Morgunblaðið - 08.03.2013, Side 16

Morgunblaðið - 08.03.2013, Side 16
SVIÐSLJÓS Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbli.is Birgir Ármannsson, Brynjar Níels- son og Guðlaugur Þór Þórðarson eru meðal þeirra ellefu frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins sem eiga eftir að skila uppgjöri eða yfirlýsingu til Rík- isendurskoðunar um að tekjur og kostnaður hafi verið undir 400.000 krónum vegna prófkjörsbaráttu á síðasta ári. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi og Reykjavík fóru fram í nóvember. Frambjóðend- urnir hefðu því samkvæmt lögum um fjármál stjórnmálasamtaka átt að skila uppgjöri eða yfirlýsingu eigi síð- ar en 10. eða 24. febrúar síðastliðinn, þremur mánuðum eftir kjördag. Birgir gaf þær skýringar að skilin hefðu tafist af ástæðum sem væru al- farið á hans ábyrgð, en uppgjör væri „alveg á leiðinni“. Brynjar sagði að síðustu reikningar hefðu ekki borist fyrr en í byrjun þessarar viku og því ómögulegt að skila uppgjöri fyrr. Því yrði skilað fyrir helgi. Guðlaugur Þór sagði að uppgjöri yrði skilað mjög fljótlega. Hann gaf þær skýringar að þingannir hefðu komið í veg fyrir að hægt hefði verið að ganga frá því fyrr. Einungis frambjóðendur í próf- kjörum Sjálfstæðisflokksins hafa ekki skilað þessum gögnum innan til- skilins frests. 11 af þeim 39 einstak- lingum sem tóku þátt í prófkjörum flokksins og ættu að hafa skilað gögn- um hafa enn ekki get það. Allir fram- bjóðendur í prófkjörum Samfylking- arinnar og Framsóknarflokksins hafa skilað uppgjöri eða yfirlýsingu. Allir undir 400.000 krónum Allir þátttakendur í prófkjörum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, nema tveir, hafa skilað yf- irlýsingu til Ríkisendurskoðanda. Það þýðir að heildarkostnaður hvers og eins þeirra frambjóðenda var und- ir 400.000 króna markinu. Þeir tveir sem ekki höfðu skilað þegar Ríkis- endurskoðun gaf síðast skýrslu hafa enn fáeina daga til stefnu. Eygló Harðardóttir, ritari Fram- sóknarflokksins, sagði að stjórn flokksins hefði ekki sett reglur um hve miklum fjármunum frambjóð- endur mættu verja í kosningabaráttu sinni. Hins vegar hefði verið mælst til þess að kostnaði væri haldið í lág- marki. Framsóknarflokkurinn reyndi jafnframt að velja á framboðs- lista sína með sem ódýrustum hætti, bæði fyrir frambjóðendur og flokkinn sjálfan. Að sögn Auðar Lilju Erlingsdótt- ur, framkvæmdastýru VG, kosta þátttakendur í forvali hreyfingarinn- ar framboð sitt ekki sjálfir. Frambjóðendur sammælast um að VG gefi út sameiginlegan framboðs- bækling þar sem öllum frambjóðend- um gefst jafn kostur á að koma sér á framfæri. Eins sé haldinn sameigin- legur framboðsfundur. Sjálfstæðismenn skila seint  Ellefu þátttakendur í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins hafa ekki skilað upplýs- ingum um kostnað  Ekki vanskil hjá frambjóðendum annarra flokka Morgunblaðið/Golli Prófkjör Guðlaugur Þór Þórðarson, Brynjar Níelsson og Hanna Birna Kristjánsdóttir hlýða á fyrstu tölur úr próf- kjörinu í Reykjavík í nóvember í fyrra. Hvorki Brynjar né Guðlaugur hafa skilað uppgjöri til Ríkisendurskoðunar. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2013 Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS) hefur gefið út bók sem nefn- ist Málþóf. Í bókinni, sem er á fimmta hundrað síður, er lengsta þingræða sögunnar birt í heild sinni. Ræðan var flutt af Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á Alþingi frá kl. 12.27 fimmtudaginn 14. maí 1998 til kl. 0.37 föstudaginn 15. maí 1998 og fjallaði hún um húsnæðismál. „SUS finnst viðeigandi að gefa bókina út nú þegar ríkisstjórn Jó- hönnu Sigurðardóttur, sem á ís- landsmet í málþófi, heldur því fram að stjórnarandstaðan beiti málþófi til að hindra að mál fari í gegnum þingið. Síðan Jóhanna flutti ræðuna hefur ræðutími verið takmarkaður þannig að líklega verður met henn- ar seint slegið,“ segir í tilkynningu frá útgefanda. Bókin kostar 5.990 kr. en hana er hægt að kaupa á www.sus.is/ vefverslun. „Þetta er gjafverð fyrir tímamótaræðu sem aldrei hefur komið út áður,“ segir í tilkynningu frá SUS. Lengsta þingræðan komin út á bók  Jóhanna talaði í 13 klukkustundir Fjórar stórar matvöruverslanir, Hagkaup, Nóatún, Víðir og Kostur neita enn að taka þátt í verðkönn- unum ASÍ. Hagdeild ASÍ fær út- hlutað fjármagni úr ríkissjóði, m.a. til að sinna verðlagseftirliti. „Mér finnst eðlilegt að það sé skoðað, hvort ekki þyrfti að fá aðra aðila til að koma að verð- könnun á matvöru, svo þetta gangi upp,“ segir Þórunn Anna Árna- dóttir, sviðsstjóri Neytendastofu. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segist vilja hafa milli- göngu um að ná fram sátt, sé þess óskað, svo hægt væri að fram- kvæma þessar kannanir. „Mér sýnist þessir aðilar ekki vera að deila um sama hlutinn. Það er hægt að keppa á tvennum víg- stöðvum, í verði annars vegar og gæðum hins vegar. Neytendur geta greint þarna á milli,“ segir Gísli. ASÍ segir að í fyrradag hafi starfsmönnum verðlagseftirlitsins verið vísað á dyr í fyrrgreindum verslunum líkt og í síðasta mánuði. „Ætla má að verslanir sem vilja ekki að vöruverð sitt birtist op- inberlega og því síður borið saman við vöruverð annars staðar séu að leita skjóls til verðhækkana,“ segir í tilkynningu frá ASÍ. Þessu vísaði Gunnar Ingi Sig- urðsson, framkvæmdastjóri Hag- kaups, á bug í tilkynningu. Samtök atvinnulífsins (SA) sögð- ust í gær ekki taka undir aðdrótt- anir í garð einstaka fyrirtækja af hálfu ASÍ en bentu á að ágrein- ingur um verðkannanir hefðu var- að um árabil og aðildarfélög sam- takanna ítrekað gagnrýnt þann óáreiðanleika, sem birst hefði í niðurstöðum ASÍ. SA segjast jafn- framt reiðubúin til að vinna af heilum hug að markmiðum um að- hald að verðhækkunum í tengslum við kjarasamninga. thorunn@mbl.is Verðkönnunardeila á ný  Ágreiningur ASÍ og fjögurra verslun- arkeðja fer vaxandi Matvara Tekist á um kannanir. Endurvinnslutunnan er raunhæfur valkostur! Söludeild Hringhellu 6 • 221 Hafnarfjörður • Sími 535 2510 • gamar@gamar.is • endurvinnslutunnan.is Kynnið ykkur vel hvaða valkostir eru í boði: Þið eigið val um að panta Endurvinnslutunnuna frá Gáma- þjónustunni en í hana má setja SJÖ flokka af endurvinnsluefnum. Okkar lausn er umhverfisvæn, ódýr og sparar þér sporin. Kynnið ykkur allt um Endurvinnslutunnuna á endurvinnslutunnan.is m ag gi @ 12 og 3. is 21 .8 50 /0 1. 13 Pappi Pappír Dagblöð/ tímarit Fernur Rafhlöður Málmar Plast- umbúðir Fyrir 7 árum hóf Gámaþjónustan hf. að bjóða upp á Endurvinnslutunnu á höfuðborgarsvæðinu til flokkunar á heimilissorpi. Í hana mega fara SJÖ flokkar af efnum, allt laust í tunnuna nema rafhlöður sem fara í þar til gerða poka. Aðeins Endurvinnslutunnan bíður upp á þetta marga flokka í sömu tunnu, sem er mikil hagræðing. Allt sem í Endurvinnslutunnuna fer er síðan flokkað í móttöku- og flokkunarstöð Gámaþjónustunnar hf., baggað og gert klárt til útflutnings. Endurvinnsla okkar er ábyrg og örugg! ET+ Þarft þú að losna við raftæki? Við sækjum stærri raftæki til viðskipta- vina Endurvinnslutunnunnar þeim að kostnaðarlausu. Ekkert skrefagjald! Mögulegt samstarf Íslands og Evr- ópuríkja um flutning raforku um sæ- streng var rætt á fundi Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra og Günther Oettinger orkumála- stjóra Evrópusambandsins og full- trúa Þýskalands í framkvæmda- stjórn ESB í gær. Fram kemur í fréttatilkynningu utanríkisráðu- neytisins að slíkt samstarf kynni að skapa mikla möguleika í framtíðinni. Oettinger flutti ræðu á alþjóðlegu jarðhitaráðstefnunni í Hörpu. Utan- ríkisráðherra greindi Oettinger frá áformum Íslendinga um nýtingu og vinnslu á olíu. Rætt var um aðkomu Íslendinga að þróun jarðhitanýting- ar í Evrópu og sagði Oettinger frá því að auka ætti hlut jarðhitans veru- lega í orkukerfi Evrópu í samræmi við markmið um aukna nýtingu end- urnýjanlegra orkugjafa. Össur og Oettinger ræddu einnig samningskröfur Íslendinga í orku- málum í aðildarviðræðum við ESB. Fundað Össur Skarphéðinsson og Günther Oettinger orkumálastjóri. Ræddi sæ- streng við stjóra ESB

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.