Morgunblaðið - 22.02.2013, Side 10

Morgunblaðið - 22.02.2013, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013 Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is Kvikmyndin Fjögur brúð-kaup og jarðarför fráárinu 1994 er án efa einvinsælasta rómantíska gamanmynd allra tíma. Nemenda- félag Fjölbrautaskólans í Garðabæ frumsýndi í gær söngleik byggðan á myndinni undir leikstjórn Þórunnar Ernu Clausen. „Þetta er heill vina- hópur sem er að velta því fyrir sér hvort þau muni finna ástina. Þau eru alltaf í brúðkaupum en gifta sig aldr- ei sjálf. Verkið fjallar svolítið um leit- ina að ástinni og það sem gerist á leiðinni,“ segir Þórunn. Það var eng- in tilviljun að Þórunn hafði áhuga á að setja upp þetta verk en hún sá myndina fyrst þegar hún var átján ára gömul. Hún hreifst svo mikið af myndinni að hún sá hana aftur næstu tvo daga á eftir. „Fljótlega var ég bú- in að læra hana utan að og þessi per- sóna sem Tómas Geir leikur og Hugh Grant leikur í bíómyndinni varð eig- inlega svona viðmið hjá mér, enginn var eins sjarmerandi og hann,“ segir Þórunn sem bendir jafnframt á að þessi mynd hafi verið svolítið sérstök að því leytinu að hún var bæði til- nefnd til Óskarsverðlauna sem besta myndin og fyrir besta handritið. „Þannig að þetta er gæðabíómynd. Í raun léttmeti með bæði mikilli dýpt og sorg,“ segir Þórunn. „Það er mjög mikið hjarta í sýningunni,“ bætir Tómas Geir Howser Harðarson einn aðalleikari sýningarinnar við. Áfall breytti stefnunni Fyrir tveimur árum stóð það til hjá Þórunni að setja þessa sýningu upp með nemendafélagi Fjölbrauta- Oft má sjá fegurð í erfiðu lífi „Ég var að horfa á þessa bíómynd kvöldið sem Sjonni dó og var þá að setja í hlut- verk. Það er svo skrítið hvernig lífið er. Nú tveimur árum seinna er ég að halda áfram með þetta,“ segir Þórunn Erna Clausen leikstjóri söngleiksins Fjögur brúð- kaup og jarðarför sem var frumsýndur í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í gær. Af öllum þeim söngleikjum sem hún hefur sett upp stendur þessi næst hjartanu. Fólkið Aðalleikarinn Tómas Geir Howser og leikstjórinn Þórunn Clausen. Morgunblaðið/Styrmir Kári Undirbúningur Nóg að gera baksviðs þegar nokkrar mínútur eru í sýningu. Það er virkilega gaman að skoða vef- síðuna www.thisiswhyimbroke.com, sem útleggst á íslensku: þetta er ástæða þess að ég er blankur/blönk. Stefna þeirra sem halda úti þessari síðu er að vera með svala (cool), not- hæfa (useful), fyndna (funny) og sér- staka (unique) hluti. Þeir sem skoða sig þarna um komast fljótt að því að á síðunni fæst ótrúlega margt snið- ugt og skemmtilegt, t.d. kúlutjald til að hafa uppi í tré, íklæðanlegir svefn- pokar, kúla til að hlaupa í úti á vatni og ótal margt fleira. Flokkarnir eru nokkrir, leikföng, heima, skrifstofan, krakkar, rómantískar gjafir, græjur og fleira. Vefsíðan www.thisiswhyimbroke.com Allskonar skemmtilegt Íklæðanlegur svefnpoki Gæti komið sér vel í útilegu í sumar. Nú á sunnudag ætlar Halaleikhópur- inn að frumsýna fjölskylduleikritið Rympa á ruslahaugnum, í Halanum, Hátúni 12. Leikritið er eftir Herdísi Egilsdóttur og í leikstjórn Herdísar Rögnu Þorgeirsdóttur. Þetta er sýn- ing með tónlist og söngvum, fyrir börn á öllum aldri. Leikritið fjallar um Rympu sem býr á ruslahaugnum. Hún er frekar ófyrirleitin og hagar lífi sínu ekki alltaf eftir lögum og reglu. Mark- mið Halaleikhópsins er að „iðka leik- list fyrir alla“ og hefur hann sett upp eina stóra sýningu árlega, stundum fleiri. Nánar á vefsíðunni www.hala- leikhopurinn.is. Endilega... ...sjáið Rympu á ruslahaugnum Rympa Hún er skrautleg kella. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Súkkulaði, súkkulaði, súkku-laði. Ó, þú fallega, sæta,mjúka, dásamlega súkku-laði sem lætur mér líða svo vel. Ég þrái samveru með súkku- laðinu mínu á hverjum degi en utan- aðkomandi öfl reyna að stía okkur í sundur. Borðaðu hollt, fjölbreytt, lit- ríkt, ósætt, ósaltað, oft á dag og lítið í einu, eru skilaboð sem dynja á mér. Bæði frá fjölmiðlum og fólki sem hef- ur tileinkað sér að eigin sögn, heilsu- samlegt líferni. Við ykkur boðberana vil ég segja. Málefni ykkar er verð- ugt. Þið viljið öðrum vel en ég mun aldrei lifa því meinlætalífi að slíta daglegum samskiptum mínum við súkkulaði. Heilsumógúlarnir telja sig hafa fundið leið að þverhausum eins og mér, sem þvertaka fyrir að hlusta á lofræður þeirra um þá vellíðan sem fylgir því að sneiða hjá sykri. Mógúlarnir koma fær- andi hendi með dökkt 70% sykurlaust súkkulaði og færa mér. Þú þarft bara einn bita af þessu og þá þarft þú ekki meira súkkulaði það sem eftir er dags- ins, segja þeir. Svo er þetta líka miklu betra en venjulegt rjóma- súkkulaði, halda þeir áfram. Það er svo augljóst að ástar- sambönd mógúl- anna við súkkulaði í gegnum tíðina hafa ver- ið algjörlega misheppnuð. Nei, samband mitt við Snickers er gjörólíkt sambandi mínu við dökkt sykurlaust súkkulaði sem er rammt og festist í gómnum og skilur eftir sig eftirbragð sem fylgir manni heila klukkustund eftir að molanum hefur verið kyngt. Það er sem sagt þess vegna sem einn biti dugar, hið vonda eftirbragð minnir þig á að þú vilt ekki meira 70% súkkulaði. Snickersið mitt aftur á móti er mjúkt undir tönn. Hin full- komna blanda af núggati, hnetum, karamellu og rjómasúkku- laði. Já, elsku Snickers, þér kynntist ég þegar ég var 12 ára og þér mun ég aldrei gleyma. Þú hefur glatt mig meira en orð fá lýst og ég hef lagt á mig ótal gönguferðir í veðr- um og vindum til þess eins að finna þig. Við munum vera saman það sem eftir er og ég skal glöð dröslast með bumbuna mína fái ég að vera með þér. Ég fórna því að verða glæsimey til þess eins að við getum verið saman. »Ég þrái samveru meðsúkkulaðinu mínu á hverjum degi en utanað- komandi öfl reyna að stía okkur í sundur. HeimurSignýjar Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.