Morgunblaðið - 22.02.2013, Síða 6

Morgunblaðið - 22.02.2013, Síða 6
SVIÐSLJÓS Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Gert er ráð fyrir að þrjú til fjögur þúsund manns verði í Hlíðarfjalli við Akureyri í dag og á morgun en stöð- ugur straumur fólks hefur verið í skíðabrekkurnar síðan Éljagangur, árleg vetrar- og útivistarhátíð á Akureyri, stóð yfir um liðna helgi. Um 14.000 reykvískir grunnskóla- nemendur eru í vetrarfríi í þessari viku og sem fyrr nota margar fjöl- skyldur löngu helgina og bregða sér norður í skíðaparadísina. Vetrarfrí er í flestum grunnskól- um Reykjavíkur í dag og margir voru einnig í fríi í gær. Af þessu til- efni bjóða frístundamiðstöðvar, fé- lagsmiðstöðvar og sundlaugar borg- arinnar upp á marga viðburði. Fjölbreytt dagskrá Frístundamiðstöðin Frostaskjól bauð til dæmis upp á fjölbreytta dagskrá í gær og klukkan 13 í dag hefst fjölskylduskemmtun í íþrótta- húsi KR. Hún hefst á þrautabraut og síðan tekur við kökukeppni fjöl- skyldunnar. Þátttakendur mæta með köku og skrá sig kl. 14 til 14.30, en frá kl. 15 býðst öllum að smakka á kræsingunum. Nánari upplýsing- ar á heimasíðunni (www.frosta- skjol.is). Hið árlega vetrarleyfisskákmót skákdeildar Fjölnis og frístunda- miðstöðvarinnar Gufunesbæjar verður haldið í Hlöðunni við Gufu- nesbæ frá kl. 12.30-14.30 í dag. Allir grunnskólanemendur í 1.-7. bekk mega taka þátt í mótinu og teflt verður um fjölmörg verðlaun, m.a. bíómiða, pítsugjafabréf, sundkort og skíðakort í Bláfjöll. Tefldar verða fimm umferðir og umhugsunartími er sex mínútur á skák. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkurborgar hefur kortlagt hverfi borgarinnar og safnað saman hugmyndum um hvað hægt er að gera í borginni. Á heimasíðu Reykjavíkurborgar er til dæmis Ævintýri á heimaslóð, hugmyndir að ýmsum viðfangsefnum fjölskyld- unnar, og Ævintýri á gönguför, sem er ætlað yngstu borgurunum í fylgd með foreldrum eða forráðamönnum. Páskastemning Guðmundur Karl Jónsson, for- stöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðar- fjalli, segir að páskastemning ríki í fjallinu um þessar mundir. Reyndar sé aðsókin jafnvel meiri þegar vetr- arfrí séu í skólunum og ekki síst þegar veðrið sé eins gott og nú. Ætla megi að milli þrjú og fjögur þúsund manns verði á svæðinu í dag og á morgun og þar af um þrjú þús- und manns að renna sér í brekkun- um hvorn dag. „Veðrið spilar stóra rullu,“ segir hann og vísar til þess að bókanir í gistingu hafi tekið kipp eft- ir liðna helgi þegar veðurspáin hafi legið fyrir. „Það er sól og blíða og allir alsælir, mikið um sólarvörn og brunna nebba.“ Vetrarfríin hófust með Éljagangi og standa fram á sunnudag. „Þetta er með því betra,“ segir Guðmundur Karl um aðsóknina að þessu sinni. Hann segir að brugðist sé við auk- inni aðsókn með því að fjölga starfs- fólki. Fleiri brekkur séu troðnar en ella og svæðið sé opið lengur. Venju- lega sé það opið frá kl. 12 til 19 virka daga og kl. 10 til 16 um helgar en nú sé opið frá kl. 10 til 19 virka daga og kl. 9 til 16 um helgar. Fleiri skíði séu til taks í skíðaleigunni og fleiri skíðakennarar í skíðaskólanum. „Fólk kemur hingað fyrst og fremst til þess að fara á skíði og við bregð- umst við því.“ María Tryggvadóttir, verkefnis- stjóri ferðamála hjá Akureyrar- stofu, segir að ferðaþjónustan taki mið af vetrarfríunum og margvísleg afþreying sé í boði (sjá visitakur- eyri.is). „Dagskráin glæðist víða út af þessum vetrarfríum,“ segir hún og nefnir að gistirými sé gjarnan pantað með góðum fyrirvara. Morgunlaðið/Skapti Hallgrímsson Dýrð í skíðaþögn Mikill fjöldi fólks var á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli í gær, bæði heimamenn og gestir, og dásömuðu margir veðrið og aðstæðurnar. Allir alsælir fyrir norðan  Mikið um að vera fyrir um 14.000 reykvíska grunnskólanemendur í vetrarfríi  Hlíðarfjall helsta aðdráttaraflið og mikið fjölmenni í brekkunum í blíðunni 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Hluti af Árnesi í Þjórsá mun fara undir vatn sem og áreyrar ef Holta- virkjun, ein af þremur fyrirhug- uðum virkjunum í neðri hluta árinn- ar, verður byggð. Stór hluti eyjunnar verður þó ekki fyrir áhrif- um. Eftir framkvæmdir er gert ráð fyrir því að nýtingarmöguleikar landeigenda í Árnesi muni aukast verulega frá því sem nú er þar sem aðgengi út í eyjuna verður tryggt fyrir þá Samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun hafa viðræður við landeigendur við Þjórsá um vatns- og landréttindi staðið yfir allt frá því að undirbúningur virkjana í neðri Þjórsá hófst. Á bilinu 20-30 samningar hafa verið gerðir við landeigendur. Vegna trúnaðar get- ur Landsvirkjun ekki upplýst um efni samninganna eða þær fjár- hæðir sem um ræðir. Magnús Þór Gylfason, yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar, segir að samning- arnir séu í flestum tilfellum um leigu á vatnsréttindum. Einnig eru einhverjir samningar um afnotarétt af landi en færri dæmi eru um að Landsvirkjun hafi keypt land. Títanfélagið fyrst til að semja Fyrstu samningarnir um land- og vatnsréttindi á virkjanasvæði Þjórs- ár voru gerðir í upphafi 20. aldar þegar Einar Benediktsson skáld og Títanfélagið sömdu um kaup á þeim við bændur vegna fyrirhugaðra virkjana á svæðinu. Réttindi félags- ins færðust til ríkisins um miðja 20. öld og tók Landsvirkjun þau yfir með sérstökum samningum við ís- lenska ríkið. Virkjanirnar þrjár eru í biðflokki samkvæmt svonefndri rammaáætl- un, sem Alþingi samþykkti nýlega. Fá afnotarétt af Árnesi  Landsvirkjun semur um vatnsréttindi  Möguleikar landeigenda á nýtingu munu aukast við framkvæmdir Morgunblaðið/RAX Árnes Landsvirkjun hefur gert samninga um Árnes (t.v.). Tollvörður var handtekinn í gær, grunaður um aðild að inn- flutningi á rúm- lega 20 kílóum af amfetamíni. Hann hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Tollgæslan fann efnið í tollpóst- inum á Stórhöfða í Reykjavík hinn 21. janúar. Lögreglan á höfuðborg- arsvæðinu hefur síðan rannsakað málið í samstarfi við embætti toll- stjórans í Reykjavík og lögregluna í Kaupmannahöfn, þaðan sem efnið var sent. Alls hafa níu manns aðrir verið handteknir og yfirheyrðir í tengslum við rannsókn málsins og hafa átta þeirra sætt gæslu- varðhaldi. Fimm þeirra sitja enn í varðhaldi. Í fréttatilkynningu frá lögregl- unni vegna málsins er sérstaklega tekið fram að grunsemdir beinist aðeins að tollverðinum sem var handtekinn en ekki neinum öðrum í starfsumhverfi hans hjá tollinum eða póstinum. Tollvörður tekinn vegna smygls á 20 kg af amfetamíni Hæstiréttur staðfesti í gær sex mánaða fangelsisdóm yfir Berki Birgissyni sem kallaði héraðsdóm- ara „tussu“ og hrækti á hann í kjöl- farið. Atvikið átti sér stað eftir upp- kvaðningu úrskurðar í Héraðsdómi Reyjaness um að Börkur skyldi af- plána eftirstöðvar refsingar vegna rofs á reynslulausn. Hafnaði hrák- inn á skikkju dómarans, Söndru Baldvinsdóttur, og hægra handar- baki. Í héraðsdómi 26. júní 2012 var Börkur sakfelldur fyrir brotin og dæmdur í sex mánaða fangelsi. Í niðurstöðu dómsins segir að hegð- un Barkar í dómssal hafi verið ósæmileg og niðrandi. Það að kalla héraðsdómara „tussu“ hafi verið móðgun og án nokkurs vafa til þess fallið að meiða æru dómarans. Hæstiréttur tók undir þessar for- sendur héraðsdóms. Dæmdur fyrir að hrækja á dómara Börkur í Héraðsdómi. VIÐ VILJUM VITA MÖGULEG INNGANGA ÍSLANDS Í EVRÓPUSAMBANDIÐ SNÝST UM HAGSMUNI ALMENNINGS – UM LÍFSKJÖR – UM FRAMTÍÐ. KLÁRUM VIÐRÆÐURNAR OG SJÁUM SAMNINGINN. JAISLAND.IS Töluverð blíða hefur ríkt á Íslandi að undanförnu og gert er ráð fyr- ir svipuðu veðri næstu daga, en ekki er á vísan að róa. „Við sitjum hér við áframhald- andi sýndarvor, en kuldi leitar vestur um Evrópu rétt einu sinni,“ bloggar Trausti Jónsson veðurfræðingur. Spurður nánar út í stöðuna segir Trausti að frá áramótum hafi verið viðloðandi háþrýstisvæði fyrir austan og norðaustan land. Sunnanátt hafi því verið algeng á landinu en kalt loft verið vestar og yfir megin- landi Evrópu. Þetta gerist öðru hverju en sé tilviljanakennt. Hins vegar hafi hlýindin staðið óvenju- lega lengi yfir án þess að mörg met hafi litið dagsins ljós. Trausti segir að spáð sé að blíðan endist fram í miðja næstu viku, en spárnar breytist reglu- lega. „Það hefur verið þannig í vetur að spár meira en fimm daga fram í tímann hafa reynst mjög ótryggar,“ segir hann. „Þetta er sýndarvor,“ heldur hann áfram og bætir við að búast megi við öllu í mars og apríl. „Veturinn er ekki búinn fyrr en hann er búinn og varla þá.“ Áfram sýndarvor á Íslandi KALT LOFT YFIR MEGINLANDI EVRÓPU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.