. Næsta áfall hjá Ragnari og fjöl- skyldu hans er að í líkama hans tekur sér bólfestu sjúkdómur sem nánast fellir annan hvern Íslend- ing. Sú rimma stóð stutt og kvaddi þessi öðlingur lífið 8. febrúar síð- astliðinn. Þar fór góður samstarfsmaður og vinur. Kæra Signý og fjöl- skylda, við Steinunn vottum ykk- ur okkar dýpstu samúð og biðjum almættið að styrkja ykkur í sorg ykkar. Halldór Jónsson bólstrari. Elsku amma mín, daginn sem þú fórst sagði Nanna Kolbrún dóttir mín (fimm ára) mér að þú værir komin til afa og um leið blikkaði hún mig, eilítið sposk á svip. Það er alveg rétt hjá henni amma, loksins ertu komin til afa og ég veit að hann hefur tekið vel á móti þér. Mér er þakklæti efst í huga þessa dagana, þakklæti fyrir það að fá að hafa þig hjá okkur allan þennan tíma. Þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast þér svona vel eins og ég og systur mínar gerðum. Ég er þakklát fyrir það að hafa haft þig í sama húsi; hús- inu sem þið afi byggðuð, allan minn uppvöxt og þar af leiðandi ótakmarkað aðgengi að þér. Þakk- lát fyrir allar stundirnar sem við áttum saman; prjónakennsluna, pönnsurnar og myndirnar. Mynd- irnar sem ég gat skoðað tímunum saman, þessar fallegu ljósmyndir sem þú tókst. Þakklát fyrir það að börnin mín fengu að kynnast þér og þakklát fyrir stundina sem við áttum sam- Guðný Hulda Steingrímsdóttir ✝ Guðný HuldaSteingríms- dóttir fæddist í Reykjavík 14. ágúst 1924. Hún lést á heimili sínu á Kaplaskjólsvegi 64 sunnudaginn 13. janúar 2013. Útför Guðnýjar fór fram í kyrrþey að hennar ósk. an um daginn þegar þú hafðir svo gaman af börnunum sem léku á als oddi. Þegar ég byrjaði í mínu ljósmynda- námi fékk ég hjá þér allar negatívurnar sem þú hafðir tekið þegar pabbi og systkini hans voru börn. Ég man hvað þér þótti spennandi en skrítið hvernig ég hafði skann- að þær inn, raðað þeim upp í eins- konar myndband og sett lag und- ir; þú tókst fyrir andlitið og flissaðir. Svo nutum við þess að fara í gegnum þetta saman og þú sagðir okkur sögur í kringum hvern einasta ramma. Ég er þakklát fyrir áhugann sem þú sýndir minni ljósmyndun og það var gaman að sýna þér verkefnin mín og lesa í myndirnar saman. Það leyndi sér ekki ef þú varst hrifin og þá komu athuga- semdirnar frá hjartanu. Um daginn útskrifaðist ég og mér þótti erfitt að geta ekki sýnt þér verkefnið mitt í sinni loka- mynd. Ég veit að þú varst með mér á endasprettinum og ég veit líka að þú hefðir verið ánægð með niðurstöðuna. Enda var verkið svolítið í þínum anda amma; ákveðið, skýrt og feminískt. Elsku amma mín, nú ertu kom- in til afa og þá getið þið loks hvílt saman í friði. Þín Hulda Sif. Kristbjörn fædd- ist í Tunguseli 18. desember 1926 og varð því 87 ára. Kristbjörn var elstur sinna systkina, hann var alla tíð búsettur í Tunguseli og var í forustu fyrir búskapnum ásamt bróður sínum Marinó, en hann er giftur Bjarneyju Her- mundsdóttur. Þau eiga einn son, Ævar, en hann sér að mestu um búskapinn ásamt foreldrunum. Í Tunguseli hefur ávallt verið rek- inn mikill fjárbúskapur, einn af þeim stærstu á Norðausturlandi. Kristbjörn byrjað ungur að starfa við búskapinn og varð að- alstuðningsmaður föður síns, Jó- hanns Lúthers Grímssonar. Kristbjörn var alla tíð mikill mik- il verkmaður, honum féll aldrei verk úr hendi. Systkinahópurinn varð snemma stór og var því mik- il þörf fyrir fúsar hendur en Kristbjörn helgaði allt sitt líf bú- störfum og félagsmálum sinnar sveitar. Hann átti t.d. lengi sæti í hreppsnefnd Sauðaneshrepps og reyndist þar oft ötull og tillögu- góður fyrir sveitarfélag sitt. Ung- ur fór hann til náms að Laugum þar sem hann sótti sér fræðslu sem nýttist honum vel við lífs- starfið. Upp úr fertugu fór hann suður í Sandgerði á verið, sem svo var kallað, dvaldi þar að vanda nokkra mánuði við fisk- vinnslustörf. En við það var hann nokkrar vertíðir. Í þau skipti dvaldi hann oft hjá okkur Krist- ínu. Það fannst okkur jafnan góð- Kristbjörn Jóhannsson ✝ Kristbjörn Jó-hannsson fæddist í Hvammi í Þistilfirði hinn 18. október 1926. Hann lést á Dvalarheim- ilinu Nausti 6. febr- úar. Útför Krist- björns fór fram 16. febrúar 2013. ar heimsóknir og var hans gjarnan beðið með mikilli til- hlökkun. Oftar en ekki var spjallað um pólitík og var þá mikið fjör en þá bjuggum við Kristín í Reykjavík. Krist- björn var alla tíð hægur og úrræða- góður mágur sem gott var að leita til er á þurfti að halda. Kristbjörn hafði mjög ákveðnar skoðanir og lá sjaldan á skoðunum sínum ef umræðan var um landsmál og var Framsóknarflokkurinn hans flokkur. Ég tel að á engan sé hall- að er ég segi að ötulli flokksmað- ur var varla til en hann varði þá félaga sína af lífi og sál, ég minn- ist þess ekki að í önnur skipti hafi Kristbjörn hvesst róminn meir því þá gat engum dulist hvað hann var að fara. Síðustu árin dvaldi Kristbjörn á heimili heldri borgara á Þórs- höfn. Ég og fjölskylda mín, Sigur- jón, Bryndís og krakkarnir send- um fjölskyldu Kristbjarnar okk- ar bestu kveðju og biðjum þann sem stjórnar öllu lífi og göngu himintungla að varðveita Krist- björn og fjölskyldu hans. Hann eignaðist marga góða vini sem stóðu með honum í gegnum þykkt og þunnt í veikindum hans. Þegar æviröðull rennur, rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi, hel er fortjald. hinum megin birta er. Höndin, sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga’ og nætur yfir þér (Sigurður Kristófer Pétursson.) Kristján B., Sigurjón og Bryndís og fjölskylda. ✝ Innilegar þakkir til ykkar allra, sem hafið auðsýnt samúð og vinarhug við andlát og útför kærs bróður okkar, mágs og frænda, JÓNS ÚLFARS LÍNDAL. Sérstakar þakkir fá þau fjölmörgu sem auðguðu líf hans með margvíslegum hætti. Þórhildur Líndal, Eiríkur Tómasson, Björn Líndal, Sólveig Eiríksdóttir, Páll Jakob Líndal, Sigurlaug Gunnarsdóttir og systkinabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, PAULS SVEINBJÖRNS JOHNSON. Sérstakar þakkir til starfsfólkins á Minnis- móttökunni, Þorraseli og á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund fyrir góða umönnun og hlýhug í hans garð. Áslaug Ragnhildur Holm Johnson, Sonja Ragnhildur Johnson, Marc C. Johnson, Pétur Snæbjörn Johnson, Birgir Þór Johnson, Santok Johnson, Kathleen Johnson Menlove, Lynn Menlove, Knut Sveinbjörn Johnson og barnabörn. ✝ Faðir minn, tengdafaðir, afi og fósturfaðir, JÓN DANÍELSSON, fyrrverandi skipstjóri, Dunhaga 15, Reykjavík, varð bráðkvaddur þriðjudaginn 19. febrúar. Útför hans fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 28. febrúar kl. 15.00. Örn D. Jónsson, Laufey Guðjónsdóttir, Steinunn Arnardóttir, Leópold Kristjánsson, Ágústa Arnardóttir, Einar Þorsteinn Arnarson, Pétur Emilsson, Edda Sigurðardóttir. ✝ Benjamín PállSigurðsson fæddist 15. maí 1917 í Hnífsdal. Hann lést 15. febr- úar sl. á Fjórðungs- sjúkrahúsi Ísafjarð- ar. Foreldrar hans voru Sigurður Benjamínsson frá Árnessókn, Strandasýslu, og Kristín Gradíana Jóhannsdóttir frá Aðalvík. Systkini Páls eru 1) Jóhann Sigurðsson, f. 15.6. 1913, d. 1986. 2) Guðrún Sigurðardóttir, f. 21.5. 1924. 3) Guðmundur Jós- ep Sigurðsson, f. 21.5. 1924, d. 1993. 4) Hákon Bjarnason, f. 28.1.1928, d. 2009. 5) Hermann Alfreð Bjarnason, f. 28.1. 1928, d. 1946. 6) Kristín Sveiney Bjarnadóttir, f. 27.10. 1932. 7) Oddur Jakob Bjarnason, f. 27.10. 1932, d. 2004. 8) Sam- feðra bróðir var Alfreð Henry Sigurðsson, f. 1910, d. 1960. Páll giftist 31. maí 1941 Hólmfríði Eneku Magnúsdóttur frá Bol- ungarvík, f. 6. mars 1915, d. 19. janúar 1997. Foreldrar hennar voru Karitas Árný Jónsdóttir frá Bolungarvík og Magnús Ólafsson frá Bolungarvík. Börn þeirra eru fjögur. Karitas Maggý, f. 21.1. 1941, eiginmaður Baldur Geirmunds- son, 4 synir. Kristín Björk, f. 20.5. 1943, eiginmaður Sveinn Scheving, 3 börn. Júlíana, f. 1.7. 1947, eiginmaður Kristján Finnsson, 2 synir. Guðný, f. 4.8. 1951, eiginmaður Sigurður Bessason, 2 synir. Samtals eru niðjar Páls 51 talsins. Páll ólst upp hjá móður sinni í Hnífsdal, eftir að foreldrar hans skildu. Frá 7 ára aldri ólst hann upp hjá hjónunum Guðnýju og Jón- asi á Bakka í Hnífsdal. Árið 1931 flutti hann ásamt móður sinni til Ísafjarðar þar sem hann stundaði almenn verka- mannastörf, þar til hann hóf störf í Mjólkursamlagi Ísfirð- inga 1952 og starfaði óslitið til 2001, þar af sem mjólkurbús- stjóri í 37 ár. Útförin fer fram frá Ísafjarð- arkirkju föstudaginn 22. febr- úar 2013 kl. 14. Afi á Ísó hefur fengið hvíldina sína. Hann var skemmtilegur og góður afi, gerði töfrabrögð, setti upp grímur, fór í lautarferðir, berjaferðir, fjöruferðir, ökuferð- ir og blístraði. Þegar ég var lítil horfði ég með aðdáun á afa þeg- ar hann á morgnana setti kalt vatn í vaskinn, slatta af klökum og dýfði svo andlitinu ofan í til að vakna almennilega og svo var þetta svo gott fyrir húðina. Afi var engum líkur. Hann var alltaf að. Þegar hann og amma fluttu á Hlíf þá saknaði amma þess að hafa ekki eldhúsglugga – nú afi smíðaði glugga og málaði „útsýni“ svo amma gæti skipt um gardínur (jól, páska o.fl.) Amma þurfti að setja smá lyft- ingu og/eða permanent í hárið – afi rúllaði því bókstaflega upp eins og fagmaður. Þegar ég var með afa var allt eitthvað svo skemmtilegt og ævintýri alveg inni í myndinni – svo hló hann bara og blístraði. Afi reyndist mér ávallt góður, réttlátur, uppörvandi, sannur, þolinmóður og sanngjarn. Hann var alltaf flottur í tauinu, snyrti- legur og orginal töffari, dökkur yfirlitum, alltaf brúnn og sléttur í framan og hugsaði vel um sig alla tíð. Afi verður alltaf á sínum stað í hjarta mínu, ef mér tekst að líkjast honum smá er ég sátt. Benedikta Eik. Benjamín Páll Sigurðsson Bragi Freymóðsson, frændi minn í Santa Barbara, er lát- inn. Það er erfitt að ætla að minnast hans í fáum orðum því hann var einstakur höfðingi og öðlingur í hjarta. Ekkert var Braga óviðkomandi og þjóðmál- in á Íslandi áttu hug hans og hjarta þótt hann hafi verið bú- settur í Ameríku mestan hluta ævinnar. Hinn 16. febrúar var minningarathöfn í Santa Bar- bara. Við munum líka minnast hans hér heima. Ég veit ekki hvar ég á að byrja til að lýsa Braga, því ég hef alltof fá orð til þess, en ég vildi að ég hefði kynnst honum og Jonnu fyrr á ævinni. Hann var einstök persóna, hann vildi fá að vita allar hliðar málanna og algert aukaatriði hvort mín skoðun samræmdist hans, raunar var hans skoðun auka- atriði líka. Jahá, sagði hann kannski, já, þetta er ein hliðin á málinu. Ekkert var honum óviðkom- Jóhann Bragi Freymóðsson ✝ Jóhann BragiFreymóðsson fæddist á Ytra- Kálfsskinni, Ár- skógsströnd, 27. febrúar 1920. Hann lést á heimili sínu í Santa Barbara í Kaliforníu 12. jan- úar 2013. Minningarathöfn um Braga fór fram frá The Good Shep- herd Lutheran Church í Santa Barbara í Kaliforníu 16. febrúar 2013. andi hvort sem það voru tækninýjung- ar eða þjóðmálin heima. Minni hans var ótrúlegt, við hringdum venju- lega í systkinin hvar sem við vor- um stödd í Amer- íku og hann vissi alltaf um einhverja áhugaverða staði nálægt þar sem við vorum. Það var engu líkara en hann hefði innbyggt gps-kort í heilabúinu. Bragi var höfðingi heim að sækja. Eftir margar ferðir til þeirra systkina í Santa Barbara er okkur efst í huga þakklæti fyrir hina ógleymanlegu dek- urdaga sem við höfum notið hjá þeim og hinn hlýja hug sem var borinn til okkar. Eitt eftir- minnilegasta atvikið var í nóv- ember 2011 þegar ég hljóp Santa Barbara-maraþon og þau systkini, háöldruð, lögðu á sig að bíða við 18. mílu sem var rétt hjá heimili þeirra, aðeins til að sjá mig hlaupa framhjá. Við munum minnast Braga sem manns sem reyndi sífellt að láta gott af sér leiða og vildi helst skila meiru aftur til þjóð- félagsins en hann fékk sjálfur, hann t.d. stofnaði styrktarsjóð fyrir námsmenn. Steinunni, dóttur Braga, hennar fjölskyldu og Jonnu systur hans sendum við Lúther okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Minningin um Braga mun lifa áfram í huga okkar. Bryndís og Lúther.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.