Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 39
17.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Victoria Beckham sýndi tískulínu sínafyrir næsta haust á tískuvikunni í NewYork sem er nýlokið. Línan er allt öru-
vísi en fólk á að venjast af henni og undirrituð
fékk gæsahúð og hugsaði með sér að nú væri
hún búin að slá í gegn. Ég dáist að Victoriu
Beckham, jafnvel þótt hún spari brosin og gefi
ekki sérstaklega mikið af sér. En hverjum
myndi ekki líða svona í hennar stöðu, með alla
þessa krakkahrúgu, eiginmann sem virðist
gera lítið annað en að sitja fyrir á nærbrók-
unum, óþolandi aðstoðarfólk, endalausar ásak-
anir um átröskun, stöðugan þeyting á milli
landa, búferlaflutninga, rifrildi við fyrrverandi
meðlimi Spice Girls og ofan á allt kemst hún
ekki ein út í sjoppu því alls staðar eru ljós-
myndarar sem fylgja henni eftir. Á svona
augnablikum er ekkert annað í stöðunni en að
setja bara upp sólgleraugu og fýlusvip …
Í nýjustu línunni er mikið næmi í sniðagerð
og Beckham hefur gott lag á því að raða fötum
saman. Hún hefur einnig ákveðið innsæi þegar
kemur að litum og hvernig best er að púsla
þeim. Þetta sést best á klæðaburði hennar
sjálfrar. Klæðaburður hennar hefur þróast fal-
lega síðasta áratuginn. Hún byrjaði í magabol
með aflitað hár, með allt of mikla sólbrúnku og
of stóra sílikonpúða (sem settir voru yfir vöðva) yfir í að
skarta venjulegum „mömmubrjóstum“ með sítt hár í vönd-
uðum og elegant frúarfötum. Það verður reyndar að taka
mið af því að frú Beckham er að eldast (eins og við hinar …
því miður) og skinkulúkkið gæti hafa verið byrjendamis-
tök.
Fyrri fatalínur frú Beckham hafa verið klæð-
skerasniðnar á konur sem eru eins og hún í vext-
inum. Það gerði það að verkum að kúnnahópurinn
varð þröngur. Ríku konurnar sem eiga peninga
fyrir Beckham-kjólum (og fitusogi) fundu sig
fæstar í níðþröngum „pensil-kjólum“ með bera
handleggi og á 12 cm hælum. Nýja línan er af allt
öðrum toga sem mun gera það að verkum að
allskonar konur muni njóta sín í henni.
Það er kannski vegna skinkuáranna
sem frú Beckham hefur átt erfitt
uppdráttar í tískuheiminum.
Hennar fyrsta hönnunarvinna var
að gera gallabuxnalínu fyrir Rock
& Republic árið 2004. R&R var
mjög heitt gallabuxnamerki, svo
heitt að undirrituð fékk sér
einar slíkar þótt þær væru
ekki til í réttri stærð í búð-
inni. Af einhverjum bjart-
sýnisástæðum náði ég að
troða mér í þær inni í mát-
unarklefanum en þær voru
svo þröngar að ég óttaðist
alltaf að þær myndu
springa utan af mér ef ég
færi í þeim út úr húsi. Sem
gerði það að verkum að
ég gerði fátt annað en að
máta þær heima til að
tékka á því hvort ég væri
ekki örugglega búin að
grennast pínulítið. Þar
sem ég hef aldrei átt vigt
notaði ég R&R-gallabux-
urnar sem viðmið og blótaði
alltaf jafn mikið þegar björg-
unarhringurinn flæddi yfir
buxnastrenginn eins og eng-
inn væri morgundagurinn.
R&R-buxurnar mínar voru
lágar í mittið með „bootcut“-
sniði. Þegar sá dýrðardagur
rann upp að ég komst í bux-
urnar, gat andað í þeim og sest,
voru „skinny jeans“ komnar í
tísku.
martamaria@mbl.is
Skinkuárin draga
dilk á eftir sér
Svona leit hún út á
R&R-tímabilinu.
Victoria Beckham í víðri
skyrtu við gallabuxur
þegar hún sýndi á tísku-
vikunni í New York.
Haustlína
Victoriu
Beckham fyrir
næsta haust.
með breytilegu útliti nú á kynningarverði
MINIMA 5 PLÚS
títan umgjarðirnar
Ein umgjörð, eitt eða fleiri sett af örmum,
fjöldi lita, fjöldi forma, fjöldi áferða.
Léttar og sterkar títan umgjarðir.
Franskar hágæðaumgjarðir með 10 ára ábyrgð.
Margverðlaunuð
frönsk gæðaglerLíttu við!
Þar sem gæðagleraugu kosta minna
ReykjavíkuRveguR 22 • S. 565 5970 • SjonaRholl.iS
SJÓNARHÓLL
Tilboðsverð 64.000,-
með tveimur settum af örmum
Nýjungá Íslandi