Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Page 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Page 51
VERÐ ÁÐUR 79.900 KR. 44.000 KR. ELLINGSEN GASGRILL, 3 BRENNARAR YFIRBREIÐSLA FYLGIR COLUMBIA BUGABOOT NÚNA! 14.990 KR. TILBOÐSVERÐ 18.990 KR. VERÐ ÁÐUR 29.990 KR. – FULLT HÚS ÆVINTÝRA REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16 AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3 • Sími 460 3630 • mánud.–föstud. 8–18 • laugard. 10–16 • ellingsen.is ALLAR VÖRUR FRÁ SKOGSTAD MEÐ 40% AFSLÆTTI A.M.K. 25% AFSLÁTTUR AF VÖRUM FRÁ DIDRIKSONS 20–50% AFSLÁT TUR AF ÖLLUM VEIÐI- VÖRUM 20–50% AFSLÁT TUR AF ÖLLUM SKOTVE IÐI- VÖRUM ÚTSÖLUNNI LÝKUR UM HELGINA! OPIÐ SUNNUDAG KL. 12–16 Í REYKJAVÍK 30% AFSLÁT TUR AF ÖLLU M SOREL-S KÓM 30–50% AFSLÁTTUR AF SCOTT VÖRUM 10.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 um dekk og við hrifumst af býlinu og ekki síður útsýninu. Junya þótti útsýnið hvergi fegurra á Íslandi. Ári síðar þegar Bakki kom á sölu keyptum við býlið og vorum þar eins oft og við gátum. Junya var einmitt á leið- inni þangað þegar hann lést.“ Enda þótt Eyþóri og Junya liði vel þetta ár sem þeir bjuggu á Íslandi höfðu þeir eigi að síður tekið ákvörðun um að flytja aftur utan þegar Junya féll frá. „Það hafði ekkert með Ísland að gera, þannig lagað. Junya saknaði heimahaganna og eftir að hafa búið svo lengi í Japan var heldur ekki auðvelt fyrir mig að laga mig að hinu daglega lífi á Íslandi. Ef til vill voru smæðin og rólegheitin of mikil. Mér bauðst líka spennandi atvinnutækifæri hjá Glitni. Það fór eins og það fór.“ Eyþór segir fráfall Junya hafa breytt af- stöðu sinni til lífsins. Einnig voru þessar fáu mínútur sem hann skildi við sjálfur örlaga- ríkar. „Eftir slíka reynslu sér maður allt í öðru ljósi. Sorgin hefur litað líf mitt í langan tíma og það er fyrst núna, fjórum og hálfu ári eftir að maðurinn minn lést, að ég er far- inn að geta yljað mér við minningarnar. Það er engin leið til að stytta sér leið í sorginni. Hún er og verður. Eina leiðin til að halda áfram að lifa er að viðurkenna tilvist hennar. Leyfa henni að vera til. Sinna henni þá og sýna henni virðingu. Gefa sér tíma til að syrgja. Því enginn getur flúið sorgina. Hún er brú okkar til lífsins sjálfs, til lífsvilj- ans, viljans til að halda áfram að lifa. Því það er það sem hinir horfnu ástvinir okkar vilja að við gerum. Þeir vilja að við lifum, og ef við getum ekki lifað fyrir okkur sjálf, þá skulum við reyna að gleðja þá með því að lifa fyrir þá.“ Eyþór Eyjólfsson býr á Íslandi og gegnir nú starfi framkvæmdastjóra Stolt Sea Farm sem er að reisa mikla fiskeldisstöð á Reykja- nesi. Hann unir hag sínum vel hjá sínum gamla vinnuveitanda og segir verkefnið í senn krefjandi og spennandi. Eyþór hefur snúið aftur til lífsins í anda loforðsins sem hann gaf manninum sínum í minningargrein- inni: „Ég ætla ekki að láta mig reka út á haf til þín, Junya. Ég ætla að halda áfram að lifa. Ég ætla að lifa fyrir þig, ástin mín. Því þú elskaðir allt líf.“ Junya á Bakka sumarið 2008, skömmu áður en hann fórst. Doktorsritgerðin mín vakti töluverða athygli vegna þess að hún tók á mál- efni sem lítið hafði verið snert á fram að því. Hún fjallar um röksemdafærslu þeirra japönsku fræðimanna sem reynt hafa í skrifum sínum að sýna fram á það að Japanar séu öðrum kynstofnum hæfari og betri. Meðan Japan var á mikilli uppleið jókst sjálfsmeðvitund og sjálfsálit Japana að sama skapi. Á þess- um árum var aldrei talað um Japan öðruvísi en japanska kraftaverkið, efnahagsundrið sem átti sér ekki sinn líka og menn voru farnir að halda það að Japanar hlytu að vera æðri kyn- stofn. Í Japan er mjög lifandi umræða um japönsku þjóðina, einkenni hennar og eðli og almennt hvernig það sé að vera Japani. Um 1989 þegar uppblásið efnahagslíf Japans hafði náð sínum ýtr- asta þenslupunkti var þessi umræða öll farin að snúast um það eitt að sýna fram á það með einhverjum hætti að Japanar væru öðrum þjóðum og kyn- þáttum æðri.“ Þannig komst dr. Eyþór Eyjólfsson að orði í samtali sem Hlér Guðjónsson, þáverandi fréttaritari Morgunblaðsins, tók við hann fyrir blaðauka Morgun- blaðsins Úr verinu vorið 1997. Brá í brún við heimkomuna Spurður hvort hann hefði ekki allt eins getað haft þessi orð um Íslendinga árið 2007 kinkar Eyþór kolli. „Það er mikið til í því,“ segir hann nú. „Ég fylgdist satt best að segja lítið með íslensku samfélagi meðan ég bjó ytra í 24 ár og þegar ég flutti heim 2007 brá mér í brún. Þetta var ekki það Ísland sem ég skildi við, land gjald- eyrishafta og óðaverðbólgu, auk þess sem kalda stríðið var í algleymingi. Auðvitað var gaman að sjá uppganginn sem orðið hafði en mér blöskraði hvað þenslan var ofboðsleg, hraðinn mikill og boginn spenntur hátt. Það tók mig tíma að venjast þessu, það var helst úti á landi sem ég fann gamla Ísland.“ Upplifun Eyþórs var sú að fólk hefði í stórum stíl misst jarðtenginguna. „Svo virtist sem allir væru að reyna að græða sem mest á sem skemmstum tíma. Ég get ekki neitað því að ég end- urupplifði Japan í kringum 1990. Mað- urinn minn var sama sinnis. Menn kepptust við að mæra Íslendinga og segja þá æðri öðrum og maður fann glögglega að hroki í garð útlendinga var mikill, jafnvel litið niður á þá. Í þeim efnum hafði ég raunar engan samanburð því það voru svo til engir útlendingar hérna árið 1983.“ Eyþóri líður oft öðrum þræði sem útlendingi í eigin landi. „Þó að ég líti út eins og Íslendingur er ekki sjálfgefið að ég hugsi þannig og fólk má ekki gefa sér það. Eftir svona langa dvöl í Japan hegða ég mér á marga lund eins og Japani og hugsa oft á japönsku. Ég varð fyrir kúltúrsjokki þegar ég flutti heim, ekki síst vegna þess aga- og virð- ingarleysis sem gengur ljósum logum um samfélagið. Svona var þetta ekki þegar ég var að vaxa úr grasi. Þá þér- aði maður eldra fólk og sýndi því til- hlýðilega virðingu. Fólk virðist hætt að bera virðingu hvert fyrir öðru, ekki einu sinni fyrir stjórnmálamönnum og lögreglu. Fólki sem er að reyna að gera sitt besta í þágu lands og þjóðar.“ Verðum að standa saman Eyþór segir frumskilyrði að breyta þessu hugarfari ætli okkur að takast að byggja landið upp að nýju eftir efna- hagshrunið. „Þetta stendur endur- reisninni fyrir þrifum og við skuldum börnunum okkar og landinu að búa til þjóðfélag þar sem ríkir friður og ein- ing. Við náum engum árangri með því að horfa í baksýnisspegilinn og leita að sökudólgum. Hatrið má ekki brjóta niður allt traust manna á milli. Auðvitað er skilj- anlegt að menn séu reiðir en gert er gert og nú verðum við að standa sam- an og horfa fram á veginn.“ Hafandi kynnst lífinu í Sovétríkjunum og Kína veit Eyþór manna best að vel- megun er ekki sjálfsögð meðal þjóða og hann hvetur landsmenn til að hlynna að henni. „Við höfum þraukað í þessu landi í þúsund ár, lifað af nátt- úruhamfarir og drepsóttir, það væri bagalegt að láta vandamál sem við höf- um kallað yfir okkur sjálf brjóta okkur niður!“ Þjóðfélag án aga og virðingar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.