Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Side 23
17.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Hvað gerir kona sem er ein heima að næturlagi og liggur í fletisínu heldur klæðlítil þegar hún finnur svo ekki verður um villstað einhver fer um hana höndum? Lætur hún sem ekkert sé og
nýtur þess að heimilisdraugurinn hafi fært sig svona líka upp á skaftið
og þukli hana af áfergju? Eða sprettur hún upp eins og stálfjöður og
hrópar út í myrkrið: „Hvur fer þar?“
Sparkar hún og lætur öllum illum látum og
hættir ekki fyrr en hún hefur snúið niður
ódáminn sem gramsar blygðunarlaust í henn-
ar allra heilagasta jurtagarði?
Kona spyr sig. Fátt er um svör.
Hví eru ei til sjálfshjálparbækur sem leið-
beina konum eða takast á við ásókn drauga
með blússandi standpínu?
Ein vinkona mín fjölkunnug og ramm-
skyggn varð fyrir þeim ósköpum um daginn
að fá á sig draug. Í orðsins fyllstu merkingu.
Hún kallaði mig á fund daginn eftir og sagði farir sínar ekki sléttar og
óttaðist jafnvel að hún yrði aldrei söm. „Ég hafði mök við draug í nótt,“
hvíslaði hún þegar við vorum nýsestar niður með heitan drykk í bolla á
notalegu kaffihúsi. Mér svelgdist allsvakalega á sopanum sem ég var í
þann mund að renna niður. Átti erfitt með að kyngja þessum óvæntu
samfaratíðindum vinkonunnar. Læddust líka að mér efasemdir um geð-
heilsu hennar, ekki á hvers manns færi að hafa samræði við handan-
veru. En hún var sallaróleg og yfirveguð, reyndar vottaði fyrir girndar-
bliki í auga og eitthvað var hún fjarræn en þó um uppnumin. Leit svo
beint í augu mín og sagði glottandi: „Þetta var sannkölluð gandreið.“
Og í framhaldinu sagði hún mér í smáatriðum frá þessari mögnuðu
næturheimsókn og það var sannarlega kjöt utan á beinum þeirrar frá-
sagnar, þótt gesturinn hafi vissulega verið helst til loftkenndur, eins og
títt er um þá sem koma að handan.
En einu hafði hún áhyggjur af: Að hún gæti kannski aldrei framar
sætt sig við mennska menn, slík hefði frammistaða draugsa verið í ból-
inu. Nú voru góð ráð dýr. En við komumst að sameiginlegri niðurstöðu:
Glórulaust væri að binda trúss sitt alfarið við vofu sem lítt væri hægt að
reiða sig á. Því síður væri vit í því að snúa baki við okkar heims mönn-
um. Allra best væri að kenna elskhugum af holdi og blóði öll trixin sem
draugsi hafði skrautskrifað á líkama hennar með slíkri fingrafimi sem
raun bar vitni.
MÖKUNARFÚSIR
DRAUGAR
KRISTÍN HEIÐA
Stigið í
vænginn
É
g hef verið að æfa þetta
sjálfur síðan ég kom heim
og þetta er frábært. Ein-
faldlega frábært. Ég er
enn tæpur í hnjánum en það eru
bara einhverjar aðrar æfingar
fundnar fyrir mig að gera. Í
metabolic ertu í hóp, það er
hvati að mæta og það er hugsað
um hvern og einn einstakling,“
segir Einar Hólmgeirsson, einka-
þjálfari og þjálfari í metabolic í
Kópavogi.
Einar er landsmönnum kunnur
fyrir ofsalegar neglur sínar í
handbolta en meiðsli bundu enda
á feril hans. Hann er nú kominn
heim og kennir metabolic á
milli þess sem hann æfir
eftir þessu magnaða æf-
ingakerfi.
Snilldin spurðist út
Metabolic varð til árið
2011 en Helgi Jónas
Guðfinnsson á mestan
heiðurinn af kerfinu.
Helgi er sprenglærður í
íþróttafræðum og þeir sem
hafa fengið að njóta liðsinnis
hans verða ekki fyrir von-
brigðum. Fljótlega fór snilldin
að spyrjast út og er metabolic
komið út um allt land.
Í Grindavík, þar sem metabolic
byrjaði, hefur verið uppselt frá
upphafi og þar er langur biðlisti.
Boltinn byrjaði fljótt að rúlla.
Haustið 2012 urðu metabolic-
staðirnir ellefu talsins.
Einar segir að metabolic sé
hópþjálfun, stöðvaþjálfun og mjög
vel skrifað æfingakerfi. „Þetta er
fyrir alla. Æfingarnar eru mið-
aðar við hvern og einn.
Það eru mælingar, alls konar
fyrirlestrar. Þetta er allur pakk-
inn og frábært fyrir fólk sem
nennir ekki að æfa eitt og jafn-
vel fyrir þá sem tíma ekki að
kaupa sér einkaþjálfun.
Helgi Jónas er mjög fær í sínu
fagi og skrifar allar æfingar fyrir
allt landið. Það má treysta hon-
um alveg 100% fyrir þessu. Þetta
er mjög skemmtilegt æfingakerfi
og það er miklu betra að æfa í
hóp en einn,“ segir Einar.
Handboltaskórnir
komnir á hilluna
Hann segist vera í góðu líkam-
legu formi þótt hann sé ekki í
neinu handboltaformi. Það form
sé liðin tíð og skórnir nánast
komnir upp í hillu þótt harpixið
kitli alltaf aðeins. „Ég hef ekki
tekið neina ákvörðun. Ég ætlaði
að byrja eitthvað aftur og ég
reyndi en hnéð bólgnaði um leið
þannig að ég setti bara skóna
aftur upp í hillu.
Ég er einkaþjálfari frá ÍAK og
stefnan er sett á íþróttafræðina í
sumar. Við fórum nokkrir í
einkaþjálfarann úr landsliðinu og
við erum einhverjir fimm sem er-
um með einkaþjálfunarréttindin.“
Morgunblaðið/Ómar
EINAR HÓLMGEIRSSON HANDBOLTAKAPPI
Þjálfari sem getur ekki
gert allar æfingarnar
FYRRVERANDI LANDSLIÐSMAÐURINN Í HANDBOLTA EINAR HÓLMGEIRSSON,
HEFUR EKKI SAGT SKILIÐ VIÐ ÍÞRÓTTIR ÞVÍ HANN KENNIR HÁDEGISÞREKTÍMA
Í SMÁRANUM Í KÓPAVOGI EFTIR METABOLIC-KERFINU.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Einar með þrumu-
skot í landsleik gegn
Króatíu. Boltinn
söng í netinu.
Einar Hólmgeirsson er ekki laus við meiðsli en heldur sér áfram í formi.