Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2013
Matur og drykkir
B
aldvin hefur komið víða við á fjörutíu ára kokkaferli
en kann afar vel við sig á Akureyrarflugvelli. Hann
stílar upp á gamaldags heimilismat, í bestu merk-
ingu. „Meira að segja útlendingarnir borða svið,
fiskbollur og þeir borða kjöt í karríi upp á gamla móðinn og
finnst gott. Þeir spyrja gjarnan: Hvað er maðurinn þarna að
borða? Ég ætla að fá svona, takk. Þegar erlendur ferðamað-
ur fær svið tekur hann oft mynd af matnum, borðar hann
svo og tekur beinin með sér sem minjagrip! Sérstaklega þeir
sem eru að fljúga beint heim héðan frá Akureyri.“
Hann segist berjast fyrir tilveru þessara gömlu rétta.
Kjúklingabringur og sushi megi ekki ýta öllu öðru burt.
„Ef boðið er upp á lambalæri í hádeginu, kótelettur, fisk-
bollur, kjötsúpu, saltkjöt og baunir; þennan gamla góða,
heimilismat, selst hann betur en annar matur. Jafnvel á fín-
ustu veitingahúsum sem þú finnur!“
Baldvin sat eitt kjörtímabil í bæjarstjórn fyrir VG og seg-
ist nú á leið á þing, „með nýjum flokki sem líklega verður til
um næstu helgi; flokki sem kemur til með að fá 30 til 40%
fylgi vegna þess að hann verður öðruvísi en aðrir; mun sam-
anstanda af hægrimönnum og vinstrimönnum og verður
verkefnaflokkur sem ætlar að bæta lífskjör íslenskrar alþýðu
með því að auka ráðstöfunartekjur meðelheimilis um 400 til
500 þúsund krónur á mánuði“.
Ha? hváir blaðamaður.
„Þessi ágæti flokkur mun ekki hafa mjög langa stefnuskrá
en nokkur meginmarkmið; númer eitt er að leggja niður
tekjuskattinn í heild sinni, sem verður m.a. til þess að svört
atvinnustarfsemi leggst af, hækka virðisaukaskatt og setja á
allar vörur og sameina lífeyrissjóðina í einn með einhverju
móti. Tímarnir eru breyttir; kapítalisminn gengur ekki upp,
kommúnisminn gengur ekki heldur upp, þjóðfélagið er að
sigla í strand og ef svo heldur fram sem horfir verður ekkert
eftir. Þess vegna verður að fitja upp á einhverju nýju sem
getur komið íslenskri alþýðu vel. Um þetta hugsa ég á milli
rétta hér á flugvellinum!“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
BALDVIN Í FLUGKAFFI Á AKUREYRI Á HÓP FASTAKÚNNA
Gamaldags og gómsætt
TÍU ÁR ERU SÍÐAN BALDVIN SIGURÐSSON TÓK VIÐ FLUGKAFFI Á AKUREYRARFLUGVELLI. ÞAR SEST
EKKI BARA NIÐUR FÓLK Á FARALDSFÆTI HELDUR KOMA MARGIR Í MAT HJÁ BÆJARFULLTRÚANUM
FYRRVERANDI Í HVERRI VIKU. HANN LEGGUR ÁHERSLU Á HEIMILISMAT UPP Á GAMLA MÁTANN.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Baldvin H. Sigurðsson eldar fyrir hóp fólks á hverjum degi á flug-
vellinum og laumar oft skemmtilegri sögu með sem lystauka.
Baldvin H. Sigurðsson leiðir lesendur hér
í allan sannleika hvernig útbúa skal
„lambalærissneiðar að hætti íslenskra
heimila um miðja síðustu öld,“ eins og
hann tekur til orða.
„Setjið lærissneiðarnar í kæli og geymið
þar í þrjá daga. Lemjið létt fyrir mat-
reiðslu og skerið í gegnum skinnið og að-
eins innfyrir það, til þess að koma í veg
fyrir að kjötið verpist á pönnunni.
Pískið því næst saman egg og mjólk; fyr-
ir meðalfjölskyldu: eitt egg og þrír bollar
af mjólk.
Einnig þarf rasp; annað hvort keypt úti í
búð eða afgangsbrauð sem til fellur á
heimilinu og búið er að þurrka, hita í ofni
og hakka.
Leggið sneiðarnar í eggja- og mjólk-
urbaðið, raspið síðan hverja sneið og
bankið létt.
Hitið smjörlíki nokkuð vel á pönnu,
transfitulaust að sjálfsögðu; leggið sneið-
arnar á pönnuna og ef fitan er þokkalega
heit lokast kjötið og fitan síast ekki öll inn
í það. Brúnið kjötið beggja vegna þannig
að það verði gullinbrúnt, setið síðan í eld-
fast mót, hellið vatni ofan á, setið álpappír
yfir og setið inn í 180 gráðu heitan ofn í
hálftíma. Þá eru lambalærissneiðarnar
hennar mömmu tilbúnar.“
Meðlætið var í þetta skipti eins og hjá
mömmu og ömmu, segir kokkurinn; syk-
urbrúnaðar kartöflur, rauðkál, grænar
baunir frá Ora úr dós, og rabarbarasulta,
gerð úr rabarbara úr garðinum heima.
„Svo má hafa hrásalat til að þetta sýnist
eilítið hollt! En maturinn er hreint ekki
óhollur ef passað er að fitan sé nógu heit
og síist því ekki inn í kjötið heldur lokist
stykkið. Brauðraspið er líka bráðhollt; ég
tala nú ekki um ef það er afgangsbrauð úr
Bakaríinu við brúna …“
LAMBALÆRISSNEIÐAR EINS OG UM MIÐJA SÍÐUSTU ÖLD