Morgunblaðið - 22.02.2013, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 22.02.2013, Qupperneq 26
FRÉTTASKÝRING Skúli Hansen skulih@mbl.is Lagðar eru fram ýmsar breyt-ingatillögur á stjórnar-skrárfrumvarpinu ígreinargerðum þriggja lög- fræðinga sem falið var af stjórnskip- unar- og eftirlitsnefnd að skoða um- sögn Feneyjanefndarinnar um stjórnarskrárfrumvarpið. Um er að ræða þrjá af þeim fjórum lögfræð- ingum sem fengnir voru til að gera lögfræðilega úttekt á tillögum stjórn- lagaráðs, þ.e. þau Hafstein Þór Hauksson, lektor við lagadeild Há- skóla Íslands, Oddnýju Mjöll Arn- ardóttur, prófessor við lagadeild Há- skóla Íslands, og Pál Þórhallsson, skrifstofustjóra og sérfræðing við Há- skólann í Reykjavík. Bregðast við athugasemdum Páli var falið að koma með ábend- ingar um hvernig bregðast mætti við athugasemdum Feneyjanefndarinnar við IV. og V. kafla frumvarpsins. Í greinargerð sinni fjallar Páll meðal annars um athugasemd nefndarinnar við 60. gr. frumvarpsins, sem kveður á um málskotsrétt forsetans, en Fen- eyjanefndin álítur það óheppilegt að heimildin sé þannig uppbyggð að beit- ing hennar leiði til átaka milli annars vegar Aþingis og ríkisstjórnar og hins vegar forseta. Páll leggur fram tvær tillögur um viðbrögð við ábendingum nefndarinnar um málskotsrétt forsetans. Annars vegar að gefa forseta til viðbótar við heimildina kost á því að skjóta nýsam- þykktum lögum til Lögréttu eða vísa viðkomandi frumvarpi aftur til þings- ins. Hins vegar að í stað málskotsheim- ildar verði forseta heimilt að vísa ný- samþykktum frumvörpum til dómstóls eða einhvers annars úrskurðaraðila eða þá að gert verði ráð fyrir einhvers kon- ar synjunarvaldi sem Alþingi getur yf- irunnið. Að mati Páls er þó óraunhæft að afnema málskotsheimild forsetans. Smávægilegar breytingar Í greinargerð Oddnýjar um at- hugasemdir nefndarinnar við mann- réttindakafla frumvarpsins kemur m.a. fram að athugasemdirnar gefi til- efni til ýmissa breytinga, sér í lagi í ljósi ábendinga um að núverandi texti frumvarpsins kunni að vekja óraun- hæfar væntingar meðal almennings. Þá vekur Oddný athygli á að einkum sé um að ræða smávægilegar form- og orðalagsbreytingar. Feneyjanefndin lagði til að rétt- indum af öllum kynslóðum mannrétt- inda væri ekki blandað saman í einn kafla án meiri aðgreiningar þar sem lögð væri áhersla á mismunandi stöðu þeirra. Oddný leggur til töluverðar formbreytingar á frumvarpinu sem fel- ast annars vegar í því að raða upp rétt- indum með skipulagðari hætti, þ.e. eftir kynslóðum, og hins vegar í því að ein- angra þau „lagalegu“ réttindi einkaaðila sem fólgin eru í 32.-36. gr. frumvarpsins og eftir því sem við á tengja þau við önn- ur ákvæði eiginlegs mannréttindakafla en færa að öðru leyti inntak ákvæðanna í sérstakan kafla sem kvæði ekki á um einstaklingsbundin réttindi sem hægt er að krefjast fyrir dómi. Hafsteini Þór var falið að veita álit á umfjöllun Feneyjanefndarinnar um 113. gr. frumvarpsins, sem fjallar um framkvæmd stjórnarskrárbreytinga. Í áliti Hafsteins Þórs segir að niðurstaða nefndarinnar sé sú að fyrirkomulagið sem gert er ráð fyrir í ákvæðinu sé of viðurhlutamikið og þarfnist nánari skoðunar. Sjálfur leggur Hafsteinn Þór fram tvær mögulegar breytinga- tillögur, annars að halda ákvæði 79. gr. núverandi stjórnarskrár óbreyttu í nýrri stjórnarskrá og hins vegar að breyta 113. greininni þannig að tvö þing þurfi að samþykkja stjórnar- skrárbreytingar. Sé um að ræða breytingar á II. kafla frumvarpsins skuli þær samþykktar bæði af tveimur þingum og í þjóðar- atkvæðagreiðslu. Ringulreiðin í málinu er ekki að minnka Morgunblaðið/Golli Feneyjanefndin Jan Helgesen, varaformaður nefndarinnar, og Thomas Markert, ritari hennar, á blaðamannafundi í lok janúar síðastliðins. 26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þingmennsegja aðátta starfs- dagar séu til þing- loka. Það er svo sem í það mesta, en þetta líður auð- vitað frá. Frétt- irnar sem berast úr þinghúsinu eru ekki beint uppörvandi. Og þá er átt við þann hluta þeirra sem er nokkurn veginn skiljanlegur. Þingmenn höfðu á orði í síðustu viku að nýta yrði síð- ustu þingdagana til að fjalla um helstu hagsmunamál heimilanna og hin þekktu sviknu loforð gagnvart þeim. Í gær notuðu þeir þó lungann af deginum í eitthvað sem kallað er í þingskjalinu „Ríkisútvarpið“. Starfsmenn í Efstaleiti afnámu það heiti og hugtak án lagabreytingar fyrir fáeinum árum. Ekki einn einasti starfsmaður þar tekur sér lögvarða heitið nokkurn tíma opinberlega í munn. Í þingskjalinu er hvergi minnst á „RÚV“ en það á hins vegar að tryggja að sérhver króna af því, sem áður var kallað afnotagjald, sem lagt er á skattgreið- endur, skuli örugglega ganga til „Ríkisútvarpsins“. Hvað verður þá um starfsmenn „RÚV“ sem láta jafnan eins og þeir eigi fyrirtækið og geti leikið það að geðþótta? Og mál gærdagsins er svo sannarlega mál gærdagsins, enda snerti það ekki almenn- ing að öðru leyti en því að véla um hvernig mætti tryggja að þeir tæpu fimm milljarðar króna, sem lands- menn eru neyddir til að borga í gegnum nef sín, nefskatt- urinn til „ríkisútvarpsins“, rynnu allir örugglega til þeirrar stofnunar, en ekki til neinna þjóðþrifaverkefna. Umræðan í þinginu um „Ríkisútvarpið“ var að öðru leyti ekki aðeins hallærisleg heldur einnig kunnugleg. Flestir þingmenn fara í sér- stakar stellingar þegar þeir ræða þessa stofnun í þing- salnum. Það er mikið um holl- ustueiða eins og óöruggt fólk hafi hætt sér í ræðustólinn. Jafnan virðist þá gengið út frá því að ekkert hafi gerst í landinu síðan kreppan geisaði á stofnári „Ríkisútvarpsins“, á því herrans ári 1930. Rætt var um fámenna þjóð í stóru landi og víðáttu sem enginn fái ráðið við nema Ríkis- útvarpið, sem framvegis mun ein stofnana að lögum talin starfa í þjóðarþágu! Það verður þó aldrei sagt um „RÚV“. Hvernig stend- ur á því að opin- ber fréttastofa, sem er notuð með þeim hætti sem alþekkt er, skuli telja sig þurfa að fá slíka skreyt- ingu í lagaheiti? Og hvers konar liðléttingar eru það sem láta slíkan fárán- leika eftir? Umræða í þeim dúr, eins og var í þinginu í gær, bendir til að áhugamenn um „Ríkis- útvarpið“ álíti að enn séu ein- göngu reiðvegir í landinu. Ekki sé búið að finna upp flugvélar og enginn geti spil- að tónlist af diskum nema al- menningur sé nauðugur lát- inn tryggja honum til þess ævilangt viðurværi. En framan af þingdeginum var þó einnig önnur spenna í lofti en sú, sem fólst í hinum falska tóni, í einhvers konar afbrigði af fornyrðislagi, um gamla góða útvarpið okkar. Sú tengdist tillögu þing- mannsins Þórs Saaris um vantraust á ríkisstjórnina. Hún stóð stutt við tillagan sú. En þó nægilega lengi til að Guðmundur Steingrímsson var búinn að missa það út úr sér að hann myndi nota at- kvæðisrétt sinn til að koma í veg fyrir að ríkisstjórnin félli. Guðmundur á nefnilega fortíð og hún er ekki endilega öll björt. Hann hefur ein- göngu lýst yfir stuðningi við fjögur mál, svo eftir verði tekið: Tilveru Samfylking- arinnar. Aðild að ESB. Stjórnlagatillögur Þorvaldar Gylfasonar og félaga og þá dásamlegu ríkisstjórn sem er í landinu. Það er við hæfi að öll þessi mál snúa að fortíð- inni og ekki er bjart yfir nokkru þeirra. Hins vegar er eftirtektar- vert að menn séu að kippa sér upp við hugmyndir einstakra þingmanna um vantraust á ríkisstjórnina. Núverandi ríkisstjórn býr við fullkomið vantraust af þjóðarinnar hálfu. Það velkist enginn í vafa um það. Tillöguflutn- ingur í tíu mínútur eða lengur í þinginu breytir engu. Rík- isstjórnin hlaut sinn pólitíska dauðadóm fyrir misserum. Síðan hefur hún aðeins verið lifandi að forminu til og þó varla það. Það er því næstum óviðeigandi að flytja tillögu um vantraust gagnvart slíkri ríkisstjórn. Þingmenn gætu rétt eins rætt í sínum sal um hvort almennt ætti að gefa dánu fólki svefnlyf. Það er að segja ef þeir hafa ekkert þarfara umræðuefni. Síðustu starfsdagar núverandi ríkis- stjórnar eru óþægilega líkir þeim sem á undan hafa farið} Þing á síðasta snúningi S tundum er talað um hörðu og mjúku málin í stjórnmálum. Hörðu málin eru skilgreind sem t.d. fjármál, sjávarútvegur og viðskipti og þau mjúku eru þá heilbrigðismál, menning og skóla- og uppeldismál. Þeir sem hafa starfað í skólum vita að mörg lýsingarorð eru betur til þess fallin að lýsa að- stæðum þar en „mjúkt“ og í raun er erfitt að átta sig á því hvers vegna þessi málaflokkur lendir þarna megin línunnar. Kannski er það vegna þess að um er að ræða málefni barna og ungmenna, hugsanlega vegna þess að konur eru í meirihluta þeirra sem vinna þessi störf. Getur verið að þessi skilgreining standi málaflokknum fyrir þrifum? Að vegna þess að skóla- og uppeldismál lenda í „mjúka flokkn- um“, þá séu þau ekki tekin nógu alvarlega og illa ígrundaðar ákvarðanir séu teknar án þess að taka alla þætti með í reikninginn? Að undanförnu hafa forsvarsmenn bæði Félags grunn- skólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga sagt að sú skólastefna sem hér er starfað samkvæmt gangi ekki upp við núverandi aðstæður. Þessir tveir aðilar hyggja á endurskoðun þessarar stefnu. Báðir telja að ekki hafi tekist að brúa bilið á milli hugsjónar og veru- leika, eða eins og formaður Félags grunnskólakennara sagði í viðtali á mbl.is í vikunni: „Það er eitt að búa til pólitíska menntastefnu og annað að færa hana inn í skólastofuna og framkvæma hana. Þarna á milli er stórt gat sem er fyrst og fremst komið til af því að þeir sem eiga að framkvæma eru ekki hafðir nægilega mikið með í ráðum.“ Þess ber að geta að hvorugur þessara aðila ákveður skólastefnu heldur er hún pólitísk ákvörðun. Svo þótti einhverjum það afbragðsgóð hug- mynd, kortéri eftir kreppu, að lengja kenn- aranám um tvö ár, úr þremur í fimm. Kenn- arar sögðust vonast til að þessi breyting myndi skila sér í hærri launum, sem væri auðvitað fullkomlega eðlilegt miðað við lengra nám og allir vonuðust auðvitað eftir að þessi breyting myndi leiða til betri skóla. Engum sögum fer af því, en aðsókn í kenn- aranám hefur minnkað verulega, kennara- laun eru jafnlág og fyrr og nú er svo komið, að fari svo fram sem horfir, verður ekki nægi- leg endurnýjun í stéttinni. Það er nefnilega ekkert mjúkt við skólamál, þetta er grjótharður málaflokkur sem kostar okkur milljarða á hverju ári og okkur á að vera annt um skólana okkar og þá sem þar starfa. Við eigum ekki að sætta okkur við að stúlkur útskrifist úr grunnskóla með talsvert lakari sjálfsmynd en drengir. Það er líka algjörlega óásættan- legt að fjórðungur unglingspilta geti ekki lesið sér til gagns og við hljótum að velta því fyrir okkur hvernig á því standi að meira en þriðjungur allra grunnskólanem- enda í sumum landshlutum er í sérkennslu af einhverju tagi. Það er kominn tími til að nálgast þennan málaflokk af festu og ábyrgð. annalilja@mbl.is Anna Lilja Þórisdóttir Pistill Skólamál eru hörð – ekki mjúk STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon „Það ríkti mikil gleði þegar for- maðurinn tilkynnti að nú væri stjórnskipunar- og eftirlits- nefnd (Alþingis) búin að fara ít- arlega yfir málið og það þyrfti ekki frekari umræðu inni í nefndinni,“ segir Vigdís Hauks- dóttir, þingmaður Framsókn- arflokksins og fulltrúi í stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, spurð um fund nefnd- arinnar sem haldinn vær í gær. Þá bætir Vigdís við að hún hafi látið bóka mótmæli á fundinum um að hún teldi málið ekki þing- tækt. „Í mínum huga er það í ná- kvæmlega sama uppnámi og það er búið að vera um margra vikna skeið. Ring- ulreiðin í málinu er ekkert að minnka,“ segir Birgir Ármanns- son, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins og fulltrúi í nefndinni. Búin að fara yfir málið NEFNDARUMFJÖLLUN Vigdís Hauksdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.