Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Side 27
10.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
0% VEXTIR - Húsgagnahöllin býður upp á vaxtalaus lán til allt að 12 mánaða
OK AFSLÁTTUR%70
ALLTAÐLGIN
Í
búðin og þetta óhefðbundna
rými sem tilheyrir fyrrverandi
iðnaðarhúsnæði hentar parinu
sérstaklega vel þar sem þau
starfa líka heimavið. María er
listakona og ljósmyndari og Birgir
er tónlistarmaður en listafólk hef-
ur safnast saman á þetta svæði.
Þau vinna ekki aðeins hlið við hlið
heldur líka oft saman að verk-
efnum.
María og Birgir hafa búið í
íbúðinni í eitt ár ásamt dótturinni
Heru Lind, sem er 11 ára. Á und-
an því voru það útlönd, þau
bjuggu í París í hálft ár, London í
fimm ár, Glasgow í tvö og hálft ár
og á Spáni í hálft ár með stuttum
stoppum á Íslandi inni á milli. Þau
vinna ennþá mikið í þessum lönd-
um og ferðast því talsvert til út-
landa.
Frábært útsýni er úr íbúðinni
yfir Geirsnefið, ósa Elliðaánna og
Elliðaárdalinn. Tengingin við nátt-
úruna er því sterk en staðsetn-
ingin er líka góð og stutt að fara
til allra átta á höfuðborgarsvæð-
inu. Stutt er líka í hverfin sem
þau ólust upp í en María er úr
Ártúnsholtinu og Birgir úr Foss-
voginum.
Allir flutningarnir í gegnum ár-
um í útlöndum og það að vinna
heima markar stílinn á heimilinu.
„Við eigum ekki mikið af hús-
gögnum af því að við höfum flutt
svo oft í gegnum tíðina. Þá þarf
maður alltaf að vera að losa sig
við hluti og hugsa: Hvað þurfum
við eiginlega?“ segir María en
þetta hjálpar auðvitað til við að
halda í einfaldleikann. „Maður
heldur í það sem veitir innblástur
og hjálpar manni að skapa,“ segir
hún og nefna þau í sameiningu til
sögunnar hljóðfæri, myndavélar og
tölvur. Þau hugsa út frá virkni
hlutanna, segir Biggi og vísar líka í
tæknihlutann. „Það þarf allt að
vera þráðlaust, tölvurnar tala hvor
við aðra og sjónvarpið. Við erum
að vinna hérna líka og það má ekki
fara orka til spillis í óþarfa hluti,“
segir hann en þau hafa líka komið
á óformlegu heimsóknabanni til
fjögur á daginn til að fá vinnufrið.
Úti voru þau með fjögur vinnu-
borð sem auðvelt var að flytja á
milli. Þau eru með skrúfuðum fót-
um og taka því lítið pláss í flutn-
ingum. Núna gegna tvö hlutverki
vinnuborðs og eitt er borðstofuborð
en plöturnar hafa verið lakkaðar
með hvítri lakkmálningu.
Líður eins og í útlöndum
Hver finnst þeim vera helsti
kosturinn við íbúðina? „Stærðin og
útsýnið,“ svarar María ákveðið en
íbúðin er um 150 fermetrar og frá-
bæra útsýninu hefur verið lýst.
Birgir segir gott flæði í íbúðinni
og að hann fái innblástur þarna
vera góða kosti. „Hér er pláss bæði
fyrir atvinnu okkar og heimilislíf.
Okkur líður svolítið ennþá í hjart-
anu eins og við séum í útlöndum.
Fólk er líka ekki alveg ofan í okk-
ur,“ segir hann en íbúðin er líka
einstaklega „útlandaleg“ en íbúðir
af þessu tagi eru sjaldgæfar hér-
lendis.
Það er gott að hafa ákveðinn
fasta þegar flutningar eru tíðir og
einn af þeim er innblástursveggur
Maríu. Það er myndaveggur sem
hún tekur með sér hvert sem hún
fer og setur upp í öllum nýjum
íbúðum til að gera þær að heimili.
Ljósin eru hönnun móður
Maríu, Önnu Guðmunds-
dóttur (annadesign.is).
Flæði og
innblástur
LISTAPARIÐ MARÍA KJARTANSDÓTTIR OG BIRGIR
HILMARSSON BÝR OG STARFAR Í FLOTTRI ÍBÚÐ ÞAR SEM
HÁTT ER TIL LOFTS OG VÍTT TIL VEGGJA Í FYRRVERANDI
IÐNAÐARHÚSNÆÐI Í SÚÐARVOGINUM.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Myndir: Styrmir Kári Erwinsson styrmirkari@mbl.is
ÓHEFÐBUNDIN ÍBÚÐ Í IÐNAÐARHVERFI
*Hér er plássbæði fyrir at-vinnu okkar og heim-
ilislíf. Okkur líður
svolítið ennþá í
hjartanu eins og við
séum í útlöndum.
Borðið fékk María
gefins úti á götu í
London frá fólki
sem var að tæma
íbúð. Á milli stól-
anna sést glitta í
aðra kanínu heim-
ilisins.
Birgir í vinnuhorninu sínu
sem er vel stúkað af svo
kanínurnar komist ekki í
snúrurnar.
María með Polaroid-vélina
á lofti fyrir framan inn-
blástursvegginn sinn.
Baðherbergið býður upp á
sannkallaða spa-upplifun
með tveimur sturtum og
rúmgóðu baðkeri.