Morgunblaðið - 22.02.2013, Side 47

Morgunblaðið - 22.02.2013, Side 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013 ÍListasafni Árnesinga, Hvera-gerði, stendur nú yfir for-vitnileg sýning á verkumKristins Péturssonar (1896- 1981) og ber hún heitið Tómið. Horfin verk Kristins Péturssonar. Sýningin er unnin í samstarfi við Listasafn ASÍ sem varðveitir verk listamannsins. Sýningarstjóri er Markús Þór Andrésson og hefur hann fengið fjóra núlifandi lista- menn til að gera „athugasemdir“ við verk Kristins, þau Hildigunni Birgisdóttur, Hugin Þór Arason, Sólveigu Aðalsteinsdóttur og Unn- ar Örn. Þannig hefur að sögn safn- stjórans, Ingu Jónsdóttur, verið efnt til samræðu milli „19. aldar listamanns við myndlist 21. ald- arinnar“. Kristinn hlaut hefð- bundna listmenntun en var ávallt vakandi fyrir nýjum straumum í samtímanum, hugleiddi þá vand- lega og útfærði í eigin verkum. Framsækni seinustu verka hans – sem á rætur í alþjóðlegum list- hræringum 6. og 7. áratugarins – flæðir því áreynslulaust inn í okkar samtíma. Safneignin hefur verið flutt aust- ur í heild sinni, þaðan sem hún var flutt að Kristni gengnum en lista- maðurinn bjó og starfaði í Hvera- gerði frá 1943 er hann hóf að reisa sér þar hús og vinnustofu. Hús þetta, Seyðtún, varð síðan órjúf- anlegur hluti af listsköpun Kristins á efri árum. Þá hóf hann að vinna rýmisverk – lágmyndir, högg- myndir og staðbundin verk. Aðeins hluti þessara verka hefur varð- veist, og raunar eru þrívíðu verkin glötuð. Á sýningunni er meg- ináhersla á þennan þátt á ferli Kristins. Yfirskriftin vísar því til tómarúms eða þekkingarskorts á verkum hans vegna hinna týndu verka, og til rýmishugsunar Krist- ins sem sjálfur velti mikið fyrir sér tóminu, núllinu og neindinni. Mörg verka Kristins eru sem sagt horfin í tómið en varðveist hafa ljósmyndir af sumum þeirra auk þess sem Kristinn skilur eftir sig áhugaverð skrif um viðhorf sín til myndlistar – raunar heilt hand- rit sem varðveitt er í Þjóð- skjalasafninu. Hægt er að fletta af- riti þess á sýningunni. Skrifin eru yfirveguð en þau spegla ríkulegan og raunar ástríðufullan hug- myndaheim. Ásamt ljósmyndunum hafa þau nýst við gerð eins konar skáldlegrar heimildamyndar um horfnu verkin sem sýnd er í safn- inu. Þar óma orð Kristins sjálfs og fylla upp í tómarúmið sem gestir skynja á sýningunni. Tilgátur að höggmyndum, sem þar sjást, varpa mikilvægu ljósi á tilraunakennd málverk og skissur sem sýnd eru í sölum 1, 2 og 3 ásamt verkum hinna listamannanna. Í sal 1 er tómið „í fyrirrúmi“ í röð málverka á veggjum og safni teikninga í sýningarborði, verk unnin á árunum 1952-1975. Þarna má sjá átök Kristins innan hins tví- víða myndflatar, hvernig hann leit- ast þar við að skapa rýmiskennd og þensluorku. Hann hverfur frá myndbyggingu þar sem áherslan er á innbyrðis samspil forma og lita, óháð ytra rými myndflatarins, en lætur þess í stað form sín, lita- fleti og línur stefna út úr myndflet- inum, út í rýmið þar sem hógvær verk Sólveigar standa nú eins og vörður í salnum. Salur 2 hefur svif- kennt og flæðandi yfirbragð í sam- spili verka Kristins, Hildigunnar og Hugins Þórs. Þar svífa yfir vötnum hugmyndir Kristins um „hversdagslist líðandi stundar“ sem lífgar upp á umhverfið með „raunverulegum formum … lifandi ljósspili og skuggum“, tilviljunum og „eðlilegheitum“ andspænis „uppstilltum hátíðleika“, svo vitnað sé í handrit hans. Rúmfylling höggmynda var Kristni hugleikin, og drifkraftur í tilraunum með þrí- víð verk. Árið 1979 vann hann mál- verk – einlita fleti á vegg – sem hugsuð voru sem innsetning, eða málverk í samræðu við umhverfi sitt. Í sal 3 hefur slík innsetning orðið að veruleika í samtali við verk Hugins Þórs er standa á gólf- inu og eru sjálf á mörkum skúlp- túrs og málverks, sem í er fólgin hugmyndarík athugasemd við tóm- ið og hin horfnu verk. Einlit verk Kristins eru „malerísk“ með sjáan- legum pensilförum og áferð. Nær- vera listamannsins er því sterk, ekki síst í áberandi áritun hans sem í er fólgin viss togstreita, líkt og hann hafi ekki verið tilbúinn að sleppa hendinni alveg af „list- hlutnum“ og hefðinni. Verk Unnars Arnar í sal 4, Sögusvið & þrír draumar, er inn- setning þar sem öðrum verkum Kristins hefur verið komið fyrir líkt og í safngeymslu sem stúkuð er af með rauðum tjöldum. Þar eru m.a. eldri verk Kristins: fígúratíf grafíkverk, fantasíukennd lands- lagsmálverk, höggmyndir (port- rett) auk dagbóka. Þarna má öðlast innsýn í heim listamanns sem horf- inn er af sjónarsviðinu og sveip- aður er vissri dulúð. Leikræn tjöld- in vísa til þess hvernig hann hefur birst (og ekki birst) í sviðsetningu listasögunnar. Verkið vekur til um- hugsunar – eins og reyndar sýn- ingin í heild sinni. Uppsetning hennar er vönduð og úthugsuð og hún leiðir í ljós að í verkum og hugarheimi Kristins býr fjársjóður sem vert er að skyggnast nánar eftir. Dulúð Rýnir segir uppsetningu sýningarinnar vandaða og úthugsaða „og hún leiðir í ljós að í verkum og hugar- heimi Kristins býr fjársjóður sem vert er að skyggnast nánar eftir.“ Sýningunni lýkur um helgina. Heimildir um tómið Listasafn Árnesinga Tómið. Horfin verk Kristins Péturssonar bbbbn Til 24. febrúar 2013. Opið alla daga kl. 10-17. Aðgangur ókeypis. Sýning- arstjóri: Markús Þór Andrésson. ANNA JÓA MYNDLIST „Kvikmyndir sem miðill á sviði“ er yf- irskrift fyr- irlestrar Egils Ingibergssonar, leikhúsmanns, ljósa-, leik- mynda- og mynd- bandshönnuðar, sem haldinn er á vegum listnámsbrautar VMA í sam- vinnu við Sjónlistamiðstöðina í Ket- ilhúsinu í dag kl. 14.30. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Kvikmyndir sem miðill á sviði Egill Ingibergsson Hljómsveitin Nolo leikur nýtt efni í bland við gamalt á Dil- lon í kvöld kl. 23. „Nolo spilar lo fi proto popp í anda Ariel Pink og John Maus,“ segir m.a. í tilkynningu frá skipu- leggjendum. Annað kvöld kl. 22 leikur Snorri Helgason síðan nýtt efni af tilvonandi plötu sinni. „Snorri ætlar að leyfa okkur að heyra glæný lög af sinni þriðju plötu sem hann vinnur hörðum höndum við að klára,“ segir í tilkynningu frá Dillon. Þess má geta að aðgangur er ókeypis bæði kvöld. Nolo og Snorri Helgason leika á Dillon Músíkant Snorri Helgason Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Mary Poppins (Stóra sviðið) Fös 22/2 kl. 20:00 frum Mið 20/3 kl. 19:00 aukas Fös 3/5 kl. 19:00 Lau 23/2 kl. 19:00 2.k Fös 22/3 kl. 19:00 9.k Lau 4/5 kl. 19:00 Lau 2/3 kl. 19:00 aukas Lau 23/3 kl. 19:00 aukas Sun 5/5 kl. 13:00 Sun 3/3 kl. 19:00 3.k Sun 24/3 kl. 19:00 aukas Fim 9/5 kl. 14:00 Þri 5/3 kl. 19:00 4.k Þri 26/3 kl. 19:00 aukas Fös 10/5 kl. 19:00 Mið 6/3 kl. 19:00 5.k Fim 11/4 kl. 19:00 10.k Lau 11/5 kl. 19:00 Fim 7/3 kl. 19:00 aukas Lau 13/4 kl. 19:00 aukas Sun 12/5 kl. 13:00 Lau 9/3 kl. 19:00 6.k Sun 14/4 kl. 19:00 11.k Fim 16/5 kl. 19:00 Sun 10/3 kl. 13:00 aukas Fös 19/4 kl. 19:00 aukas Fös 17/5 kl. 19:00 Þri 12/3 kl. 19:00 aukas Lau 20/4 kl. 19:00 aukas Lau 18/5 kl. 19:00 Mið 13/3 kl. 19:00 7.k Sun 21/4 kl. 19:00 12.k Fim 23/5 kl. 19:00 Fim 14/3 kl. 19:00 aukas Mið 24/4 kl. 19:00 Sun 26/5 kl. 13:00 Lau 16/3 kl. 19:00 8.k Lau 27/4 kl. 19:00 Fös 31/5 kl. 19:00 Sun 17/3 kl. 13:00 aukas Sun 28/4 kl. 13:00 Lau 1/6 kl. 13:00 Einn vinsælasti söngleikur heims, nú loks á Íslandi. Forsala í fullum gangi. Mýs og menn (Stóra sviðið) Sun 24/2 kl. 20:00 aukas Fös 1/3 kl. 20:00 Mið 8/5 kl. 20:00 Þri 26/2 kl. 20:00 aukas Fös 26/4 kl. 20:00 Fim 9/5 kl. 20:00 Mið 27/2 kl. 20:00 Þri 30/4 kl. 20:00 Fim 28/2 kl. 20:00 Fim 2/5 kl. 20:00 Meistaraverkið eftir John Steinbeck. Nýjar aukasýningar komnar í sölu. Gullregn (Stóra sviðið) Fös 8/3 kl. 20:00 Sun 17/3 kl. 20:00 Mið 12/6 kl. 20:00 Sun 10/3 kl. 20:00 Þri 19/3 kl. 20:00 Fim 13/6 kl. 20:00 Fös 15/3 kl. 20:00 Fim 21/3 kl. 20:00 Mannlegt verk um íslenskt fólk og útlenskt tré. Tengdó (Litla sviðið) Mið 27/2 kl. 20:00 6.k Fös 22/3 kl. 20:00 14.k Lau 20/4 kl. 20:00 20.k Fim 28/2 kl. 20:00 aukas Lau 23/3 kl. 20:00 aukas Sun 21/4 kl. 20:00 21.k Fös 1/3 kl. 20:00 7.k Sun 24/3 kl. 20:00 15.k Mið 24/4 kl. 20:00 22.k Mið 6/3 kl. 20:00 8.k Fös 5/4 kl. 20:00 16.k Fim 25/4 kl. 20:00 aukas Lau 9/3 kl. 20:00 9.k Lau 6/4 kl. 20:00 17.k Lau 27/4 kl. 20:00 23.k Fim 14/3 kl. 20:00 10.k Sun 7/4 kl. 20:00 aukas Fös 3/5 kl. 20:00 24.k Fös 15/3 kl. 20:00 aukas Lau 13/4 kl. 20:00 18.k Lau 4/5 kl. 20:00 25.k Lau 16/3 kl. 20:00 11.k Sun 14/4 kl. 20:00 19.k Sun 5/5 kl. 20:00 Sun 17/3 kl. 20:00 12.k Fim 18/4 kl. 20:00 aukas Fös 10/5 kl. 20:00 Fim 21/3 kl. 20:00 13.k Fös 19/4 kl. 20:00 aukas Lau 11/5 kl. 20:00 Grímusýning síðasta leikárs snýr aftur! Saga þjóðar (Litla sviðið) Lau 23/2 kl. 20:00 Sun 24/2 kl. 20:00 Fim 7/3 kl. 20:00 Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum. Aukasýningar. Ormstunga (Nýja sviðið) Fös 22/2 kl. 20:00 9.k Fim 28/2 kl. 20:00 Fim 7/3 kl. 20:00 Lau 23/2 kl. 20:00 10.k Fös 1/3 kl. 20:00 Lau 9/3 kl. 20:00 Sun 24/2 kl. 20:00 11.k Lau 2/3 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00 Mið 27/2 kl. 20:00 Mið 6/3 kl. 20:00 Fim 14/3 kl. 20:00 Tungan rekin framan í þjóðararfinn á ný Nóttin nærist á deginum (Litla sviðið) Fös 22/2 kl. 20:00 Sun 3/3 kl. 20:00 Lau 2/3 kl. 20:00 Sun 10/3 kl. 20:00 Nýtt, íslenskt verk eftir Jón Atla Jónasson Skoppa og Skrítla í leikhúsinu (Litla sviðið) Sun 24/2 kl. 11:00 Sun 24/2 kl. 13:00 Sun 3/3 kl. 13:00 Leikhús með söng og dansi fyrir börn frá níu mánaða aldri Mary Poppins – frumsýning í kvöld kl 20 Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is Fyrirheitna landið (Stóra sviðið) Lau 23/2 kl. 19:30 Frumsýning Fim 7/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 15/3 kl. 19:30 9.sýn Fim 28/2 kl. 19:30 2.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 16/3 kl. 19:30 10.sýn Fös 1/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 9/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 2/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 14/3 kl. 19:30 8.sýn Kraftmikið nýtt verðlaunaverk! Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið) Sun 24/2 kl. 13:00 Sun 10/3 kl. 13:00 Sun 24/3 kl. 13:00 Sun 24/2 kl. 16:00 Sun 10/3 kl. 16:00 Sun 24/3 kl. 16:00 Sun 3/3 kl. 13:00 Sun 17/3 kl. 13:00 Sun 3/3 kl. 16:00 Sun 17/3 kl. 16:00 Eitt ástsælasta barnaleikrit á Íslandi! Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið ) Sun 3/3 kl. 20:30 Sun 10/3 kl. 20:30 Sun 17/3 kl. 20:30 Nýtt sýningatímabil! Miðasala í fullum gangi! Karíus og Baktus (Kúlan) Lau 23/2 kl. 13:30 Lau 2/3 kl. 13:30 Lau 9/3 kl. 13:30 Lau 23/2 kl. 15:00 Lau 2/3 kl. 15:00 Lau 9/3 kl. 15:00 Lau 23/2 kl. 16:30 Lau 2/3 kl. 16:30 Lau 9/3 kl. 16:30 Sun 24/2 kl. 13:30 Sun 3/3 kl. 13:30 Sun 10/3 kl. 13:00 Sun 24/2 kl. 15:00 Sun 3/3 kl. 15:00 Sun 10/3 kl. 15:00 Sun 24/2 kl. 16:30 Sun 3/3 kl. 16:30 Sun 10/3 kl. 16:30 Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka! Karma fyrir fugla (Kassinn) Fös 1/3 kl. 19:30 Frumsýning Sun 3/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 9/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 2/3 kl. 19:30 2.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 4.sýn Sun 10/3 kl. 19:30 6.sýn Fyrsta leikrit Kristínar Eiríksdóttur og Karí Óskar Grétudóttur Uppistand - Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 22/2 kl. 20:00 Fim 28/2 kl. 20:00 Fös 1/3 kl. 23:00 Fös 22/2 kl. 23:00 Fös 1/3 kl. 20:00 Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Segðu mér satt (Kúlan) Fös 22/2 kl. 19:30 Mið 6/3 kl. 19:30 Sun 24/2 kl. 19:30 Fim 7/3 kl. 19:30 Leikfélagið Geirfugl sýnir Homo Erectus - pörupiltar standa upp (Þjóðleikhúskjallarinn) Lau 2/3 kl. 21:00 Lau 16/3 kl. 21:00 Lau 23/3 kl. 21:00 Pörupiltar eru mættir aftur!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.