Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Blaðsíða 39
10.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
R
étt eftir áramótin endur-
heimti ég vinkonu mína
eftir nokkurra ára
Bandaríkjaútlegð. Þó að
það sé auðvelt að vera í sambandi
við fólk úti um allan heim með nú-
tímatækni jafnast ekkert á við að
sitja augliti til auglitis. Okkar
fyrsta verk eftir heimkomuna var
að halda aðalfund þar sem farið
var yfir málefni líðandi stundar og
í leiðinni var farið yfir gömul skjöl
og kveikt í þeim. Á aðalfundinum
var minning J.R. Ewing heiðruð og
af því tilefni var boðið upp á hress-
andi drykki til að létta fundar-
störfin. Jákvæðnin og gleðin var
við völd sem gerði það að verkum
að þegar New York-gellan vinkona
mín stakk upp á því að við tvær
myndum stofna skokkklúbb fékk
hún að sjálfsögðu jákvætt svar.
Daginn eftir vaknaði ég til að
fara í vinnuna, svolítið lúin eins og
getur gerst þegar taktar J.R. Ew-
ing eru leiknir eftir í miðri viku.
Seinni partinn hringdi síminn og
ég var spurð að því hvort ég væri
komin í hlaupafötin því fyrsti
fundur skokkklúbbsins væri fram-
undan. Ég svitnaði bara við til-
hugsunina því nú kemur játning:
ég fór nánast óhreyfð í gegnum
2012 ef pappakassaburður í 10 cm
hælum, hlaup á eftir óhlýðnum 3
og 6 ára drengjum og stöku túrar
með ryksugu yfir 230 fm flöt eru
frátaldir.
Það að vinkona mín skyldi velja
mig með sér í skokkklúbb sýnir
dálítið hvar hún er stödd í lífinu því
það að draga mig með sér kemur
frekar vel út fyrir hana. Hún er
eins og arabískur veðhlaupahest-
ur á meðan ég er svona meira eins
og lítill bleikur pónýhestur. Á
fundum skokkklúbbsins dregur
arabíski hesturinn pónýhestinn á
eftir sér og þarf sá síðarnefndi að
hafa sig allan við ef hann á ekki að
dragast aftur úr. Fljótlega komst
ég að því að staðalbúnaður tveggja
barna móðurinnar í 108 fyrir úti-
hlaup var alls ekki í takt við
hlaupabúning hinnar nýheimfluttu
New York-drottningar. Meðan
hún skartar samstæðum íþrótta-
fötum og er alltaf í nýju dressi í
hvert skipti er ég svona meira eins
og Ingjaldsfíflið með lopahúfu og í
allt of litlum hlaupajakka (hann
passaði einu sinni!!!).
Ég veit vel að þið lesendur trúið
þessu náttúrlega ekki, en svona
getur raunveruleikinn verið súr.
Ég ætla samt að bæta úr þessu því
það er betra að vera í réttum bún-
aði því maður hægir svo ógurlega
á sér þegar maður er alltaf að laga
sig, toga bolinn niður fyrir rass og
svona, á hlaupum.
Hlaup eru ekki tískusýning en
það skiptir máli að manni líði vel á
þeim og þá kemur réttur búnaður
eins og himnasending. Hlaup
hreinsa hugann og styrkja hjartað.
Ef markmiðið er að verða ein-
hvern tímann 100 ára og halda
uppi stuðinu á Hrafnistu-barnum
þá þýðir ekkert að sitja bara í sóf-
anum …
martamaria@mbl.is
Ef þetta heldur svona áfram verð
ég orðin eins og þessi gella í sumar.
Það er óþarfi að vera eins og
Ingjaldsfíflið á hlaupum.
Arabíski veð-
hlaupahesturinn
viðrar pónýhestinn
Hlaupaskór
frá Asics eru
til fyrir-
myndar í úti-
hlaupum.
Það er gott
hald í þess-
um Nike
topp.
10.990 kr.
Filament hlaupa-
buxur frá Nike.
8.990 kr.
Skechers GOwalk
fisléttir og sveigjanlegir
GO Like Never Before
Þú færð GO walk skó í
Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage,
Kringlunni og Smáralind | Intersport Lindum, Kópavogi
Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi
Blómsturvellir, Hellisandi | Mössuskór, Akureyri
Skóhúsið, Akureyri | Skóbúð Húsavíkur, Húsavík
Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn í Hornafirði
Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum
Skóbúðin, Keflavík