Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Page 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Page 39
10.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 R étt eftir áramótin endur- heimti ég vinkonu mína eftir nokkurra ára Bandaríkjaútlegð. Þó að það sé auðvelt að vera í sambandi við fólk úti um allan heim með nú- tímatækni jafnast ekkert á við að sitja augliti til auglitis. Okkar fyrsta verk eftir heimkomuna var að halda aðalfund þar sem farið var yfir málefni líðandi stundar og í leiðinni var farið yfir gömul skjöl og kveikt í þeim. Á aðalfundinum var minning J.R. Ewing heiðruð og af því tilefni var boðið upp á hress- andi drykki til að létta fundar- störfin. Jákvæðnin og gleðin var við völd sem gerði það að verkum að þegar New York-gellan vinkona mín stakk upp á því að við tvær myndum stofna skokkklúbb fékk hún að sjálfsögðu jákvætt svar. Daginn eftir vaknaði ég til að fara í vinnuna, svolítið lúin eins og getur gerst þegar taktar J.R. Ew- ing eru leiknir eftir í miðri viku. Seinni partinn hringdi síminn og ég var spurð að því hvort ég væri komin í hlaupafötin því fyrsti fundur skokkklúbbsins væri fram- undan. Ég svitnaði bara við til- hugsunina því nú kemur játning: ég fór nánast óhreyfð í gegnum 2012 ef pappakassaburður í 10 cm hælum, hlaup á eftir óhlýðnum 3 og 6 ára drengjum og stöku túrar með ryksugu yfir 230 fm flöt eru frátaldir. Það að vinkona mín skyldi velja mig með sér í skokkklúbb sýnir dálítið hvar hún er stödd í lífinu því það að draga mig með sér kemur frekar vel út fyrir hana. Hún er eins og arabískur veðhlaupahest- ur á meðan ég er svona meira eins og lítill bleikur pónýhestur. Á fundum skokkklúbbsins dregur arabíski hesturinn pónýhestinn á eftir sér og þarf sá síðarnefndi að hafa sig allan við ef hann á ekki að dragast aftur úr. Fljótlega komst ég að því að staðalbúnaður tveggja barna móðurinnar í 108 fyrir úti- hlaup var alls ekki í takt við hlaupabúning hinnar nýheimfluttu New York-drottningar. Meðan hún skartar samstæðum íþrótta- fötum og er alltaf í nýju dressi í hvert skipti er ég svona meira eins og Ingjaldsfíflið með lopahúfu og í allt of litlum hlaupajakka (hann passaði einu sinni!!!). Ég veit vel að þið lesendur trúið þessu náttúrlega ekki, en svona getur raunveruleikinn verið súr. Ég ætla samt að bæta úr þessu því það er betra að vera í réttum bún- aði því maður hægir svo ógurlega á sér þegar maður er alltaf að laga sig, toga bolinn niður fyrir rass og svona, á hlaupum. Hlaup eru ekki tískusýning en það skiptir máli að manni líði vel á þeim og þá kemur réttur búnaður eins og himnasending. Hlaup hreinsa hugann og styrkja hjartað. Ef markmiðið er að verða ein- hvern tímann 100 ára og halda uppi stuðinu á Hrafnistu-barnum þá þýðir ekkert að sitja bara í sóf- anum … martamaria@mbl.is Ef þetta heldur svona áfram verð ég orðin eins og þessi gella í sumar. Það er óþarfi að vera eins og Ingjaldsfíflið á hlaupum. Arabíski veð- hlaupahesturinn viðrar pónýhestinn Hlaupaskór frá Asics eru til fyrir- myndar í úti- hlaupum. Það er gott hald í þess- um Nike topp. 10.990 kr. Filament hlaupa- buxur frá Nike. 8.990 kr. Skechers GOwalk fisléttir og sveigjanlegir GO Like Never Before Þú færð GO walk skó í Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind | Intersport Lindum, Kópavogi Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi Blómsturvellir, Hellisandi | Mössuskór, Akureyri Skóhúsið, Akureyri | Skóbúð Húsavíkur, Húsavík Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn í Hornafirði Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum Skóbúðin, Keflavík

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.