Morgunblaðið - 22.02.2013, Qupperneq 16
BAKSVIÐ
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
„Tilgangurinn er að efla gæði, öryggi
og umhverfisvitund innan ferðaþjón-
ustunnar með handleiðslu og stuðn-
ingi ásamt því að byggja upp sam-
félagslega ábyrgð,“ segir Elías Bj.
Gíslason hjá Ferðamálastofu og
verkefnisstjóri Vakans, gæða- og
umhverfiskerfis fyrir aðila í ferða-
þjónustu.
Ferðamálastofa heldur utan um
verkefnið sem unnið er í samstarfi
við Samtök ferðaþjónustunnar,
Ferðamálasamtök Íslands og Ný-
sköpunarmiðstöð Íslands. Verkefn-
inu var hrundið af stað fyrir ári og
þegar hafa átta fyrirtæki fengið við-
urkenningu Vakans auk þess sem nú
eru 46 fyrirtæki í ferli og stefna að
því að fá flokkun.
Áhersla á liðsinni
Í gæðahlutanum er horft á nokkra
þætti í starfsemi ferðaþjónustuaðila,
s.s. hvernig staðið er að sölu og þjón-
ustu, stjórnun og starfsmönnum,
menningu og sögu auk þess sem mik-
il áhersla er lögð á öryggismál. „Við
leggjum mikið upp úr öryggi, velferð
og ábyrgð, eitt af því sem við gerðum
var að láta útbúa leiðbeiningarrit um
gerð öryggisáætlana,“ segir Elías en
undanfarið hefur verið töluverð um-
ræða um öryggismál í ferðaþjónustu.
Hann segir jafnframt að öryggis-
málin séu sá hluti vinnunnar sem taki
einna mestan tíma. Til að fá við-
urkenningu Vakans er áskilið að fyr-
ir hendi sé öryggisáætlun innan við-
komandi fyrirtækis sem inniheldur
áhættumat, verklagsreglur og við-
bragðsáætlun svo eitthvað sé nefnt.
Í umhverfiskerfi Vakans er t.d.
horft á stefnumótun og framtíðarsýn,
innkaup, endurvinnslu, nátt-
úruvernd, upplýsingagjöf til við-
skiptavina og samfélagslega ábyrgð.
Elías segir að fyrirtæki séu mjög
misjafnlega stödd þegar kemur að
þeim þáttum sem eru metnir innan
gæða- og umhverfiskerfanna. „Við
leggjum mikla áherslu á handleiðslu
og stuðning. Það sem við höfum sagt
frá upphafi er að Vakinn má ekki
vera vonda löggan heldur er aðal-
atriðið að liðsinna fyrirtækjum og
hjálpa þeim að uppfylla viðmiðin,“
segir Elías og nefnir að í tengslum
við verkefnið hafi verið útbúið mikið
af hjálpargögnum sem allir hafa að-
gang að, hvort sem þeir stefna að við-
urkenningu eða ekki.
Allar gerðir sýna áhuga
Nokkur stór fyrirtæki hafa þegar
fengið viðurkenningu og fleiri eru
byrjuð að huga að ferlinu. Nefnir Elí-
as stóra aðila eins og Ferðafélag Ís-
lands og Vatnajökulsþjóðgarð sem
séu í ferlinu. Einnig hefur fjöldi
minni og meðalstórra fyrirtækja ver-
ið með og sýnt verkefninu mikinn
áhuga. „Við erum mjög ánægð að
þessir stóru aðilar sýna okkur mik-
inn áhuga, það skiptir okkur miklu
máli,“ segir Elías.
Vilja aðstoða ferðaþjónustuna
Stefnt á að efla gæði, öryggi og samfélagslega ábyrgð Gæða- og umhverfiskerfið Vakinn getur
komið fyrirtækjum að góðum notum Átta fyrirtæki þegar fengið viðurkenningu og 46 í ferli
Morgunblaðið/Golli
Þjónusta Erlendum ferðamönnum hefur fjölgað gríðarlega hér á landi
undanfarin ár og einnig fyrirtækjum sem starfa innan ferðaþjónustunnar.
Eftir að hafa farið í gegnum ferl-
ið og markmiðin hafa verið upp-
fyllt fá fyrirtæki viðurkenningu
Vakans. Elías segir að eftir
miklu geti verið að slægjast fyr-
ir fyrirtækin og þau geti t.d.
notað viðurkenninguna í mark-
aðstilgangi. „Erlendir gestir
leita í auknum mæli eftir því
hvort fyrirtæki eru með flokkun
eða vottun, rúmlega helmingur
þeirra velur fyrirtæki sem hefur
viðurkenningu frá þriðja aðila.“
Elías segir að tengiliðir erlendis
horfi einnig til þess hvort fyr-
irtæki séu með flokkun eða
vottun. Þá líti aðilar, sem séu í
viðskiptum við fyrirtækin, t.d.
tryggingafélög, til öryggisþátt-
anna sem fylgja gæðakerfinu.
Skiptir máli
á markaði
GÆÐASTIMPILL
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013
FRIÐUR OG STRÍÐ Í SALNUM, KÓPAVOGI
Laugardaginn 23. febrúar, kl. 16-18 (enginn aðgangseyrir)
Jón Ögmundur Þormóðsson, höfundur bókarinnar Peace and War: Niagara of Quotations
Skráning og morgunverður
Ráðstefna sett
Graeme Newell – Emotional marketing
Hlé
Kaspar Basse – Joe & the Juice
Capacent rannsókn
Hádegishlé – léttur hádegisverður
Simonetta Carbonaro - People’s longing
for authenticity. More than just a new
marketing trend.
Tom Allason – Shutl: Delivering web orders in
90 minutes will change buyers behaviour.
Hlé
Peter Dee – Johnnie Walker: Keep Walking
Ráðstefnulok.
08.30
09.00
09.10
10.10
10.30
11.15
11.30
12.45
13.45
14.30
15.00
16.00
Dagskrá ÍMARK dagsins
ÍMARK Dagurinn
1. mars 2013
Harpa
Skráning á imark.is
#imark
Hin fimmfræknu
Fimm frábærir fyrirlesarar á ÍMARK deginum í Hörpu
föstudaginn 1. mars.
Fróðleg og skemmtileg erindi sem enginn markaðsmaður
vill missa af.
Ráðstefnustjóri er Ingólfur Örn Guðmundsson,
framkvæmdastjóri markaðssviðs Marel.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Vegagerðin hefur kynnt hugmynd að
breyttri legu nýs vegar yfir Öxi á
milli Háubrekku í Berufjarðardal og
Reiðeyrar við botn Berufjarðar.
Nýja veglínan sem nú er kynnt er 8,2
km löng, er tillagan um hana lögð
fram sem viðbót við áður birta mats-
skýrslu um umhverfismat Axarveg-
ar, hringvegar í Skriðdal og hring-
vegar um Berufjarðarbotn.
G. Pétur Matthíasson, upplýsinga-
fulltrúi Vegagerðarinnar, sagði að
verið væri að kanna matsskyldu á
þessari breytingu, hvort hún þyrfti
að fara í sérstakt umhverfismat eða
hvort eldra umhverfismat dygði.
Nýja veglínan er nánast öll inni á
rannsóknarsvæðinu sem var undir í
umhverfismatinu. Breytta veglínan
var send öllum umsagnaraðilum til
umsagnar. Málið fer síðan til Skipu-
lagsstofnunar sem ákveður um mats-
skylduna.
Vegagerðinni var falið árið 2008 að
endurbyggja hringveginn á kafla í
Skriðdal og að byggja nýjan veg um
Öxi þaðan og að hringvegi í Beru-
firði. Einnig að endurbyggja hring-
veg um botn Berufjarðar, færa hann
til á kafla og byggja nýja brú yfir
Berufjarðará og nýjan hringveg.
Þessi vegagerð er alls 30-34 km.
Matsskýrsla var lögð fram í mars
2011. Skipulagsstofnun birti álit sitt í
apríl 2011 og voru helstu niðurstöður
í því „að framkvæmdin myndi hafa
veruleg neikvæð áhrif á landslagið
vegna umfangs vegarins og óaft-
urkræfni áhrifanna.“ Landeigendur í
Berufirði lögðu áherslu á að nýr Ax-
arvegur yrði sunnan Berufjarðarár.
Hættulegur vegur
Núverandi vegur yfir Öxi er talinn
hættulegur með tilliti til umferða-
öryggis. Hann er mjór, hæðóttur og
hlykkjóttur malarvegur og víða mjög
brattur. Nýi vegurinn verður upp-
byggður og með bundnu slitlagi. Ax-
arvegur styttir leiðina milli Egils-
staða og suðurhluta Austfjarða um
61 km. Með nýju veglínunni „vonast
Vegagerðin til að draga úr áhrifum
framkvæmdarinnar á náttúrufar,
fornleifar, jarðmyndanir og landslag
jafnframt því sem hún er gerð með
tilliti til óska landeigenda um veglínu
í sunnanverðum Berufjarðardal,“
segir í kynningarskýrslunni.
Áætlað er að það taki 3-5 ár að
vinna verkið. 800 milljónir eru ætl-
aðar til framkvæmdarinnar á 3. tíma-
bili vegaáætlunar, það er á árunum
2019-2022. Ekkert liggur þó fyrir um
hvenær framkvæmdirnar geta haf-
ist.
Tillaga að nýjum vegi
yfir Öxi til kynningar
Gerð vegarins er á vegaáætlun árin 2019-2022
Tölvumynd/Mannvit og Vegagerðin
Nýr Axarvegur Hér sést hugmynd að nýrri veglínu til vinstri. Núverandi
vegur sést hægra megin. Nýja veglínan er 8,2 km löng.
Vegurinn um Öxi
Loftmyndir ehf.
Egilsstaðir
Djúpivogur
Berufj.
La
ga
rfl
jót
Fáskrúðsfjörður
Breiðdalsvík
Reyðarfjörður
Eskifj.
Seyðisfj.
Sk
rið
da
lu
r
Öxi