Morgunblaðið - 08.03.2013, Page 1
F Ö S T U D A G U R 8. M A R S 2 0 1 3
Stofnað 1913 56. tölublað 101. árgangur
UPPLIFUNIN, MATURINN, FÖTIN,
HÁRIÐ, MINNINGARNAR
80 SÍÐNA FERMINGARBLAÐ FYLGIR BLAÐINU Í DAG
Nokkrir staðir hafa verið einangr-
aðir síðustu daga vegna veðurs. Bet-
ur horfir með samgöngur í dag og
ættu allir að fá mjólkina og blöðin.
Seyðfirðingar hafa verið innilok-
aðir í tvo daga vegna ófærðar á
Fjarðarheiði. „Það er orðið fallegt
veður og við komumst aftur til æðri
byggða,“ sagði Ríkey Kristjáns-
dóttir, hótelstjóri á Hótel Öldunni, í
gærkvöldi. Lokun heiðarinnar hefur
sett strik í reikninginn hjá gestum
sem áttu pantað gistipláss. Afbók-
unum hafi rignt yfir en Ríkey segir
að á móti komi að aðrir gestir séu
innlyksa og þurfi að gista lengur.
Truflanir hafa verið á innanlands-
flugi síðustu daga. Í gær rættist úr
með alla staði nema Ísafjörð. Þang-
að hefur ekki verið flogið frá því á
laugardag. Reynt var á mánudag og
í gær en vélinni snúið við vegna snjó-
komu. Ágætt útlit er fyrir flug í dag
en staðan verður tekin árdegis.
Herjólfur gat ekki siglt milli Vest-
mannaeyja og Þorlákshafnar í gær
og fyrradag vegna storms og flug
hefur legið niðri. Farið er að bera á
vöruskorti í verslunum, til dæmis er
mjólk á þrotum. »4 og14
Fá mjólkina og póstinn í dag
Betur lítur út með samgöngur til einangraðra staða
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Tveir Króatar sem voru á leið til Ís-
lands voru stöðvaðir af norskum yf-
irvöldum á Gardermoen-flugvellinum
í Osló í lok febrúar á þeim grundvelli
að þeir uppfylltu ekki skilyrði til þess
að koma inn á Schengen-svæðið, sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglunni á
Suðurnesjum. Þeir munu ekki hafa
haft nægilegt fé til framfærslu.
Ekkert liggur fyrir um hvort Kró-
atarnir tveir hugðust sækja um hæli
hér á landi en næstum allir þeir króat-
ísku ríkisborgarar sem hafa sótt um
hæli hér á landi frá áramótum hafa
millilent í Osló. Síðast komu tveir
hælisleitendurnir hingað frá Króatíu,
í gegnum Osló, aðfaranótt þriðjudags.
Þar með voru hælisumsóknir frá kró-
atískum ríkisborgurum orðnar 40 frá
því seint á árinu 2012 og til dagsins í
dag.
Flestir frá sömu borginni
Í flestum tilfellum er um að ræða
fólk úr serbneska minnihlutanum eða
fólk í blönduðum hjónaböndum og
koma margir frá borginni Vukovar
sem er við landamærin að Serbíu.
Engin óyggjandi skýring á þessum
skyndilega straumi frá Króatíu hefur
fengist en ræðismanni Serbíu þykir
líklegast að sá orðrómur hafi farið af
stað að hér væri auðveldara að sækja
um hæli en víða annars staðar. Yfir-
völd hér á landi munu einnig hafa
fengið upplýsingar í þá veru.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur a.m.k. hluti hópsins frá
Króatíu sótt um hæli hér á landi á
efnahagslegum forsendum.
MGeti áfram ákært … »4
Íslandsför stöðvuð í Noregi
Hælisleitendur frá Króatíu millilenda í Osló Höfðu ekki fé til framfærslu
40 umsóknir á fáum mánuðum Hluti hópsins sótt um hæli hér vegna efnahags
Vill flóttamannamiðstöð
» Lögreglustjórinn á Suður-
nesjum gerir athugasemd við
að bannað er að refsa hælis-
leitendum fyrir að framvísa
fölsuðum eða stolnum skilríkj-
um, líkt og gert er í frumvarpi
til útlendingalaga.
» Umsóknir um hæli á þessu
ári eru tæplega 60.
Gylfi Þór Sigurðsson kom mikið við sögu þegar
Tottenham Hotspur vann glæsilegan sigur á Int-
er Mílanó, 3:0, í Evrópudeild UEFA í gærkvöldi.
Gylfi skoraði eitt marka Tottenham og lagði
annað upp fyrir Gareth Bale en hér fagna liðs-
félagarnir Gylfa eftir mark hans. » Íþróttir
Skoraði eitt mark og lagði annað upp fyrir Bale
AFP
Gylfi Þór Sigurðsson lét mikið að sér kveða þegar Tottenham vann Inter Mílanó í gærkvöldi
„Ég á nú alveg eftir að sjá að þetta
fari út úr stjórnskipunar- og eftir-
litsnefnd. Ég er ekki viss um að það
sé meirihluti fyrir því inni í þeirri
nefnd,“ segir Margrét Tryggvadótt-
ir, þingmaður Hreyfingarinnar og
fulltrúi í stjórnskipunar- og eftirlits-
nefnd Alþings, um frumvarp Árna
Páls Árnasonar um breytingar á
stjórnarskránni. Þá bendir Margrét
á að hún telji að það sé ekkert endi-
lega meirihluti fyrir umræddu frum-
varpi í stjórnarmeirihlutanum.
Að sögn Guðmundar Steingríms-
sonar, formanns Bjartrar framtíðar,
munu þingmenn flokksins ekki
styðja vantrauststillögu Þórs Saari.
Segir hann ástæður þess vera tvær,
annars vegar sé nú verið að fara þá
leið í stjórnarskrármálinu sem þeir
hafi lagt til og auk þess sé van-
trauststillaga merkingarlaus þegar
svona stutt er í kosningar. „Það er
mjög mikilvægt að þeir flokkar sem
vilja halda áfram heildarendur-
skoðun stjórnarskrárinnar fái góða
kosningu í næstu alþingiskosn-
ingum,“ segir Guðmundur.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins mun Magnús Orri
Schram, þingmaður Samfylking-
arinnar, leiða vinnu meirihlutans í
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í
stjórnarskrármálinu hér eftir. Von
er á sérfræðingum á sviði lögfræði
og stjórnskipunarréttar á fund
nefndarinnar í dag og munu þeir
veita umsagnir um málamiðlunar-
tillögur sem fram eru komnar í
stjórnarskrármálinu. »22
Telur mál-
ið geta
dagað uppi
í þingnefnd
Margrét
Tryggvadóttir
Fá sérfræðinga
til fundar í dag
Guðmundur
Steingrímsson
Sigurður Gunnarsson verktaki
vinnur að því að reisa átta ein-
býlishús í Þorrasölum í Kópa-
vogi. Hann er hvergi bang-
inn og segir að ávallt séu
tækifæri í hvaða árferði sem
er.
„Mín sérstaða liggur í
því að ég er sá eini sem
er að reisa einbýlishús
um þessar mundir, aðr-
ir eru að byggja
blokkir,“ segir Sig-
urður sem hefur þeg-
ar afhent tvö hús og
er við það að afhenda það þriðja.
Að sögn Sigurðar er eftirspurn eft-
ir einbýlishúsum á einni hæð og
því hafi hann ákveðið að fara í
verkefnið. Hvert hús kostar um
60 milljónir og ef allt gengur eft-
ir verður því veltan af sölunni
um 480 milljónir króna.
Fimm vinna hjá Sigurði
við að reisa húsin en
vinna við fyrsta húsið
hófst fyrir tveimur
árum og áætlar hann
að verkefnið taki sex
ár. »19
Verktaki reisir átta einbýlishús í Kópavogi
Sigurður
Gunnarsson