Morgunblaðið - 22.02.2013, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 22.02.2013, Qupperneq 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013 Dýrahald Shih tzu-rakkar til sölu Þeir fæddust 21. des. 2012. Eru tilbúnir til afhendingar 1. mars 2013. Innifalin er ættbók frá HRFÍ, örmerking, ein bólusetning (við parvo og lifrarbólgu), ormahreinsun, heilsu- farsskoðun. Nánari upplýsingar fást í síma 8464221 eða netfangið: laudia92@hotmail.com Garðar Trjáklippingar trjáfellingar og grisjun sumar- húsalóða. Hellulagnir og almenn garðvinna. Tilboð eða tímavinna. Jónas F. Harðarson, garðyrkjumaður, sími 6978588. Gisting Gisting Akureyri Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm einbýlishús, 4 svefnherbergi. Að- staða fyrir ca. 13 manns. Leyfilegt að hafa hund í Skógarhlíð. Er með fleiri orlofshús við Akureyri og öll með heitum potti. orlofshus.is Leó 897 5300 Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Til sölu 40 feta notaðir gámar til sölu Kaldasel ehf. Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 431. Ódýr blekhylki og tónerar verslun í Hagkaup Smáralind og Fjarðargötu 11, Hafnarfirði. Blekhylki.is, sími 517-0150. Saumavélar- saumavélaviðgerðir Nýjar og notaðar saumavélar í úrvali. Viðgerðir á flestum gerðum sauma- véla. Skoðaðu úrvalið á saumavelar.is eða hringdu í s. 892 3567 eftir hádegi alla daga. Handslípaðar kristalsljósakrónur frá Tékklandi og Slóvakíu. Mikið úrval og gott verð. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Verslun Nýtt: YRSA, Reykjavík, kvenúr. Svissneskt Ronda-verk, auðlæs skífa, 50 m vatnshelt, 2 ára ábyrgð. Verð 14.900. Samsett í Elsass. Tilvalin gjöf á konudaginn. ERNA, Skipholti 3, sími 552 0775, www.erna.is Fyrir konudaginn Handsmíðuð silfurhjörtu með silfur- keðjum. Allt ródíumhúðað svo ekki fellur á. Tækifæri til að eignast vand- aðan, handunninn grip á góðu verði. ERNA, Skipholti 3, s. 552 0775, www.erna.is Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bókhald Þarftu aðstoð við reksturinn ? Við aðstoðum þig við: bókhaldið, launaútreikninga, virðisaukaskattsuppgjör, gerð ársreikninga, skattframtalið, samskipti við RSK. Ókeypis kynningartími. Rekstur og skattskil s.f. Suðurlandsbraut 16. Ýmislegt Fylgihlutir fyrir ferminguna Hárskraut, krossar og hringar. Fermingahanskar kr. 1500 Skarthúsið, Laugavegi 44 Sími 562 2466 Hringtreflar margir litir Verð kr. 2.990. Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. Ferming Hárskraut, hanskar, krossar, armbönd og hringar. Fylgihlutir fyrir fermingar- stúlkuna. Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi ÚTSALA - ÚTSALA ÚLPUR –50% AFSLÁTTUR Sími 588 8050. - vertu vinur Vélar & tæki EE BÍLALYFTUR KOMNAR AFTUR 4 OG 5 TONNA GLUSSADRIFNAR Vorum að fá nýja sendingu af 4 og 5 tonna bílalyftum, vinsælar lyftur og traustar og á meiriháttar góðu verði. Bjóðum hagstæð kortalán til allt að 36 mán. Vélaverkstæðið Holti www.holt1.is Sími 895 6662 Bílaþjónusta Smáauglýsingar Nú kveð ég vin minn Björg- vin. Ég kynntist Böbba eins og við kölluðum hann fyrir u.þ.b. 30 árum. Hann byrjaði að æfa sömu íþrótt og ég og okkur varð fljótt vel til vina. Einstaklega hlýr maður með mikinn metnað fyrir því sem hann tók sér fyrir hend- ur. Björgvin var í Iðnskólanum í Reykjavík að læra rafeinda- virkjun þegar kynni okkar hóf- ust og lauk þar prófi með glæsi- brag. Björgvin setti sér ávallt markmið og eitt af því var að fara til Brasilíu og ferðast þaðan til nærliggjandi landa eftir að námi hans lauk í Iðnskólanum. Þessa ferð fór hann ásamt fleiri góðum strákum og kom hann heim átta mánuðum seinna með mikla reynslu og fullt af ferða- sögum, það var sko ekki leiðin- legt að hlusta á Björgvin segja frá, alltaf jafn rólegur og mál- efnalegur. Björgvin reyndist mér dýr- mætur vinur, vinur sem brást mér aldrei. Við byggðum vin- skapinn okkar upp á trausti og bárum mikla virðingu hvor fyrir öðrum. Ég keypti mér hús í Reykjavík 2004 þar sem átti eft- ir að draga í allt rafmagn, ég spurði Björgvin hvort hann gæti hjálpað mér með það og spurði hann hvort hann vissi hvað það tæki langan tíma og kostnað, hann svaraði því til að þetta tæki töluverðan tíma en kostnaður hans yrði bara kaffi og bakkelsi. Þessi hjálp var okkur hjónum ómetanleg og okkur Björgvini auðnaðist það að hjálpa hvor öðrum í hvívetna ef við kölluðum eftir því, við mátum ekki vin- skapinn okkar til fjár. Við hjálp- uðumst að þegar á þurfti að halda og töldum ekki tímann hvor ofan í annan. Það er dýr- mætt að eiga vin sem kann að hlusta og gefa ráð af heilindum, þannig var Björgvin, hann hlust- aði og gaf ráð. Lengi framan af var Björgvin einstæðingur, hann hafði farið til Ísafjarðar í vinnu og var þar í tvö ár og þangað fór ég tvisvar til hans í heimsókn og á góðar minningar þaðan. Það urðu ákveðin kaflaskil í lífi Björgvins þegar hann kynntist Vilborgu, hann var ástfanginn af þessari konu og það sást á honum og það var dásamlegt að fylgjast með honum stíga hvert ábyrgðar- skrefið af öðru. Svo kom að því að þau hjúin ákváðu að gifta sig og stofna fjölskyldu, stóru skref- in skyldu tekin með þessari konu sem hann var búinn að finna og þetta var svo sannarlega skref til heilla fyrir hann. Björgvin og Vilborg voru dásamleg saman og var það mér sannur heiður að vera svaramaður Björgvins þeg- ar þau giftu sig. Þær eru svo margar minningarnar um góðan dreng, hlátur hans og tilsvör eru ógleymanleg, fasið hans og hreyfingar, minningar þar sem hann situr í jógastellingu með eitthvað í kjöltu sinni og gerir við af einstakri natni og ein- beitni. Ég kveð þig að sinni, elsku vinur minn, og bið Guð að geyma þig. Ég mun aldrei gleyma þér. Þinn einlægur vinur, Kristján. Björgvin Ingimarsson ✝ Björgvin Ingi-marsson, kenn- ari og sálfræð- ingur, fæddist 16. nóvember 1965. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 9. febrúar síðastlið- inn. Útför Björgvins var gerð frá Dóm- kirkjunni í Reykja- vík þriðjudaginn 19. febrúar 2013. Ég man ekki ná- kvæmlega hvenær það var, en líklega hefur það verið haustið 1979 þegar ungur piltur, dökk- ur yfirlitum, gekk inn í aðstöðu Kime- waza í Brautarholti. Hann sagðist heita Björgvin og vera úr Kópavogi. Eins og venjulega þá litum við þjálfararnir yfir sviðið og spáðum í hverjir myndu endast og hverjir ekki. Mælistikan var harka og úthald. Vitnisburður okkar var að þessi dökki þarna myndi nú ekki endast lengi. Tíminn leið, æfingum fjölgaði og erfiði samfara því og í hvert skipti sem ég mætti var Björg- vin þarna líka. Vikur og mánuðir liðu og enn var Björgvin á staðn- um. Það var þá eitthvað við þennan dreng, best að fara að ræða við hann. Þetta voru okkar fyrstu kynni og upphafið af ára- langri vináttu. Framundan var lífið með sína sigra, gleði, og hlátur, einstaka grát og djúpar beygjur í duftið en alltaf stóðum við upp, dustuðum af okkur og héldum áfram. Við vildum ferðast, við vildum ekki festast í lífsgæðakapp- hlaupi, eftirsókn eftir vindi og hégóma. Við vildum leysa lífs- gátuna og svipta hulunni af þokukenndu mistri þess sem við köllum þekkingu og speki. Við snérum okkur að bókmenntum, heimspeki, bardagalistum, og blönduðum því öllu saman í leit að svörum við tilgangi lífsins, sem á endanum reyndist vera … 14. Svo hófust ferðalög þín um allan heim, póstkort frá Suður- Ameríku, símtal frá Venice Beach, bréf frá Barcelona, heim- sókn til mín og Dísu í Dan- mörku. Allt saman hluti af þekk- ingarleit og leit að öðruvísi fólki. Svo varstu allt í einu giftur og búinn að eignast barn, kominn til Skotlands til að þreyta meist- arann í sálfræði – með að sjálf- sögðu glæsilegum árangri. Það er létt að minnast þín Björgvin vinur minn, og þrátt fyrir sorg síðastliðna daga get ég ekki komist hjá því að brosa út í annað í hvert skipti sem ég hugsa til þín. Þú ert og verður einfaldlega eitt af best heppnuð- ustu sköpunarverkum Guðs, ein- lægur njótandi lífsins sem miðl- aðir af lífsgæðum þínum til okkar hinna án þess að taka nokkuð fyrir. Björgvin er vinur minn, hann var kennari, fræðimaður og lífs- ins listamaður, prúðmenni og húmoristi fram í fingurgóma. Þessir eiginleikar þínir geisluðu þegar við ræddum veikindi þín og óumflýjanlegan dauða og, þrátt fyrir alla sorgina og þung- an tregan, dróst þú mig að þessu veisluborði lífsins sem þú út- bjóst þannig að ég mátti mettur standa þaðan upp og halda á vit minna eigin örlaga. Ég hef leitað að tilgangi með þessu öllu sam- an, ég hef spurt Guð og var þá sýnt að þetta snýst ekki um und- ankomuleiðir frá hinu endanlega heldur að umfaðma tilgang þess. Síðustu vikur lífs þíns hér á jörð ræddum við það sem í vændum var, þú baðst mig að taka þetta einn dag í einu, þú neitaðir frekari lyfjameðferð, þú sagðist vera sáttur, allt þetta með einhverri óendanlegri ró og yfirvegun. Ég kvaddi þig inni- lega þinn síðasta dag, svo tókstu stutt andvarp og varst farinn Vilborg og börn, Sigrún og Jónas. Ég votta ykkur innilega samúð mína og megi Guð geyma ykkur. Og Björgvin … við sjáumst næst Þinn vinur, Guðmundur. Samstarf með Björgvini Ingi- marssyni í Iðnskólanum í Hafn- arfirði var gjöfult, einkum vegna þess hve fjölfróður hann var, án þess að hann hefði þörf fyrir að guma af eða flíka þekkingu sinni, hún var einfaldlega til staðar. Frásagnir hans af dvölinni í Suður-Ameríku, kunnátta í spænsku og dönsunum þeirra kryddaði tilveruna. Ekkert okk- ar á kennarastofunni hafði stað- ið á bryggju við Miðjarðarhafið og boðist til að aðstoða við skútusiglingu, nema Björgvin, þannig leitaði hann ævintýranna og miðlaði af reynslu sinni. Kennslan reyndist honum auðveld, nemendur mátu hann að verðleikum og þar sem kennsluefni í rafeindavirkjun skorti þá skrifaði hann það ein- faldlega sjálfur og nefndi, Rása- kverið, handbók í rafeindatækni. Raf- og efnaboð líkamans voru Björgvini hugleikin og hóf hann nám í sálfræði með fullu starfi í skólanum, því námi lauk hann á tilsettum tíma, en loka- ritgerðinni lauk hann sumarið á eftir, þetta var afrek. Edinborg varð fyrir valinu til framhaldsnáms, þar sem þau Vilborg gátu bæði stundað nám. Veikindi settu þó allt of fljótt strik í reikninginn og baráttan við „drekann“ hófst. Lokaprófi til Cand. Psych-gráðu lauk hann hér heima 2010 og fjallaði loka- ritgerð hans um, próffræðilegt mat á DASS-sjálfsmatskvarðan- um. Þunglyndi, kvíða og streitu. Baráttuna við drekann háði hann með Vilborgu sér við hlið, ásamt fjölskyldu og vinum. Op- inská og einlæg skrif Vilborgar um sjúkdóminn hafa verið aðdá- unarverð. Hlutlægt mat á stöð- unni hverju sinni var í anda Björgvins vinar míns. Innilegar samúðarkveðjur til Vilborgar, barnanna, móður og bróður, Bryndís Helgadóttir. Einstök kona á undan samtíð, ótroðnar slóðir, svo hugrökk. Víðförul, ánægð, svo brosandi augu, ræðin og tengd öllu. Ákveðin kona í sinni samtíð, Þórdís S. Guðjónsdóttir ✝ Þórdís fæddistí Reykjavík hinn 21. september 1929. Hún lést 7. febrúar 2013 á Garðvangi, Garði. Útför Þórdísar fór fram í kyrrþey 14. febrúar 2013. skoðanaföst, svo beinskeytt. Árangursmiðuð, svo þrautseigar taugar, innri jafnvægis styrkur. Hlý kona í sinni samtíð, Áhugi, umhyggja, svo falleg. Viðkvæm, skapandi, svo gefandi hjarta góðleg sál og allra. Elsku amma, ég er þakklát og stolt fyrir það sem þú hefur gefið mér. Hvíl í friði. Þórdís.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.