Morgunblaðið - 08.03.2013, Side 11
Fróðleikur Beggi heldur tölu um mikilvægi þess að einblína á hollt mataræði og eys úr viskubrunni sínum.
vikna fresti, á fimmtudagskvöldum
eftir vinnu, til að taka þátt í fjöl-
breyttri dagskrá. „Þarna fá þau
tækifæri til að hitta aðra í sömu
sporum og hafa gaman.“ Kristján er
íþróttafræðingur að mennt og hafði
sjálfur litla þekkingu á því hvernig
það er að ganga í gegnum krabba-
meinsmeðferð áður en hann tók við
hópnum. „Ég var fenginn af félaga
mínum sem var með hópinn áður, en
hann gat ekki haldið áfram með hóp-
inn sökum anna. Hann taldi sig geta
treyst mér fyrir þessu og mér leist
strax vel á þetta. Fannst mikil
áskorun að taka við þessum hópi.“
Dagskráin er verulega fjöl-
breytt. Hópurinn hefur farið í skíða-
ferð, keilu, gokart, haldið heilsu-
kvöld og pubquiz-kvöld svo eitthvað
sé nefnt og á stefnuskránni er rat-
leikur í anda Amazing Race, ferð í
klifurhúsið, leikhúsferð og opið hús.
„Þetta er aðallega hugsað sem fé-
lagslegur stuðningur. Flestir sem
hafa komið reglubundið síðastliðin
tvö ár hafa lokið sinni meðferð en
hingað kemur líka fólk sem er í með-
ferð. Þau koma mörg hver upp úr
Styrktarfélagi krabbameinssjúkra
barna en þar er virkt starf til 18 ára
aldurs og þá er þeim velkomið að
koma hingað til okkar og vera þá
áfram.“
Bjartsýnn og jákvæður hópur
Það eru um tuttugu manns sem
mæta reglubundið að sögn Kristjáns
og hvetur hann allt ungt fólk sem á
að baki sömu reynslu til að mæta.
„Þegar við hittumst spjöllum við
bara um daginn og veginn. Þegar ég
var að koma nýr inn í starfið rædd-
um við aðeins nánar saman og ég
spurði þau um bakgrunn þeirra.
Mér fannst auðvitað átakanlegt að
heyra sögurnar frá þeim. Það er
mjög áhugavert að fá að kynnast því
sem þau hafa þurft að ganga í gegn-
um og mér finnst þau upp til hópa
ótrúlega bjartsýn, jákvæð og öflug.
Oft þegar kemur svona marglitur
hópur saman verður kannski ein-
hver útundan en því er alls ekki far-
ið þannig hjá okkur. Þeir sem vilja
leita til okkar geta gert það í gegn-
um fésbókarsíðu okkar, Ungliðahóp-
urinn 2012-2013, eða leitað til félag-
anna þriggja, Ljóssins, Krafts eða
SKB.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2013
Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | www.borgun . i s
Með Borgun tekur þú
við öllum kortum
– hvar og hvenær sem er
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Inngangur
að lögfræði
Ketilbjöllur
3.350 kr.
8.390 kr.3 nætur
á Mývatni 46.370 kr.
Vefverslun á að
virka alls staðar
Meira en helmingur Íslendinga notar netið með farsímum
og spjaldtölvum. Er þín vefverslun tilbúin?
Fáðu frekari upplýsingar á borgun.is/vefgreidslur eða í síma 560 1600
Halla Kristín Jónsdóttir, 24 ára, er
ein þeirra sem hafa nýtt sér Ung-
liðahópinn reglubundið. Það hefur
þó verið eitthvað minna um að
hún hafi getað hitt hópinn undan-
farið þar sem hún er með átta
mánaða gamlan dreng og er búin
að vera í fæðingarorlofi. Hún seg-
ir þó síðasta hitting standa svolít-
ið upp úr hvað varðar að vera
bæði eftirminnilegur og skemmti-
legur þar sem þá var farið í skíða-
ferð í Bláfjöll. „Ég var að æfa
skíði með Ármanni áður en ég
greindist. Ég reyndi að halda eitt-
hvað áfram en það fjaraði fljót-
lega út, þannig að ég hef verið lít-
ið á skíðum undanfarið en finnst
þetta alltaf jafnskemmtilegt.“
Halla Kristín greindist með
krabbamein í skjaldkirtlinum árið
2005, þá aðeins 16 ára gömul.
Meinið dreifðist síðan út í eitlana
og hefur meðferðin verið frekar
erfið. „Það er búið að skera mig
sjö sinnum og ég hef farið í þrjár
geislajoðmeðferðir. Ég var seinast
bara í skoðun í síðustu viku. Þetta
er enn í eitlunum en er bara það
lítið að það er ekkert gert núna
og það þarf bara að bíða og sjá.
Æxlið þarf að vera nógu stórt til
þess að það sé reynt að ráðast á
það.“
Halla Kristín segir Ungliðahóp-
inn hafa reynst sér vel og sér þyki
gott að fá að kynnast ungu fólki
sem er í svipaðri stöðu og hún.
„Það er líka gott að hafa eitthvað
fyrir stafni og eitthvað til að
hlakka til. Þetta er sérstaklega
gott fyrir þá sem hafa ekkert mik-
ið að gera annars,“ segir Kristín
að lokum.
Gott að hafa eitthvað fyrir stafni
GREINDIST 16 ÁRA MEÐ KRABBAMEIN Í SKJALDKIRTLI
Eldamennska Halla Kristín, klædd fjólubláu, er hér niðursokkin í matargerð.