Morgunblaðið - 22.02.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013
Jóhanna Sigurðardóttir, pólitísk-ur leiðtogi Samfylkingarinnar,
sá ástæðu til að veita viðtal í gær
vegna vantrauststillögu sem Þór
Saari hafði borið fram og til baka.
Til sátta í málinulýsti Jóhanna
skoðun sinni á
framgöngu Þórs og
sagði að þetta væru
„afspyrnu vond og
heimskuleg vinnu-
brögð hjá Þór
Saari“.
Og hún taldi til-lögu hans sér-
staklega ámæl-
isverða af því að
hann væri að „ráð-
ast til atlögu við samherja sína“ en
vildi stuðning annarra.
Auðvitað voru það hárrétt við-brögð hjá Jóhönnu að rétta út
sáttahönd með því að benda á
hversu „heimskuleg vinnubrögð“
Þórs Saaris hefðu verið enda
mundi hún aldrei „ráðast til atlögu
við samherja sína“.
Á síðustu dögum ríkisstjórn-arinnar er með öðrum orðum
allt reynt til að stilla til friðar í
þinginu og ná sátt um afgreiðslu
mikilvægra mála.
En á meðan þessi pólitíski leið-togi Samfylkingarinnar tjáir
sig á þann hátt sem raun ber vitni,
þá fer minna fyrir hinum ný-
kjörna. Enginn veit enn hvenær
hann tekur við embætti formanns
eða hvort sá dagur mun yfirleitt
renna upp.
Honum virðist nægja að vera tilskrauts og huggulegheita og
auðvitað er engin ástæða til að
gera lítið úr því hlutverki.
Jóhanna
Sigurðardóttir
„Vond og heimsku-
leg vinnubrögð“
STAKSTEINAR
Þór Saari
Veður víða um heim 21.2., kl. 18.00
Reykjavík 8 súld
Bolungarvík 5 skýjað
Akureyri 6 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 7 alskýjað
Vestmannaeyjar 7 skýjað
Nuuk -10 skýjað
Þórshöfn 6 alskýjað
Ósló -7 heiðskírt
Kaupmannahöfn -1 léttskýjað
Stokkhólmur -3 léttskýjað
Helsinki -7 skýjað
Lúxemborg -2 skýjað
Brussel 0 snjóél
Dublin 2 skýjað
Glasgow 3 skýjað
London 2 skýjað
París 1 skýjað
Amsterdam 0 léttskýjað
Hamborg 0 skýjað
Berlín -2 skýjað
Vín -1 skýjað
Moskva -10 heiðskírt
Algarve 17 skýjað
Madríd 11 súld
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 12 léttskýjað
Aþena 12 skýjað
Winnipeg -15 skýjað
Montreal -12 snjókoma
New York -2 léttskýjað
Chicago -1 alskýjað
Orlando 21 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:59 18:25
ÍSAFJÖRÐUR 9:11 18:22
SIGLUFJÖRÐUR 8:54 18:05
DJÚPIVOGUR 8:30 17:52
Áttundi landsfundur Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs verður
haldinn á Hótel Hilton Nordica í
Reykjavík dagana 22.-24. febrúar.
497 aðalfulltrúar og jafnmargir til
vara frá 33 svæðisfélögum eiga setu-
rétt á landsfundi að þessu sinni.
Tímamót verða á þessum lands-
fundi VG, því Steingrímur J. Sigfús-
son, sem gegnt hefur formennsku
frá stofnun flokksins árið 1999, til-
kynnti á dögunum að hann ætlaði
ekki að gefa kost á sér til áframhald-
andi formennsku. Katrín Jak-
obsdóttir menntamálaráðherra,
varaformaður VG, hefur tilkynnt
framboð til formanns. Þá hafa Björn
Valur Gíslason alþingismaður og
Daníel Haukur Arnarsson stjórn-
armaður í Ungum vinstri grænum
tilkynnt framboð til varaformanns.
Starfs landsfundar hefst í dag kl.
13 en þá fjalla málefnahópar um nýj-
ar stefnur í þremur málaflokkum.
Opnunarhátíð hefst klukkan 17 og
undir þeim lið mun formaðurinn,
Steingrímur J. Sigfússon, flytja
ræðu sína. Almennar stjórnmála-
umræður hefjast í kvöld klukkan 20.
Á morgun verða m.a. kosninga-
áherslur kynntar og málefnahópar
starfa. Þá fara einnig fram kosn-
ingar í embætti formanns, varafor-
manns, ritara, gjaldkera og stjórnar.
Á sunnudag verður niðurstaða
hópastarfs kynnt og ályktanir af-
greiddar. Fundaslit verða kl. 17.
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Tímamót Steingrímur J. Sigfússon
lætur af formennsku á fundinum.
Nýr formað-
ur kjörinn
á morgun
Landsfundur VG
fer fram um helgina
www.or.isHreint vatn - hraust fólk
Hreint vatn – ómetanleg lífsgæði
Málþing um
vatnsvernd
Orkuveita Reykjavíkur stendur fyrir málþingi um vatnsvernd laugard-
aginn 23. febrúar á Hótel Natura,
Nauthólsvegi 52, klukkan 13:00-15:00.
Fulltrúar atvinnulífsins, hagsmunaaðila, stjórnvalda og Orkuveitunnar
munu fjalla opinskátt um þetta mikilvæga málefni og svara spurningum
fundarmanna.
Fundarstjóri er Þóra Arnórsdóttir.
Enginn aðgangseyrir en vinsamlegast skráið þátttöku á:
http://www.or.is/UmOR/Hreintvatnmalthing/