Morgunblaðið - 22.02.2013, Blaðsíða 11
Leiklist Tómas Geir í hlutverki sínu sem hinn ráðvillti Karl er hér í einu brúðkaupinu af fjórum í sýningunni.
skólans í Breiðholti en hætti við
vegna fráfalls eiginmanns hennar,
Sigurjóns Brink. „Þetta er búið að
vera svolítið skrítið stundum. Ég var
að horfa á þessa bíómynd kvöldið
sem Sjonni dó og var þá að setja í
hlutverk. Það er svo undarlegt
hvernig lífið er. Nú tveimur árum
seinna er ég að halda áfram með
þetta. Í sýningunni verður ákveðið
áfall í vinahópnum sem því miður allt
of margir þurfa að lenda í og í dag
skil ég þær aðstæður svo miklu bet-
ur. Það er því kannski fyrst núna
sem ég hef þroskann til að setja þetta
verk upp.“
Mikill leiklistaráhugi í FG
Það var mjög mikill áhugi meðal
nemenda FG að fá að taka þátt í
þessari uppfærslu en alls sóttust um
80 nemendur eftir hlutverkum í sýn-
ingunni. „Það er leiklistardeild hérna
í skólanum og þau eru komin mjög
langt þessir krakkar miðað við
krakka í framhaldsskóla. Það er frá-
bært að vera með svona stóran hóp
en þau eru rúmlega þrjátíu og hver
og einn leikari er algjör snillingur,“
segir Þórunn. Söngleikir eiga það
sameiginlegt að leikararnir bresta
oft í söng af engu tilefni. Því er ekki
þannig farið í uppsetningu FG. „Við
erum með fjögur brúðkaup og jarð-
arför og það er náttúrlega alltaf tón-
list í þannig athöfnum svo við náum
að nýta það og tengjum þannig tón-
listina inn í sýninguna. Ég valdi síðan
nokkur uppáhaldslög sem mig lang-
aði til að koma inn í sýninguna,“ seg-
ir Þórunn. Í sýningunni eru klassísk
lög eftir til dæmis Etta James, Fran-
kie Valli og Stevie Wonder en það er
líka lag eftir Sjonna Brink.
Lag eftir Sjonna í sýningunni
„Ég leitaði og leitaði að einu lagi
og eftir mjög mikla leit áttaði ég mig
á því að ég átti lag sem stóð mjög ná-
lægt hjarta mínu. Textinn er eftir
mig en þetta er lag af Flavors-plötu
Sjonna og heitir Sun. Ég samdi
þennan texta þegar pabbi minn var
að kveðja þetta líf. Það var síðan á
æfingu að ég var ekki með neitt und-
ir jarðarfarasenunni, ég fór inn í
play-listann á tölvunni og setti þetta
lag á,“ segir Þórunn og Tómas ítrek-
ar að þetta sé einmitt fullkomið lag
fyrir þetta atriði. „Það er mjög mikið
af skemmtilegum lögum í sýning-
unni. Ég syng til dæmis lagið Can’t
Take My Eyes Off You og Þórunn
samdi mjög flottan íslenskan texta
við það. Ég verð samt að viðurkenna
að ég er meira fyrir að leika en að
syngja,“ segir Tómas. Þórunn tekur
strax við keflinu og segir að nú sé
kominn tími á að gera Tómas vand-
ræðalegan. „Hann er frábær söngv-
ari. Þetta er svona strákur sem getur
allt. Það er algjör unun vera með
svona leikara í sýningu. Hann er of-
urmennisstrákur. Fyrir utan að vera
í þessari sýningu er hann bæði í
Gettu betur liði skólans og Morfís lið-
inu. Hann gerir þetta allt á sama
tíma. Þetta er framtíðarstjarna og
ekki oft sem maður rekst á svona ein-
staklinga.“
Hlógu og grétu saman
Þórunn myndar oft sterk tengsl
við þá sem hún hefur unnið með en
bæði danshöfundur sýningarinnar
Ragnheiður Dísa Gunnarsdóttir og
tónlistarstjórinn Kristinn Þór Ósk-
arsson voru í nemendasýningum hjá
henni fyrir nokkrum árum. Þórunn
hefur sett upp fjölmarga söngleiki
eins og til dæmis Hárið, Fiðlarann á
þakinu, Mamma Mia og Dirty Danc-
ing en segir þessa sýningu standa
næst hjarta sínu. „Ég nota mjög mik-
ið af sjálfri mér í þessari sýningu og
líf mitt síðustu ár. Þetta er búið að
vera pínulítið erfitt en á sama tíma
mjög gott ferli,“ segir Þórunn. „Við
höfum öll grátið saman og hlegið og í
raun farið allan tilfinningaskalann í
þessu leikriti. Þetta er búið að vera
mjög sérstakt æfingatímabil,“ bætir
Tómas við og Þórunn tekur undir
það. „ Það eru allir búnir að vera
mjög opnir með tilfinningar sínar
þannig að þetta verður hálfgerð
þerapía í leiðinni. Þetta er saga sem
nálgast lífið á svo fallegan hátt. Hún
segir manni það að þó að lífið geti oft
á tíðum verið erfitt þá er svo mikil
fegurð í því líka,“ segir Þórunn að
lokum.
Hægt er að panta miða á Fjögur
brúðkaup og jarðarför í síma 777
0905 eða á skrifstofu FG.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013
Hönnuður febrúarmánaðar hjá Ice-
landair hótel Reykjavík Natura, er
Halldóra tísku- og skóhönnuður frá
London College of Fashion, en hún
segir að það að alast upp innan um
fataskáp og skó ömmu sinnar, hafi
átt þátt í að kveikja áhugann á skó-
hönnun. Halldóra sækir mikið af sín-
um innblæstri í náttúru Íslands og
heimaslóðir sínar, Voga í Mývatns-
sveit. Hún hefur í skóhönnun sinni
notað mikið af íslenskum einstökum
efnum, svo sem roð og séríslenska
steina og hrafntinnu, kvikukristalla.
Halldóra kynnir skólínu sína á Hótel
Reykjavík Natura alla föstudaga í
febrúar milli klukkan 17 og 19.
Á hverju föstudagskvöldi klukkan
17 sýna íslenskir hönnuðir vörur sínar
eða halda tískusýningu á Icelandair
hótel Reykjavík Natura (sem áður hét
Hótel Loftleiðir), og eru þeir við-
burðir á sama tíma og „Happy Hour“
er á hótelinu. Erlendir hótelgestir
hafa tekið kynningum íslenskra
hönnuða fagnandi, en að sögn Ragn-
heiðar Friðriksdóttur hjá Reykjavík
Concierge, sem heldur utan um
tískusýningarnar í samstarfi við
Reykjavík Natura, finnst hótelgestum
mjög gaman og áhugavert að hitta ís-
lenska hönnuði og sjá hvað þeir eru
að gera.
„Einnig er þessi viðburður alltaf að
laða til sín fleiri og fleiri íslenska
konuhópa, sem njóta þess að koma
hingað og fá sér hvítvínsglas í góðra
vina hópi, skoða fallega íslenska
hönnun og fá jafnvel tækifæri til þess
að kaupa hana á afslætti.“
Kynnir skólínu á föstudögum
Rautt Halldóra notar roð og fleiri náttúruleg efni.
Halldóra er hönnuður
febrúarmánaðar
Svalt Óneitanlega frekar flott.
Fjölbreytt Armbönd, hálsmen og skór.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
6
9
0
*M
ið
a
ð
vi
ð
b
la
n
d
a
ð
a
n
a
ks
tu
r
BL Sævarhöfða 2 110 Reykjavík 525 8000
Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala
Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070
DACIA DUSTER – 4x4
Dísil, beinskiptur. Verð 4.090 þús. kr. Eyðsla:
5,1 l/100 km*
SKYNSAMLEG
KAUP
Hrikalega gott ver
ð
ELDSNEYTI
MINNA
SHIFT_
NISSAN QASHQAI – 4x4
Dísil, beinskiptur. Verð 5.090 þús. kr. Eyðsla:
4,6 l/100 km*
VINSÆLASTI
SPORTJEPPINN
Samkv. Umferðars
tofu 2012
SUBARU XV – 4x4
Bensín, sjálfskiptur. Verð 5.590 þús. kr. Eyðsla:
6,6 l/100 km*
SPARNEYTINN
SUBARU
Ný vél, aukinn ben
sínsparnaður
NÝIR SPARNEYTNIR BÍLAR
ks
3,4 l/100 km*
1,5 dísil, beinskiptur. Verð 2.890 þús. kr.
Í
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
6
9
0
*M
ið
a
ð
vi
ð
b
la
n
d
a
ð
a
n
a
k
E
N
N
GLÆSILEGUR
AUKABÚNAÐUR
M.a. íslenskur leið
sögubúnaður