Morgunblaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2013
Tærleiki sem varir
ClarvistaTM glerið er húðað
með sérstöku efni sem lokar yfirborði
þess og myndar verndarhjúp
ClarvistaTM glerið helst
sem nýtt um ókomna tíð
Auðvelt að þrífa
ARINGLER
BORÐPLÖTUR
EINANGRUNARGLER
ELDVARNARGLER
HAMRAÐ GLER
SJÁLFHREINSANDI
SKJÓLVEGGIR
SÓLVARNARGLER
SPEGLAR
STURTUGLER
ALLT
Í GLERI HANDRIÐ
K-GLER
MILLIVEGGIR
SANDBLÁSIÐ
VEGGKLÆÐNING
ÞAKGLER
ÞAKSKYGGNI
ÖRYGGISGLER
O.FL. O.FL.
smiðjuvegi7 • kópavogi
54 54 300
GLER OG SPEGLAR
NÝJUNG Á ÍSLANDI
Clarvista™Gler
fyrirSTURTUKLEFANN
CE
VO
TT
UÐ
FR
AM
LE
IÐ
SL
A
Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
Aðalmeðferð í hinu svokallaða Al-
Thani-máli hefst 11. apríl nk. Þetta
kom fram við fyrirtöku málsins í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær. Ákæru-
valdið hefur lokið gagnaöflun og fagn-
ar því að dómari hafi ákveðið að halda
áætlun.
Verjendur eru aftur á móti ósáttir
við tímasetninguna og segjast þurfa
lengri tíma til að kynna sér ný gögn
sem ákæruvaldið hefur lagt fram.
Dómari sagði að það væri ekki hægt
að fresta málinu um ótiltekinn tíma.
Björn Þorvaldsson, saksóknari hjá
embætti sérstaks saksóknara, segir
að verjendurnir séu að reyna að tefja
það með því að óska eftir því að aðal-
meðferðinni verði frestað svo þeir
geti kynnt sér framlögð gögn. „Þetta
kemur alltaf fram í þessum málum,
að verjendur eru að reyna að tefja
málin. Það er að koma í ljós núna –
korteri fyrir aðalmeðferð – að ýmsu
er teflt fram,“ segir Björn. Ragnar H.
Hall, verjandi Ólafs Ólafssonar, segir
það af og frá að verið sé að tefja mál-
ið. „Við höfum engan áhuga á því; við
viljum gjarnan klára þetta mál,“ segir
hann.
„Það kemur bara á daginn að málið
er ekki tilbúið til aðalmeðferðar að
okkar áliti. Það er verið að láta okkur
hafa gögn í dag sem skipta verulegu
máli og kunna að kalla á frekari
gagnaöflun af okkar hálfu. Og tíminn
til þess er mjög stuttur.“ Meðal
þeirra gagna sem hafi verið lögð fram
í dag sé samningurinn við Al-Thani
sem sé stórmál. „Það er samið við
hann um fullnaðaruppgjör á þeirri
skuldbindingu sem hann tók á sig
gagnvart Kaupþingi,“ segir Ragnar.
Ný borðsímtöl
Spurður út í ný gögn ákæruvalds-
ins segir Björn að um sé að ræða „ný
borðsímtöl“ sem bárust frá Lúx-
emborg í kjölfar húsleita sem emb-
ættið framkvæmdi þar í tengslum við
annað mál. „Þar fengum við þessi
símtöl, rafræn gögn, sem við vorum
ekki komin með þegar ákæra var gef-
in út í þessu máli. Þar koma í ljós sím-
töl sem varða þetta mál beinlínis.“
Fram kom í gær að þeir Sheikh Al-
Thani, Sheikh Sultan og Simon Sout-
hall hefðu hafnað að mæta til að gefa
skýrslu við aðalmeðferðina. „Við höf-
um því miður engin úrræði til að fá
þá,“ segir Björn.
Verjendur óskuðu eftir fresti til að-
almeðferðar þar sem farið var fram á
að Hæstaréttarmál um frávís-
unarkröfu í málinu yrði endur-
upptekið. Af hálfu ákæruvaldsins var
þessu mótmælt og þess krafist að
áætlun héldist. Þá krafðist Ragnar
þess að dómari rökstyddi ákvörðun
sína um tímasetninguna í úrskurði.
Varðandi síðastnefnda atriðið segir
Björn að dómarinn hljóti að úrskurða
að menn skuli halda áætlun. Hann
tekur fram að úrskurðurinn sé kær-
anlegur til Hæstaréttar en vonandi
leiði þetta ekki til tafa.
Morgunblaðið/Golli
Fyrirtaka Björn Þorvaldsson saksóknari, lengst til vinstri, og verjendur heilsast í héraðsdómi í gær.
Teflt fram „korteri
fyrir aðalmeðferð“
Aðalmeðferð hefst 11. apríl Verjendur vilja fá frest
Konur hafa mikinn áhuga á að ríða
um á skautasvellinu í Laugardal. 100
konum verður hleypt inn á svellið í
ístöltsmótinu „Svellkaldar konur“
og var fullbókað á klukkustund.
„Við megum ekki skrá nema 100
konur á svellið, það tekur ekki
meira. Áhugi kvenna á að taka þátt
er svo mikill að við hefðum getað
skráð 200 keppendur,“ segir Berg-
lind Ragnarsdóttir sem vinnur að
skipulagningu mótsins sem fram fer
laugardaginn 16. mars. Bók-
unarkerfi Landssambands hesta-
mannafélaga er þannig að hefja
verður skráningu á miðnætti. Var
opnað fyrir á miðnætti aðfaranótt
þriðjudags og var ætlunin að hafa
opið í tvo sólarhringa. Konurnar
hafa beðið við tölvuna því fullskráð
var á mótið fyrir klukkan eitt um
nóttina. Keppt verður í nokkrum
styrkleikaflokkum. Vegleg verðlaun
eru í boði fyrir sigurvegara. Ágóð-
inn rennur til íslenska landsliðsins í
hestaíþróttum. helgi@mbl.is
Fullbókað á tæpri
klukkustund
100 skráðu sig á ístöltsmótið
„Svellkaldar konur“ á skautasvellinu
Verulegu magni
af rækjum og
svínakjöti var
stolið úr frysti-
gámi í Sunda-
görðum síðasta
föstudag. Þjóf-
arnir voru á ferð-
inni eftir kl. 17 á föstudaginn en
innbrotið var tilkynnt á laugar-
dagsmorgun. Í tilkynningu frá lög-
reglu segir að ljóst sé að þeir sem
þarna voru að verki hafi þurft að
leggja mikið á sig til að komast yfir
matvælin þar sem gámurinn sé á
lokuðu svæði fyrirtækisins Mata.
Lögregla biður þá sem hafa upplýs-
ingar um málið að hafa samband.
Stálu verulegu
magni af rækjum
og svínakjöti
Í Al-Thani-málinu eru ákærðir Hreiðar Már Sig-
urðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings banka,
Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnar-
formaður bankans, Magnús Guðmundsson, fyrr-
verandi forstjóri Kaupþings banka í Lúxemborg,
og Ólafur Ólafsson, sem átti stóran eignarhlut í
bankanum.
Þeir Hreiðar Már og Sigurður eru ákærðir fyrir
umboðssvik og markaðsmisnotkun og þeir Magn-
ús og Ólafur fyrir hlutdeild í þeim. Hreiðar er m.a.
ákærður fyrir að hafa misnotað aðstöðu sína sem
forstjóri bankans, þegar hann fór út fyrir heim-
ildir sínar til lánveitinga með því að láta bankann veita eignalausu félagi,
í eigu Al-Thani sjeiks í Katar, á Tortola 50 milljóna Bandaríkjadala lán án
þess að lánið væri tryggt og án samþykkis lánanefndar bankans.
Lánað án heimildar
ÁKÆRÐIR FYRIR UMBOÐSSVIK OG MARKAÐSMISNOTKUN
Eldsneytisbirgðir Landhelgisgæslu
Íslands á öryggissvæðinu á Keflavík-
urflugvelli eiga rætur sínar að rekja
til Atlantshafsbandalagsins, NATO.
Þetta kemur fram í svari Landhelg-
isgæslunnar við fyrirspurn Morg-
unblaðsins.
„Þetta eru birgðir sem að NATO
hefur komið með hingað til lands til
nota á þessum ratsjárstöðvum hér á
landi. Ég veit ekki nákvæmlega hvort
þetta er eitthvað sem var skilið eftir
af varnarliðinu en að minnsta kosti
eru þetta olíubirgðir sem NATO hef-
ur útvegað og eru geymdar hérna út
af þessum rekstri hér á landi,“ segir
Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir,
upplýsingafulltrúi Landhelgisgæsl-
unnar.
Í svari Gæslunnar kemur jafn-
framt fram að umrætt eldsneyti sé
notað til keyrslu ljósavéla, til kynd-
ingar og á vinnuvélar. Auk þess segir
þar að til að hagræða í rekstri hafi
Landhelgisgæslan valið að nýta elds-
neytið einnig til að blanda saman við
þegar eldsneyti er tekið á varðskipin
og þar með lengja úthald þeirra fyrir
rekstrarárið 2013. Hlutfallið í blönd-
unni er nnan við 10%. skulih@mbl.is
Varðskipin notast við eldsneyti NATO
Landhelgisgæslan hyggst hagræða
í rekstri með því að blanda í eldsneyti
Morgunblaðið/Ómar
Varðskipið Þór Landhelgisgæslan hefur í hagræðingarskyni valið að nýta
eldsneyti frá NATO til að blanda saman við eldsneyti á varðskipin.