Morgunblaðið - 22.02.2013, Síða 22

Morgunblaðið - 22.02.2013, Síða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013 Þönglabakka 1 (inní Nettó búðinni) » 109 Reykjavík » Sími 587 4900 Allt fyrir farsíma, smartsíma og fistölvur Allar GSM rafhlöður 2.990.- SanDisk minniskort og minnislyklar í miklu úrvali - Micro-SD - SDHC - Compact Flash - Memory Stick Gerið verðsamanburð! iPad borðstandur - Festing fyrir sætisbak fylgir 5.990.- Landsins mesta úrval af GSM aukahlutum! Nettir en öflugir ferðahátalarar fyrir iPod/iPhone/iPad og aðra spilara eða síma. Innbyggð rafhlaða. 4.990 Allt fyrir IPod og Ipad Ipad bílhleðslutæki 1.490.- Öll GSM bílhleðslutæki 990.- 12V tvídeilir 1490.- Flott úrval 12V fjöltengja í bílinn, húsbílinn eða fellihýsið. 12V þrídeilir með Micro-USB útgangi og viðvörunarljósi ef raf- geymirinn í bílnum er að tæmast 2.990.- Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Pétur Einarsson, forstjóri Straums, keypti 6% hlut í Straumi við lok síð- asta árs, samkvæmt ársreikningi fyr- irtækisins. Níu aðrir lykilstarfsmenn keyptu 24% en hlutur þeirra í fyr- irtækinu er misstór, að sögn forstjór- ans. Kaupverðið er ekki gefið upp, en eigið fé bankans nam 1,3 milljörðum króna við árslok. Pétur segir í samtali við Morgun- blaðið að starfsmennirnir hafi fengið lán til kaupanna og þeir hafi lagt til talsvert eigið fé. Lánin beri markaðs- vexti. Þetta sé ekki kaupréttarsamn- ingur eða annað slíkt. „Við erum að fjárfesta í Straumi til lengri tíma,“ segir hann. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að hópur starfsmanna Straums hafi keypt 30% hlut í fjárfestingarbank- anum. ALMC á 70% hlut í Straumi en átti hann að fullu fyrir þessi við- skipti. ALMC er gamli Straumur sem hefur farið í gegnum nauða- samninga. Að sögn Péturs eiga lykilstarfs- menn oft 30-50% í minni fjárfesting- arbönkum erlendis. Þetta sé í takt við það sem gengur og gerist. Straumur sé þekkingarfyrirtæki og því mikil- vægt að binda hagsmuni starfs- manna og eigenda fyrirtækisins sam- an. „Reksturinn byggist alfarið á starfsfólki, hugmyndum og sam- böndum þeirra til að skapa verðmæti. Það gerist ekkert á nóttunni á meðan við sofum,“ segir hann og nefnir að þegar fram í sækir og ALMC selur Straum, sé það jákvætt fyrir seljanda og kaupanda, að þeir hafi ákveðna vissu fyrir því að lykilstarfsmenn verði áfram innanborðs. Starfsmennirnir keyptu bréfin fyr- ir íslenskar krónur, að sögn Péturs, en ekki erlendan gjaldeyri. Eigendur ALMC voru upphaflega kröfuhafar í gamla Straumi. Þeir voru að stórum hluta erlendir og eru því áhugasamir um að komast yfir erlendan gjald- eyri. Nú ganga bréfin kaupum og söl- um og ekki er opinbert hvernig eig- endahópurinn er samsettur. „Það eru fjármagnshöft í landinu, við getum ekki nálgast gjaldeyri,“ segir Pétur. Straumur hagnaðist um 203 millj- ónir króna á síðasta ári, en það var fyrsta heila starfsár fyrirtækisins en það fékk fjárfestingabankaleyfi 31. ágúst 2011. Meðal verkefna ársins var að veita Eimskip ráðgjöf vegna skráningar fyrirtækisins í Kauphöll- ina. Fjöldi starfsmanna hefur tvö- faldast í 35 frá þeim tíma. Arðsemi eiginfjár nam 18% á árinu og var eig- infjárhlutfallið (e. CAR) 35%. „Þetta er hagnaður af grunnstarfsemi,“ seg- ir Pétur. Rúm 80% af tekjum ársins koma frá ótengdum aðilum en þær námu 1,3 milljörðum króna. Straum- ur er með þjónustusamning við ALMC. Forstjóri Straums keypti 6% hlut  Lykilstjórnendur eiga 30% í fjárfestingarbankanum Morgunblaðið/Ernir Fjárfesta Lykilstjórnendur hafa keypt í Straumi. „Við erum að fjárfesta í Straumi til lengri tíma,“ segir Pétur Einarsson, forstjóri Straums. Alþekkt erlendis » Að sögn forstjóra Straums eiga lykilstarfsmenn oft 30- 50% í minni fjárfestingar- bönkum erlendis. » Hér á landi séu lögmenn og endurskoðendur t.d. oft með- eigendur á sínum vinnustað. » Straumur hagnaðist um 203 milljónir króna á síðasta ári. Um 20.000 skil- vísir viðskipta- vinir Íslands- banka munu næstkomandi mánudag fá end- urgreidd 30% af þeim vöxtum sem þeir greiddu af húsnæðislánum og öllum almenn- um skuldabréfalánum hjá bank- anum á síðasta ári. Undanskilin eru þau húsnæðislán sem verða endur- reiknuð í samræmi við dóma Hæstaréttar um fullnaðarkvittanir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Ákvörðun Íslandsbanka um að endurgreiða vexti til skilvísra við- skiptavina bankans nær hins vegar eingöngu til einstaklinga en ekki til fyrirtækja. Heildarupphæð endurgreiðsl- unnar er um 2,5 milljarðar króna en að meðaltali mun hver við- skiptavinur fá endurgreiddar um 120.000 krónur. Endurgreiðslan getur að hámarki numið 500.000 krónum á hvern viðskiptavin. Upphæðin verður lögð inn á sparnaðarreikning í nafni við- skiptavinar, Vaxtaþrep 30 dagar. Í tilkynningu segir að með því að greiða upphæðina inn á Vaxtaþrep 30 daga vilji bankinn leggja grunn að sparnaði viðskiptavina sinna en hafa ber i huga að í sumum til- vikum getur besti sparnaðurinn fal- ist í að greiða niður skuldir sem bera háa vexti. „Við vonum að með þessari endurgreiðslu geti margir lagt grunn að sparnaði eða greitt niður skuldir,“ er haft eftir Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslands- banka, í fréttatilkynningu. 2,5 millj- arða end- urgreiðsla  Viðskiptavinir fá endurgreitt Birna Einarsdóttir ● Már Guðmundsson seðlabankastjóri sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem hann gagnrýnir frétt Bloomberg- fréttaveitunnar frá 19. febrúar. Segir hann að staðhæfingar sem þar séu settar fram séu blaðamanns en ekki hans sjálfs, þótt óbeint sé gefið í skyn að svo sé. Segir Már að viðtalið gefi vill- andi mynd og að hann hafi meðal ann- ars ekki sagt að ómögulegt væri að láta krónuna fljóta án einhvers konar hafta. Orðrétt segir m.a. í yfirlýsingu seðla- bankastjóra: „Í frétt Bloomberg eru beinar tilvitnanir í mig sem þegar grannt er skoðað stangast ekki á við það sem ég hef áður sagt (þó svo að fréttin sem slík geri það).“ Yfirlýsingu Más Guðmundssonar má lesa í heild á mbl.is Segir fréttina villandi ● Allir meðlimir peningastefnunefndar Seðlabankans voru sammála tillögu seðlabankastjóra um óbreytta stýri- vexti þann 8. febrúar síðastliðinn. Aldrei slíku vant hefði enginn nefndarmaður kosið aðra niðurstöðu, en það hefur ekki gerst síðan í desember 2011. Fram kom í morgunkorni greining- ardeildar Íslandsbanka að í fundargerð nefndarinnar hefði 0,25% vaxtalækkun verið rædd, en slíkt hefur ekki gerst í talsverðan tíma. Allir voru sammála Stuttar fréttir…                                          !"# $% " &'( )* '$* +,-./0 +-/.,/ +,/.+ ,,.1-0 ,,./2/ ,3.+,2 +0-.34 +.0-+/ +-5.20 +/3.1 +03.34 +-/./2 +,/.4/ ,,.-5 ,,.1,4 ,3.+14 +0-.40 +.0-21 +-/.+, +/+.,1 ,0,./+4/ +03.02 +-1.,0 +,/.14 ,0.3,/ ,,.1-+ ,3.,40 +0-.1, +.0--- +-/./+ +/+./5 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, keypti í gær í fyr- irtækinu fyrir 3,5 milljónir króna á genginu 11,5. Eftir kaupin nemur hlutur hans í félaginu um 15 millj- ónum króna, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. IFS greining mælti með því í verð- mati sem gefið var út fyrir tveimur dögum að fjárfestar héldu bréfum sínum í Icelandair Group. IFS metur bréf félagsins á 11,3 krónur á hlut og níu til tólf mánaða markgengi sé 11,9. Við lok markaðar í gær var gengið 11,6. Markaðsvirði Icelandair Group er 57 milljarðar króna og hef- ur aukist um 46% á þremur mán- uðum, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöll Íslands. Icelandair hefur tekist að vaxa og skila hagnaði á sama tíma og það hyggur á mikinn vöxt á næstu fimm til sjö árum. Félagið hefur keypt 16 nýjar Boeing 737-vélar og hefur kauprétt að átta vélum til viðbótar. Á sama tíma er ekki stefnt að því að selja eldri flugvélar sem nú eru í notkun heldur á að nýta þær til frek- ari vaxtar. Nýju vélarnar verða af- hentar á árunum 2018-2021. Kaup- verð þeirra hefur ekki verið gert opinbert en ljóst er að um háar fjár- hæðir er að tefla. Nokkur óvissa er því uppi í verðmatinu þar að lútandi. Morgunblaðið/Ernir Vöxtur Icelandair hefur tekist að vaxa og skila hagnaði að undanförnu og hyggur á mikinn vöxt. Fjárfestum er ráðlagt að halda í bréf félagsins. Ráðleggja fjárfestum að halda bréfum í Icelandair  Forstjóri fyrirtækisins keypti í gær

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.