Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Side 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.2. 2013 Ferðalög og flakk Fyrir tveimur árum komu inn Icelandair Group, Reykjavíkurborg, Kópavogur og fagfjárfestasjóðurinn Stefnir, stærsta sjóðafyrir- tæki landsins, sem er í um- sjón Arion banka. Nokkuð var um að erlend- ir ferðamenn legðu þangað leið sína í fyrrasumar og margir af helstu fjöl- miðlum heims gerðu hann að umfjöllunarefni. Það er til marks um áhugann að um þessar mundir er unnið að þremur þáttum á BBC um hellinn. Mat á umhverfisáhrifum Þríhnúkar hafa lagt fram hugmyndir um að bæta aðgengi að hellinum og búa til útsýnis- pall, þannig að fleiri geti séð ofan í gíginn og jafnframt til að vernda hann fyrir ágangi. Mati á Skipulagsstofnunar á umhverfisáhrif- um lauk í ársloks, en það var tveggja ára ferli og er skýrslan almennt á jákvæðum nótum, að sögn Björns. Uppfylla þarf tvennskonar skilyrði frá Skipulagsstofnun áður en framkvæmdir hefj- ast, sem fælu í sér veg frá Bláfjallaveginum og göng að útsýnispallinum. „Annað skilyrðið kveður á um að ekki megi vera meira en 60 til 70 kílómetra hámarkshraði á veginum frá Bláfjöllum að Þríhnúkum,“ segir Björn. „Okk- ar hugmyndir eru raunar að hafa hann minni, því við viljum fella veginn inn í landið. Þar er fólk komi af brautinni til Bláfjalla og liðist um falleg landslag að hellinum. Þetta á bara að vera ferðamannavegur.“ Hitt skilyrðið felst í að heildarendurskoðun vatnsverndarsvæðisins á höfuðborgarsvæðinu ljúki áður en framkvæmdaleyfi verði gefið. „Áætlað er að henni ljúki um mitt næsta ár,“ segir Björn. „Útlit er fyrir að þetta tefji ferlið mest og í því samhengi er rétt að geta þess að þetta er á fjarsvæði vatnsverndarsvæðisins og þegar það var skilgreint á sínum tíma var það haft stærra frekar en minna. Við erum náttúruunnendur og viljum ekki gera neitt sem spillir vatnsbóli höfuðborgarbúa. Það er því mikilvægt að sýnt hefur verið fram á það með góðum vísindalegum rökum, eins og Skipulagsstofnun bendir á, að af þessari fram- kvæmd stafar ekki slík hætta og enn síður ef þær vegbætur sem við leggjum til eru gerð- ar.“ Stærsta uppbygging í áratugi Einnig þarf að breyta aðalskipulagi Kópavogs, en það hefur þegar verið auglýst, og breyta þarf deiliskipulagi. „Þetta er þjóðlenda og lög- in kveða á um að leyfi forsætisráðuneytisins þurfi til að nýta landið í meira en eitt ár í senn,“ segir Björn. „Þetta er því stór og flókin framkvæmd, enda fjárfesting upp á ríflega tvo milljarða og gera má ráð fyrir að það taki áratugi að greiða fjárfestinguna niður. Fjárfestar og lánastofnanir hafa sýnt áhuga á að koma að þessu verkefni, en auðvitað er erfitt að sækja fjármagn á meðan óvissa er enn um leyfis- mál.“ Björn segir mikinn áhuga fyrir verkefninu, bæði innan ferðaþjónustunnar og eins meðal lífeyrissjóða, lánastofnana og fleiri fjárfesta. „Þetta er mikið hagsmunamál fyrir ferðaþjón- ustu á Íslandi, enda stærsta uppbygging á innviðum hennar í áratugi. Uppbyggingin hef- ur verið meira og minna í hótelum og bílaleig- um, en þarna er bætt við valkosti fyrir þá ferðamenn og jafnframt trekkir þetta að fleiri. Þá gerir þessi einstaki staður mikið fyrir ímynd Íslands eins og glöggt má sjá af allri umfjölluninni, en hingað komu yfir 60 blaða- menn í sumar og 12 sjónvarpsstöðvar.“ Áhugaverð tilraunastofa Í sumar verður boðið upp á ferðir fyrir ferða- menn, en einnig ráðist í rannsóknir á gígnum. „Það verður rannsakað hvort örverugróður þrífst í hellinum og hvort heimsóknir hafi áhrif á loftskipti og loftgæði. Það eitt að opna hellinn og lýsa hann upp gæti til dæmis valdið því að litir breytist eða að mosagróður mynd- ist og það viljum við ekki.“ Það er dýrt í framkvæmd að bjóða upp á ferðir ofan í gíginn. „Það þarf að flytja öll að- Efri hluti gígopsins er þröngur. Hér horfa erlendir tökumenn til himins. Lyfta var fyrst sett upp í samstarfi við tímarit- ið National Geograp- hic og hefur hún verið notuð síðan. Björn Ólafsson

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.