Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Side 20
Þ
að er ánægjulegt hve aukinn áhugi er á skíðagöngu meðal almenn-
ings. Skíðaganga höfðar til mjög breiðs hóps bæði hvað varðar
aldur og líkamlegt form. Fjöldi fólks sem stundar gönguferðir á
sumrin og nú í auknum mæli einnig að vetri er að uppgötva hvað
skíðagangan er góð viðbót og það sama gildir um þann stóra hóp sem
stundar skokk og hlaup,“ segir Þóroddur F. Þórodsson, formaður skíða-
göngufélagsins Ullar.
Félagið var stofnað árið 2007 og er með aðstöðu í Bláfjöllum. Nafnið
kemur úr goðafræðinni en Ullur var sonur Sifjar og stjúpsonur þrumu-
guðsins Þórs.
Mörgum kemur á óvart hvað skíðaganga getur verið krefjandi og reynt
á allan líkamann, jafnvel þótt menn séu í góðu formi. Þóroddur segir að
það sé þó hægt að njóta útiverunnar og fjallaloftsins án mikillar útiveru.
„Ef viðkomandi vill taka á þegar á skíðin er komið en einnig er hægt að
njóta skíðagöngu og útiveru án verulega mikillar áreynslu. Margir fá þó
strengi þar sem hreyfingin getur verið ólík því sem fólk er vant, jafnvel
úr heilsuræktinni.“
Í vetur hafa Ullungar boðið fólki á námskeið þar sem farið er í und-
irstöðuatriði skíðagöngunnar. „Við stefnum á að halda ókeypis nám-
skeiðum áfram en um 130 manns eru búnir að mæta og annar eins hópur
bíður færis.“
Gott samstarf er við starfsmenn skíðasvæðisins í Bláfjöllum en þegar
blaðamann og ljósmyndara bar að garði var til dæmis búið að leggja 10
kílómetra spor upp á heiði. „Vonandi fáum við gott veður sem flestar
helgar það sem eftir er vetrar svo fólk geti notið dagsins á gönguskíðum.“
Um helgina verður Bláfjallagangan en henni varð að fresta vegna veð-
urs fyrir tveimur vikum. Þar eru gengnir 20 kílómetrar og fá þeir sem
ljúka henni stig í stigakeppni Íslandsgöngunnar. Einnig eru í boði styttri
vegalengdir og ættu því allir að geta fundið vegalengd við sitt hæfi.
Fyrirhugað er einnig að halda Reykjavíkurmót sem væntanlega verður
helgina 23.-24. febrúar.
Í skála Ullar við Suðurgil í Bláfjöllum er hægt að leigja gönguskíði, skó
og stafi fyrir þá sem vilja prófa. Börn og unglingar yngri en 16 ára fá
búnaðinn lánaðan endurgjaldslaust.
„Æfingar eru öðru hverju fyrir börn og unglinga og stefnt er á að fara
með hóp á Andrésarleikana í Hlíðarfjalli í vor,“ segir Þóroddur um leið
og hann rennir sér af stað. Æfingin er hafin.
Þóroddur F. Þóroddsson hjá Ulli
segir hlaupara og fjallgöngufólk í
auknum mæli stunda skíðagöngu á
veturna sem viðbót, enda bæti
skíðaganga styrk og þol.
Morgunblaðið/Kristinn
VINSÆLDIR SKÍÐAGÖNGU AUKAST
Höfðar til
breiðs hóps
SKÍÐAGANGA VERÐUR VINSÆLLI MEÐ DEGI HVERJUM
AÐ SÖGN ÞÓRODDS F. ÞÓRODDSSONAR, FORMANNS
SKÍÐAGÖNGUFÉLAGSINS ULLAR. FÉLAGIÐ BÝÐUR UPP Á
ÓKEYPIS NÁMSKEIÐ Í ÞVÍ HVERNIG Á AÐ GANGA Á SKÍÐ-
UM ENDA EKKI SAMA HVERNIG ÞAÐ ER GERT.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
*Heilsa og hreyfingEinar Hólmgeirsson handboltakappi lætur gömlu meiðslin ekki hindra sig í að þjálfa Metabolic »23
Morgunblaðið/Kristinn
Skíðaganga er
tignarleg
íþrótt.
FOSSAVATNSGANGAN ER STÆRSTA MÓT SKÍÐAGÖNGUFÓLKS
Fossavatnsgangan er elsta skíðamót
sem enn er við lýði á Íslandi, en gangan
fór fyrst fram árið 1935. Gangan mark-
ar lok skíðavertíðarinnar hér á landi og
er stærsta mót skíðagöngufólks hér. Í
dag er keppt í fjórum vegalengdum; frá
sjö kílómetrum upp í 50 kílómetra.
Eftir að 50 km vegalengdin var tekin
upp hefur mótið vakið sífellt meiri at-
hygli erlendis.
Fossavatnshelgin er gönguskíðahelgi
sem enginn sem nýtur útiveru ætti að
láta framhjá sér fara.
Hápunkturinn á Ísafirði
Það er frábær líkamsrækt
að stunda skíðagöngu.