Morgunblaðið - 22.02.2013, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013
SIMPLY CLEVER
ŠKODA Fabia er byggður á einfaldri hugmynd: Það á að vera
skemmtilegt að keyra. Þess vegna er bíllinn svo nettur að utan en
rúmgóður fyrir fólk og farangur að innan. ŠKODA Fabia er nýr og
frábær bíll sem þú einfaldlega verður að prófa!
ŠKODA Fabia kostar aðeins frá:*
2.340.000,- *Skoda Fabia Classic 1.2 beinskiptur
70 hestöfl. Eyðsla: 5,5 l/100 bl. akstur, CO2 : 128 g/km
ŠKODA Fabia
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
„Verðið á þorskafurðum hefur lækk-
að verulega undanfarið og einnig
hefur orðið talsverð lækkun á grá-
lúðu,“ segir Vilhjálmur Vilhjálms-
son, forstjóri HB
Granda, að-
spurður um
verðþróun á
mörkuðum. „Það
er athyglisvert að
á síðustu vikum
hefur fengist
hærra verð fyrir
fryst ufsaflök en
fyrir fryst þorsk-
flök. Ég veit ekki
til þess að það hafi gerst áður.“
Ástandið ekki alslæmt
Vilhjálmur segir að ástandið sé þó
alls ekki alslæmt. Þannig hafi verð á
mjöli og lýsi hækkað í vetur og einn-
ig á frystri loðnu og fleiri uppsjáv-
artegundum. Karfi hafi haldið sínu
sem og ufsinn, en karfi er verðmæt-
asta útflutningstegund HB Granda.
Þorskurinn hefur farið verst út úr
verðlækkunum, að sögn Vilhjálms,
og þá sérstaklega stærri fiskurinn,
þar sem framboð hafi aukist mikið.
HB Grandi flytur bæði út frystar
þorskafurðir sem og ferska þorsk-
hnakka með flugi og skipum.
Grandi er stærsta sjávarútvegs-
fyrirtæki landsins, sem byggist á
þremur meginstoðum; uppsjávar-
tegundum, ísfiski/landvinnslu og
frystitogurum. Fyrirtækið er með
mikinn kvóta í mörgum tegundum
og kemur fjölbreytnin sér vel þegar
áföll verða í einhverjum greinum.
Enginn saltfiskur er verkaður hjá
HB Granda.
Inn á rússneskan markað
Fyrirtækið flytur sjálft út eigin
afurðir og segir Vilhjálmur það eiga
stóran þátt í því að tekist hafi að
komast hjá birgðasöfnun
„Því er ekki að neita að verðlækk-
anir á þorski undanfarið taka veru-
lega í,“ segir Vilhjálmur. „Þær stafa
fyrst og fremst af auknu framboði
inn á markaði og byrjuðu að koma
fram um leið og heimildir voru aukn-
ar í Barentshafi. Margir eru hins
vegar þeirrar trúar að botninum sé
náð og menn hafa séð merki þess.
Þannig er verð fyrir sjófryst þorsk-
flök orðið það lágt að rússneski
markaðurinn er farinn að ráða við að
kaupa þessa vöru.“
Fyrr í þessum mánuði tilkynnti
HB Grandi um breytingar á útgerð
fyrirtækisins. Einum frystitogara
verður lagt og öðrum breytt í ísfisk-
togara. „Það er mat félagsins að
meiri verðmætasköpun muni áfram
felast í því að vinna aflann í landi
frekar en frysta hann á sjó, meðal
annars vegna aukinnar eftirspurnar
erlendis eftir ferskum sjávar-
afurðum,“ sagði í frétt frá HB
Granda. aij@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Breytingar HB Grandi hefur ákveðið að fækka frystitogurum en fjölga ís-
fisktogurum. Helgu Maríu AK verður breytt í ísfisktogara í Póllandi í haust.
Lægra þorskverð
tekur verulega í
Karfi mikilvægastur
Vægi tegunda í útflutningi HB
Granda á síðasta ári í verð-
mætum.
Karfi 22%
Síld 15%
Þorskur 14%
Makríll 14%
Loðna 14%
Ufsi 12%
Vilhjálmur
Vilhjálmsson
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Erfiðleikar á saltfiskmörkuðum Ís-
lendinga við Miðjarðarhafið hafa
aukist verulega á síðustu vikum og
mánuðum. Fer þar saman að sala
hefur verið þung og verð lækkað.
Fari sem horfi gæti orðið birgða-
söfnun á saltfiski,
en það er nokkuð
sem framleiðend-
ur hafa ekki þurft
að glíma við lengi.
Framleiðendur
hafa í samstarfi
við stjórnvöld
hleypt af stað
markaðsátaki
fyrir íslenskar
saltfiskafurðir og
gæti kostnaður
við það numið 40-50 milljónum
króna.
Skjöldur Pálmason, formaður Ís-
lenskra saltfiskframleiðenda og
framleiðslustjóri hjá Odda hf á Pat-
reksfirði, segir að framleiðendur hafi
áhyggjur af stöðunni. Stærsti fisk-
urinn sé sérstaklega erfiður í sölu, en
framboð á honum hefur aukist mjög.
Gæti leitt til birgðasöfnunar
„Mjög mikil þyngsli í sölu, miklar
verðlækkanir og birgðasöfnun fram-
undan ef hún er ekki þegar byrjuð,“
er lýsing Skjaldar á stöðunni hjá
framleiðendum saltfisks. Hann segir
að verðlækkun á mörkuðum sé
breytileg eftir stærð, vöruflokkum
og markaðslöndum. Lækkun hafi
orðið 2009, sem hafi síðan gengið að
hluta til baka. Síðustu 12-18 mánuði
áætlar hann að millifiskurinn, sem
hafi staðið sig best, hafi lækkað um
10-15 %, og stærsti fiskurinn um allt
að 30%. Algengt segir hann að fram-
leiðendur berjist við 15-20% verð-
mætarýrnun á innan við einu ári.
Skjöldur nefnir einkum tvennt
sem skýri verðlækkanirnar. Aukið
framboð af þorski úr Barentshafi
hafi haft mikið að segja og undanfar-
ið hafi orðið veruleg verðlækkun á
hráefni í Noregi. Efnahagsástandið í
löndunum við Miðjarðahafið vegi
einnig þungt.
Líka erfitt í ferska fiskinum
„Það er ekki bara í saltfiski sem
mikil lækkun hefur orðið, verðlækk-
unin er ekki minni í ferska fiskin-
um,“ segir Skjöldur. Lækkunar hafi
orðið vart þegar á haustmánuðum er
tilkynnt var um aukinn kvóta í Bar-
entshafi og hún hafi síðan haldið
áfram eftir áramót er veiðar byrj-
uðu. Hann nefnir sem dæmi að ekki
sé óalgengt að menn selji nú kíló af
ferskum þorskhnakka á 5,70 evrur,
en fyrir aðeins nokkrum mánuðum
hafi verið borgaðar 8-10 evrur fyrir
sams konar vöru.
Hann segir að framboð af ferskum
fiski hafi aukist mikið og verðið
lækkað að sama skapi. „Ég óttast að
botninum sé ekki náð í þessari skriðu
verðlækkana,“ segir Skjöldur. Hann
segir að það sé helst frysti fiskurinn
sem hafi haldið sínu á síðustu mán-
uðum.
Prófsteinn á samvinnu
Um átak saltfiskframleiðenda og
stjórnvalda segir Skjöldur að það sé í
raun prófsteinn á það hvernig sam-
vinna innan greinarinnar og með
stjórnvöldum gangi. Markaðsátak-
inu verði fyrst í stað beint inn á
Spán, en síðan verði áherslan flutt
yfir á Portúgal og Ítalíu. Íslands-
stofa hefur umsjón með verkefninu
og hefur sérstök verkefnastjórn ver-
ið skipuð, en síðan verður ráð sér-
fræðinga fyrir hvert landanna
þriggja. Átakið á að standa í eitt ár.
Stjórnvöld leggja fram 20 milljónir
og fyrirtæki í greininni, framleiðend-
ur, útflytjendur og kaupendur, ann-
að eins eða meira.
Útflutningur á saltfiski frá Íslandi
nam um 30 milljörðum króna í fyrra.
Spurður hvort 40 milljónir séu ekki
eins og dropi í hafið segir Skjöldur
að svo þurfi ekki að vera.
Klárlega betri vara
„Við erum í þessu átaki til að
styrkja og viðhalda þeim viðskiptum
sem við höfum haft og horfum til inn-
flytjenda og dreifiaðila á mörkuðum,
en ekki beint á neytendur. Norð-
menn hafa milljarða til að nota í
markaðsstarf og þeirra kynning
beinist að neytendum, sem er mjög
kostnaðarsamt. Sú vinna Norð-
manna gæti hins vegar skilað já-
kvæðum áhrifum fyrir sölu á okkar
afurðum. Það skiptir líka miklu máli
þegar upp er staðið að við erum klár-
lega að bjóða betri vöru heldur en
Norðmenn,“ segir Skjöldur.
Þyngsli í sölunni og
miklar verðlækkanir
Algengt að framleiðendur saltfisks glími við 15-20% verð-
mætarýrnun á innan við ári Óttast að botninum sé ekki náð
Ljósmynd/Oddi hf.
Lægra verð Starfsfólk við vinnu hjá Odda hf. á Patreksfirði.
Skjöldur
Pálmason