Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Page 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Page 49
10.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 talað á bak okkar en það truflaði okkur aldr- ei. Þetta tók á sig hinar ólíklegustu myndir, eins og þegar vinir okkar ráðlögðu okkur að giftast konum enda þótt við myndum síðan halda áfram að búa saman og þær úti í bæ.“ Hann hlær við tilhugsunina. Aðallega grínistar „Vandamálið í Japan,“ heldur Eyþór áfram, „er að enginn hefur gengið fram fyrir skjöldu, þá meina ég enginn sem hefur vigt í samfélaginu. Það eru aðallega grínistar sem þora að koma fram sem samkynhneigðir, en þá vitandi þess að þeir verða hvort eð er ekki teknir alvarlega og grafa því frekar undan baráttu samkynhneigðra. Að vísu er þingkona í Osaka núna komin út úr skápn- um, sú fyrsta sem ég veit um, og vonandi verður það öðrum hvatning.“ Hann segir réttarstöðu samkynhneigðra almennt bágborna í Asíu. Ekki sé til dæmis langt síðan þeir hafi verið fangelsaðir eða settir á hæli í Kína. „Það er á vissan hátt skiljanlegt að þessi barátta gangi hægar á þessum slóðum enda eru ekki nema fáeinir áratugir síðan algengt var að makinn væri valinn handa fólki. Það tíðkast jafnvel enn.“ Það kom í hlut Eyþórs að tilkynna for- eldrum Junya um andlát hans. „Það var ekki auðvelt en ég lét hvatvísina ráða og hringdi. Þau komu til Íslands til að vera viðstödd út- förina og það var átakanlegt að hitta þau eftir öll þessi ár. Aumingja fólkið var bugað af sorg og sektarkennd. Faðir hans skrifaði bréf sem hann lagði ofan í kistuna. Það var þeirra kveðja. Þau vissu sama og ekkert um okkar líf en stöldruðu við í eina viku til að kynnast mér betur og hitta vini okkar. Að því búnu fögnuðu þau því að hafa eignast nýjan son og buðu mig velkominn í fjölskyld- una. Ég var djúpt snortinn.“ Það stóð ekki lengi. „Tveimur vikum síðar skrifaði faðirinn mér bréf og tjáði mér að Junya hefði aldrei komið út úr skápnum gagnvart þeim og þannig vildu þau hafa það áfram. Fyrir vikið væri ekki heppilegt að ég væri að koma í heimsókn. Ég veit ekki hvað olli þessum sinnaskiptum en eitthvað breytt- ist þegar þau komu aftur heim í sitt venju- lega umhverfi. Ég hef hvorki heyrt né séð þau síðan enda lít ég á þetta sem svik við minningu sonar þeirra.“ Ætlaði aldrei að koma aftur Eftir að Eyþór lauk doktorsprófi frá háskól- anum í München árið 1993 söðlaði hann Morgunblaðið/Kristinn Eyþór og Junya giftu sig í desember 2007 en héldu veisluna sumarið 2008. *Viðhorfsbreytingin er gríðarleg, réttindum sam-kynhneigðra hefur fleygt fram og baráttansennilega hvergi lengra komin í heiminum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.