Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Page 23
10.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Heilsa og hreyfing
H
jartasjúkdómum fylgir
oft mikið andlegt álag
og líklega eru sálrænu
áhrifin að verulegu
leyti vanmetin,“ segir Mjöll Jóns-
dóttir sálfræðingur. „Fólk getur
veikst skyndilega, farið í gegnum
meðferð á sjúkrahúsi og eftir
mjög stuttan tíma er það komið
heim aftur. En þó að búið sé að
laga hjartað getur framhaldið
reynst fólki þungt í skauti. Hugsa
þarf hlutina alveg upp á nýtt og
breyta um lífsstíl. Hlutir í daglegu
lífi sem áður voru sjálfsagt mál og
auðleystir geta verið fólki um
megn og það hefur áhrif á sjálfs-
myndina og líðan.“
Hindrar líkamlegan bata
Læknar, hjúkrunarfræðingar og
fólk í fleiri fagstéttum, sem sinnir
hjartasjúklingum, starfar við
Hjartamiðstöðina við Holtasmára í
Kópavogi. Nýr þáttur í starfsem-
inni er sálfræðiþjónustan sem
Mjöll Jónsdóttir sinnir. Hún lauk
cand. psych. gráðu í sálfræði frá
Háskólanum í Árósum í Dan-
mörku sl. haust. Í námi sínu og
starfi hefur hún lagt sérstaka
áherslu á heilsusálfræði, kvíða og
sálrænar afleiðingar hjarta-
sjúkdóma fyrir bæði sjúklinginn
og makann ásamt áhrifum sjúk-
dómsins á samband hjóna, sam-
skipti og árangur í að breyta lífs-
stílnum.
„Lokaverkefnið vann ég úr við-
tölum sem tekin voru við fólk sem
fengið hafði hjartasjúkdóma, maka
viðkomandi og svo pörin saman.
Þannig fékkst heildstæð mynd af
reynslu og upplifunum fólks. Á
þekkingunni sem þarna fékkst
byggi ég mikið í mínu starfi,“ seg-
ir Mjöll. Hún bætir við að kvíði í
kjölfar áfalls sé algengur sem geti
hægt á og jafnvel hindrað líkam-
legan bata. Því verði að hafa alla
hluti inni í breytunni og takast á
við sjúkdóminn heildrænt.
Snertir alla fjölskylduna
„Þetta eru veikindi sem snerta
alla fjölskylduna. Það hvernig pör
takast saman á við veikindi er
einnig mikilvægur þáttur í bata-
ferlinu og fyrir lífsgæði í framtíð-
inni. Fólk verður að finna hvernig
það getur tekist á við þetta sam-
an. Fundið nýjar leiðir og sátt.
Sjúklingurinn þarf svo að læra að
lifa við breyttan veruleika, svo
sem að geta kannski ekki allt sem
hann áður gat,“ segir Mjöll og
heldur áfram:
„Mörgum finnst erfitt að geta
ekki lengur sinnt hversdagsverkum
eins og að bera innkaupapokana,
þvegið bílinn eða skilað sínu til
heimilisins eins og fyrr. Einmitt
þess vegna finnst mörgum gott að
fá stuðning sálfræðings og fá ráð-
gjöf, jafnvel þá sem forvörn þann-
ig að fólk fái verkfæri til að mæta
breyttum veruleika og koma þá í
veg fyrir að lenda í vandræðum í
ferlinu. Það hendir að fólk með
hjartasjúkdóma velkjast um í heil-
brigðiskerfinu án þess að fá algera
bót sinna meina, því læknarnir
geta ekki gert meira. Oft er skýr-
ingin þá sú að fólk er kvíðið og
einkennin kvíðatengd en ekki beint
hjartasjúkdómur. Samtal við sál-
fræðing myndi hjálpa mörgum að
þekkja einkenni óttans og bregðast
við þeim.“
Ráðgjöf og vefsetur
Í Danmörku starfaði Mjöll á
danskri kvíðameðferðarstöð þar
sem hún sinnti bæði einstaklings-
og hópameðferð, m.a. við kvíða,
áráttu- og þráhyggjuröskun, þung-
lyndi og félagsfælni. Hún hefur
einnig starfað við starfsmanna-
ráðningar, ráðgjöf og nám-
skeiðahald og haldið námskeið í
sjálfsstyrkingu, framkomu, atvinnu-
leit og svo mætti telja. Utan þess
er Mjöll maki hjartasjúklings og
hefur með eiginmanni sínum, Birni
Ófeigssyni, haldið úti vefsíðunni
www.hjartalif.is frá árinu 2005. Er
þar að finna margvíslegar upplýs-
ingar um hjartasjúkdóma, fréttir
og fræðslu ásamt persónulegum
pistlum.
Mjöll Jónsdóttir sálfræðingur segir
mörgum reynast erfitt að geta ekki
lengur sinnt hversdagsverkum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sálrænn stuðningur er forvörn
KVÍÐI Í KJÖLFAR ÁFALLS ER ALGENGUR, SEGIR MJÖLL JÓNSDÓTTIR. HÚN ER SÁLFRÆÐINGUR OG SÉRHÆFIR SIG Í AÐSTOÐ VIÐ HJARTASJÚKLINGA.
HÚN SEGIR VEIKINDIN HAFA STERK ÁHRIF Á SJÁLFSMYND SJÚKLINGSINS OG SNERTA ALLA Í FJÖLSKYLDU VIÐKOMANDI.
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Hjartaáfall gjörbreytir tilverunni.
Því er mikilvægt að hlúa að and-
legri heilsu, á sama hátt og mikil-
vægt er að byggja upp þrek og
styrkja sig.
Talið saman um það hvernig
þið hafið það og hvernig þið
upplifið hlutina.
Leitið ráða og leiðbeininga,
en finnið ykkar eigin leið og
það sem hvetur ykkur til að
skapa þær breytingar sem
nauðsynlegt er að gera.
Reynið að taka þær breyt-
ingar í sátt sem hafa orðið og
þurfa að verða og reynið að
beina sjónum ykkar að þeim
draumum sem þið viljið
stefna að núna.
Það tekur tíma að finna sjálf-
an sig aftur, ekki gefast upp.
Líf með hjartasjúkdómi get-
ur verið gott líf, en þú ert
sjálfur með í að ákveða
hvernig og hversu gott.
NOKKUR RÁÐ FYRIR HJARTAÐ OG SÁLINA
Taka breytingar í sátt