Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Page 57
17.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Fimmtíu skuggar frelsis er síð-
asta bókin í þríleik E.L. James
um viðburðaríkt ástalíf Ana-
stasíu Steele og Christians
Greys. Þessar bækur njóta
gríðarlegra vinsælda um allan
heim þótt gagnrýnendur taki
þeim afar fálega. Þeir sem kjósa
vel skrifaðar og vitsmunalegar
bækur hljóta að hrökkva frá
þessum þríleik, en þeir sem
hafa ánægju af lýsingum á til-
brigðamiklu kynlífi og ólgandi
ástríðum munu fagna.
Þríleikurinn á miklum vin-
sældum að fagna á Íslandi og
þriðja bókin mun sennilega
hertaka metsölulistann næstu
vikurnar. Hún situr allavega
kirfilega á toppi metsölulistans
þessa vikuna.
Skuggaþrí-
leiknum lýkur
Það telst til tíðinda að íslenskar ljóðabækur
séu þýddar í heild og gefnar út erlendis, hvað
þá í fleiri en einu landi. Útgáfurétturinn á
hinni rómuðu bók Gerðar Kristnýjar,
Blóðhófnir, var þó á dögunum seldur á nær
sama tíma til tveggja forlaga á Norðurlönd-
unum, forlagsins Ariel í Svíþjóð og forlagsins
Savukeidas í Finnlandi. Áður hefur bókin
komið út í Danmörku, þar sem gagnrýnandi
Nordjysk Stiftstidende fagnaði henni með
fullu húsi af stjörnum og Torben Brostrøm
hjá Information sagði hana „snilldarlega og
orðaða með þokka“. Keith Richmond, ljóð-
listargagnrýnandi breska veftímaritsins Trib-
une Magazine, kallar bók Gerðar Kristnýjar
„Meitlað nútímameistaraverk“. Gerður
Kristný verður á faraldsfæti á næstunni við
að kynna verk sín víða um heim, meðal ann-
ars á ljóðahátíðum í Nicaragva, Washington
DC, Hamar í Noregi, Mariehamn á Álands-
eyjum, á ljóðahátíðinni Forum í Gautaborg, í
Stokkhólmi og Kólumbíu, og er þá ekki allt
upp talið.
Gerður Kristný. Ljóðabók hennar Blóðhófnir
fær frábærar viðtökur erlendis.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BLÓÐHÓFNIR
Á FLUGI
Hjarta mannsins, hin rómaða
skáldsaga Jóns Kalmans Stef-
ánssonar er komin út á frönsku.
Bókin er lokabindið í þríleiknum
marglofaða um drenginn og Plássið
en fyrri bækurnar tvær, Himnaríki
og helvíti og Harmur englanna,
hafa einnig komið út í Frakklandi og
fengið gríðarlega lofsamlega dóma.
Um síðustu helgi birtist frábær um-
fjöllun í L’Humanité um Hjarta
mannsins.
Óhætt er að segja að Fransmenn
kunni að velja fyrirsagnir á gagnrýni
sína en þau eru að þessu sinni:
Hjarta mannsins: Kjarni Íslands
skrifaður í snjóinn!
„Jón Kalman Stefánsson ætlaði
að verða geimfari,“ eru upphafsorð
greinarinnar. „Það er hann ekki. Til
allrar lukku fyrir bókmenntirnar!“ Frakkarnir segja að þríleikur Jóns Kalmans eigi uppruna
sinn í íslensku landslagi, en ljóðrænir og alltumlykjandi töfrar bókarinnar séu tilkomnir vegna
þess sérkennilega og spádómslega andrúmslofts sem hann skapar. Og hugsa sér, að „sem ung-
ur maður vann hann í fiski, til að geta keypt sér bækur“.
LUKKA AÐ KALMAN VARÐ EKKI GEIMFARI
Jón Kalman. Hjarta mannsins vekur athygli í Frakklandi.
Fyrstu skáldsögur Vilborgar
Davíðsdóttur, Við Urðarbrunn
og Nornadómur, eru komnar í
eina bók. Sagan gerist á upp-
hafsárum Íslandsbyggðar og
aðalsöguhetjan er ambáttin
Korka sem þarf sannarlega að
berjast fyrir sínu. Vilborgu læt-
ur einkar vel að skrifa um
sterkar konur og kann sömu-
leiðis að skapa spennu. Fjöl-
margir aðdáendur skáldkon-
unnar hljóta að fagna því að fá
sögu Korku í einni bók.
Saga ambátt-
arinnar Korku
í einni bók
Örlagsögur
kvenna og
náttúruöfl
NÝJAR BÆKUR
LJÓSA KRISTÍNAR STEINSDÓTTUR OG KORKU
SAGA VILBORGAR DAVÍÐSDÓTTUR ERU KOMN-
AR Í KILJU OG ÞVÍ AÐGENGILEGAR HINUM FJÖL-
MÖRGU AÐDÁENDUM SKÁLDKVENNANNA. BÓK
UM ÍSLENSK NÁTTÚRUÖFL ER Á MARKAÐI OG
SVO VITANLEGA METSÖLUBÓK UM ANNARS
KONAR NÁTTÚRU.
Skáldsaga Kristínar Steinsdóttur,
Ljósa, var ein af metsölubókum árs-
ins 2010 og fékk afar góða dóma
gagnrýnenda. Bókin kom út í kilju
árið 2011 og það er til marks um
vinsældirnar að þetta árið kemur ný
kiljuútgáfa.
Þetta er saga Ljósu sem elst upp í
afskekktri sveit seint á 19. öld. Þrátt
fyrir góð efni og ástríki frá fjöl-
skyldu vofir ógn yfir Ljósu.
Sívinsælt
verk í kilju
Náttúruvá á Íslandi er glæsilegt fræðirit. Þar fjalla helstu
sérfræðingar landsins um eldgos og jarðskjálfta. Greint frá
eðli þessara náttúrufyrirbæra og þeirri vá sem af þeim staf-
ar. Sagt er frá nýjustu rannsóknum í jarðvísindum og jarð-
skjálftafræði sem tengjast Íslandi. Um sextíu höfundar hafa
lagt til efni í bókina, og í henni eru nærri 1.000 ljósmyndir,
teikningar og skýringamyndir.
Fræðirit um eldgos
og jarðskjálfta
* Alvaran er mun hættulegri smitsjúkdómur en hláturinn.Svava Jakobsdóttir BÓKSALA 27. JAN.-9. FEB.
Allar bækur
Listinn er byggður á upplýsingum frá Rannsóknasetri verslunarinnar
1 Fimmtíu skuggar frelsisEL James
2 Lilli klifurmús og hin dýrin íHálsaskógi
Thorbjörn Egner
3 ÓsjálfráttAuður Jónsdóttir
4 Iceland Small WorldSigurgeir Sigurjónsson
5 Hver er égRichard David Precht
6 SjóræninginnJón Gnarr
7 IðrunHanne-Vibeke Holst
8 Uppskrift að fjöri með LatabæMagnús Scheving
9 Heilsuréttir fjölskyldunnarBerglind Sigmarsdóttir
10 Undir hraunSigurður Guðmundsson
Kiljur
1 Fimmtíu skuggar frelsisEL James
2 IðrunHanne-Vibeke Holst
3 Að velja gleðiKay Pollak
4 ÁstirJavier Marias
5 Boðskapur LúsifersTom Egeland
6 Lögreglustjóri NapoleonsStefan Zweig
7 GræðarinnAntti Tuomainen
8 Fimmtíu dekkri skuggarE L James
9 IllskaEiríkur Örn Norðdahl
10 ReykjavíkurnæturArnaldur Indriðason
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Mörg er búmanns raunin.