Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Blaðsíða 42
*Fjármál heimilannaÞreyta gerir alveg örugglega vart við sig þegar reynt er að skipuleggja fjármálin á heimilinu höggva niður skóg þá tökum við eitt tré í einu. 2. Við gefum okkur verðlaun fyrir hvert lokið verk. Erfið markmið verða auðveldari ef við höfum eitthvað til að hlakka til. Góð slökun, góður matur, góður sjónvarps- þáttur eftir erfiðan dag gæti breytt öllu fyrir okkur. 3. Við segjum öðrum frá því hvað við erum að gera. Við er- um ekki að kvarta heldur úti- loka að við verðum þau einu sem vita um þreytu og álag dagsins. Ræðum við vini okk- ar sem eru góðir hlustendur. Líkur eru á að þeir hvetji okkur áfram og hrósi fyrir hvert lokið verk. 4. Við umgöngumst duglega fólkið. Drífandi fólk hefur já- kvæð áhrif á líðan okkar. 5. Við gerum okkar besta til að halda áfram. Þrátt fyrir að það sé erfitt að ná erfiðum markmiðum þá er enn erf- iðara að byrja aftur ef við hættum eða tökum of langa hvíld. Við getum stytt tímann eða minnkað markmiðin til að fá kraft til að halda áfram. Margir sem taka ákvörðun um að snúa fjármálumheimilisins úr mínus í plús finna sig knúna til aðbæta aðstæðurnar til að losna undan álagi og stressi sem getur fylgt fjárhagsáhyggjum. Til er mikið magn af greinum og efni í bókum, tímaritum og á verald- arvefnum sem gefur okkur góðar og auðveldar hug- myndir til að setja okkur raunhæf markmið og yfirlit. Það er auðvelt að leggja af stað þegar við höfum tekið slíka ákvörðun. Viljinn er mikill og öflugur og verkið virðist auðvelt. En fyrir marga er viljinn ekki endalaus. Við þurfum að reka heimili og takast á við dagleg störf. Hversdagsleg þreyta og álag dregur úr okkur kjark og vilja til að laga fjármálin. Þegar við erum þreytt, önug og viljalítil eru meiri líkur á að við hættum að spara og lát- um áform um fjárhagsáætlanir fjúka út í veður og vind. Ein af mörgum góðum aðferðum til þess að gefast ekki upp á miðri leið er að gera ráð fyrir þreytunni. Við- urkenna að það kemur að því að við verðum önug, þreytt og stressuð og langar að gefast upp. Þá er nauðsynlegt að stoppa og ná áttum. Fimm hagnýt atriði til að forðast uppgjöf: 1. Við einföldum óyfirstíganleg verkefni með því að hluta þau niður í stutt tímabil og eitt lítið verkefni í einu. Til að Aurar og krónur REIKNUM MEÐ ÞREYTUNNI! HAUKUR HILMARSSON V el yfir hundrað fyrir- spurnir um réttindi leigjenda berast Neyt- endasamtökunum á mánuði en samkvæmt samningi við velferðarráðuneytið hefur ver- ið starfrækt sérstök leigjenda- aðstoð frá 2010. Alls barst 1.431 fyrirspurn um mál tengd leigu á árinu 2012, eða nærri fjórar fyrirspurnir á dag. Árið á undan voru fyrirspurnir um þrjár á dag en mun færri leit- uðu til samtakanna árin á undan. Algengt er að leigjendur spyrji um rétt sinn þegar viðhald og ástand leiguhúsnæðis er ekki í lagi, eða um uppsögn á leigusamn- ingi. Ávallt er brýnt fyrir leigj- endum að hafa samskipti við leigusala skrifleg. „Þetta er eitt- hvað sem því miður þarf að segja aftur og aftur,“ segir Hildigunnur Hafsteinsdóttir lögfræðingur. Hún segir marga leigjendur veigra sér við því að hafa samskipti við leigusala skrifleg, finnist það jafn- vel ókurteisi þar sem sambandið sé gjarnan á persónulegum nót- um. „Fólk er oft viðkvæmt fyrir því að kvarta skriflega og hrætt við að styggja einhvern. En þetta er bara algjört grundvallaratriði í samskiptum leigjenda og leigusala, það þarf allt að vera skriflegt.“ Hildigunnur segist oft veita fólki þau ráð, vilji það halda samskipt- unum persónulegum, að hafa bæði samband munnlega og skriflega. Ef leigjandi þurfi til dæmis að hafa samband við leigusala vegna við- halds þá sé vel hægt að hringja en fylgja símtalinu svo eftir með tölvupósti. „Það þarf ekkert að vera ókurteisi að hringja eitt símtal og senda svo tölvupóst í kjölfarið þar sem vísað er í efni símtalsins. Það þarf enginn að styggjast við það að fá tölvupóst og ætti ekki að þurfa að eyðileggja góð samskipti við leigusala,“ segir Hildigunnur. Að sögn hennar berast fyrir- spurnir af ýmsu tagi til Leigj- endaaðstoðarinnar. „Það er öll flór- an. Oft eru þetta bara praktískir hlutir, fólk er ekki búið að gera leigusamning og er að spyrja ráða um hvernig það á að haga sér í því. Oft hafa þó komið upp deilur og leigjandi leitar því ráða hjá okkur um hvert hann getur snúið sér. Við reynum að leiða fólk áfram og benda á hvert það getur leitað. En í þeim tilfellum er algjört grund- vallaratriði að til séu skrifleg gögn um málið og að kvartað hafi verið skriflega til leigusala,“ segir hún. LEIGJENDAAÐSTOÐIN STIMPLAR SIG INN Kvörtun sé skrifleg FRÁ ÞVÍ SÉRSTÖK LEIGJENDAAÐSTOÐ VAR SETT Á FÓT INNAN NEYTENDASAMTAKANNA HEFUR FJÖLDI FYRIR- SPURNA UM RÉTT LEIGJENDA MARGFALDAST. BRÝNT ER FYRIR LEIGJENDUM AÐ KVARTA SKRIFLEGA TIL LEIGUSALA. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Fyrirsögn hér Fjöldi erinda til Leigjendaaðstoðarinnar *Leigjendaaðstoð var ekki formlega til fyrr en 2010, en fjöldi 2009 á við um erindi sem bárust Neytendasamtökunum og vörðuðu húsaleigu. 1.600 1.400 1.200 1.000 800 600 400 200 0 2009* 2010 2011 2012 219 414 1.048 1.431 Fólk pantar sér gjarnan ýmiskonar hluti frá útlandinu og kaupir sjálft á ferðalögum. Tolla og ýmis gjöld ber að greiða þegar varan kemur til landsins og er handhægt að komast að upphæðinni með því að nota reiknivél á www.tollur.is. Tökum dæmi: Maður vill kaupa sér hatt í útlöndum. Þar kostar varan andvirði 10.000 króna. Reiknivélin góða upplýsir að við- komandi greiði 15 kr. í almennan toll, tæpar 30 kr. í tvenns konar úrvinnslugjald og síðan 25,5% virðisaukaskatt, 2.933 kr. Hattur- inn hingað kominn – fyrir utan sendingarkostnað og þvíumlíkt – kostar því 14.433 kr. Sá sem vill flytja inn eina léttvínsflösku sem kostar 2.000 kr. í útlandinu greiðir alls 3.401 kr.; þar af 693 kr. í áfengisgjald og 691 kr. í vsk. Handhæg reiknivél á heimasíðu Tollstjóra Mugison á hatt. Ekki er vitað hvað höfuðfatið kostaði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.