Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Qupperneq 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Qupperneq 15
það ekki vera vandamál á íslensk- um bókamarkaði að þar sé einn jafn stór útgefandi og Forlagið. Það sést á metsölulistum að smærri útgáfur, og jafnvel ein- yrkjar, blómstra. Stór útgefandi getur lítið gert til að trufla eða koma í veg fyrir velgengni annarra forlaga.“ Með jólasölu á heilanum Allir í bókabransanum vita að nóv- ember og desember eru rithöf- undum og útgefendum erfiðir. Þá er mikil spenna í loftinu. Eru þess- ar vikur þér erfiðar? „Síðastliðið haust var ég að reyna að sefa mig með því að jóla- bókavertíðin væri þrátt fyrir allt ekki nema innan við þriðjungur af veltu Forlagsins. Það er semsagt ekkert úrslitaatriði fyrir Forlagið hvernig salan gengur fyrir jólin. Með þessari möntru tókst mér að róa mig ansi langt inn í vertíðina. Ég veit ekki hvort það er gene- tískt eða ekki en upp úr miðjum nóvember var ég farinn að sofa illa og vakna um miðjar nætur. Ég var kominn með jólasöluna algjörlega á heilann, að miklu leyti að ástæðu- lausu því okkur gekk mjög vel. En það var mikil spenna í mér, ég varð mjög órólegur og ég velti því fyrir mér í nóvember og desember hvort þetta væri genetískur and- skoti.“ Ertu vinnuþjarkur? „Ég hef óskaplega gaman af vinnunni minni. Þannig réttlæti ég það að vinna 14-16 klukkutíma flesta daga. Ég hef lært að nýta tímann vel. Það eru mörg ár síðan ég hætti að horfa á sjónvarp, fyrir utan að fylgjast með fréttum og umræðuþáttum. Ég fer aldrei í bíó og á fáar tómstundir fyrir utan vinnuna. Fremur en að horfa á framhaldsþætti í sjónvarpinu eða láta mér leiðast uppi í sófa þá nýt ég þess að vinna. Fyrir um það bil tveimur árum var ég aðframkom- inn og þreklaus og fann að ég var um það bil að brenna út í starfi. Þá fór ég að hreyfa mig. Ég hleyp þrisvar til fjórum sinnum í viku og reyni að hugsa sæmilega um sjálf- an mig. Þess vegna get ég unnið myrkranna á milli og tel það ekk- ert eftir mér.“ Þú átt börn, áttu von á að fjórði ættliður taki við Forlaginu í fyll- ingu tímans? „Sonur minn og dóttir hafa bæði sagst ætla að verða bókaútgef- endur þegar þau verða stór en ég reyni mjög markvisst að draga úr því. Á æskuheimili mínu var aldrei lagt að mér að gerast bókaútgef- andi. Ég vil ekki að börnin mín finni fyrir þrýstingi, finni ekki einu sinni fyrir áhuga mínum á að hafa þau í vinnu í einhvern tíma. Þau eiga að upplifa fullkomið frelsi þegar kemur að vali um starfsvett- vang. Ég segi þeim stöðugt að þau geti orðið hvað sem er þegar þau verða stór. Ég segi: Lögregla, læknir, lögfræðingur og svo fram- vegis, en aldrei segi ég orðið bóka- útgefandi. En ef svo verður þá verður það.“ Morgunblaðið/Kristinn *Það að veraþriðja kynslóðer mér frekar til trafala en hitt. Stundum er sagt að það sé þriðja kyn- slóðin sem geri fjöl- skyldufyrirtæki gjaldþrota. Ég er mjög meðvitaður um að dæmi eru um slíkt og fyrir vikið er ég örugglega miklu gætnari í ákvörð- unum en ella. 10.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Vatnagörðum 24-26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is Umboðsaðilar: Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800 • Bílver, Akranesi, sími 431 1985 • Höldur, Akureyri, sími 461 6020 • Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535 Halló, Vetur. við bjuggum okkur undir komu þína með skynvæddu fjórhjóladrifi. *B es ti 4 x4 bí ll ár si ns sa m kv æ m tT ot al 4 x4 M ag az in e. HALLÓ. MEIRA NÝTT. www.honda.is/cr-v Með CR-V erum við vel undirbúin þegar snjórinn kastar til okkar tækifærum. Skynvætt stöðugt vaktandi fjórhjóladrif reiknar út þörfina á gripi og dreifir aflinu aðeins í þau dekk sem þurfa þess. Á meðan brekku-hraðastjórnandinn hjálpar þér að halda fullri stjórn og mýkt niður brekkuna, án þess að þú þurfir að bremsa. Fjórða kynslóð Honda CR-V setur ný viðmið í ferðaþægindum, gæði innréttinga og gagnsemi í akstri. Náðu taki á vetrinum. Lifðu meira nýtt, keyrðu Honda CR-V. Besta 4x4 bíl ársins*. *B es ti 4 x
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.